Bændablaðið - 24.09.2015, Qupperneq 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015
Rangárþing eystra ákvað að
láta lagfæra nokkrar eldri brýr
í Þórsmörk og smíða þrjár nýjar
færanlegar göngubrýr sem áttu
að vera á hjólum. Nú er búið að
smíða eina slíka hjólabrú sem
væntanlega á eftir að nýtast
gangandi ferðamönnum vel.
Í aðdraganda að smíð nýrra
göngubrúa var farið í vett-
vangskönnun síðla árs 2014 til að
kanna aðstæður og meta ástand
þeirra brúa sem lagfæra þyrfti.
Þessi framkvæmd var hugsuð til
að bæta aðgengi fótgangandi ferða-
manna um svæðið. Niðurstaðan var
sú að í fyrstu atrennu yrði smíðuð
30 metra löng færanleg brú á hjól-
um.
Hugmyndin var að uppistað-
an í brúarsmíðinni yrði gamlar
kranabómur eða álíka grindur. Var
Vélsmiðjan Magni ehf. á Hvolsvelli
fengin til verksins. Undirverktaki
vélsmiðjunnar er K2 tækniþjón-
usta. Hefur eigandinn, Kristján
Fr. Kristjánsson, annast útfærslu
og stærstan hluta brúarsmíðinnar,
en haft starfsmenn Vélsmiðjunnar
Magna sér til aðstoðar.
Kristján segir að stálgrindurnar
sem fengust hafi ekki reynst haft
nægan styrk einar og sér. Voru þær
því styrktar með skúffubitum að
neðanverðu og eins var smíðað
handrið sem er hluti af burðarvirk-
inu. Jafnframt var brúin lítillega
forspennt. Hjólabúnaður brúarinn-
ar eru framöxlar úr Mercedes Benz
vörubíl með beygjubúnaði sem
hægt er að tengja við dráttarbeisli.
Kristján segir að smíðin hafi
verið miðuð við að hafa þetta sem
einfaldast en um leið að brúin yrði
örugg fyrir þá sem sem nota hana.
Hún er hönnuð til að þola þriggja
tonna þunga. Tekur hann fram að
brúin sé eingöngu hugsuð sem
göngubrú fyrir fólk og alls ekki
ætluð fyrir hross né annað búfé.
Brúin var flutt inn að Krossá í
lok júlí í tveim hlutum sem dregnir
voru með dráttarvél frá Hvolsvelli.
Síðan var allt boltað saman á staðn-
um.
Helstu stærðir.
• Breidd um 0,9 metrar.
• Lengd: 30 metrar
• Burður: 3 tonn.
• Burðarefnið er stál, en brúar-
gólf er úr timbri.
Fram undan er síðan smíði á tveim
færanlegum göngubrúm til viðbót-
ar og að lagfæra eldri göngubrýr á
svæðinu sem hafa látið mjög á sjá.
Greinilega veitir ekki af í ljósi auk-
ins ferðamannastraums og því að
ein göngubrú sem er við Langadal í
Þórsmörk skemmdist í vatnavöxtum
í Krossá á dögunum. /HKr.
Fréttir
Færanleg göngubrú yfir Krossá
fyrir Þórsmerkurfara
− með hjólabúnað úr Mercedes Benz og hægt að forða henni í vatnavöxtum
Kristján Fr. Kristjánsson og sonur hans og aðstoðarmaður, Kristján Fannar Kristjánsson, á nýju 30 metra löngu
göngubrúnni sem ætlað er að koma göngufólki á þurrum fótum inn í Þórsmörk. Eins og sést er hún á hjólum og
því auðvelt að færa hana úr stað og forða henni frá tjóni þegar hætta er á miklum vatnavöxtum í Krossá.
Myndir / Jakob Yngvason
Brúin er með samanbrjótanlegum stigum á báðum endum til að auðvelda
Alvöru vambir verða í boði
Bæði Sláturfélag Suðurlands og
SAH Afurðir verka vambir í yfir-
standandi sláturtíð.
Samkvæmt upplýsingum frá
Ólafi Júlíussyni hjá Kaupási verð-
ur boðið upp á þrjár kalóneraðar
vambir saman í poka strax í þessari
viku á sláturmörkuðum í Krónunni
á Selfossi og Nóatúni í Austurveri.
SAH Afurðir eru þegar farnir að selja
vambir í verslun sinni á Blönduósi
og ætla að eiga vambir til sölu í sam-
ræmi við þá eftirspurn sem verður.
SS aftur byrjað að kalóna vambir
Kaupás fær sínar vambir frá
Sláturfélagi Suðurlands sem er aftur
farið að kalóna vambir eftir árs hlé.
Í sláturtíðinni í fyrra heyrðust
háværar óánægjuraddir neytenda
með það að ekki væri hægt að fá
alvöru vambir í verslunum. SAH
Afurðir á Blönduósi brugðust við
og undir lok sláturtíðar var hægt að
fá vambir frá Blönduósi á tilteknum
sláturmörkuðum Krónunnar. /smh
Vambirnar komnar á borðið. Mynd / HKr.
Þann 5. október nk. mun Vélfang
leggja af stað í hringferð um
landið og verður fyrsti sýningar-
staðurinn á Hvanneyri og sá síð-
asti í Reykholti í Biskupstungum
þann 16. október.
Alls eru viðkomustaðirnir 28 og
er m.a. farið um Vestfirði að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá
Vélfangi.
Starfsfólk Vélfangs hefur staðið
í samningaviðræðum við veður-
guðina og hafa þær viðræður að
sögn gengið vel. Veður og færð
gætu samt spilað stóra rullu á þess-
um árstíma en allt verður lagt undir
til að tímasetningar standist.
Þann 9. október verður svo
haldin stórsýning við Vélfang á
Akureyri að Frostagötu 2a frá
10–16 þar sem öllu verður til
tjaldað. Um kvöldið fer svo fram
formleg opnun umboðs Vélfangs á
Akureyri enda ekki seinna vænna
þar sem opnað var í desember
2014. Veislan hefst klukkan 18 og
mun standa til 22 og verða léttar
veitingar í boði.
Allir sem heimsækja
Vélfangsmenn í ferðinni geta dottið
í lukkupottinn og verður dregið í
lok ferðar. Til þess þarf þó að skrá
sig á þar til gerð eyðublöð og setja
í stóra pottinn.
Vélfang á hringferð
um landið í október
„Þarna hefur verið malarnám í
áratugi og nú í sumar var ekki
um að ræða mikið magn sem tekið
var,“ segir Þröstur Friðfinnsson,
sveitarstjóri í Grýtubakkahrepppi,
um malarnám Vegagerðarinnar á
bökkum Fnjóskár skammt ofan
við ósa árinnar.
Bergvin Jóhannsson, bóndi á
Áshóli, lýsti yfir áhyggjum sínum yfir
malarnáminu í síðasta Bændablaði
og óttaðist að afleiðingar þess gætu
orðið þær að áin fyndi sér annan far-
veg í kjölfarið og kynni jafnvel að
flæða yfir tún á jörðunum við Laufás
og Áshól.
Unnið í samráði við veiðifélagið
Þröstur segir að malarnámið nú í
sumar hafi verið unnið í samráði við
veiðifélag árinnar og að leiðarljósi
haft að lágmarka líkur á að áin breyti
sér. Ekki megi taka möl beint upp
úr ánni. „Það hefur enginn kvartað
við mig vegna þessa og ég held að
áhyggjur Bergvins séu óþarflega
miklar,“ segir Þröstur. /MÞÞ
Malarnám á bökkum Fnjóskár:
Óþarfa áhyggjur af að
áin breyti um farveg
− segir sveitarstjórinn í Grýtubakkahreppi
Bæjarráð Norðurþings hefur
skorað á stjórnvöld að falla frá
áformum um að skerða framlag
til viðhalds flugvalla á landsbyggð-
inni, en slík áform koma fram í
fjárlagafrumvarpinu.
Í bókun bæjarráðs Norðurþings
vegna málsins er vitnað í fjárlaga-
frumvarpið fyrir árið 2016, þar sem
segir að gert sé ráð fyrir að fjárheim-
ild vegna þessa liðar lækki um ríflega
516 milljónir króna að raungildi frá
fjárlögum yfirstandandi árs. Annars
vegar sé gert ráð fyrir að 500 millj-
ón króna tímabundið framlag til
viðhalds flugvalla á landsbyggðinni
falli niður og hins vegar er lagt til
16,5 milljón króna lækkun útgjalda
til að mæta aðhaldsmarkmiðum í
frumvarpinu.
Unnið verði að nauðsynlegum
úrbótum
Bæjarráð vekur athygli á því að
starfsemi á Húsavíkurflugvelli hefur
aukist og eflst undanfarin ár. Fram
undan er mikil atvinnuuppbygging
á svæðinu og jafnframt hefur ferða-
mannafjöldi aukist hratt. Á sama
tíma hefur lengi legið fyrir brýn þörf
á viðhaldi og úrbótum á búnaði á
Húsavíkurflugvelli. Fulltrúar Isavia
kynntu bæjarráði Norðurþings áform
fyrirtækisins um viðhaldsaðgerðir
á fundi fyrir nokkrum mánuðum.
Bæjarráð fer fram á það að nauðsyn-
legar úrbætur verði framkvæmdar
á Húsavíkurflugvelli og ríkisvaldið
sinni þar með þeim innviðum sem
því ber í samgöngukerfi landsins.
Framkvæmdir og ferðamenn
Stjórn Framsýnar hefur látið málið til
sín taka og í ályktun frá félaginu eru
stjórnvöld hvött til að hefjast þegar
í stað handa við lagfæringar á flug-
vellinum. „Ekki síst í ljósi þess mik-
ilvæga öryggishlutverks sem hann
gegnir auk þess sem flugumferð um
völlinn hefur stóraukist vegna fram-
kvæmdanna sem tengjast Bakka og
fjölgunar ferðamanna,“ eins og segir
í ályktuninni.
Stjórn félagsins fagnar
mikilli aukningu farþega um
Húsavíkurflugvöll milli ára og
skorar á flugmálayfirvöld og Isavia
að hraða viðgerðum á vellinum til
að auka flugöryggi. Fyrir liggi að
ljósabúnaður er ófullkominn og eins
sé aðkallandi að ráðast í lagfæringar
á slitlagi flugbrautar.
Öryggishlutverk vegna
sjúkraflugs
„Húsavíkurflugvöllur er ekki
einungis notaður fyrir farþegaflug
heldur gegnir hann mikilvægu
öryggishlutverki varðandi sjúkraflug.
Nú þegar miklar framkvæmdir eru
að hefjast á Húsavíkursvæðinu sem
tengjast uppbyggingu á orkufrekum
iðnaði á Bakka er afar mikilvægt að
öryggi Húsavíkurflugvallar verði
tryggt sem best.“ /MÞÞ
Bæjarráð Norðurþings um viðhald flugvalla:
Fallið verði frá áformum
um að skerða framlög