Bændablaðið - 24.09.2015, Síða 20

Bændablaðið - 24.09.2015, Síða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015 Í sumar kynnti Evrópuþingið rannsókn sem sýnir að alþjóðlegir fjárfestar hafa fyrir löngu byrjað að festa klær sínar í ræktarland í Evrópu með svokallaðri land- hremmingu eða „Land Grabbing“. Er það þvert á fullyrðingar manna um að Evrópa væri undanskilin ásókn fjárfesta í ræktarland. Rannsóknin var unnin af Transnational Institute í Amsterdam. Í rannsókninni kom í ljós að sú útbreidda skoðun að ásælni útlendinga í ræktarland ætti sér nær eingöngu stað í Afríku og í hluta af Asíu, stenst ekki lengur. Þvert á móti hefur komið í ljós að mjög fjöl- breyttur hópur ólíkra fjárfesta, þar á meðal bankar, fjárfestingasjóðir og einkafyrirtæki, eru að hasla sér völl í kaupum á ræktarlandi í Evrópu. „Það eru yfirgnæfandi sannan- ir fyrir því að landhremming eigi sér stað í ESB-löndunum í dag.“ Þá segir í skýrslunni að þó að þetta sé enn í frekar takmörkuðum mæli miðað við það sem þekkist í Afríku, Asíu, Suður-Ameríku og í fyrrum Sovétlýðveldum, þá sé þetta fyrir- bæri sem „veki mönnum hroll innan ESB“ (creeping phenomenon in the EU). Þörf á að endurskoða frjálst flæði fjármagns Martin Häusling, þingmaður græn- ingja á Evrópuþinginu, hefur gagn- rýnt að sú stefna ESB að leyfa frjálst flæði fjármagns þvert á landamæri innan Evrópu, sé að valda vandræð- um. Endurskoða þurfi þessa stefnu með hliðsjón af sjálfbærum landbún- aði í aðildarríkjum ESB. Í rannsókninni kemur m.a. fram að í Rúmeníu er nú á milli 30–40% alls ræktarlands undir stjórn erlendra fjárfesta. Þróun er einnig sögð alvarleg í Búlgaríu og Póllandi. Enn sem komið er sé ástandið ekki eins slæmt í Eystrasaltslöndunum, Eistlandi, Lettlandi og Litháen, sem og í Tékklandi og í Slóvakíu. Hafa fjárfestar sótt í mjög lágt verð á landi í þessum löndum í samanburði við verð á ræktarlandi í Vestur-Evrópu. Samkvæmt rannsókn- inni koma atkvæðamestu fjárfestarnir (land grabbers) frá vestur-Evrópu, Kína, Kúveit og Katar. Þetta fyrirbæri, „land- hremming“, er að mati skýrsluhöfunda að leiða til hnignunar dreifbýlisins og um leið niðurbrots á hug- myndum Evrópubúa um fjöl- skyldubúskap. Þá kemur þetta líka í veg fyrir að ungt fólk hasli sér völl í landbúnaði. Transnational Institute varar sterklega við því að raunáhrif að áframhaldandi landhremmingu fjárfesta muni leiða til þess að fæðuör- yggi Evrópubúa verði stefnt í voða og að hætta sé á auknu atvinnuleysi. Knúið í gegn með beitingu á fjármálalegu ofurvaldi Þá kemur fram í skýrslunni að mikill skortur sé á gagnsæi þegar kemur að viðskiptum með ræktarland. Þá séu þau oft knúin fram í ofurvaldi fjármagns. Einnig sé oft um leyni- leg „vasaviðskipti“ að ræða og er þar m.a. bent á landhremmingu í Ungverjalandi. Slík viðskipti séu ekki uppi á yfirborðinu og aðeins um vasabókhald að ræða sem ekki komi upp á yfirborðið fyrr en banni við sölu á landi til útlendinga verði aflétt. Þá fyrst verði gjörningarnir skráðir opinberlega. Þangað til sýna opinber gögn að landið sé í eigu ungverskra ríkisborgara. Þá hefur Hungarian County Agricultural Chamber sýnt fram á 16 mismunandi afbrigði slíkra samninga. Áætlar ráðið að um ein milljón hektara ræktarlands í Ungverjalandi hafi skipt um hend- ur með slíkum vasasamningum við erlenda einstaklinga og fyrirtæki á undanförnum tveimur áratugum. Þar séu raunverulegir kaupendur m.a. frá Austurríki, Þýskalandi, Hollandi, Danmörku og Bretlandi. Áætlað hefur verið að þar sé um að ræða viðskipti upp á um 1,1 til 1,8 milljónir evra. Leppar notaðir til að kaupa upp land Í skýrslunni kemur einnig fram að þótt talið hafi verið að landhremm- ing hafi verið frekar lítil í Póllandi á árunum 1999 til 2005, eða innan við 1% af ræktarlandinu, þá sé staðan þar gjörbreytt. Þótt pólsk lög banni enn eignarhald útlendinga á landi þar til í maí 2016, þá hafa pólskir bændur upplýst að um 200.000 hektarar í West Pomerania- héraði hafi verið keypt upp. Þar sé um að ræða fyrirtæki af hollenskum, dönskum, þýskum og breskum upp- runa. Þessi viðskipti hafi farið fram í gegnum pólska leppa, „dummy buyers“, sem oft eru smábændur. Þeir séu í raun leigðir til að kaupa land og framselji síðan samningana til erlendra fjárfesta. Í Slóvakíu mega útlendingar kaupa land svo fremi að þeir setji upp löglega starfsemi í landinu. Þar eiga útlendingar samkvæmt skýrslunni um 20.000 hektara, eða um 1% ræktarlandsins. Í Tékklandi áttu útlendingar um 90.000 hektara þegar árið 2006, eða um 2,1% alls ræktar- lands. Í Litháen áætluðu sérfræðingar árið 2007 að útlendingar ættu 12–15.000 hektara, eða um 0,5% ræktarlandsins. Þar af ættu um 30 einstaklingar af erlendum þjóðern- um um 10–12.000 hektara. Í Lettlandi áttu sér stað 427 landsölur með þátttöku erlendra fjárfesta á árinu 2005. Slíkar sölur voru 512 árið 2006. Samsvara þessi viðskipti kaupum á um 2% alls rækt- arlands þar í landi aðeins á þessum tveimur árum. Erlendar fjárfestingar aukast hröðum skrefum Í skýrslunni kemur fram að mestu viðskiptin með ræktarland hafi átt sér stað í Austur-Evrópu-löndum ESB á liðnum árum. „Heitustu“ löndin þessa stundina eru sögð Rúmenía, Búlgaría, Ungverjaland og Pólland. Beinar erlendar fjárfestingar í þess- um löndum eru sagðar hafa aukist hröðum skrefum á síðustu árum. Menn ættu líka að hafa áhyggjur af jaðarlöndum ESB Bent er á að á meðan landhremm- ing í löndum Evrópusambandsins ætti að vera ráðamönnum verulegt áhyggjuefni, þá ætti líka að hafa áhyggjur af stórtækum landa- kaupum í löndum í jaðarlöndum Evrópusambandsins. Um 4,3 milljónir hektara seldir í jaðarlöndunum Vísað er til gagnagrunns Land Matrix þar sem fram kemur að viðskipti með 4,3 milljóna hekt- ara landbúnaðarlands hafi verið að eiga sér stað í löndum sem liggja að ESB. Þetta er meira en áður hefur komið fram. Þar sé einkum um að ræða ræktarland í Úkraínu og í Rússlandi, en einnig í löndum við Miðjarðarhaf. Takmörkuð landa- kaup innan ESB-landanna kunni að stigmagnast í tengslum við þessi kaup í jaðarlöndunum. /HKr. Ásælni fjárfesta í ræktarland setur að mönnum hroll: „Landhremming“ ört vaxandi í Evrópu − Evrópuþingið hefur kynnt skýrslu um að ásælni fjárfesta í ræktarland í álfunni sé staðreynd sem bregðast þurfi við Hörður Kristjánsson hk@bondi.is Fréttaskýring Fjárfestar hrifsa til sín síaukið ræktarland í heiminum í krafti fjármagns. Eftir standa smábændur í þúsundavís og fjölskyldur þeirra sem hrökklast á brott. Mynd / Global Fodd Forum Þekkt mynd baráttumanna gegn landhremmingum fjárfesta.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.