Bændablaðið - 24.09.2015, Qupperneq 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015
Í sumar kynnti Evrópuþingið
rannsókn sem sýnir að alþjóðlegir
fjárfestar hafa fyrir löngu byrjað
að festa klær sínar í ræktarland
í Evrópu með svokallaðri land-
hremmingu eða „Land Grabbing“.
Er það þvert á fullyrðingar manna
um að Evrópa væri undanskilin
ásókn fjárfesta í ræktarland.
Rannsóknin var unnin af
Transnational Institute í Amsterdam.
Í rannsókninni kom í ljós að
sú útbreidda skoðun að ásælni
útlendinga í ræktarland ætti sér nær
eingöngu stað í Afríku og í hluta
af Asíu, stenst ekki lengur. Þvert á
móti hefur komið í ljós að mjög fjöl-
breyttur hópur ólíkra fjárfesta, þar á
meðal bankar, fjárfestingasjóðir og
einkafyrirtæki, eru að hasla sér völl
í kaupum á ræktarlandi í Evrópu.
„Það eru yfirgnæfandi sannan-
ir fyrir því að landhremming eigi
sér stað í ESB-löndunum í dag.“
Þá segir í skýrslunni að þó að þetta
sé enn í frekar takmörkuðum mæli
miðað við það sem þekkist í Afríku,
Asíu, Suður-Ameríku og í fyrrum
Sovétlýðveldum, þá sé þetta fyrir-
bæri sem „veki mönnum hroll innan
ESB“ (creeping phenomenon in the
EU).
Þörf á að endurskoða frjálst flæði
fjármagns
Martin Häusling, þingmaður græn-
ingja á Evrópuþinginu, hefur gagn-
rýnt að sú stefna ESB að leyfa frjálst
flæði fjármagns þvert á landamæri
innan Evrópu, sé að valda vandræð-
um. Endurskoða þurfi þessa stefnu
með hliðsjón af sjálfbærum landbún-
aði í aðildarríkjum ESB.
Í rannsókninni kemur m.a. fram
að í Rúmeníu er nú á milli 30–40%
alls ræktarlands undir stjórn erlendra
fjárfesta. Þróun er einnig sögð
alvarleg í Búlgaríu og Póllandi.
Enn sem komið er sé ástandið ekki
eins slæmt í Eystrasaltslöndunum,
Eistlandi, Lettlandi og Litháen, sem
og í Tékklandi og í Slóvakíu. Hafa
fjárfestar sótt í mjög lágt verð á
landi í þessum löndum í samanburði
við verð á ræktarlandi í
Vestur-Evrópu.
Samkvæmt rannsókn-
inni koma atkvæðamestu
fjárfestarnir (land grabbers)
frá vestur-Evrópu, Kína,
Kúveit og Katar.
Þetta fyrirbæri, „land-
hremming“, er að mati
skýrsluhöfunda að leiða til
hnignunar dreifbýlisins og
um leið niðurbrots á hug-
myndum Evrópubúa um fjöl-
skyldubúskap. Þá kemur þetta
líka í veg fyrir að ungt fólk
hasli sér völl í landbúnaði.
Transnational Institute
varar sterklega við því að
raunáhrif að áframhaldandi
landhremmingu fjárfesta
muni leiða til þess að fæðuör-
yggi Evrópubúa verði stefnt í
voða og að hætta sé á auknu
atvinnuleysi.
Knúið í gegn með beitingu á
fjármálalegu ofurvaldi
Þá kemur fram í skýrslunni að mikill
skortur sé á gagnsæi þegar kemur
að viðskiptum með ræktarland. Þá
séu þau oft knúin fram í ofurvaldi
fjármagns. Einnig sé oft um leyni-
leg „vasaviðskipti“ að ræða og er
þar m.a. bent á landhremmingu í
Ungverjalandi. Slík viðskipti séu
ekki uppi á yfirborðinu og aðeins um
vasabókhald að ræða sem ekki komi
upp á yfirborðið fyrr en banni við
sölu á landi til útlendinga verði aflétt.
Þá fyrst verði gjörningarnir skráðir
opinberlega. Þangað til sýna opinber
gögn að landið sé í eigu ungverskra
ríkisborgara. Þá hefur Hungarian
County Agricultural Chamber sýnt
fram á 16 mismunandi afbrigði
slíkra samninga. Áætlar ráðið að
um ein milljón hektara ræktarlands
í Ungverjalandi hafi skipt um hend-
ur með slíkum vasasamningum við
erlenda einstaklinga og fyrirtæki á
undanförnum tveimur áratugum. Þar
séu raunverulegir kaupendur m.a.
frá Austurríki, Þýskalandi, Hollandi,
Danmörku
og Bretlandi. Áætlað hefur verið að
þar sé um að ræða viðskipti upp á
um 1,1 til 1,8 milljónir evra.
Leppar notaðir til
að kaupa upp land
Í skýrslunni kemur einnig fram að
þótt talið hafi verið að landhremm-
ing hafi verið frekar lítil í Póllandi á
árunum 1999 til 2005, eða innan við
1% af ræktarlandinu, þá
sé staðan þar gjörbreytt. Þótt pólsk
lög banni enn eignarhald útlendinga
á landi þar til í maí 2016, þá hafa
pólskir bændur upplýst að um
200.000 hektarar í West Pomerania-
héraði hafi verið keypt upp. Þar sé
um að ræða fyrirtæki af hollenskum,
dönskum, þýskum og breskum upp-
runa. Þessi viðskipti hafi farið fram
í gegnum pólska leppa, „dummy
buyers“, sem oft eru smábændur.
Þeir séu í raun leigðir til að kaupa
land og framselji síðan samningana
til erlendra fjárfesta.
Í Slóvakíu mega útlendingar
kaupa land svo fremi að þeir
setji upp löglega starfsemi í
landinu. Þar eiga útlendingar
samkvæmt skýrslunni um
20.000 hektara, eða um 1%
ræktarlandsins.
Í Tékklandi áttu útlendingar
um 90.000 hektara þegar árið
2006, eða um 2,1% alls ræktar-
lands.
Í Litháen áætluðu sérfræðingar
árið 2007 að útlendingar ættu
12–15.000 hektara, eða um 0,5%
ræktarlandsins. Þar af ættu um 30
einstaklingar af erlendum þjóðern-
um um 10–12.000 hektara.
Í Lettlandi áttu sér stað 427
landsölur með þátttöku erlendra
fjárfesta á árinu 2005. Slíkar sölur
voru 512 árið 2006. Samsvara þessi
viðskipti kaupum á um 2% alls rækt-
arlands þar í landi aðeins á þessum
tveimur árum.
Erlendar fjárfestingar aukast
hröðum skrefum
Í skýrslunni kemur fram að mestu
viðskiptin með ræktarland hafi átt sér
stað í Austur-Evrópu-löndum ESB
á liðnum árum. „Heitustu“ löndin
þessa stundina eru sögð Rúmenía,
Búlgaría, Ungverjaland og Pólland.
Beinar erlendar fjárfestingar í þess-
um löndum eru sagðar hafa aukist
hröðum skrefum á síðustu árum.
Menn ættu líka að hafa áhyggjur
af jaðarlöndum ESB
Bent er á að á meðan landhremm-
ing í löndum Evrópusambandsins
ætti að vera ráðamönnum verulegt
áhyggjuefni, þá ætti líka að hafa
áhyggjur af stórtækum landa-
kaupum í löndum í jaðarlöndum
Evrópusambandsins.
Um 4,3 milljónir hektara seldir í
jaðarlöndunum
Vísað er til gagnagrunns Land
Matrix þar sem fram kemur að
viðskipti með 4,3 milljóna hekt-
ara landbúnaðarlands hafi verið að
eiga sér stað í löndum sem liggja að
ESB. Þetta er meira en áður hefur
komið fram. Þar sé einkum um
að ræða ræktarland í Úkraínu og
í Rússlandi, en einnig í löndum við
Miðjarðarhaf. Takmörkuð landa-
kaup innan ESB-landanna kunni að
stigmagnast í tengslum við þessi
kaup í jaðarlöndunum.
/HKr.
Ásælni fjárfesta í ræktarland setur að mönnum hroll:
„Landhremming“ ört vaxandi í Evrópu
− Evrópuþingið hefur kynnt skýrslu um að ásælni fjárfesta í ræktarland í álfunni sé staðreynd sem bregðast þurfi við
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Fréttaskýring
Fjárfestar hrifsa til sín síaukið ræktarland í heiminum í krafti fjármagns. Eftir standa smábændur í þúsundavís og fjölskyldur þeirra sem hrökklast á brott.
Mynd / Global Fodd Forum
Þekkt mynd baráttumanna gegn landhremmingum fjárfesta.