Bændablaðið - 24.09.2015, Side 22

Bændablaðið - 24.09.2015, Side 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015 Auður Olga Arnarsdóttir, ung stúlka frá Gunnbjarnarholti, valdi sannarlega ekki auðveldu leiðina við að afla sér menntunar. Hún fór alla leið til Melbourne í Ástralíu þar sem hún er að læra mjög svo áhugavert nám er varðar flutningafræði. Auður er dóttir þeirra hjóna Arnars Bjarna Eiríkssonar og Berglindar Bjarnadóttur í Gunnbjarnarholti á Skeiðum í Árnessýslu. Námið sem Auður er í kallast „Logistics and Supply Chain Managment“ og er kennt í vel þekktum háskóla, „RMIT University of Melbourne“. Nám Auðar er þó ekki eingöngu bundið við skólastofuna því hluti af því er að starfa úti á mörkinni, m.a. með flutningabílstjórum sem flytja m.a. nautgripi langar leið- ir í sláturhús. Vegna þessa hefur hún að undanförnu búið í borginni Toowoomba í Queensland en vinn- an er 40 mínútur þaðan út í sveit. Þar hefur hún unnið við skráningar og „hands on“ á flutningum gripa. Það er stór hluti af hennar námi og í raun skylda að skila þar inn eins árs verklegum þætti. Auður er fyrsti nemandinn úr þessu námi sem vildi fara út fyrir borgarmörkin til að öðlast starfs- reynslu sem er hluti af náminu „work experience“. Sú leið sem hún valdi sér í starfsnáminu hefur enginn farið áður. Það gat hún gert með því að nýta sér sambönd við aðra Íslendinga sem búa í Ástralíu sem vísuðu henni réttu leiðirnar. Greinilegt er að íslenska ákveðnin hefur skipt þar miklu máli. Bændablaðið setti sig í samband við Auði til að fá frek- ari fregnir af henni og dvöl hennar í Ástralíu. Frá Gunnbjarnarholti til Ástralíu „Ég er frá kúabúi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, Gunnbjarnarholti, þar sem ég bjó þangað til ég flutti til Ástralíu,“ segir Auður. „Ég útskrifaðist af viðskipta- og hagfræðibraut Fjölbrautaskóla Suðurlands fyrir jólin 2010 og fór til Ástralíu í janúar 2011. Þar hef ég svo verið meira og minna síðan, fyrir utan rúmt hálft ár sem ég var heima og svo hef ég auðvitað tekið jólafrí heima. Þegar ég útskrifaðist stefndi ég á háskóla um haustið og hafði hálft ár til að skoða heiminn, mig hafði alltaf langað til Ástralíu og ákvað bara að skella mér þangað í hálft ár sem varð svo mun lengra en hálft ár.“ Byrjaði á stóru kúabúi „Ég byrjaði að vinna á stóru kúabúi í Suður-Ástralíu, þar sem voru að meðaltali 700 kýr mjólkaðar þegar ég var þar og fór mest upp í rúmlega 900. Þar var notuð mjaltahringekja sem tók 42 kýr í einu, þær löbbuðu inn og maður setti mjaltatækin á aftan frá. Síðan var manneskja sem þurfti að taka þau af eða senda þær annan hring eftir því hvað þær mjólk- uðu mikið. Þar var ég í almennum sveitastörf- um í næstum eitt og hálft ár og kynnt- ist þar afslappaða ástralska lífsstíln- um, nægjuseminni og hjálpsemi og almennilegheitum allra í kring.“ Allt annar lífsstíll „Lífsstíllinn var allt öðruvísi, fólk alltaf komið á fætur fyrir allar aldir, og fólk úr sveitum er yfirleitt ekki að mennta sig mikið. Það er bara mjög ánægt með að eignast fínan jeppa og svo ágætis hús og leyfa sér svo að fara í veiðiferðir eða útilegur. Ég lenti í alls konar ævintýrum þar, til dæmis að vera pikkföst í jeppa í þjóðgarði lengst í burtu, vera við varðeld á ströndinni með góðum vinum, eltast við kengúrur á kvöldin og refaveiðar. Ég þurfti svo að fara aftur heim, en fann nám í Ástralíu sem mér leist vel á í Royal Melbourne Institute of Technology, sem á íslensku kallast flutningafræði eða Logistics and Auður Olga Arnarsdóttir fer ekki troðnar slóðir í sinni þekkingarleit: Sveitastelpa frá Gunnbjarnarholti lærir flutningafræði í Ástralíu − nýtir vinnureynslutímann í náminu við að skipuleggja gripaflutninga á risatrukkum þar sem fluttir eru þúsund nautgripir á dag Auður Olga Arnarsdóttir var ekkert að tvínóna við hlutina þegar hún skellti sér í nám hinum megin á hnettinum. Auður og Adele, vinkona hennar á bænum, þurftu að bjarga tólf kvígum sem voru fastar í forarpytti.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.