Bændablaðið - 24.09.2015, Síða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015
Hitaveituskel 1850 L.
Hitaveituskel 1650 L.
margar stærðir.
Matarbúrið flutt til Reykjavíkur:
Grasfóðrað holdanauta-
kjöt beint frá bónda
– er nú í boði úti á Grandagarði
Margir þeir sem vilja kaupa nauta-
kjöt beint frá býli kannast vafa-
laust við verslunina Matarbúrið,
sem starfrækt hefur verið á Hálsi
í Kjós í um sex ár. Fyrir rúmum
þremur vikum fluttist hún búferl-
um út á gamla Grandagarðinn í
Reykjavík, í gömlu beitninga-
skúralengjuna í nágrenni við osta-
búðina Búrið og ísbúðina Valdísi.
Lisa Boije og Þórarinn Jónsson
búa á Hálsi og ráku verslunina sem
þar var. Nú hafa þau fengið Helga
Ágústsson til liðs við sig í úrbeiningu
og fleira.
Nauta- og kanínukjöt
til að byrja með
Þórarinn segir að til að byrja með
verði eingöngu í boði nautakjöt frá
þeim sjálfum, fyrir utan kanínukjöt
sem þau selja frá Birgit Kositzke á
Hvammstanga. „Við ætlum svo bara
að sjá til hvað fólk vill annað – hver
eftirspurnin er og reyna að svara
henni. Við höfum fengið fyrirspurnir
frá nokkrum um lambakjöt og mér
finnst ekki ólíklegt að við munum
taka það líka í sölu. Við ætlum bara
að sjá hvernig þetta gengur svona í
byrjun og í framhaldinu kannski þá
að finna okkur einhverja samstarfs-
aðila. Við munum þó alltaf leggja
mikla áherslu á allan rekjanleika
afurðanna – að það liggi þá fyrir
gagnlegar upplýsingar fyrir neyt-
endur um viðkomandi framleiðendur.
Svo erum við með ýmis krydd,
sultur, sinnep og chutney sem Lisa
gerir, meðal annars úr uppskerunni
úr garðinum,“ segir Þórarinn spurð-
ur um hvað muni verða í boði í
Matarbúrinu.
„Við höfum fengið mjög góðar
viðtökur og það hefur verið mikið
að gera frá því að við opnuðum og
það er ekki verra að byrja þannig
– því þetta er alveg nýtt umhverfi
fyrir okkur. Þótt við séum búin að
reka verslun í sveitinni í sex ár þá
er þetta allt annars konar verslun-
arrekstur. Hér í borginni er fólk oft
bara að hugsa um að kaupa inn fyrir
kvöldmatinn en í sveitaversluninni
var það oft að birgja sig upp.“
Áhersla á grasfóðrun
„Við leggjum áherslu á að við erum
með nautgripi sem eru eingöngu
fóðraðir á grasi og heyi og ætlum
að bjóða upp á allt af skepnunni – alla
parta og skurði, bein og hala. Ef það
eru sérstakar óskir viljum við að það
sé haft samband með smá fyrirvara.
Við erum með kjötvinnsluna heima
og smá aðstöðu á Grandanum fyrir
minni viðvik,“ segir Þórarinn. /smh
Myndir / smh
Hluti af atvinnulífinu
ÍSLE
N
SK
A/SIA.IS E
N
N
76314 09/15
www.n1.is facebook.com/enneinn
Höfuðborgarsvæðið:
Óskum eftir að ráða starfsfólk til starfa við bílaþjónustu N1
á höfuðborgar svæðinu.
Hæfniskröfur:
• Reynsla og þekking á smur- og hjólbarðaþjónustu
• Rík þjónustulund
• Samskiptahæfni
• Vönduð vinnubrögð
• Reglusemi og stundvísi
Hjólbarðaverkstæði N1 hafa öll hlotið vottun samkvæmt
gæðakerfi Michelin, en þá vottun fá eingöngu þau
hjólbarðaverkstæði sem uppfylla ströngustu gæðakröfur
Michelin.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Fannar Pálsson
í síma 660 3411 eða 440 1318.
Bílaþjónusta N1
leitar að liðsstyrk
Bændablaðið
Smáauglýsingar
56-30-300