Bændablaðið - 24.09.2015, Side 26

Bændablaðið - 24.09.2015, Side 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015 Ný verslun, „Kind“, opnuð við Hverfisgötu í Reykjavík: Eina sérverslunin í heiminum með ullarvörur af forystufé − margvísleg íslensk hönnun og handverk, m.a. frá Fræðasetrinu um forystufé í Þistilfirði Um fyrri helgi var opnuð lítil versl- un að Hverfisgötu 35. Má segja að hún sé afleiða af Verzluninni RAM, eða Hrútur eins og nafnið útleggst á íslensku, sem sömu eigendur opnuðu við Laugaveg í fyrravetur. Eigendur beggja verslan- anna eru viðskiptafélagarnir Fjóla Halldórsdóttir og Svavar Halldórsson, fyrrverandi sjónvarps- fréttamaður með meiru og núverandi framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda. Fyrir þá sem ekki þekkja til er kannski rétt að taka fram að þrátt fyrir sama föðurnafn eru þau ekki systkini. Blaðamaður hitti Fjólu að máli í nýju verslun- inni við Hverfisgötu þar sem Katrín Bessadóttir er verslunarstjóri. Sérstaða á heimsvísu Fjóla segir þeirra helstu sérstöðu vera í því að bjóða upp á vörur sem unnar eru úr ull og öðru hráefni af íslensku forystufé. Þær vörur koma frá Fræðasetrinu um forystufé á Svalbarði í Þistilfirði. Hún segir að ullin af þessu fé sé mikið fínni en af öðru íslensku sauðfé. Þetta sé mjög sérstakt, því einungis séu til um 1.500 kindur í allri veröldinni af þessum sérstaka stofni og þær eru allar á Íslandi. -Eruð þið þá eina verslunin í Reykjavík sem býður upp á lopa- peysur úr ull af forystufé og aðrar vörur sem því tengist? „Við erum ekki bara eina versl- unin á Íslandi, heldur eina verslunin í öllum heiminum sem býður upp á slíkar vörur. Hluti af öllu sem við selj- um hérna rennur til Fræðasetursins í Þistilfirði og verðum við því með þeim í þessu verkefni um forystu- féð,“ segir Fjóla. Einungis handprjónaðar og alíslenskar lopapeysur Katrín verslunarstjóri segir að fleiri afurðir af forystufé verði á boðstól- um, eins og uppstoppaðir kindahaus- ar. Þá séu þau líka með lopapeysur úr hefðbundnum lopa. „Við fáum prjónakonur víða um land til að prjóna fyrir okkur. Þetta er því alíslenskt handverk og þeirra hönnun,“ segir Katrín. „Það er engin peysa hjá okkur prjónuð í Kína og það hefur geng- ið mjög vel að fá fólk til að vinna þetta fyrir okkur. Svo erum við líka með úrval af matarhandverki sem við leggjum einnig áherslu á. Þar má m.a. nefna vinsæla flögusaltið frá Norðursalti. Einnig margvíslegar sultur og aðrar niðursoðnar vörur frá Hallormsstað og margt fleira. Við leitum eftir vörum frá litlu fram- leiðendunum og frumkvöðlunum í þessum geira.“ Þær stöllur segja að versluninni Kind hafi strax verið vel tekið, ekki síst af útlendingum, rétt eins og þegar verslunin Ram var opnuð á Laugaveginum. Segjast þær vonast til að flæði fólks um Hverfisgötuna verði betra þegar framkvæmdum við hótelið lýkur sem verið er að byggja handan götunnar. Meiri áhersla á matarhandverkið á Laugaveginum Í gömlu húsi við Laugaveg 72 í Reykjavík er lítil og vinaleg versl- un sem er eins og vin fyrir alla þá sem hrifnir eru af íslenskri hönnun og handverki. Þetta er Verzlunin RAM. Þar var í eina tíð höndlað með skartgripi, föt og skó, en nú eru það matgæðingarnir og áhuga- kokkarnir sem hafa fengið þarna búð fyrir sig. Verslunin hóf eins og fyrr segir starfsemi síðasta vetur en það er augljóst að sótt er í gamlar hefðir. Helst má líkja versluninni við nútímalega útgáfu af búsáhaldadeild í gömlu kaupfélagi. Hvert sem litið er blasa við tæki og tól til matseldar, hnífar, pönnur, pottar og fleiri álíka verkfæri. Þarna er íslensku matar- handverki gert sérstaklega hátt undir höfði. Sultur, súkkulaði, sölt, repju- olía, rabarbarasælgæti, poppkorn og mysudrykkur eru meðal þess sem er á boðstólum. Allt sem er ætt í búðinni eru íslenskar vörur. Búð fyrir íslenska matgæðinga „Við erum þar einnig með vönduð eldhús- áhöld á góðu verði og alls kyns tæki og tól til matargerðar,“ segir Fjóla. „Svo erum við líka með svolítið súvíd- og vakúmhorn.“ En það sem gefur búðinni sterkan svip er íslenska matarhandverkið.“ Hún segir það vera sérstöðu þeirrar verslunar í samanburði við Kind á Hverfisgötu. „Við kaupum vörur af íslenskum framleiðendum, stórum sem smáum, en samt aðallega smáum. Við reynum að reka verslunina í anda sanngjarnra viðskipta og hjálpa þeim sem eru að byrja í framleiðslu á matarhandverki að koma vörunum sínum á markað.“ Hún segir að þrátt fyrir þetta takist þeim með aðhaldi og góðum rekstri að halda útsöluverðinu innan sann- gjarnra marka. „Þetta er kerfi sem virkar fyrir alla, bæði birgja og viðskiptavini.“ Íslendingabúð – sem ferðamenn elska Sumarið hefur verið gott segir Fjóla og nóg að gera. „Afgreiðslutíminn er langur og ferðamenn eru í meirihluta viðskiptavina, en við lítum samt fyrst og fremst á okkur sem Íslendingabúð. Vissulega er samt gott að fá ferðamennina og Myndir / HKr.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.