Bændablaðið - 24.09.2015, Qupperneq 27

Bændablaðið - 24.09.2015, Qupperneq 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015 þeir eru hrifnir þegar þeir ganga í bæinn. Við höfum fengið um okkur umsagnir á netinu, allar góðar, þar sem fólk talar um að hafa fundið okkur, hafi fundið lítinn demant í Reykjavík og fleira í þeim dúr.“ Fjóla segir að sín uppáhaldsummæli hafi verið eitthvað á þessa leið í lauslegri þýðingu: „Íslendingabúð – sem ferðamenn elska.“ Sauðkindinni er gert hátt undir höfði Búðin hefur yfir sér sterkan íslensk- an blæ þótt þar sé hvergi að finna tuskulunda eða segulstál með fána á. Sauðkindinni er gert hátt undir höfði, bæði í þeim söluvarningi sem finna má í hillunum og eins í mynd- um á veggjum. Fjóla segir að allir starfsmenn séu mjög vel meðvitaðir um íslenskan uppruna varanna og að eigendurnir séu sérstakir áhugamenn um íslenskan landbúnað. „Þegar við fórum að leita fyrir okkur kom í ljós að það er mikil gróska í íslensku matarhandverki og alls kyns öðru handverki sem tengist mat,“ segir Fjóla. „Áhuginn er líka mikill og það var mikið að gera hjá okkur strax frá fyrsta degi,“ segir hún og bætir svo við kankvís á svip, „eða kannski er það standur- inn með Bændablaðinu sem trekkir svona að?“ Matvæli í lofttæmdar umbúðir í sláturtíðinni Nú þegar sauðfjárslátrun stendur sem hæst fer fólk gjarnan að huga að kaupum á ýmsum sauðfjárafurðum til vetrarins og jafnvel að taka slátur. Margir sjá sér leik á borði og útbúa kjarngóða rétti úr ódýru hráefni eins og innmat og frysta hann í þægi- legum skömmtum til að nota síðar. Sniðug leið til að auka geymsluþol er að pakka slíkum mat í lofttæmdar umbúðir. Þá er líka nauðsynlegt að vera með „vakúmvél“ við höndina, en Verzlunin RAM býður einmitt upp á úrval að slíkum tækjum. Vakúmvélar hafa lengi þótt þarfa- þing á íslenskum sveitaheimilum þar sem björg er einkum dregin í bú á haustin. Með tilkomu frystikistunn- ar varð auðvitað mikil breyting til batnaðar við geymslu á mat en síðan er hægt að margfalda geymsluþolið með vakúmpökkun. Veiðimenn, bændur og margir fleiri þekkja þetta af góðri reynslu. Grænmeti, fiskur og kjöt geymast miklu betur og lengur í lofttæmi, hvort sem er við stofuhita, í kæli eða í frysti, eins og meðfylgj- andi tafla ber með sér. Munurinn getur verið töluverður, sérstaklega í frysti. Fiskur sem endist í tvo til þrjá mánuði í venjulegri frystikistu getur enst í ár ef honum er vakúm- pakkað. Sama gildir um kjöt og alla aðra matvöru. Margar af þessum vélum eru framleiddar í Kína eða annars staðar í Asíu og þykja þær almennt slakari en hinar. Eins og í fleiru eru vöru- merkin fjölmörg, en tvö eru þekkt- ust. Food Saver er bandarískt merki og stærsta vörumerkið vestan hafs, en þær vélar eru reyndar framleiddar í Kína. Ítölsku Magic Vac-vélarnar eru aftur á móti vinsælastar í Evrópu. Flaggskip Magic Vac er vélin Maxima 2, sem var valin vakúmvél ársins í Þýskalandi í fyrra af virtu þarlendu neytendatímariti. /HKr. Eldað í vakúmi - Súvíd Kostirnir við vakúmpökkun eru fleiri en bara að lengja geymslutíma matvæla. Sú eldunaraðferð sem kennd er við vakúmið, „súvíd“ (Sous Vide upp á frönsku, eða undir þrýstingi eins og það útleggst á íslensku) nýtur líka sívax- andi vinsælda um allan heim. Hvort sem eru stjörnukokkar í útlöndum eins og Richard Blais og Heston Blumenthal, eða bara læknirinn okkar í eldhúsinu, Ragnar Freyr Ingvarsson, þá virðast allir vera að „súvída“. Aðferðin gengur út á að vakúmpakka mat og hægelda hann svo í vatnsbaði í langan tíma. Til að prófa er einfald- lega hægt að gera þetta með því að setja heitt vatn í vask, setja svo t.d. vakúmpakkaðan kjötbita út í og bíða. Margir ná fantagóðum árangri svoleiðis. Mun einfaldara er þó að kaupa til þessa sérstaka græju, t.d. frá Sous Vide Supreme eða Sansaire. Mikið úrval af þessum tækjum frá öllum fram- leiðendum er hægt að nálgast í Verzluninni RAM. Verzlunin RAM á Laugavegi leggur meiri áherslu á að þjónusta áhugafólk REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 www.VBL.is REYKJAVÍK Sími: 414-0000 /// AKUREYRI Sími: 464-8600 /// www.VBL.is PICHON – Öflugar haughrærur 3 gerðir til á lager Frönsk gæði Pichon B31 Lengd, 5 metrar Með lið Þvermál skrúfu 60 cm Skurðarhnífur á skrúfu Verð kr. 677.000 án vsk. Pichon B417 Lengd, 7 metrar Þvermál skrúfu, 60x70 cm Skurðarhnífur á skrúfu Drifskaft með tvöföldum lið Verð kr. 1.190.000 án vsk. Pichon B417 Lengd, 7 metrar Þvermál skrúfu, 60x60 cm Skúfa með skrúfuhring Skurðarhnífur á skrúfu Drifskaft með tvöföldum lið Verð kr. 1.290.000 án vsk. Hnífur á skrúfum Skrúfa með skrúfuhring

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.