Bændablaðið - 24.09.2015, Síða 28

Bændablaðið - 24.09.2015, Síða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015 Samband garðyrkjubænda á 60 ára afmæli á árinu: Þurfum að fara í öflugt kynningarátak − segir formaðurinn Gunnar Þorgeirsson um vandann varðandi litla nýliðun Samband garðyrkjubænda fagnar 60 ára afmæli á þessu ári. Í vor tók nýr formaður við stjórnartaumun- um, þegar Gunnar Þorgeirsson í Ártanga leysti Svein Sæland af hólmi. „Ég ætlaði nú alltaf að fara út í kúabúskap. Ég kynntist konunni 1979 og fór að vinna hér á bænum hjá tengdaforeldrum mínum árið 1981, en þau voru með kýr og kindur. Fljótlega breyttu þau svo búskapnum og fóru yfir í svínarækt og þar hefur verið rekið svínabú síðan. Hvernig það kemur til að við stofnum þessa garðyrkjustöð á sér nokkuð sérstaka forsögu. Bjarni, sem var kenndur við Blómaval, er kvæntur systur pabba og hann bað mig eiginlega að fara að framleiða pottablóm fyrir sig. Hann sagði mér að fara bara til Danmerkur og prófa að vinna við þetta. Ég hlýddi því bara og við fórum út 1985. Svo leiðir eitt af öðru; ég fór í garð- yrkjuskóla úti og þegar náminu var lokið ári síðar fluttum við heim og byggðum garðyrkjustöð og fórum að framleiða pottaplöntur fyrir Bjarna. Sú framleiðsla var svo meginþunginn í okkar starfsemi þangað til fyrir nokkrum árum að við færðum okkur að mestu leyti yfir í kryddjurtirnar. Við erum þó enn með dálítið af lauk- um, jólastjörnu og garðplöntum.“ Voru nærri hætt framleiðslu „Eftir fjármálahrunið 2008 drógum við mjög úr framleiðslu á pottablóm- um og vissum ekki alveg hvað við ættum að gera. Það minnkaði mjög sala á öllum tegundum hjá okkur og um tíma leit þetta bara mjög illa út hjá okkur. Við vorum nærri komin á þá skoðun að við ættum bara að selja þetta og fara að gera eitthvað allt annað. Árið 2012 vorum við komin á þá skoðun að breyta um ræktun og skoðuðum ýmsa möguleika í því sambandi; til dæmis jarðarber og tómata. Við fórum svo í skoðunarferð til Noregs að sjá hvað þeir væru að gera í ræktun á kryddjurtum í pottum. Vorum búin að heyra að Norðmenn væru mjög framarlega í því. Það er skemmst frá því að segja að eftir þá ferð varð ekki aftur snúið með þá hugmynd. Við duttum líka inn á ákveðinn tíðaranda hér á Íslandi þar sem mikil vakning var í því sem kalla má „græna neyslu“. Við höfum líka verið í samstarfi við veitingastaðina – og erum farin að sinna beint þörfum þeirra og það er mjög skemmtilegt samstarf. Það má nefna í því sam- bandi að við erum með þá nýbreytni núna að vera farin að rækta svokall- aðar spírur ýmissa tegunda sem eru eftirsóttar hjá matreiðslumönnum. Svo erum við jafnvel að spá í að fara að senda frá okkur framleiðsl- una tvisvar í viku svo ferskleikinn sé alltaf eins og best verður á kosið, en hingað til höfum við gert það vikulega.“ Stöðugleiki í ylræktinni „Það má segja að garðyrkja undir gleri sé alltaf tiltölulega stöðug og hefur líklega heldur verið upp á við en hitt,“ segir Gunnar um stöðu og horfur í greininni, en um hálft ár er liðið síðan hann tók við formennsku. „Þar eru ýmsir áhugaverðir vaxt- arsprotar og ég get nefnt að núna eru tilraunir í gangi í Garðyrkjuskólanum þar sem jarðarber eru ræktuð allan ársins hring undir ljósum. Útiræktin er alltaf dálítið veðurfarslegt happ- drætti. Eins og menn upplifðu í sumarbyrjun, að það bara kom engin júnímánuður. Ég heyrði fyrir stuttu í kartöflubónda sem býr hér ekki langt frá mér og honum leist ekkert á blikuna þegar ágúst var hálfnaður. Svo kíkti hann aftur undir núna þegar komið var undir mánaðamót og þá hafði ræst talsvert úr þessu bara í þessum hlýindum og vatnsveðri sem kom seinni hlutann í ágúst. Á Norður- og Austurlandi er þetta hins vegar bara mjög erfið staða. Síðustu tvö ár voru hins vegar frekar erfið hér á Suðurlandi enda rigndi þá alveg látlaust nánast.“ Lítil endurnýjun er vandamál „Það er því miður ekki mikil endur- nýjun í þessari grein – og ég held raunar að við stöndum í svipuðum sporum og aðrar greinar landbún- aðarins að því leyti. Við höfum gríðarlegar áhyggjur af þeirri stöðu. Við sjáum fólk eldast í greininni en lítill áhugi er á því að taka við. Það er ætlunin að koma inn á þessi vandamál í samningaviðræðunum sem eru á næsta leiti, varðandi gerð nýrra búvörusamninga. Eitt af því sem hamlar eðlilegri nýliðun er að fjárfestingin er mjög mikil ef fólk hefur áhuga á því að byrja frá grunni. Það er líka kominn tími á það mjög víða í garðyrkjunni að það verði farið í endurnýjun á húsakosti og öðrum búnaði – og það skiptir líka máli varðandi þessa nýliðun. Það hefur lítið verið byggt af nýju húsnæði á undanförnum árum. Kannski lítið verið gert í þessum málum frá síðasta garðyrkjusamningi, í kringum 2001 og 2002. Þá fékk greinin stuðning til að úrelda húsnæði og til að auka lýsingu og fleira, en á móti var toll- verndin tekin af nokkrum tegundum grænmetis. Við erum kannski ekki að óska eftir svipaðri leið að þessu sinni, en það þarf að huga alvarlega að því hvernig hleypa megi lífi í nýliðunina í garðyrkjunni. Svo er fjármagnið bara mjög dýrt. Mér sýnist reyndar staðan vera svipuð á öðrum Norðurlöndum hvað nýliðun varðar. Held að það sé verkefni okkar að fara í öflugt kynningarstarf – og að við þurfum að fara alveg niður í grunnskólaaldur með slíkt ímyndar- og kynningarátak.“ Mikilvæg samningagerð fram undan „Á endanum skiptir öllu hvernig tekst til í þessum búvörusamning- um sem fram undan eru við ríkið, hvernig horfurnar verða á því að auka fjárfestingu í greininni. Skiptir þar miklu máli niðurgreiðslan á flutn- ingskostnaði í raforkunni – sem hefur verið mikill skilningur á sem betur fer og skiptir kannski mestu máli. Síðan hefur verið veittur stuðning- ur í formi krónutölu á seldu magni af tómötum, papriku og gúrkum – vegna þess að tollverndinni var aflétt af þessum tegundum. Við viljum að þessu verði þá í það minnsta haldið áfram. Varðandi kostnað við orkuflutn- ing þá er það ekkert alveg einfalt mál, en við finnum þó fyrir betri hljóm- grunni upp á síðkastið fyrir því að við getum tryggt framlagið í samningi við greinina. Við skiljum að það sé dálítið flókið að taka gjaldskrána og breyta henni, sérstaklega fyrir garð- yrkjuna, því þar koma inn í myndina jafnræðissjónarmið og fleiri greinar eru auðvitað líka að nota mikið raf- magn. Þetta er gríðarlegt hagsmuna- mál garðyrkjunnar og við treystum því að það verði áfram tekið tillit til okkar sjónarmiða í þessu máli og það fest inn í búvörusamninginn. Ef það gerist ekki erum við háðir því að þetta skili sér í fjárlögum hvers árs. Ráðherra hefur talað fyrir því að samningurinn verði jafnvel til tíu ára og við erum á sömu línu með það, því það skiptir máli að vita hvernig framtíðarlandslagið muni líta út að þessu leyti.“ Einn rammasamningur fyrir landbúnaðinn Gunnar segir að fram undan sé þessi búvörusamningagerð við ríkið. Það sé áhugi af beggja hálfu fyrir því að gera einn rammasamning yfir land- búnaðinn í heild sinni og þar sé tekið inn menntunarmál, aukin arðsemi í landbúnaði, nýliðun, umhverfismál, fæðuöryggi og fleira. Síðan verða gerðir undirsamningar fyrir hverja búgrein fyrir sig. „Hjá okkur þarf að uppfæra eitt og annað, ég get nefnt kartöflutoll- inn sem dæmi. Hann hefur verið óbreyttur í krónum talið frá því að GATT-samningurinn var gerður árið 1994. Tollverndin í kartöflunum hefur því veikst mikið með árunum. Garðyrkjusamningurinn rennur út nú í lok árs og við höfum óskað eftir því á grundvelli þessara viðræðna að framlengja hann óbreyttan um eitt ár, á meðan það er verið að ganga frá öðrum undirsamningum. Ég sé fyrir mér að það verði þá hægt að ganga frá þessu endanlega um þarnæstu áramót. Í þessum heildarsamningi sem er í spilunum held ég að það verði horft dálítið til garðyrkjusamningsins, því það hefur verið mikill friður um þann samning. Hjá okkur háttar styrkja- fyrirkomulaginu þannig til, að það er borgað visst á 100 kíló af seldum tómötum – og ef það seljast 200 kíló þá fækkar krónunum á hvert kíló um helming. Það hefur verið talað um að breyta styrkjakerfinu þannig að það verði farið að styrkja á land í stað framleiðslu – í svipuðum dúr og Evrópusambandið er með. Það kallar hins vegar á alveg gríðarlega vinnu við það að skrá land og hafa eftirlit með því. Ég held að það sé mikilvægt fyrir okkur í garðyrkjunni – ef það á að fara að styrkja út á land – að útirækt- inni sé komið undir það kerfi. En það á allt eftir að koma í ljós hvernig þetta verður. Stöðugleiki er í ylræktinni á Íslandi, en útiræktunin er dálítið happdrætti. Gunnar heldur hér á spírum sem hann selur svo til veitingahúsa. Hann segir áhugaverða vaxtarsprota vera til staðar í garðyrkjunni, en nýliðunina vanti.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.