Bændablaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015
Skýrsla um áhættumat vegna innflutnings á lifandi dýrum:
Hætta á smiti strax á fyrsta ári
Í tveimur skýrslum sem unnar hafa
verið um áhættumat á innflutningi
á lifandi búfé er sagt að áhættan
við slíkt sé veruleg. Kostnaður
vegna afleiðingar mögulegs smits
hleypur á milljörðum.
Meginniðurstaða áhættugrein-
ingarinnar er að strax á fyrsta ári eftir
að innflutningur hæfist undir for-
merkjum reglna Evrópusambandsins
(ESB ) um frjálst flæði, væru miklar
líkur á að sjúkdómar færu að gera
vart við sig í íslenskum dýrum og
að þessi áhætta myndi aukast með
hverju ári þar á eftir. Í skýrslunum er
einungis miðað við hugsanlegt smit
í sauðfé, nautgripum og hrossum.
Líkur á mæði-visnasmiti
Samkvæmt greiningunni eru miklar
líkur á að nautgripastofn garnaveiki-
bakteríunnar og einnig Salmonella
Dublin bærist í nautgripi hér á landi
og afleiðingar sýkinganna yrðu
líklega miklar. Jafnframt eru mikl-
ar líkur á að bakterían sem veldur
Q-hitasótt berist í nautgripi, sauðfé
eða geitur en afleiðingarnar aftur á
móti ekki eins miklar. Miklar líkur
eru taldar á að veirur sem valda
mæði-visna og smitandi liða- og
heilabólgu bærist í sauðfé og geitur
hér á landi með innflutningi á lifandi
sauðfé og geitum og að afleiðingar
þess yrðu alvarlegar. Sömuleiðis er
samkvæmt greiningunni mjög líklegt
að þeir þrír hrossasjúkdómar sem
teknir voru fyrir bærust í hross með
alvarlegum afleiðingum.
Gengið út frá innflutningi
frá Danmörku
Í áhættumatinu er fyrst og fremst
metin áhættan af því að flytja inn lif-
andi dýr frá Danmörku, þar sem talið
er líklegt að íslenskir bændur myndu
sækja sér þangað efnivið í kynbætur
sínar og enn fremur er talið mjög trú-
verðugt að miða við Danmörku, sem
er þekkt fyrir ágætt sjúkdómsástand
og stjórnun á dýraheilbrigði miðað
við önnur ESB-lönd.
Milljarða kostnaður
Í kostnaðarmati um afleiðingar smits
vegna hugsanlegs innflutnings á
lifandi dýrum var gerð athugun á
efnahagslegum afleiðingum á því
að garnaveiki kæmi upp í íslenskum
nautgripum. Talið er að tjón vegna
þessa sjúkdóms gæti numið allt að
tveimur milljörðum króna.
Sé litið til þess að tjón vegna
garnaveiki í nautgripum er áætlað
um tveir milljarðar króna má búast
við að tjónið hlypi á tugum milljarða
yrði sjúkdómarnir fleiri.
Smit vegna nautgripastofns
garnaveikibakteríunnar dregur úr nyt
gripa, frjósemi verður minni, gripir
endast ver og kjötið af þeim verður
lélegra og kostnaðurinn sem fylgir
því mundi leggjast þyngst á bænd-
ur vegna minni nytja og almenns
afurðataps.
Aðdragandi áhættumatsins
Halldór Runólfsson, fyrrverandi yfir-
dýra læknir og núverandi ráðgjafi hjá
atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytinu, segir aðdraganda skýrslunn-
ar eiga sér nokkuð langa sögu. Þegar
Ísland gerðist aðili að EES árið1994,
hafi verslun með lifandi dýr, dýra-
afurðir og fisk verið undanþegið í
þeim samningi. „Seinna var verslun
með fisk tekin inn í samninginn og
reglugerðir þar að lútandi teknar upp
hér á landi. Evrópusambandið hefur
gert athugasemdir við þessar undan-
þágur Íslands við EES-samninginn
allt frá upphafi og þá sérstaklega eftir
að Norðmenn tóku yfir regluverk
ESB um landbúnaðarvörur og inn-
flutning á lifandi dýrum árið 1997.
Íslendingar hafa aftur á móti ekki
viljað gangast við þeim reglum vegna
hættu á að búfjársjúkdómar sem ekki
þekktust hér bærust til landsins og
yllu óafturkræfum skaða. Árið 2002
gaf Evrópusambandið út nýja mat-
vælalöggjöf og þá hófst þrýstingur
á að við tækjum yfir matvælahlutann
sem við gerðum að stórum hluta í
árslok 2010, nema hvað varðar lif-
andi dýr og hrátt ófrosið kjöt.
Meðal þess sem var skoðað
eftir að aðildarviðræður Íslands við
Evrópusambandið hófust var hvað
stæði út af í sambandi við dýra-
og matvælalöggjöf ESB. Krafa
Evrópusambandsins var strax í upp-
hafi að við yrðum að taka löggjöfina
yfir í heild og þar á meðal leyfa inn-
flutning á lifandi dýrum til landsins
undir þeirra reglum. Þetta var óásætt-
anlegt af Íslands hálfu og þá gerði
ESB kröfu um að við sýndum fram
á það með vísindalega viðurkenndum
aðferðum að við þyrftum á strangari
reglum að halda.
Í framhaldi af því var ákveðið
að láta vinna skýrslu sem færi yfir
áhættuna sem fylgdi því að hingað
yrði frjálst flæði dýra án allra varúð-
arráðstafana og smithættuna sem því
fylgdi,“ segir Halldór.
Vandað til verka
Halldór segir að til verksins hafi verið
fenginn dr. Preben Willeberg, fyrr-
verandi yfirdýralæknir í Danmörku
og prófessor í dýralækningum við
háskólana í Kaupmannahöfn og í
Kaliforníu. Samhliða því var dr.
Daði Már Kristófersson, landbúnað-
arhagfræðingur við Háskóla Íslands,
fenginn til að meta kostnað vegna
hugsanlegs smits væri innflutningur
lifandi dýra gefinn frjáls. Auk þess
sem skýrsla dr. Willeberg var ritrýnd
og talin unnin samkvæmt alþjóðleg-
um stöðlum og sem viðurkenndir
eru af Alþjóðadýraheilbrigðis-
málastofnuninni, Alþjóða dýra-
heilbrigðis mála stofnuninni OIE í
París og Alþjóðaviðskiptastofnuninni
WTO í Genf.
Innflutningur á eigin forsendum
gengið vel
„Satt best að segja kom mér á óvart
hversu afgerandi niðurstaða áhættu-
matsins er og að gera megi ráð fyrir
smiti strax á fyrsta ári. Fram til þessa
hafa Íslendingar flutt inn mikið af lif-
andi gæludýrum, lifandi loðdýrum,
svínum og erfðaefni í kynbótaskyni
auk frjóeggja fyrir alifuglafram-
leiðendur. Það er gert undir ströngu
eftirliti og samkvæmt okkar eigin
forsendum og gengið ágætlega.
Í skýrslunni kemur meðal annars
fram að líkur á mæði-visnasmiti
séu miklar en það var eytt gríðar-
legri vinnu, tíma, fé og fórnum í að
útrýma þeim sjúkdómi hér á landi á
síðustu öld og stórslys ef hann kæmi
upp aftur.“
Halldór segir ekki mikla hættu
á að sjúkdómarnir sem fjallað er
um í skýrslunni geti borist í menn
og valdið alvarlegum sýkingum.
„Salmonella Dublin er þó afbrigði
af Salmonellu sem ekki hefur greinst
hér á landi og getur borist í menn úr
nautgripum og valdið alvarlegum
niðurgangi og vanlíðan.“
Smit berst með fólki
Halldór segir að Íslendingar verði
í nánustu framtíð að auka varnir
sínar þegar kemur að vörnum gegn
smitsjúkdómum í búfé. „Bæði
ferðamenn og Íslendingar sem koma
frá útlöndum geta hæglega borið
með sér smitefni og flestir búfjár-
sjúkdómar sem borist hafa hingað
á undanförnum árum hafa vafalítið
borist með fólki.
Þeir sem ferðast til
Bandaríkjanna, Kanada, Ástralíu
Nýja-Sjálands og fleiri landa vita
að þeir þurfa að útfylla pappíra þar
sem því er svarað hvort viðkom-
andi hafi heimsótt bóndabýli fyrir
ákveðnar tímasetningar eða hvort
í farangrinum séu matvæli sem
hugsanlega gætu borið búfjársmit.
Í Nýja-Sjálandi hefur meira að segja
verið tekið upp á því að hreinsa eða
sótthreinsa skófatnað við komuna
til landsins.
„Sjálfur hef ég lagt til að slíkt
eftirlit verði hert hér á landi en ekki
enn komist áfram með það mál.
Við þurfum til dæmis að koma upp
gegnumlýsingarbúnaði á flugvöllum
og hundum sem eru sérhæfðir í að
hafa uppi á kjöti. Veikasti hlekk-
urinn í vörnum okkar í dag tengist
ferðamönnum og Íslendingum sem
snúa heim frá útlöndum og hafa
hugsanlega haft viðdvöl á svæðum
þar sem búfjársjúkdómar eru land-
lægir eða nýlega komið upp. Auk
þess sem við verðum að fylgjast vel
með öllum innflutningi á kjöti. Stóri
gin- og klaufaveikifaraldurinn sem
kom upp í Bretlandi árið 2001 er
til dæmis rakinn til innflutnings á
ólöglegu kjöti.“
Frystikrafa fyrir hrátt kjöt er
einangrunartími
Þrátt fyrir að ekki sé fjallað um smit-
hættu á búfjársjúkdómum sem geta
fylgt innflutningi á hráu kjöti segir
Halldór að í dag sé flutt inn mikið
af hráu kjöti til landsins, en að það
sé frosið.
„Við teljum að frystikrafan hafi
mikla þýðingu þegar kemur að
sjúkdómavörnum. Hún gefur okkur
ákveðinn frest eða einangrunartíma
ef vera skyldi að það hefði komið
upp sjúkdómur í landinu þar sem
kjötið var framleitt. Tíminn sem um
ræðir er þrjátíu dagar og nógu lang-
ur fyrir flesta sjúkdóma að koma í
ljós og því mikilvæg mótvægisað-
gerð vegna innflutnings á hráu kjöti.
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA)
ætlar að höfða mál gegn Íslandi
vegna þess að verslunin hér á landi
kærði á sínum tíma að innflutning-
ur á hráu kjöti hafi ekki verið tek-
inn með þegar matvælareglugerð
Evrópusambandsins var lögtekin
hér á landi.“
Skýrslan stendur þrátt fyrir að
aðildarviðræðum hafi verið hætt
Halldór segir að þrátt fyrir að
áhættumatið hafi verið unnið í
tengslum við aðildarviðræður við
Evrópusambandið og að þeim
sé hætt standi matið fyrir sínu.
Skýrslurnar í heild má lesa á vef-
síðum atvinnuvega- og nýsköpun-
arráðuneytisins og utanríkisráðu-
neytisins, www.anr.is og utn.is.
„Skýrslan sýnir svo ekki verður
um villst hvaða hætta er fólgin í
því að leyfa óheftan innflutning á
lifandi dýrum til landsins og þann
kostnað sem gæti fylgt í kjölfar-
ið. Ég tel reyndar miklar líkur á
að Ísland hefði fengið undanþágur
eða sérákvæði um innflutning lif-
andi dýra á grundvelli skýrslunnar,
hefðu samningaviðræðurnar við
Evrópusambandið haldið áfram.
Enda er hún geysilega vel unnin,“
segir Halldór Runólfsson, ráðgjafi
hjá atvinnuvega- og nýsköpun-
arráðuneytinu og fyrrverandi yfir-
dýralæknir, að lokum. /VH