Bændablaðið - 24.09.2015, Side 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015
Árið 1842 stofnuðu verk-
fræðingarnir og mágarnir
Nathaniel Clayton og Joseph
Shuttleworth félag í Lincoln-
skíri á Bretlandseyjum sem
hafði að markmiði að framleiða
beltagufuvélar.
Reksturinn gekk vel frá upp-
hafi og árið 1849 hófu þeir einnig
framleiðslu á þreskivélum og áður
en langt um leið var fyrirtækið
orðið leiðandi í framleiðslu gufu-
og þreskivéla. Auk þess að selja
tækin undir eigin nafni seldu þeir
einnig vélar til annarra framleið-
enda sem merktu þær með eigin
vörumerki.
Útibú í fimm löndum
Salan á gufuvélunum var svo góð
að árið 1851 seldust 200 stykki.
Árið 1857 var framleiðslan komin
í 2.400 og árið 1890 framleiddi
Clayton & Shuttleworth 26
þúsund gufuvélar og 24 þús-
und þreskivélar. Þegar best lét
voru starfsmenn fyrirtækisins
í Lincoln-skíri 1.200 og það
með starfsstöðvar í Austurríki,
Ungverjalandi, Tékklandi og
Úkraínu.
Sex kílómetrar á klukkustund
niður í móti
Fyrirtækið hóf framleiðslu á
beltadráttarvélum með sprengi-
hreyfli árið 1911. Fyrstu tvær
vélarnar á markað frá þeim
voru stórar. Önnur fjögurra
strokka, 80 hestöfl og gekk
fyrir steinolíu en hin 90
hestöfl og fjögurra strokka
en gekk fyrir dísilolíu. Stærri
vélin var aðallega hugsuð til
að draga þunga plóga. Báðir
traktorarnir voru fremur
hægfara og náðu einungis
sex kílómetra hraða á klukku-
stund við bestu skilyrði og það
helst niður í móti.
„Sporttýpan“
Ekki liðu nema fimm ár þar til
uppfærsla var sett á markað,
beltavél sem kallaðist Clayton
Chain Rail Tractor. Sú vél var
hundrað hestöfl og hálfgerður
kappakstursbíll og sporttýpa í
samanburði við eldri vél-
arnar og náði 11 kílómetra
hraða á klukkustund á jafn-
sléttu. Stýrishjólið skagaði
fram undan vélahúsinu og
var úr járni auk þess sem
hægt var að bremsa hvoru
belti fyrir sig og snúa vél-
inni á punktinum þannig.
Salan á traktorunum gekk
ekki sem skyldi og Marshall
vélaframleiðandinn tók við
þeim hluta framleiðslu Clayton
& Shuttleworth árið 1926 og var
framleiðslu þeirra hætt tveimur
árum seinna.
Flugvélasmíði
Fyrirtækið var engan veginn af
baki dottið þrátt fyrir að illa gengi
með traktorana. Árið 1916
hafði það landað samningi
sem fól í sér framleiðslu á
varahlutum fyrir breska sjó-
herinn. Við upphaf heims-
styrjaldarinnar fyrri hóf
það smíði á flugvélum fyrir
breska flugherinn. Fyrsta
vélin kallaðist Sopwith
Triplane enda þrívængja.
Sú þótti ekki sérlega góð
og einungis 49 slíkar fóru í
loftið. Auk minni flugvéla fram-
leiddi fyrirtækið einnig Handley
Page týpu O sem var á sínum tíma
stærsta sprengjuflugvél sem fram-
leidd var á Bretlandseyjum.
Eftir að framleiðslu þrívængj-
unnar var hætt hófst smíði á
Sopwith Camel en sú gerð var
aðallega þekkt fyrir að hafa
skotið niður Fokker-þrívængju
þýska flugmannsins Manfred von
Richthofen, eða Rauða barónsins
eins og hann var kallaður. /VH
Clayton & Shuttleworth
– skutu niður Rauða baróninn
Utan úr heimi
Ekkert lát virðist ætla að verða
á útbreiðslu afrísku svínapest-
arinnar African Swine Fever í
Rússlandi. Pestin hefur verið
þekkt þar í landi frá 2007 og er
nú landlæg í Georgíu, Armeníu,
Azerbaídsjan, Úkraínu og Hvíta-
Rússlandi.
Þá hefur hennar einnig orðið vart
í fjórum Evrópusambandsríkjum, en
það eru Pólland, Litháen, Lettland
og Eistland, auk ítölsku eyjarinn-
ar Sardiníu þar sem veikinnar varð
fyrst vart í Evrópu árið 2007.
Svínapestin í Rússlandi veldur
mönnum þar í landi áhyggjum, ekki
síst vegna viðskiptabannsins sem í
gildi er gagnvart Evrópusambandinu.
Eftir að viðskiptabannið var að fullu
sett í gang í fyrra kynntu Rússar stór-
felldar áætlanir til að verða sjálfum
sér nægir í framleiðslu á svínakjöti,
alifuglakjöti, sauðfjárkjöti og öðrum
matvælum. Hefur viðskiptabann
ESB gagnvart Rússum í kjölfarið
snúist upp í andhverfu sína þar sem
það hefur m.a. haft mjög alvarleg
áhrif á danska, pólska og finnska
svínabændur sem misst hafa af afar
mikilvægum viðskiptum við Rússa.
Tveggja milljarða dollara
uppbyggingaráform í uppnámi
Miratorg, stærsti svínakjötsframleið-
andi í Rússlandi, setti í kjölfar við-
skiptabannsins af stað metnaðarfulla
áætlun um gríðarmikla uppbyggingu
í svínarækt. Samkvæmt henni átti
að byggja upp og stækka svínabú
í Rússlandi fyrir sem nemur um
2 milljörðum dollara. Svínapestin
hefur þó sett þessi áform Miratorg
í uppnám og samkvæmt fréttum á
vefsíðunni The Pig Side hafa þau
nú verið sett í biðstöðu. Eigi að
síður er framtíðin í svínarækt talin
mjög björt innan Rússlands í kjölfar
viðskiptabannsins vegna aukinnar
eftirspurnar innanlands. Það er að
segja ef hægt verður að koma í veg
fyrir smita á svínabúunum.
Vandinn sem við er að glíma í
Rússlandi er ekki eingöngu smit á
búgörðum, heldur er einnig um smit-
uð villisvín að ræða í skógunum sem
halda áfram að breiða ASV-vírusinn
út. Þá var einnig greint frá því að
þrátt fyrir mjög hertar reglugerðir
við svínarækt í Rússlandi, þá fari
um 30% svínaframleiðslunnar fram
á smábýlum eða í „bakgörðum“ eins
og það er orðað víða um land. Sú
framleiðsla fer að stórum hluta fram
utan seilingar reglueftirlitsmanna.
Þá er sagt að nokkuð sé um að fátækt
fólk sem vinni á stóru búgörðun-
um steli hreinlega grísum til að ala
heima við vafasamar aðstæður.
Þann 14. september var enn eina
ferðina greint frá svínadauða af
völdum ASV í Rússlandi og var 25
dýrum slátrað í kjölfarið. Komu þau
frá Podrovskoe-þorpi á Orlovskaya-
svæðinu.
Í ágúst var einnig greint frá því
er 20 svín drápust svo staðfest var
af þessum vírus á Bryanskaya-,
Ryazanskaya- og Orlovskaya-
svæðunum. Voru 26 svín til við-
bótar drepin til að hindra frekari
útbreiðslu. Þannig má lengi áfram
telja.
Mjög smitandi
Afríska svínapestin er mjög smit-
andi sjúkdómur í bæði villtum
svínum og í eldissvínum í Afríku,
Evrópu og í Ameríku.
Sýnileg áhrif hjá smituðum
dýrum er hár hiti, lystarleysi, útbrot
á húð og innri líffærum. Dýr sem
smitast drepast yfirleitt á tveim til
tíu dögum. Dauðatíðni smitaðra
svína og grísa er sögð 100%. Um er
að ræða DNA-vírus af Asfarviridae-
ætt. Skylt er að tilkynna um smit
til World Organisation for Animal
Health (OIE). Vírusinn berst milli
svæða m.a. með hráu kjöti, fatnaði
og farartækjum. Þannig gæti vírus-
inn hæglega borist til Íslands ef ekki
er varlega farið. /HKr.
Afríska svínapestin veldur æ meiri usla í Rússlandi:
Hefur sett í uppnám stórfelld
áform Rússa í svínarækt
− vírusinn berst milli svæða m.a. með hráu kjöti, fatnaði og farartækjum
Manfred von Richthofen eða Rauði
baróninn.
Smittilfelli afrísku svínapestarinnar frá 2007 til 2014.
Smitaður svínsskrokkur fjarlægður af svínabúi í Rússlandi.
Upphaf svínapestarinnar er rakið til
Afríku.