Bændablaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 42

Bændablaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015 Dagana 21.–30. júlí sl. fór hópur ungra bænda í fagferð til Evrópu en tilgangur ferðarinnar var að halda upp á útskrift hópsins frá Hvanneyri. Hér er síðari hluti umfjöll- unar um þessa fagferð, en fyrri hlutinn birtist í síðasta tölublaði Bændablaðsins. Með SAC mjaltaþjóna Fyrst var hollenska fyrirtækið H.A. De Bruijn heimsótt en fyrirtækið framleiðir m.a. innréttingar fyrir búfjárhús en er einnig með ótal umboð og þjónustu fyrir margs konar framleiðendur eins og SAC, JOZ, Suavia o.fl. Eftir fína kynningu hjá fyrir- tækinu var svo haldið í heimsókn á kúabú Christ Daemen í Rijsbergen í Hollandi, en þar var mjólkað með SAC mjaltaþjóni sem sinnir tveimur mjaltaklefum. Christ býr þar ásamt föður sínum með rétt rúmlega 100 kýr og framleiðir í ár um 900 þúsund lítra en hann stefnir á að framleiða árlega 1,1–1,2 millj- ónir lítra. Fjós með velferðarstíum Hann tók nýja fjósið í notkun í nóv- ember sl. en áður var hann með 95 kýr í 70 legubása fjósi svo þar var allt of þröngt og framleiðslan minni eftir því. Nýja fjósið tekur hins vegar 120 kýr í framleiðslu eða samtals um 143 árskýr. Fjósið er nokkuð hefðbundið nútíma mjaltaþjónafjós með vel- ferðarstíum þar sem hægt er að hafa kýr sem þarf að fylgjast sérstaklega með. Þær geta svo sjálfar farið í mjaltaþjóninn þegar þeim hentar og mjaltaþjónninn sér svo um að opna hlið fyrir þær eftir mjaltir svo þær skili sér til baka yfir á velferðar- svæðið. Nytin hefur aukist í nýja fjósinu Eftir að kýrnar fóru í nýja fjósið hefur meðalnytin hækkað vel og stefnir nú í 9 þúsund lítra, sem vel að merkja er allgott í Hollandi en þar er meðalnyt kúa í lægri kantinum miðað við mörg Evrópulönd, eða um 8.500 lítrar að jafnaði. Þar sem hann notar Holstein-kýr geta þær framleitt miklu meiri mjólk, en hann sagði að það tæki tíma að vinna sig upp. Kýrnar gætu hæglega skilað 12–14 þúsund lítra meðalnyt, en þá yrði að sinna þeim vel og gefa gott gróffóður og kraftmikið heilfóður. Með 50 hektara fyrir 120 kýr Búið er ekki nema með 50 hektara lands, sem er skipt til helminga í maís- og rýgresisræktun. Þar sem landið er takmarkað er framleiðsla búsins af mykju of mikil miðað við hektarafjöldann og því þarf að koma henni annað. Árlega þarf því að losna við 1000 rúmmetra til nágrannabæja en Christ býr svo vel að nágrannar hans eru garðyrkjubændur og geta tekið við allri umframmykju. Aðspurður að því af hverju hann kaupi ekki meira land svo hann geti nýtt mykjuna sjálfur sagði hann að á svæðinu í kringum hann væri hekt- arinn til sölu á um 80.000 evrur (um 11,5 milljónir króna) sem sé einfald- lega verð sem hann ráði ekki við. Fær greitt fyrir að setja kýrnar út Á sumrin fara kýrnar út á tún og fyrir það fá hollenskir bændur borgað sérstaklega, alls 1 evrusent á hvern framleiddan lítra og á þessu búi þýðir það því um 1,5–1,7 milljónir í aukatekjur og munar heldur betur um slíka upphæð enda tap á rekstrinum, segir Christ. Þegar búið var heimsótt, seinni- partinn í júlí, fékk hann 30 evrusent fyrir lítrann (43 krónur) en núll- punktur í framleiðslunni hjá Christ eru 33 evrusent eða 47 krónur svo hver lítri er framleiddur með fjögurra krónu tapi. Afurðastöðin Friesland Campina hafði enn fremur boðað frekari verðlækkun svo fyrirséð var að tapið myndi aukast á næstunni. Aðspurður um það hve lengi hann geti framleitt mjólk með tapi þá sagði hann að hann gengi sem stendur á eigin sjóði, en síðasta ár var afar hagstætt til framleiðslu en afurða- stöðvaverðið fór mest í 48 evrusent (69 krónur) og þá var hagnaðurinn af hverjum lítra 15 evrusent (um 22 krónur) á búinu. Hann var skynsamur og lagði fyrir hluta af hagnaðinum og því hefur hann eigin sjóði til að ganga á. Hann vonast til þess að afurðastöðvaverðið fari upp á við eftir hálft ár, en hann sagðist ekki þola tap að óbreyttu í lengri tíma en eitt ár. 950 mjólkurgeitur Næstsíðasta faglega heimsóknin í þessari ferð var svo á geitabúið Caprahoeve við bæinn Hoogstra- ten í Belgíu. Bú þetta er vissulega af stærri gerðinni, með 950 mjólkur- geitur og er að stækka í 1.200 geitur. Búið reka hjónin Paul og Rit Boeren en þau starfa bæði við búið Hús tekið á evrópskum bændum – seinni hluti Utan úr heimi Skógareldar í Indónesíu: Gríðarlegt reykjarkóf í Suðaustur-Asíu Framkvæmdastjórar og stjórn- armenn sjö plantekrufyrirtækja hafa verið handteknir í Indónesíu í tengslum við gríðarlega skógar- elda sem geisa þar. Talið er að kveikt hafa verið í stóru skóglendi til að rýma fyrir ræktun á olíupálma til framleiðslu á pálmaolíu. Skógareldarnir undanfarnar vikur eru með þeim stærstu sem orðið hafa í landinu og ná yfir um tvö hundruð þúsund hektara lands sem er að stórum hluta frið- aðir frumskógar. Reykjarkófið frá eldunum er gífurlega mikið og hefur valdið mikilli mengun í landinu og nærliggjandi löndum. Ástandið var svo slæmt í Singapúr og í höfuðborg Malasíu, Kuala Lumpur, um tíma að skyggni var ekki nema nokkrir metrar, fólki ráðlagt að vera með öndunargrímur og skólum var lokað. Grunur leikur á að stjórnarmenn fyrirtækja sem hafa hag af því að frumskógar séu felldir standi á bak við upptök eldanna. Sannist það eiga þeir harða dóma yfir höfði sér. Þrátt fyrir tilraunir til að slökkva eldana hefur slíkt skilað litlum árangri og ekki hjálpar til að nú stendur yfir þurrkatímabil á þess- um slóðum. /VH Tígrisdýr drap dýrahirði í Nýja-Sjálandi: Fær að lifa Ákveðið hefur verið að karltígris- dýr sem drap dýrahirði í Hamilton- dýragarðinum í Nýja-Sjálandi fyrir nokkrum dögum verði ekki fellt og fái að lifa áfram í garðin- um. Atvikið átti sér stað þegar vanur dýrahirðir fór inn í búr dýrsins til að gefa því að éta, líkt og hann hafði gert í mörg ár. Tígurinn sem um ræðir kallast OX og er einn af fimm Súmatra- tígrisdýrum í garðinum sem eru frið- uð enda dýrin talin í bráðri útrým- ingarhættu enda ekki vitað um nema 400 slík í heiminum. Hann er auk þess hluti af verk- efni sem felst í því að viðhalda stofni Súmatra-tígrisdýra. Í tilkynningu vegna atviksins segir að dýrahirðar við dýragarða viti að það sé í eðli tígrisdýra að drepa bráð og að því miður geti dauðsföll af þessu tagi átt sér stað þar sem menn umgangast þau. /VH Fæðuöryggi í Afganistan fer versnandi Samkvæmt tölum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) býr nú þriðjungur afgönsku þjóðar- innar við ótryggt fæðuöryggi. Um fjórðungur þjóðarinnar, eða 7,3 milljónir manna, búa við nokkurt fæðuóöryggi. Þá búa 5,9% eða um 1,5 milljónir manna við mikið fæðuóöryggi. Staðan í landinu er nú þannig að fjölmargir bændur hafa gefist upp og óskað eftir hjálp frá vinum og ættingjum. Aukinn fjöldi hefur neyðst til að selja land sitt og taka börn sín úr skóla til að láta þau vinna. Samkvæmt nýrri skýrslu Seasonal Food Security Assessment in Afghanistan (SFSA), hefur fjöldi þeirra bænda sem gefist hafa upp tvöfaldast á einu ári. Er afleiðingin sögð geta verið mikil fjölgun fátækra í Afganistan sem ekki nær að fá næga fæðu. Að stórum hluta er ástæðan rekin til átaka í landinu undanfarin ár og áratugi. Stöðugt fleiri hrakist frá heimilum sínum og búi við afar kröpp kjör. /HKr. Samkvæmt tölum FAO eiga sífellt Mynd / FAO Myndir / SS -
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.