Bændablaðið - 24.09.2015, Side 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015
Á hverju vori heldur Vélhjóla-
íþróttaklúbburinn stærstu aksturs-
íþróttakeppni Íslands í landi
Ásgarðs við Kirkjubæjarklaustur
þar sem Eyþór Valdimarsson og
Þóranna Harðardóttir búa.
Keppendur eru oftast nálægt 400
og er akstursbrautin yfir 14 km löng
sem hlykkjast um ræktuð tún og
óræktað land í landi Ásgarðs.
Keppnin sjálf stendur í sex
klukkutíma og eru að jafnaði um tvö
hundruð mótorhjól í brautinni í einu
þessa sex tíma sem keppnin stendur.
Að lokinni keppni er brautarstæðið
eins og vel plægður akur fyrir sáðn-
ingu og ósléttur.
Mörgum sem sjá brautarstæðið
fyrstu dagana eftir keppni finnst
sárið ljótt og að ekki sé
hægt að græða sárið í
landinu nokkurn tímann
upp, en svo er ekki.
Munurinn á landinu
frá vori til hausts
ótrúlegur
Um miðjan september fór
ég á námskeið sem haldið
var af Reykjavik Motor
Center í landi Ásgarðs
við Kirkjubæjarklaustur.
Þar var kennt að aka stór-
um ferðamótorhjólum við
erfiðar aðstæður.
Örlítill hluti nám-
skeiðsins var í einni af
brekkunum sem eru í
keppnisbrautinni frá því síðasta
vor, en að sjá brautina svona grasi
vaxna fannst mér með ólíkindum
hvað fallegt brautarstæðið var, en
það eina sem benti til þess að þarna
væri akstursbraut voru gulu stikurnar
sem afmörkuðu brautina.
Öll brautin er grasi vaxin fallega
grænu grasi sem nær manni upp
undir hné. Við þessa sýn datt mér í
hug að taka heimilisfólkið á Ásgarði
tali um keppnina, uppgræðsluna og
samskipti þeirra við torfærumótor-
hjólafólk.
Hitti heimilisfólkið fyrst í réttum
Mér fannst ég vera að stela af heim-
ilisfólkinu dýrmætum tíma þar sem
að daginn sem ég var þarna var
réttardagur og þau öll í Skaftárrétt,
en eftir réttir og að hafa ekið fénu
heim á vagni gáfu þau sér tíma í
lítið spjall.
Aðspurð um keppnina á vorin
voru öll svör þeirra Eyþórs og
Þórönnu mjög jákvæð í garð mótor-
hjólafólks og keppenda. Keppendur
dásama skemmtilega braut og fara
ánægðir héðan.
„Keppnin er mikill hagur fyrir
ferðaþjónustuna í sölu á gistingu og
mat hér á svæðinu. Við fáum hluta
af keppnisgjaldi sem keppendur
greiða sem fer að stórum hluta í
kostnað vegna keppninnar svo sem
salernisaðstöðu, hlið á girðingar, fræ
og áburð og tækjakostnað við að
slétta braut og sá í hana. Fólk hefur
býsnast yfir því að við séum að fara
illa með landið með því að láta spóla
og tæta það upp, en nú er öll brautin
grasi gróin og fæstir sem sjá brautina
í dag mundu trúa því hvernig brautin
var fyrir þrem mánuðum.“
Gaman að heyra jákvæðar sögur
„Mótorhjólakeppnin er eins og
hver önnur íþróttakeppni sem fær
að mínu mati allt of litla umfjöllun
í fjölmiðlum,“ sagði Eyþór, „og mín
kynni af keppendum er góð. Mér
finnst sjálfsagt að lána landið fyrir
svona keppni og námskeið eins og er
hér í dag. Allt þetta er bara jákvætt,
ekki bara fyrir mig heldur sveitar-
félagið allt.“
Kennararnir á námskeiðinu, sem
komu frá Offroad Skills í Wales,
voru afar ánægðir með landið og
aðstæður á landinu, en það eina
sem truflaði þá var falleg jöklasýn
þegar sólin skein á Öræfajökul.
Eyþór Örlygsson, framkvæmdastjóri
Reykjavik Motor Center, var mjög
ánægður með námskeiðið í landi
nafna síns á Ásgarði.
Mótorhjólamenn keppa í landi Ásgarðs í sátt við bændur
− talið hagur fyrir ferðaþjónustuna á svæðinu og allar gróðurskemmdir eru græddar upp eftir keppni
liklegur@internet.is
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI Hjörtur L. Jónsson
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
BRÉF FLÓN SLÆMA VÆTA UPP ÞVAÐRA DUGNAÐUR
ÁFASTUR KAUPANDI S K R I F A N D I
SAFDREP K J Ó L TEGUNDLYKTIR G E R Ð
TSKÝRA FRÁ J Á L E I Ð A N
A N G A N ÁISTJÖKUN A F I
G ÓKYRRÐ ÍSSKÁPURAÐGÆTA K Æ L I R
UNDIRLAG
Í RÚMI
TVEIR EINS D Ý N A LAUG
FRIÐURKÆRASTA
MMÁLMURRYK
TEYMA
VÆLA
R Ó G U R KJÖKUR UMSÖGNHYGGST Á L I T HÓPUR HORFT BBAKTAL
Á R Á S SEYTLRÖNDIN V Æ T L BLÓÐSUGAER I G L ATILRÆÐI
Þ Ó KRASSASKRIFA K R O T A FLAGAGLÁPA S N E I ÐÞÓTT
R I S FISKURGOÐ Á L L
AND-
SPÆNIS
SKERA G E G N T BRAGAR-HÁTTURSTÍGANDI
Ö STALÁLITS T Ó K FRUMEIND A T Ó M SKARÐSÝRA G I L
S M Í Ð I
GYÐJA
VEIÐAR-
FÆRI R Á N
GRANDI
TANGI E I Ð ISAM-SETNING
T A L I N N LÁÐTVEIR EINS L A N D NAFNORÐ ÞÚSUNDÓÐ MÁLITINN
U
R
T
S
A
SKJÁLFA
N
N
GRÖM
Ö
E
T
R
R
G
A
ÁRS-
GAMALL
RISPA
E
S
I
K
N
O
Æ
R
R
A
ÁN
Í RÖÐ
21
ÁRSTÍÐ SPILLA HVIÐA KVK NAFN HAPP-DRÆTTI STEFNUR SÁLDRA
SVISS
FANGA
BRÚKA
ÁNÆGJU-
BLOSSI
SIGAÐ
AÐ
NIÐRA
STEFNA FRÁ
BRESTIR
FROST-
SKEMMD
KRAFSA
SAMTÖK
SPRIKLKVARTA
KÚSTUR
TÍUND
ASKJA
ÓHREINKA
VÆTU
STAÐNA
GÓLA BLÁSA TVEIR EINS
GEFA
EFTIR
AUSTUR-
ÁLFA
FRAMVEGIS
SAKLAUS
HEIÐUR
FLÉTTA
MESSING
ÞÍÐA
ÁFORM
GOSEFNI
EKKI
SPOR
SÖNG-
LEIKUR
RUSL
ÖFGA-
FULLUR
GÖSLASVELGUR
YFIRGAF
SKOTT
LÍFFÆRI
ÓÐAGOT
SJÓ
KEYRA
ANGAN
HVAÐ SKELFINGGÓMA
NÖLDRA
TVÍHLJÓÐI
BELTI
KRINGUM
HÆGLÆTI
VESÆLL
HÝRA
SKÁN
SPJÁTRUNG-
URMJÖG
ÁTT
22
Mynd / HLJ Mynd / Halldór Sveinsson.
Mynd / HLJ
Mynd / HLJ