Bændablaðið - 24.09.2015, Page 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015
Jósefína Hrafnhildur Pálmadóttir
og Ingimar Skaftason stofnuðu
nýbýlið Árholt og byggðu þar
íbúðarhús ásamt útihúsum. Pálmi
er fæddur og uppalinn í Árholti.
Árið 2001 komum við hjónin inn
í búreksturinn og búið rekið saman
með foreldrum Pálma, en árið 2005
tókum við svo formlega við öllu
búinu. Síðan þá höfum við fjölgað í
bústofninum, sérstaklega í nautaeldi.
Býli: Árholt.
Staðsett í sveit: Í Húnavatnshreppi
í Austur-Húnavatnssýslu.
Ábúendur: Janine Kemnitz og Pálmi
Þór Ingimarsson.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Við eigum tvær dætur, Þórönnu
Mörthu, 5 ára og Hrafnhildi Elsu,
2 ára. Gæludýrin eru Hlunkur sem
er heimilishundur og barnapía og 3
fjósakettir, Gríma, Rósi og Snúlla.
Stærð jarðar? 120 ha og svo nýtum
við góðar slægjur á tveimur öðrum
jörðum.
Gerð bús? Kúabú, nautauppeldi
og kindur sem eru aðaláhugamálið
á bænum.
Fjöldi búfjár og tegundir? 27
mjólkandi kýr, 75 nautgripir (naut
og kvígur á öllum aldri), 150 kindur,
2 svín, nokkrar hænur og 30 hross.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Dagurinn byrjar á því að koma
dömunum í skólabílinn og svo taka
fjósverkin við. Dagurinn endar svo
líka á mjöltum. Verkin þar á milli
eru bara mjög breytileg.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Sauðburður, heyskapur
og líflambaskoðun eru skemmti-
legust. Þar fyrir utan finnst bónd-
anum frábært að keyra skít. Það er
hins vegar ekki vinsælt hjá stelpun-
um þegar skít er dreift við bæinn í
sunnanátt. Það er alltaf leiðinlegt
þegar alvarleg veikindi koma upp
hjá dýrunum og það þarf jafnvel
að aflífa þau.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Vonandi fleiri nautgripir og
líka kindur.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Þau eru í ágætis
málum.
Hvernig mun íslenskum landbún-
aði vegna í framtíðinni? Vel, ef við
höfum það íslenskt – já takk!
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Núna geta kúabændur framleitt skyr
og lambakjöt.
Hvað er alltaf til í ísskápnum? Lýsi,
ostur, súrmjólk, gúrka og feit mjólk
úr tanknum.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Hrísgrjónagrautur
stendur upp úr hjá Þórönnu Mörthu
og heimareykt nautatunga hjá
Hrafnhildi Elsu. Lambalæri er svo
alltaf vinsælt hjá fullorðna fólkinu.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þegar graðhesturinn
fór ofan í haughúsið og það þurfti
að lyfta honum upp með dráttarvél.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Rifið svínakjöt á flatböku og bragðgóðar bollakökur
Að þessu sinni bökum við ljúf-
fenga pizzu með rifnu svínakjöti.
Svokallað „pulled pork“ nýtur
vaxandi vinsælda en þá er kjöt-
ið látið malla í ofni þar til það er
orðið nær moðsoðið.
Kjötið er líka kjörið að nota í
samlokur. Að lokum kynni ég ykkur
fyrir bollakökum sem taka örfáar
mínútur í undirbúningi. Hitta alltaf
í mark.
Rifið svínakjöt á flatböku
› 50 ml eplaedik
› 100 ml tómatsósa
› 50 g púðursykur
› 1 msk. gult sinnep
› 2 tsk. Worcestershire-sósa
› 2 rif hakkaður hvítlaukur
› 1/2 tsk. salt
› 1/4 tsk. cayenne pipar
› 1/4 tsk. ferskur malaður svartur pipar
› 300 g „BBQ Pulled pork“ svínakjöt
(sjá uppskrift á eftir)
› 1/2 stk. lítill laukur, lauslega sneiddur
› 200 g nýjar kartöflur sneiddar
› Annað meðlæti að eigin vali ostur eða
kryddjurtir
Aðferð
Í miðlungs pott, sameinið edik,
tómatsósu, púðursykur, gult sinnep,
Worcestershire, hvítlauk, salt,
cayenne og svartan pipar. Látið
suðuna koma upp, hrærið til að
leysa upp sykurinn. Leyfið sósunni
að krauma í 10 til 15 mínútur eða þar
til hún hefur þykknað örlítið. Setjið
til hliðar og leyfið að kólna.
Setjið pizzastein í ofninn (annars
þykkan stálbakka ef steinn er ekki
til) og forhitið í 250 °C.
Stráið um 2 til 3 matskeiðum af
hveiti á borð og fletjið deigið út.
Raðið þunnt skornum kartöflum á
deigið (gott að velta þeim upp úr
smjöri eða hvítlauksolíu).
Rennið pizzunni inn á heitan pizza-
steininn eða bakkann og bakið í 10
til 12 mínútur eða þar til skorpan er
stökk og gyllt. Látið svínakjötið í
sósuna, setjið á pizzuna ásamt lauk-
sneiðum og kryddjurtum úr garðin-
um. Dreifið osti jafnt yfir pizzuna.
Pizzadeig
› 230 g (1 bolli) heitt vatn (50° C)
› 20 g þurrger
› 1 tsk. hunang
› 2 matskeiðar extra Virgin ólífuolía
› 400 g (3 bollar) hveiti
› 1 tsk. salt
Í stóra skál, sameinið vatn, ger,
hunang og 1 msk. af olíu. Hrærið
í gott deig. Látið hvíla í um það bil
5 mínútur.
Bætið helmingnum af hveitinu og
salti, blandið með handafli þar til
blandan er slétt. Haldið áfram að
bæta restinni af hveitinu út í. Vinnið
þar til deigið er slétt en samt örlítið
klístrað. Setjið í skál með restinni af
ólífuolíunni. Plastið með filmu og
hvílið á heitum stað þar til deigið
hefur tvöfaldast í stærð, um 1 1/2
klst.
Kýlið deigið niður og fletjið út í
pizzu eftir þörfum.
„BBQ Pulled pork“ svínakjöt:
› 1 biti svínakjöt, t.d. hnakki
› 1 msk. salt
› 1 tsk. cayenne pipar
› Ferskur malaður pipar
Fjarlægið svínakjötið úr kæli og látið
það ná stofuhita áður en lengra er
haldið.
Hitið ofninn í 160° C. Setjið kjötið
á pönnu, steikið vel á öllum hliðum.
Kryddið með salti, pipar og cayenne
pipar. Hyljið með álpappír og bakið
í 4 klukkustundir.
Fjarlægið svínakjöt úr ofninum,
setjið til hliðar og kælið örlítið.
Fjarlægið alla umframfitu. Rífið
niður með hjálp tveggja gaffla eða
notið hreinar hendurnar. Tætið
svínakjötð niður í litla bita, blandið
í sósuna og framreiðið ofan á forbak-
aða pizzuna.
Rauð bollakaka með vanillu-
smjörkremi
› 1 matskeið smjör, brætt
› 1 stór egg
› 1/2 tsk. vanilludropar
› 3 matskeiðar sykur
› 3 matskeiðar (1/4 bolli) hveiti
› 1 tsk. lyftiduft
› rauður matarlitur
Í skál eða bolla, sameinið öll inni-
haldsefni og hrærið þar til deigið er
slétt (ekki þeyta um of). Setjið deigið
í kaffibolla og bakið í örbylgjuofni
á háum hita í 75 til 90 sekúndur,
eða þar til kakan er bökuð. Látið
kólna aðeins áður en kremið er sett
á. Örbylgjukökur er best að borða
nýbakaðar.
Vanillu-smjörkrem
› 2 matskeið smjör, þeytt
› 40 g 1/4 bolli flórsykur
› 1/4 tsk. vanilludropar
Sameinið öll innihaldsefni í skál og
þeytið saman. Bætið við bragðefni
eða lit að eigin vali.
Súkkulaði- og hnetu smjörs-
bollakaka
› 3 matskeiðar hveiti
› 2 matskeiðar sykur
› 1 1/2 msk. kakó duft
› 1/4 tsk. lyftiduft
› klípa af salti
› 3 matskeiðar mjólk
› 1 1/2 msk. jurtaolía
› 1 msk. hnetusmjör eða Nutela
hnetukrem
Í stóru kaffimáli eða skál, hrærið
saman þurru hráefni (hveiti, sykur,
kakó duft, lyftiduft og salt). Bætið í
mjólk, olíu og hnetusmjöri (Nutela).
Hrærið þar til deigið er slétt.
Eldið í örbylgjuofni á háum hita í um
1 mínútu og 10 sekúndur. Berið fram
strax! Þetta verður mjög ljúffengt!
MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI
Árholt