Morgunblaðið - 05.08.2015, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2015
Guðmunda Elíasdóttir
óperusöngkona lést á
dvalar- og hjúkrunar-
heimilinu Grund 2.
ágúst, 95 ára að aldri.
Guðmunda fæddist í
Bolungarvík 23. janúar
1920 og var hún dóttir
Elíasar Þórarins
Magnússonar, for-
manns í Bolungarvík,
(f. 1878, d. 1923) og Sig-
ríðar Jensdóttur hús-
freyju (f. 1881, d. 1968).
Guðmunda ólst upp á
Grundum í Bolungar-
vík fyrstu sex árin, en
faðir hennar drukknaði er hún var á
fjórða ári. Hún flutti árið 1926 með
móður sinni að Látrum í Aðalvík og
síðan til Ísafjarðar, þar sem þær
bjuggu til 1932. Þá fluttu þær til
Reykjavíkur.
Guðmunda átti tvær alsystur, sjö
hálfsystkini samfeðra og sex hálf-
systkini sammæðra.
Guðmunda fór ung til Kaup-
mannahafnar og hóf þar söngnám
við Konservatoríið árið 1939. Aðal-
kennari hennar var Dóra Sigurðsson
prófessor. Hún stundaði einnig nám
hjá Kristian Riis í Kaupmannahöfn,
Madame Fourestier í París og hjá
Florence Bower í New York.
Guðmunda söng í
óperum og hélt tón-
leika á Íslandi og er-
lendis. M.a. söng hún
fjórum sinnum í Hvíta
húsinu í forsetatíð
Eisenhowers. Guð-
munda söng töluvert í
útvarp og inn á hljóm-
plötur. Hún kenndi
söng í tónlistarskólum
og í einkatímum. Þá
lék Guðmunda í ellefu
kvikmyndum á sextán
ára tímabili. Ævisaga
Guðmundu, Lífsjátn-
ing, sem Ingólfur Mar-
geirsson skráði, kom út 1982. Hún
var heiðurslistamaður Alþingis frá
1995.
Guðmunda giftist Henrik Knud-
sen gullsmíðameistara (f. 1918, d.
1993) þann 24. október 1943. Þau
bjuggu í Danmörku til 1945 en eftir
það ýmist á Íslandi, í Danmörku eða
í New York þar til þau slitu sam-
vistir. Börn þeirra voru Bergþóra (f.
1944, d. 1946), Hans Albert (f. 1947,
d. 2009) og Sif Knudsen (f. 1950).
Ömmubörn Guðmundu eru fjögur og
langömmubörnin átta talsins.
Guðmunda giftist Sverri Krist-
jánssyni, sagnfræðingi og rithöfundi
(f. 1908, d. 1976), vorið 1973.
Andlát
Guðmunda Elíasdóttir
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það er alveg á hreinu að það hefur
ekki verið svona mikill snjór í Öskju
síðan 1980. Ég hef verið þar uppfrá
hvert einasta sumar síðan þá,“ sagði
Gísli Rafn Jónsson, framkvæmda-
stjóri Myvatn Tours í Mývatnssveit.
Hann ekur ferðamönnum í Öskju.
Gísli Rafn tók þátt í því í síðustu
viku, með starfsmönnum Vegagerð-
arinnar, að moka leiðina upp á bíla-
planið við Öskju. Fram að því þurftu
starfsmenn Myvatn Tours að sel-
flytja ferðamenn upp á bílaplanið á
snjótroðara. Fyrst þurfti að selflytja
þá fjóra kílómetra, þaðan sem bílarn-
ir urðu að stoppa vegna ófærðar. Svo
var hægt að ryðja tvo km í viðbót þar
til nú var loksins hægt að moka alla
leið.
„Þar sem við mokuðum fyrir viku
voru skaflarnir tveir til þrír metrar
að dýpt. Við höfum aldrei mokað
svona miklum snjó, það er alveg á
hreinu,“ sagði Gísli Rafn í gær.
Ferðamennirnir ganga frá bíla-
planinu inn að Víti og Öskjuvatni.
Gísli Rafn sagði að gengið væri á snjó
alla þá leið. Öskjuvatn er enn á ís að
verulegum hluta og ófært er niður í
Víti vegna stórrar snjóhengju sem
getur fallið á gönguleiðina.
„Þessi snjór inni í Ösku er ekki að
fara neitt, hann hverfur ekki þetta
sumarið,“ sagði Gísli Rafn. Að-
spurður taldi hann ekki nokkrar líkur
á að Gæsavatnaleið opnaðist í sumar,
eftir því sem hann hefði frétt af
ófærðinni á þeim slóðum.
Snjór, krapi eða drulla
Nú er allt á kafi í snjó, krapa eða
drullu á Gæsavatnaleið, að sögn
Gunnars Bóassonar, yfirverkstjóra
hjá Vegagerðinni á Húsavík. Hann
frétti í síðustu viku að þá væri enn
einn og hálfur metri af snjó ofan á
brúna yfir Skjálfandafljót neðan við
Gæsavötnin.
„Megnið af leiðinni er á kafi í snjó
og þar sem eitthvað er byrjað að
hlána eru bara krapablár,“ sagði
Gunnar. Hann kvaðst ekki hafa sér-
staka trú á að Gæsavatnaleið opn-
aðist í sumar. Gunnar sagði að menn
sæju vel á leiðinni í Öskju að þar væri
ekkert að hlána. Vegagerðin hefði
mokað þar sem færi að sjást niður í
dökk.
„En þar sem eru snjóhvítar fann-
breiður gerist ekki neitt. Sólin hefur
lítil áhrif á þetta. Hitinn er að fara
niður undir frostmark á nóttunni og
jafnvel niður í frost. Þetta er mjög
óvanalegt,“ sagði Gunnar. Hann
sagði líka óvenjulegt hvernig snjór-
inn hefði sest í vetur. Langmest hefði
verið af honum á sunnanverðu há-
lendinu en hann hefði líka lagst í
sveip austur með norðanverðum
Vatnajökli. Ekki hefði þó verið mikill
snjór í Kverkfjöllum og ekki heldur á
neðri hluta Öskjuleiðar í vor. „En fyr-
ir ofan 700 til 800 metra hæð er allt á
syngjandi svarta kafi,“ sagði Gunnar.
Sex svæði enn lokuð
Enn er allur akstur bannaður á sex
svæðum á hálendinu, samkvæmt há-
lendiskorti Vegagerðarinnar. Austur-
hluti hringvegarins á Lakasvæðinu
var opnaður um síðustu helgi en hann
hafði verið lokaður vegna aurbleytu.
Stærsta lokaða svæðið er norðan
við Vatnajökul. Þar er m.a. Gæsa-
vatnaleið og slóði upp með Skjálf-
andafljóti. Þá er bannað að aka um
Snæfellsleið innan við Snæfellsskála.
Einnig er F735 vestan við Hveravelli
lokaður.
Bannað er að aka eftir slóðum á
svæði milli Auðkúluheiði og Arnar-
vatnsheiði, á svæði sunnan við Kerl-
ingarfjöll og á svæði sem er á milli
Heklu og Torfajökuls, að hluta á milli
Fjallabaksleiðar syðri (F210) og
Landmannaleiðar (F225).
Ljósmynd/Gísli Rafn Jónsson
Askja Síðasti spölurinn að bílaplaninu við Öskju var ruddur í síðustu viku. Skaflarnir voru 2-3
metra djúpir og 300-400 metra langir. Ferðamenn ganga á snjó inn að Víti og Öskjuvatni.
„Allt á syngjandi svarta kafi“
Ekki verið jafn mikill snjór í Öskju og nú síðan 1980 Síðasti spölurinn var ruddur í síðustu viku
Mikill snjór á Gæsavatnaleið og krapablár þar sem farið er að hlána Ólíklegt að hún opnist í sumar
Ljósmynd/Ragnheiður Jóna Grétarsdóttir
Öskjuvatn Vatnið er enn ísi lagt að miklu leyti þrátt fyrir að komið sé fram í ágúst. Ófært er
niður í Víti vegna stórrar snjóhengju sem getur fallið á gönguleiðina. Lítið tekur upp af snjó.
Ástand fjallvega
Heimild: Vegagerðin
Allur akstur innan skyggðra svæða er bannaður þar til annað verður auglýst vegna
hættu á skemmdum á vegum og náttúru. Kortið gefur aðeins til kynna hvar umferð er
heimil eða óheimil vegna aurbleytu. Það segir ekki til um færð utan skyggðra svæða.
Gildir frá 2. ágúst 2015
Talsvert hvassviðri var á miðhálendinu í gær, en í
veðurstöðvum við Þúfuver og Hágöngur mældist vind-
ur 20 metrar á sekúndu í strengjum. Háannatími er nú
hjá hálendisvakt Landsbjargar, en hópstjórar á
Sprengisandi og í Landmannalaugum urðu vel varir
við rokið. Að sögn Siggeirs Pálssonar, hópstjóra há-
lendisvaktarinnar á svæðinu, höfðu flestir ferðamenn í
Landmannalaugum pakkað tjöldum sínum og farið
vegna roksins.
„Við höfum verið að aðstoða ferðamenn við að fergja
tjöld og gefa almennar ráðleggingar um hvernig
ferðast skuli í roki. Margir hafa leigt húsbíla og felli-
hýsi sem taka mikinn vind. Við erum við öllu búin, hér
er mikið grjót til að fergja tjöld,“ sagði hann þegar
Morgunblaðið náði tali af honum í gærkvöldi.
Sandfok fylgdi hvassviðrinu í gær þegar laus jarð-
Ferðamönnum hjálpað í Nýjadal
Ljósmynd/Hanna Vilhjálmsdóttir
Belgingur Sandmistur lá yfir Landmannalaugum í gær og mörg tjöld voru tekin niður vegna roksins.
vegur á svæðinu þyrlaðist upp. Mistur á höfuðborgar-
svæðinu síðdegis í gær má rekja til foksins á hálendinu.
Öllum komið í skála í Nýjadal
Í Nýjadal við Tungnafellsjökul hvessti einnig hressi-
lega í gær. Gunnar Kr. Björgvinsson, hópstjóri há-
lendisvaktarinnar á Sprengisandssvæðinu, sagði að vel
hefði verið brugðist við veðrinu. Björgunarsveit-
armenn hefðu þurft að hjálpa köldum og hröktum
ferðamönnum. „Það hefur verið hvasst hérna. Allir
sem ætluðu að vera í tjöldum í Nýjadal eru komnir inn í
skála. Svo heppilega vildi til að það var pláss fyrir
alla,“ sagði hann.
Talsverður fólksfjöldi er á svæðinu, flestir eru í hóp-
um en að sögn Gunnars hefur færra fólk verið á ferð
þar en oft áður. jbe@mbl.is