Morgunblaðið - 05.08.2015, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2015
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þ
etta er þriðja sumarið
mitt sem ég spila hér á
Laugaveginum fyrir
gesti og gangandi, en
fyrri tvö sumrin spilaði
ég á fiðlu. Núna ákvað ég að spila
frekar á gítarinn, því þá get ég
sungið með,“ segir Benedikt
Schriefer, 17 ára strákur sem býr í
Cleveland í Bandaríkjunum, en
móðir hans er íslensk og faðirinn
bandarískur.
„Ég er fæddur og uppalinn í
Bandaríkjunum en við fjölskyldan
komum til Íslands á hverju sumri
og erum hér allt sumarið. Við kom-
um líka alltaf til Íslands yfir jólin.
Við höldum til hjá móðurömmu
minni hér í miðbænum á Vatns-
stígnum, svo það er stutt fyrir mig
að rölta hingað á Laugaveginn og
næla mér í smá pening,“ segir
Benedikt, sem hefur húfu á gang-
stéttinni fyrir framan sig þar sem
fólki er frjálst að setja aura ef það
vill þakka fyrir spileríið hans.
„Fólk er almennt mjög ánægt
með að ég sé að spila og syngja en
sumir eru stundum nokkuð ágeng-
ir, kannski búnir að fá sér nokkra
bjóra og vilja jafnvel fá að spila á
gítarinn minn. Ég reyni að vera
kurteis og bægja slíku fólki frá,“
segir Benedikt, sem mætir alltaf
seinnipartinn með gítarinn, þegar
hann hefur lokið vinnudegi sínum í
sumarvinnunni við að mála.
Óskalag kærasta til kærustu
Benedikt segir að þegar hann
hafi leikið á fiðluna á Laugaveg-
inum undanfarin tvö sumur hafi
Gleður vegfarendur
með lifandi tónlist
Hann kemur til Íslands frá Bandaríkjunum á hverju sumri og býr hjá ömmu,
stundar vinnu yfir daginn og röltir svo á Laugaveginn seinnipartinn og spilar og
syngur fyrir þá sem eiga leið um. Fólk er í alls konar ástandi og ekki alltaf til friðs
en Benedikt lætur það ekki á sig fá og heldur áfram að spila á gítarinn sinn.
Morgunblaðið/Ásdís
Flottur Benedikt stendur hér utan við Vísi á Laugavegi og syngur og spilar.
Viðburðir á vegum Hinsegin daga
halda áfram að lita vikuna með
skemmtilegum og frumlegum hætti.
Nú geta gestir og gangandi gert sér
ferð í Ráðhús Reykjavíkur á morgun
klukkan fimm, þar sem ljósmyndarar
á vegum ljósmyndabankans Press-
Photos sýna úrval mynda af við-
burðum Hinsegin daga frá upphafi.
Myndunum verður varpað á skjá-
varpa og er ætlað að vekja upp
skemmtilegar minningar og sýna fal-
legar stundir liðinna ára. Einnig verða
til sýnis prentaðar portrettmyndir
eftir Öldu Villiljós og Öldu Lilju sem
sýna fólk úr hópnum sem verður oft
utangarðs, jafnvel innan hinsegin
samfélagsins. „Fólk sem brýtur
normin í stað þess að reyna að falla
inn í þau,“ segir á vefsvæði viðburð-
arins á Facebook.
Þá hefur einnig fengist góðfúslegt
leyfi hjá fjölskyldu ljósmyndarans
góðkunna Ingólfs Júlíussonar heitins
til að birta myndir hans af gleði-
göngu Hinsegin daga frá árinu 2006
á sýningunni, segir í tilkynningu
PressPhotos á vefsvæðinu.
Úrval mynda frá PressPhotos til sýnis
Morgunblaðið/Ómar
Gleðin Ljósmyndarar PressPhotos hafa fangað gleðina í göngunni í gegnum ár-
in frá upphafi og sýna afraksturinn í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun klukkan 17.
Svipmyndum frá Hinsegin
dögum bregður fyrir í ráðhúsinu
...Kitlaðu hláturtaugarnar í eitt skipti
fyrir öll. Grínistinn Pétur Jóhann Sig-
fússon heldur uppi fjörinu með áður
óþekktum hætti á Hótel Selfossi næst-
komandi föstudagskvöld kl. níu.
Uppistandið „Pétur Jóhann óhefl-
aður“ verður opið öllum og því ekkert
að vanbúnaði sé maður staddur á Sel-
fossi eða í nærliggjandi sveitum að
tryggja sér miða, sem kostar 3.900 við
dyrnar en 2.900 í forsölu í tískuvöru-
versluninni Cleopatra á Selfossi.
Pétur ferðast nú um landið með sýn-
inguna í farteskinu og sendir hverja
húsfyllina á eftir annarri hlæjandi út í
kvöldið og því er til mikils að vinna.
Endilega...
Enginn fer fúll
inn í helgina
Morgunblaðið/G.Rúnar
Bros Pétur Jóhann er fyndinn maður.
„Bókabæirnir austan-
fjalls eru heimili fyrir
munaðarlausar bækur
og þar lífgum við upp
á og litum samfélagið
okkar með besta arf-
inum sem við eigum,
bókmenntaarfinum.
Bókabæirnir aust-
anfjalls eru í lág-
sveitum Árnessýslu.“
Svo segir í yfirlýsingu
frá samtökum sem
kalla sig Bókabæina
austanfjalls, en þau
standa fyrir bóka-
markaði við Austur-
mörk í Hveragerði
sem hefur verið
hverja helgi í allt
sumar og gert storm-
andi lukku. Nú fer
hver að verða síðastur
að næla sér þar í
bækur, því aðeins
tvær helgar eru eftir.
Bókamarkaðurinn er
opinn frá föstudegi til
sunnudags frá kl. 12-
18 og þar er að finna
þúsundir titla á lágu
verði, bæði notaðar
bækur og nýjar. Öll helstu bóka-
forlög landsins eru þátttakendur í
markaðinum en það eru Bókabæ-
irnir austanfjalls sem hafa veg og
vanda að framkvæmdinni, en þau
samtök voru nýlega samþykkt inn í
alþjóðasamtök bókabæja, sem er
heldur betur stórt skref.
Bókamarkaðurinn hefur fengið
listamenn til að heilsa upp gesti
Bókamarkaður Bókabæjanna austanfjalls
Bæjarfógetinn Bastían mætir
ásamt einkennilegu fylgdarliði
Stjórar Svalar Aldís og Ásta bæjarstjórar ætla að
afgreiða á bókamarkaðinum um næstu helgi.