Morgunblaðið - 05.08.2015, Side 11

Morgunblaðið - 05.08.2015, Side 11
Rólegur Götulistamaðurinn. hann spilað annars konar tónlist fyrir vegfarendur en hann spilar nú á gítarinn. „Á fiðluna spilaði ég popplög sem margir kannast vel við og líka gömul amerísk þjóðlög, til dæmis frá stríðsárunum, og ég spilaði líka lög eftir Elton John, fólki virðist líka það vel. Reyndar kom maður til mín og borgaði mér tvö þúsund íslenskar krónur fyrir að ganga til kærustu hans og spila lag eftir El- ton John. Á gítarinn spila ég aftur á móti annars konar tónlist, til dæmis lög eftir Pixies, mín eigin frumsamin lög sem og lög frá hljómsveitinni Orwells frá Chi- cago,“ segir Benedikt og bætir við að hann hafi reyndar verið í hljóm- sveit með kærustu söngvara þeirr- ar hljómsveitar. „En hljómsveitin sem ég er í núna heitir Exotic Fruit Club og þar spila ég á gítar. Við spilum tón- list sem fellur helst undir skilgrein- inguna síðpönksendurreisn (e. post-punk revival). Ég er með stúdíó í kjallaranum heima í Cle- veland og þar sem ég tónlist og þar tökum við í Exotic Fruit Club upp tónlistina okkar. “ Öglögin gripu í taumana Tónlist er ástríða Benedikts og hefur verið lengi. Hann segist hafa suðað í foreldrum sínum þegar hann var lítill drengur um að eign- ast fiðlu, af því að hann langaði svo mikið til að spila á slíkt hljóðfæri. Þau uppfylltu óskir hans og hann hóf fiðlunám aðeins fjögurra ára. „Þegar ég var 14 ára var verk- efni í skólanum mínum þar sem við áttum að velja okkur hóp og ég hafði valið mér hóp sem kallaðist Sirkusinn. En örlögin gripu í taum- ana, ég slasað mig á fæti og gat ekki verið með, því að verkefnið krafðist líkamlegra átaka, svo ég skipti um hóp og fór í hóp sem hét Music Production. Við sem vorum í þessum hópi stofnuðum blús- hljómsveit og ég spilaði á fiðluna. Þetta var mjög ögrandi verkefni fyrir mig, því ég vissi ekkert hvernig ætti að spila blústónlist, en ég lét vaða og það var mjög skemmtilegt að vera hluti af þess- ari hljómsveit. Þá ákvað ég að tón- list væri það sem ég vildi einbeita mér að í lífinu, og ég hætti við áform mín um að læra læknisfræði og verða læknir eins og afi minn. Ég ætla að fara í háskóla í Clevel- and þar sem er góð listabraut og leggja þar áherslu á tónlistina, því það er virkilega svalt tónlistar- prógramm þar.“ Allt afslappaðra á Íslandi Benedikt nýtir tímann vel á Ís- landi, hann hefur gaman af því að fara á tónleika hér og hlusta á lif- andi tónlist. „Ég fer mikið á KEX Hostel til að hlusta á bönd sem þar koma fram. Ég fer líka á Rosenberg og fleiri staði sem bjóða upp á lifandi tónlist og svo var margt fjölbreytt í boði á Innipúkanum.“ Benedikt segir lífið heima í Cleveland vera nokkuð ólíkt því sem gerist á Íslandi. „Hér á Íslandi er allt miklu af- slappaðra. Ég gæti til dæmis ekki farið út á götu heima í Bandaríkj- unum og spilað fyrir vegfarendur, þá kæmi löggan strax til að fjar- lægja mig.“ Aurar Benedikt fær alltaf einhverja aura í húfuna fyrir spilamennskuna. Alls konar Óvænt kom maður með gítar og vildi fá að spila með Benedikt og það var meira en sjálfsagt mál. Hvíld Gott er að setjast stundum niður á bleika bekkinn í harkinu. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2015 markaðarins allar helgarnar nema þá nýliðnu. Margt skemmtilegt hef- ur borið við, til dæmis kom kona ein á markaðinn og fann gömlu Heiðu bókina eftir Johonnu Spyri og varð afskaplega glöð, því barna- barnið hennar var skírt í höfuðið á þessari einu sönnu Heiðu, en þau áttu ekki bókina og héldu að þau fengju hana aldrei. Um næstu helgi verða barnabæk- ur í forgrunni á bókamarkaðinum og starfsmenn bókamarkaðarins verða ekki af verri endanum, því bæjarstjórarnir í Árborg og Hvera- gerði, þær Ásta Stefánsdóttir og Aldís Hafsteinsdóttir, ætla að halda um stjórnartaumana hjá þeim á sunnudeginum og aðstoða fólk við bókakaup. Þeim til halds og trausts verður sjálfur bæjarfógetinn Bastían ásamt einkennilegu fylgdarliði. All- ir krakka, ásamt mömmum og pöbbum, eru því hvattir til að kíkja í heimsókn og heilsa upp á þessa skemmtilegu bæjarfógeta. Helgina eftir næstkomandi helgi, lokahelgina þetta sumar sem opið verður á bókamarkaðinum, verður mikið um dýrðir, ljóðahátíð og upp- boð. Þá sömu helgi verður einmitt bæjarhátíð í Hveragerði, svokall- aðir Blómstrandi dagar, og margt hægt að skoða og skemmta sér við í bænum. Hlýlegt Notalegt er á bókamarkaðinum og gestir láta fara vel um sig.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.