Morgunblaðið - 05.08.2015, Side 13

Morgunblaðið - 05.08.2015, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2015 Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is Rekstrarvörur – fyrir þig og þinn vinnustað Hreinlætisvörur - á tilboði í ágúst og september SRL EQUODOSETM frá Filmop er einfalt og mjög notendavænt skömmtunarkerfi. Enginn rafeindabúnaður, sem þýðir engar tæknibilanir og lágmarks viðhald. Nýtt TWIN LIGHT GARDÍNUR Láttu sólina ekki trufla þig í sumar Betri birtustjórnun Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Hringdu og bókaðu tíma í máltöku Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. Sími: 588 5900 ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík. Sími: 421 2061 Glerárgötu 32, Akureyri. Sími: 462 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán.-fös. 10-18 Meira úrval Meiri gæði Íslensk framleiðsla eftir máli Opinn fundur verður haldinn mið- vikudaginn 5. ágúst frá kl. 12 til 13 í Odda 101. Veronika Tudhope flytur erindið: Baráttan gegn Trident-kjarnorku- vopnunum í Skotlandi og áhrif henn- ar á umheiminn. Kjarnorkuvopnabúr Bretlands er geymt í Faslane-kafbátastöðinni í grennd við Glasgow í Skotlandi. „Friðarsinnar hafa barist gegn stöð- inni um árabil og dregið fram ýmsar skuggalegar upplýsingar um ástand kjarnorkuflotans,“ segir m.a. í kynningu frá fundarboðendum. Veronika Tudhope hefur tekið virkan þátt í baráttunni. Fundarstjóri verður Kristinn Schram, lektor í þjóðfræði við Há- skóla Íslands. Fundurinn verður á ensku og er öllum opinn. Baráttan gegn Trident- kjarnorku- vopnunum Píratar mælast með mest fylgi allra flokka á Íslandi, 35,0%, í nýrri skoð- anakönnun MMR, en Björt framtíð mældist í könnuninni með 4,4%, sem þýðir að fengi flokkurinn þetta fylgi í kosningum næði hann ekki manni á þing. Könnun MMR var framkvæmd 22. til 30. júlí sl. og var heildarfjöldi svarenda 956 einstaklingar, 18 ára og eldri. Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 33,2%, en í síðustu könnun MMR mældist stuðningur við ríkis- stjórnina 30,4%. Píratar bæta við sig 1,8 prósentu- stigum frá síðustu könnun, Sjálf- stæðisflokkurinn mældist í nýjustu könnun með 23,1% en var í síðustu könnun með 23,8%. Framsóknar- flokkurinn var nú með 12,2% en með 10,6% mánuði áður. VG mældist nú með 10,2% en var mánuði áður með 12,0%. Samfylkingin mældist með 9,6% fylgi, en var mánuði áður með 9,3%. Björt framtíð var fyrir mánuði með 5,6% en fer eins og áður segir nú í 4,4%. Aðrir flokkar mældust undir 2%. Vikmörk eru samkvæmt MMR +/- 3%. Í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup fyrir RÚV mælast Píratar einnig með mest fylgi, 32%, og mælast þannig stærstir fjórða mánuðinn í röð, Sjálf- stæðisflokkurinn með 24%, Fram- sóknarflokkurinn og Samfylkingin með rúm 12%, VG með 9% og Björt framtíð með 5%. Samkvæmt Gallup nýtur ríkisstjórnin stuðnings 36% aðspurðra. Gallup gerði könnunina á netinu dagana 25. júní til 27. júlí. Ríflega 7.000 manns voru í úrtakinu og 57% svöruðu. Samkvæmt frétt Gallup eru vikmörk við fylgi flokkanna í könn- uninni á bilinu 0,6-1,5 prósent. agnes@mbl.is Enn mælast Pí- ratar stærstir  Björt framtíð fengi ekki mann á þing Morgunblaðið/Kristinn Alþingi Björt framtíð fengi ekki kosinn mann á þing skv. MMR. Brautin – bindindisfélag ökumanna hefur gefið út niðurstöður árlegrar könnunar sinnar á öryggisbúnaði reiðhjóla í verslunum. Aðeins 14% hjóla í könnuninni voru seld með all- an tilskilinn búnað samkvæmt reglu- gerð um búnað hjóla. Árið 2005, þegar Brautin hóf að kanna búnað hjóla, var hlutfallið 53%. Ástandið var best árið 2011, þegar 71% hjóla taldist uppfylla öll skilyrði, en hlutfallið hefur minnkað síðan og var 37% í fyrra. Meðal sér- hæfðra hjóla, þ.e. annarra en götu- hjóla, var aðeins 1% útbúið bjöllu. Verslanir beri ábyrgð Einar Guðmundsson, formaður Brautarinnar, segir þróunina var- hugaverða. „Við höfum áhyggjur af þessu. Aðalvandamálið er bjöllurnar en miðað við þróunina nú, með stór- auknum hjólreiðum, er nauðsynin brýn. Þróunin virðist vera að alltaf dregur úr öryggisbúnaðinum á hjól- unum. Ef þú kaupir þér bíl er það nú ekki svo að þú þurfir að kaupa ljósin á bílinn sérstaklega, svo að það er skrítið að menn leyfi sér þetta með reiðhjólin.“ Brautin leggur sérstaka áherslu á ábyrgð hjólasala í þessu sambandi. Að réttu ættu verslanir að ganga úr skugga um að seld vara þeirra sé lögleg. Lítill áhugi á öryggisbúnaði Hjá hjólaverslunum fengust al- mennt þau svör að kaupendur sér- hæfðra keppnishjóla hefðu yfirleitt lítinn áhuga á aukahlutum eins og bjöllum og eftir atvikum öðrum ör- yggisbúnaði. Menn legðu mikið upp úr því að létta hjólin sem mest. Götuhjól kæmu almennt með öll- um búnaði frekar en hitt, en reglur um hjól eru misjöfn eftir löndum og staðalbúnaður eftir því. Framkvæmd könnunar Í könnuninni var farið yfir 353 hjól í fimmtán verslunum á höfuðborgar- svæðinu. Hjólin voru metin eins og þau stóðu í versluninni en ef verslun- in lét búnaðinn fylgja keyptum hjól- um var það metið sem svo að hjólið væri með búnaðinn. Öryggisbúnaðurinn sem Brautin kannaði svo að hjól teldist fullbúið er bjalla, glitmerki að framan og aftan, glit á fótstigi, fram- og aftur- bremsur, teinaglit og keðjuhlíf. Eitt af hverjum sjö reiðhjólum löglegt  Könnun sýnir fá hjól með allan skyldubúnað  Nær engin sérhæfð hjól með allan öryggisbúnað Hlutfall reiðhjóla með allan skyldubúnað Í maí Heimild: Brautin 80 70 60 50 40 30 20 10 0 2005 2007 2011 2012 2013 2014 2015 % 53% 62% 71% 47% 59% 37% 14% Morgunblaðið/Þórður Keppni Á keppnishjólum leita menn allra leiða til að draga úr þyngd.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.