Morgunblaðið - 05.08.2015, Síða 16

Morgunblaðið - 05.08.2015, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2015 Skipholt 50c • 105 Reykjavík • 582 6000 • www.computer.is Síðan 1986 Sendum hvert á land sem er Tölvur og fylgihlutir Windows 10 er komið á lager! Allar In-Win tölvur afhentast nú með Windows 10. Bless Windows 8. Komdu í heimsókn og prófaðu!                                    !  !  "# # $$% %"% !%% %"# " &'()* (+(      ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 #$ !% !#  #$$ #% $  % !"" %# ##"  " !% !   " #%# $$% % !%!# %# "!% !# Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Hlutabréfaviðskipti í Kauphöll Íslands í nýliðnum mánuði námu 24.849 millj- ónum króna, eða 1.080 milljónum á dag að meðaltali. Þrátt fyrir að við- skiptin hafi dregist saman um 22% frá því í júní nemur aukningin miðað við sama mánuð í fyrra um 79%. Árið 2014 námu meðalviðskipti hvers virks dags 604 milljónum. Mest voru viðskipti með bréf Iceland- air Group, eða 4.743 milljónir króna. Fast á hæla þess komu bréf í Marel, en viðskipti með þau námu 4.349 millj- ónum. Þá hækkaði úrvalsvísitalan um 4,3% milli mánaða og stóð í upphafi þessa mánaðar í 1.542 stigum. Júlí var fjörlegri nú í Kauphöllinni en í fyrra ● Fjárfestirinn Vincent Tchenguiz hefur sótt um áfrýjunarleyfi til áfrýjunar- dómstóls í Bretlandi vegna skaðabóta- máls sem hann höfðaði gegn slitabúi Kaupþings og fleiri aðilum. Máli hans gegn slitabúinu var vísað frá í undir- rétti, sem einnig hafnaði heimild til áfrýjunar. Þeirri niðurstöðu hefur hann hins vegar skotið til áfrýjunardómstóls- ins. Talið er að málaferlin geti sett nauðasamning Kaupþings í uppnám, en stefnt er að því að fá hann sam- þykktan af kröfuhöfum og dómstólum fyrir áramót. Sækir um áfrýjunarleyfi í máli gegn Kaupþingi STUTTAR FRÉTTIR ... í þeim flokki eykst útflutningsverð- mæti á föstu verðlagi um 105%. Sú aukning skilaði 12 milljarða verð- mætaaukningu. Mun fleiri raftæki Í sundurliðuðum tölum sem Hag- stofan hefur birt varðandi innflutn- ing á ýmsum vöruflokkum kemur í ljós að sprenging hefur orðið á inn- flutningi ýmiss konar rafmagns- tækja. Þannig jókst innflutningur á sjónvarpstækjum á fyrri helmingi ársins, miðað við fyrra ár, um 101%. Flutt voru inn 22.924 tæki en það eru 11.520 fleiri tæki en á viðmið- unartímabilinu 2014. Aukning í inn- flutningi ís- og frystiskápa til heim- ilisnota jókst um 73% og fjölgaði innfluttum tækjum um 4.495. Magn- tölur yfir innfluttar þvottavélar sýna líka að 86% aukning varð í þeim flokki og í heildina nam fjöldi véla sem fluttar voru inn til landsins 11.761 stykki. Minni aukning varð í innflutningi hljómflutnings- og hljóðvarpstækja en hún nam þó 46%, fór úr 6.686 tækjum í 9.771. Konráð segir að ým- islegt hafi áhrif í þessum efnum. „Það má gera ráð fyrir því að nið- urfelling vörugjalda spili þarna tölu- vert inn í en þetta er svosem einnig í takt við annað í hagkerfinu. Það er vöxtur á flestum sviðum og ákveðin þenslumerki í kortunum.“ Sama mynstur virðist koma fram í bílainnflutningi. Innflutningur fólks- bíla eykst um 34% á samanburðar- tímabilinu og fjöldi innfluttra vöru- og sendibíla tekur stökk um 67%. Útflutningsverðmæti áls upp um 46% frá fyrra ári Innflutningur á fyrri hluta árs Samanburður milli 2014 og 2015 Heimild: Hagstofa Íslands 25.000 20.000 15.000 10.000 5.000 0 Kæli og frystitæki til heimilis Þvottavélar Sjónvarpstæki Hljóðvarpstæki Fólksbílar Vöru- og sendibílar +73% +86% +101% +46% +34% +67% 2014 2015 Aukinn innflutningur » Mest er aukning í innflutn- ingi á hrávörum og rekstrar- vörum. Hann nemur 25 millj- örðum. » Íbúðafjárfesting hefur áhrif því innflutningur á þakjárni nærri tvöfaldast og 25% meira af rúðugleri samanborið við fyrri helming síðasta árs.  Innflutningur á raftækjum og bílum hefur tekið mikinn kipp á fyrri árshelmingi BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Mikill gangur hefur verið í utanrík- isverslun Íslands á fyrstu sex mán- uðum ársins. Í samanburði við sama tímabil árið 2014 hefur innflutningur aukist um 23% milli ára á föstu gengi og útflutningur aukist um 25%. Í markaðspunktum greiningardeildar Arion banka er sérstaklega bent á að aukinn útflutningur áls og álaf- urða mælist 46% miðað við fyrri helming síðasta árs. Sú aukning virðist skýrast af styrkingu banda- ríkjadollars en krónan hefur að jafn- aði verið 18% veikari gagnvart hon- um en yfir sama tímabil á fyrra ári. Þá hefur magn þess áls sem flutt er út aukist um 6%. Konráð S. Guð- jónsson hjá Arion banka segir að þessir þættir skýri aukninguna að miklum hluta. „Við höfum aðeins reynt að kanna hvað liggur að baki þessum mikla vexti í álútflutningi. Þar virðist m.a. vera 38% verðhækk- un en samt er heimsmarkaðsverð mjög nærri því sem það var á fyrri helmingi síðasta árs. Kannski er ver- ið að selja verðmætari vöru úr landi en þetta þarf að kanna nánar,“ segir Konráð. Sjávarafurðir gefa vel Á umræddu tímabili hefur verð- mæti útfluttra sjávarafurða aukist um 26%. Mestu ræður að hærra verð hefur fengist fyrir afurðir á mörk- uðum ytra en þá hefur útflutningur í tonnum talið aukist einnig eða um 19.000 tonn. Það er 6% aukning í magni. Betri loðnuvertíð og hærra verð fyrir mjöl og lýsi hefur mikil áhrif en Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, nýtti í gær kaupréttarákvæði í starfssamningi sínum að andvirði tæplega 370 milljónir króna, sam- kvæmt tilkynningu til kauphallar. Jón keypti í gær 1,25 milljón hluti í Össuri á samningsverðinu 8,55 danskar krónur en dagslokaverð við undirritun kaupréttarsamningsins hinn 24. apríl 2012 var 8,80 danskar krónur. Jón seldi svo bréfin jafn- harðan á markaði í gær á verðinu 23,50 danskar krónur. Dagslokaverð Össurar í dönsku kauphöllinni í gær var 23,80 krónur. Kauprétturinn skilar því 18,7 milljónum danskra króna, eða sem jafngildir tæplega 370 milljónum ís- lenskra króna, vegna tæplega þreföldunar á verði hlutabréfa í Öss- uri á þremur árum og þremur mán- uðum frá gerð kaupréttarsamnings- ins. Jón á enn um 540 þúsund hluti í Össuri auk þess sem hann á kauprétt á 625 þúsund hlutum til viðbótar. Í mars 2009 neyddust Jón og framkvæmdastjórar Össurar til þess að selja 23,4 milljónir hluta, eða 5,6% af heildarhlutafé félagsins. Stjórn- endurnir höfðu að mestu keypt bréf- in á hlutabréfamarkaði með lánsfé og voru hlutabréfin seld til uppgjörs á þeim skuldum. Í tilkynningu vegna sölunnar sagðist Jón sjá verulega eftir þessum hlutum í félaginu. Þeir voru samkvæmt fréttum á þeim tíma seldir William Demant Invest á 88 íslenskar krónur hluturinn, en dags- lokagengi Össurar í Kauphöll Ís- lands var í gær 500 krónur. Markaðsverðmæti þessarar hluta- fjáreignar er því nú um 11,7 millj- arðar íslenskra króna. Morgunblaðið/Eggert Kaupréttur Forstjóri Össurar nýtur góðs af auknu virði félagsins. Kaupréttur skilar 370 milljónum  Hlutabréfaverð- ið nærri þrefaldast á þremur árum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.