Morgunblaðið - 05.08.2015, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2015
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino
Stjórnvöld í Egyptalandi opna á
morgun nýjan skipaskurð við hlið
Súesskurðarins og vona að hann
hleypi lífi í efnahag landsins.
Margir erlendir gestir verða við-
staddir opnunina, þeirra á meðal
Francois Hollande, forseti Frakk-
lands. Skurðurinn er mikilvægur
þáttur í efnahagsstefnu Abdels Fatt-
ah al-Sisi, fyrrverandi yfirhershöfð-
ingja, sem var kjörinn forseti
Egyptalands eftir að herinn steypti
íslamistanum Mohamed Morsi af
stóli forseta í júlí 2013.
Framkvæmdirnar stóðu í tæpt ár
og kostuðu níu milljarða dollara,
jafnvirði rúmra 1.200 milljarða
króna. Súesskurðurinn annar núna
49 skipum á dag en gert er ráð fyrir
að 97 skip geti siglt um skurðina á
dag fyrir árið 2023.
Boða milljón nýrra starfa
Stjórnvöld í Egyptalandi vona að
tekjur ríkisins af Súesskurðinum
tvöfaldist á næstu átta árum. Einnig
er stefnt að því að byggja upp hafnir
og iðnaðarsvæði í grennd við skurð-
inn. Stjórnin í Kaíró vonar að um
milljón starfa verði til á svæðinu í
tengslum við uppbygginguna á
næstu fimmtán árum. bogi@mbl.is
SÍNAÍ
72 km
langir
nýir skurðir
Gert er ráð
fyrir að fjöldi
skipa sem geta
siglt um skurðinn
tvöfaldist fyrir
árið 2023
Biðtími skipa
við skurðinn
styttist í 11
stundir úr 18
Ný leið opnuð
Súesskurðurinn
Heimild: Rekstrarstofnun Súesskurðarins
15 km
5 km
SÚESFLÓI
Port Said
MIÐJARÐARHAF
Salt
stöðu-
vatn
Ismailia
EGYPTALAND
Súes
KAÍRÓ Opnaður
Lengd
17. nóv. 1869
26. júlí 1956
6. ágúst 2015
193 km
Þjóðnýttur
Nýr skurður
Gamli skurðurinn
Timsah-
vatn
Egyptar opna
nýjan Súesskurð
Callao í Perú. AFP. | Þegar Manuel
Garcia opnar útidyrnar á heimili
sínu nálægt Líma, höfuðborg Perú,
sér hann nágranna hvíla sig á graf-
steinum innan um flugnager sem
flögrar við nýjar grafir. Garcia býr
í öðru af tveimur fátækrahverfum
sem eru í og við Santa Rosa, aldar-
gamlan kirkjugarð nálægt Líma.
Um 2.000 fjölskyldur búa innan um
grafir og grafhýsi kirkjugarðsins á
svæði sem er stærra en fjórir fót-
boltavellir. Íbúarnir ganga framhjá
gröfunum þegar þeir fara í skóla,
bakarí eða strætisvagnastöðvar
hverfisins og börn leika sér í garði
við grafirnar. „Við erum ekki
hrædd en við höfum ekki enn vanist
ólyktinni eða flugunum sem koma
inn í eldhúsin frá gröfunum,“ sagði
Garcia.
Yfirvöld hafa lokað kirkjugarð-
inum vegna hættu á farsóttum en
hafa ekki enn fundið svör við því
hvað geri eigi við allar grafirnar og
koma í veg fyrir að fleiri verði
grafnir þarna án heimildar.
Reyndar er víða pottur brotinn í
rekstri kirkjugarða í Líma og ná-
grenni. Af um 50 kirkjugörðum á
svæðinu eru aðeins 18 reknir með
löglegum hætti.
AFP
Búa innan um grafirnar
Í kirkjugarði Kona gengur framhjá grafhýsi í Santa Rosa, nálægt Líma.
Meira en 9.000 slökkviliðsmenn í Kaliforníu börðust í
gær við um 20 skógarelda sem hafa orðið til þess að
þúsundir manna hafa þurft að flýja heimkynni sín.
Stærsti eldurinn hefur geisað á um 250 ferkílómetra
svæði í þremur sýslum norðan við Sacramento. Um
fimmtíu hús hafa eyðilagst í eldinum, þar af um helm-
ingurinn íbúðarhús, og um 13.000 manns hafa flúið
heimili sín í sýslunum þremur, að sögn yfirvalda.
Alls hafa um 1.420 ferkílómetrar af skógum og
gróðurlendi brunnið í eldunum að undanförnu, að sögn
embættismanna í Kaliforníu í gær. Miklir þurrkar hafa
verið í ríkinu síðustu fjögur ár og er gróður því orðinn
skrælþurr. Eldarnir hafa einkum geisað í norðanverðri
Kaliforníu og víða hefur þurft að loka þjóðvegum.
Yfirvöld í Kaliforníu lýstu yfir neyðarástandi á föstu-
daginn var og þjóðvarðliðar voru kallaðir út til að að-
stoða við slökkvistarfið. Að minnsta kosti einn slökkvi-
liðsmaður hefur látið lífið.
AFP
Þúsundir manna flýja skógarelda
Stjórnvöld í Rússlandi hafa gert til-
kall til 1,2 milljóna ferkílómetra
svæðis í grennd við norðurskautið
utan við 200 sjómílna lögsögu Rúss-
lands.
Rússar segja að ýtarlegar rann-
sóknir þeirra á svæðinu síðustu árin
sýni að rússneska landgrunnið nái
langt út fyrir 200 mílna lögsögu
landsins, að sögn AFP. Fréttaveitan
segir að svæðið sem rússnesk stjórn-
völd geri tilkall til nái meðal annars
yfir norðurpólinn, auk Mendeleev-
hryggsins og Lomonosov-hryggsins
sem Danmörk og
Kanada hafi gert
tilkall til.
Rússar gerðu
tilkall til hafsvæð-
is við norður-
skautið árið 2001
en Nefnd Sam-
einuðu þjóðanna
um endimörk
landgrunnsins
komst að þeirri
niðurstöðu að þeir hefðu ekki lagt
fram nægar vísindalegar sannanir
fyrir því að svæðið tilheyrði rúss-
neska landgrunninu. Síðan hafa
rússnesk skip farið í nokkra rann-
sóknaleiðangra um hafsvæðið og
Rússar vona að nefndin taki nýju
kröfuna fyrir í haust.
Á fréttavef Barents Observer seg-
ir að á svæðinu sem Rússar gera
kröfu til séu meðal annars miklar
olíu- og gaslindir.
Danmörk gerði tilkall til um
895.000 ferkílómetra svæðis, sem
nær að norðurpólnum, í desember
síðastliðnum. bogi@mbl.is
Rússar gera tilkall til stórs
svæðis við norðurskautið
Ís á norðurskauts-
svæðinu.