Morgunblaðið - 05.08.2015, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.08.2015, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2015 ✝ VilhjálmurBjarni Vilhjálmsson, fyrr- verandi fram- kvæmdastjóri Ís- lenskrar getspár, fæddur 24. júní 1932, lést á gjör- gæsludeild Lands- spítalans við Hring- braut 23. júlí 2015. Foreldrar hans voru Halla Bjarna- dóttir frá Leiðólfsstöðum í Flóa, f. 17.8. 1900, d. 2.1. 1990, og Vil- hjálmur Páll Vilhjálmsson frá Tungu í Önundarfirði, f. 28.5. 1893, d. 18.7. 1948. Systkini: Reynir, f. 7.8. 1934, Jóhannes, f. 6.4. 1936, d. 5.9. 2008, Ásthildur Margrét, f. 14.10. 1937. Eiginkona: Guðrún Árnadótt- ir, f. 19.12. 1933, hennar for- eldrar voru Jóhanna Sigríður Tómasdóttir frá Bæ í Borg- arnesi, f. 28.3. 1896, d. 28.3. 1971, og Árni Helgason frá Reykjavík, f. 21.12. 1887, d. 19.11. 1968, Vilhjálmur og Guð- rún giftu sig 14.8. 1953. Börn: 1) Vilhjálmur Guð- mundur, f. 23.6. 1955, hann á tvö kvæmdanefnd Víkingalottós. Leiðbeinandi á Dale Carnegie- námskeiðum hjá Stjórnunar- skólanum 1973-1980. Vilhjálmur lét félagsstörf mikið til sín taka og var í mörg- um stjórnum, m.a. í stjórn For- eldra- og styrktarfélags heyrn- ardaufra 1966-1984, þar af formaður 1966-1969, í stjórn Fé- lags íslenskra símamanna 1964- 1974, í stjórn Íþróttafélagsins Fylkir 1971-1972, þjálfari hjá 3. fl. kvenna sem urðu fyrstu meistarar félagsins, Reykjavík- urmeistarar, 1971. Í stjórn Ör- yrkjabandalags Íslands frá 1981-1986, þar af formaður 1983-1986. Fulltrúi Félags heyrnarlausra í Norðurlanda- ráði heyrnarlausra 1973-1981. Sat í stjórn stofnunarinnar Döv- Blindes uddannelsescenter 1984-1986. Í stjórn Íþrótta- félagsins Fylkir 1971-1972. For- maður Félags hjartasjúklinga á Reykjavíkursvæðinu frá 1977, í stjórn Landssamtaka hjarta- sjúklinga frá 1998. Í stjórn SÍBS frá 1991 og í stjórn Reykjalund- ar frá sama tíma. Félagi í Odd- fellowreglunni frá 1983. Vil- hjálmur hlaut viðurkenningu sem heiðursfélagi í Félagi heyrnarlausra 1987 og gull- merki Íþrótta- og Ólympíusam- bands Íslands 1999. Útför Vilhjálms verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag, 5. ágúst 2015, kl. 13. börn og eitt barna- barn. 2) Jóhanna Sigríður, f. 22.9. 1958, gift Magnúsi Skúlasyni, f. 22.8. 1958, eiga þau þrjá syni og fimm barna- börn. 3) Haukur, f. 19.4. 1963, giftur Ji Xing, f. 15.10. 1978, hann á einn son. 4) Unnur, f. 4.6. 1964, gift Þráni Árna- syni, f. 24.5. 1961, eiga þau þrjú börn og þrjú barnabörn. Vilhjálmur ólst upp í Reykja- vík, hann var 16 ára gamall þeg- ar faðir hans dó, hann hætti í skóla til að hjálpa móður sinn og var lengi fyrirvinna heimilis. Vilhjálmur vann lengi hjá Pósti og síma, fyrst sem símvirki og síðan sem deildarstjóri og fulltrúi. Hann var með eigin at- vinnurekstur frá 1975-1977. Þau hjónin fluttu til Danmerkur 1977, vann hann þar við sölu og kennslustörf en þau fluttu aftur heim 1979. Starfsmaður um mál- efni heyrnarlausra 1980-1985 og framkvæmdastjóri hjá Íslenskri getspá 1986-1999. Í stjórn Vík- ingalottós 1993-1999 og í fram- Elsku Villi minn, nú er komið að leiðarlokum. Dagurinn kveður, mánans bjarta brá blikar í skýja sundi. Lokkar í blænum, leiftur augum frá loforð um endurfundi. Góða nótt, góða nótt gamanið líður fljótt. brosin þín bíða mín er birtan úr austri skín. Dreymi þig sólskin og sumarfrið syngjandi fugla og lækjarnið. Allt er hljótt, allt er hljótt ástin mín, góða nótt. (Ási í Bæ, Oddgeir Kristjánsson) Vil ég þakka þér fyrir árin 62, sem við áttum saman Þín, Guðrún (Gurrý). Gættu þess vin, yfir moldum mínum, að maður ræður ei næturstað sínum. Og þegar þú hryggur úr garðinum gengur ég geng þér við hlið þó ég sjáist ei lengur. En þegar þú strýkur burt tregafull tárin þá teldu í huganum yndisleg árin sem kallinu gegndi ég kátur og glaður, það kætir þig líka, minn samferðamaður. (James McNulty) Elsku pabbi, það er sárt til þess að hugsa að þú sért fallin frá. Margar minningar sækja á okkur systkinin á þessari stundu. Þú varst blíður og umhyggjusam- ur pabbi og fylgdist vel með okk- ur. Þegar við vorum lítil voru sundlaugaferðirnar á sunnudög- um, mikið ævintýri . Fyrst í gömlu sundlaugarnar í Laugar- dalnum og síðan í nýju Laugar- dalslaugina og á meðan fékk mamma að kúra. Pabba var mjög umhugað að við værum með fal- lega rithönd og skiluðum af okkur vel unnum og snyrtilegum verk- efnum. Pabbi var með einstak- lega fallega rithönd. Pabbi passaði ávallt upp á okk- ur systkinin. Hann var því mót- fallinn að Villi bróðir færi í heima- vist heyrnleysingjaskólans aðeins 4 ára, eins og tíðkaðist, en pabbi tók það ekki í mál, þarna kom frumkvöðulinn fram í föður okk- ar. Við minnumst ferðalaga í æsku þegar við tróðum okkur í Bjöll- una 6 manna fjölskylda og þurftu yngstu börnin að skiptast á að sitja í afturglugganum, þar kom skipulagshæfni pabba að góðum notum. Pabbi var góður kennari og sögumaður það voru ófáar sög- urnar sem við fengum að heyra fyrir svefn, prakkarasögur af honum voru einstaklega skemmtilegar. En uppáhalds sagan okkar var sagan af honum Steini Bollasyni sem við gátum hlustað endalaust á. Tónlistaráhugi pabba var mik- ill hafði hann gaman af jazz og sving tónlist og var í Marsbræðr- um á sínum ungdómsárum. Um sjötugt fór hann að læra á klarin- ett og það voru ófáir tónleikar sem við fengum hjá honum, hann hafði líka gaman að limrum og safnaði þeim, laumaði síðan nokkrum á mann þegar við kom- um í heimsókn. Pabbi var mikill matarmaður og fannst maturinn og kökurnar hennar mömmu mjög góðar og hlakkaði alltaf til að borða. Um jólinn áttum við það til að stelast í smákökudallana með pabba. Þrátt fyrir að pabba væri falin mörg trúnaðarstöf í hinum ýmsu félögum hafði hann alltaf tíma fyrir okkur börnin og gaf okkur gott veganesti inn í framtíðina. Hann var með okkur í leik og starfi og mjög áhugasamur um velferð okkar. Hann var hand- boltaþjálfari og farastjóri þar sem þátttaka barna hans naut við. Að leiðarlokum viljum við systkinin þakka föður okkar fyrir hvað hann var okkur góður og frábær Við munum halda utan um hvert annað og hugsa vel um hana mömmu. Blessuð sé minning þín, elsku pabbi. Vilhjálmur, Jóhanna, Haukur og Unnur. Kæri tengdapabbi. Það er stutt síðan við vorum í matarboði hjá ykkur Gurrý. Þá grunaði okkur ekki að stutt væri til leiksloka. Þú varst þar kátur og léttur í lund. Áhugi þinn á íþróttum var mikill og sér í lagi á Val, sem var þitt lið. Ófá skiptin hringdir þú til að forvitnast um úrslit í leikjum, þegar þú hafðir ekki tök á að horfa á leikina. Þín verður sárt saknað þegar við feðgarnir horfum á Arsenal-leiki. Við spjölluðum oft um pólitík og höfðum gaman af, þó að við vær- um ekki alltaf sammála. Þú varst einlægur og áhugasamur um fjöl- skyldu þína. Oft kallaði Vilhjálm- ur Árni: „Ég er farinn til afa og ömmu,“ og þar var hann hjá ykk- ur og spjallaði lengi við þig. Hann gat talað við þig um alla hluti og voruð þið miklir vinir. Í þér leyndist listamaður, t.d. fórstu á tréskurðarnámskeið og skarst út mynd af seglskútu sem er listavel gerð, en stærsta listaverkið sem þú gerðir er Lottóið. Þín verður sárt saknað um alla ókomna tíð, blessuð sé minning þín. Kveðja, Þráinn Árnason. Elsku afi. Það er skrítið að hugsa til þess að við eigum ekki eftir að hittast aftur. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar ömmu. Þar feng- um við ekki bara veislukræsingar sem amma hafði gert heldur græddum við líka alltaf einhverja visku frá þér, elsku afi. Þú varst alltaf tilbúinn að leiðbeina okkur og styðja í gegnum allt sem við gerðum og alltaf var hægt að leita til þín, en það gerðum við systk- inin óspart. Sama hvort það var skólaverkefni eða bara ráðlegg- ingar um hversdagslega hluti. Minningarnar um þig, elsku afi, eru margar og munum við aldrei gleyma þeim. Að liggja á bumb- unni þinni og hlusta á sögurnar þínar sem þú sagðir svo skemmti- lega. Tónlistin sem þú kynntir okkur fyrir og allar skrítlurnar sem þú sagðir okkur munu aldrei gleymast. Á sama tíma og þú kenndir okkur svo margt þá varstu líka alltaf tilbúinn að læra eitthvað nýtt og hringdir oft í okkur til að fá leiðbeiningar um nýjustu tækni. Þannig varstu, elsku afi, lagðir þig alltaf allan fram og þannig hvattir þú okkur til að gera slíkt hið sama, enda betri fyrirmynd ekki hægt að hugsa sér. Þú varst alltaf glaður, elsku afi, og það verður skrítið að fara í heimsókn til ömmu án þess að sjá þig taka brosandi á móti okkur og spyrja hvað sé að frétta. Enda varstu alltaf svo áhugasamur um það sem við vorum að gera. Takk fyrir allar góðu stundirn- ar, betri afa er ekki hægt að hugsa sér. Við kveðjum þig með fallegar minningar í farteskinu. Af visku sinni veitir hann mér veganesti mikið. Afinn sem að allt það kann eftir ómælt stritið. (Guðrún Ísabella) Þín barnabörn, Guðrún Ísabella, Hildur Ýr og Vilhjálmur Árni. Okkur bræðurna langar með nokkrum orðum að minnast hans afa okkar. Við munnum eftir því þegar við vorum yngri og við fór- um í göngutúr í Elliðaárdalnum og enduðum heima hjá ömmu og afa þar sem þau bjuggu lengi í Glæsibænum, þar fengum við alltaf góðar móttökur, nóg að borða hjá ömmu og góð ráð hjá afa hvort sem það var varðandi skólann, vinnuna eða bara hvað sem var. Afi sagði okkur barnabörnun- um oft skemmtilegar sögur en sú sem stóð mest upp úr og við vild- um heyra aftur og aftur var sag- an af Steini Bollasyni og var hún í miklu uppáhaldi hjá okkur bræðrum. Afi spilaði líka mikið á spil og var góður bridge-spilari. Það sem var skemmtilegast að gera með afa í fjölskylduboðum var að spila kana, afi var nokkuð lunkinn. Elsku afi, nú er komið að leiðar- lokum, hvíl þú í friði og takk fyrir allt. Skúli, Gunnar og Davíð. Kveðja frá Íslenskri getspá Vilhjálmur Vilhjálmsson gegndi afar mikilvægu hlutverki í stofnun Íslenskrar getspár. Með fullri virðingu fyrir öðrum aðilum sem komu að málinu var hann drifkrafturinn og frumkvöðullinn í hinni miklu undirbúningsvinnu að stofnun fyrirtækisins á árinu 1985. Þar hélt hann um alla þræði sem skiptu máli í stofnun þessa félags – sem hefur skipt svo miklu máli í fjármögnun stærstu fjöldahreyfinga á Íslandi. Það kom því ekki á óvart að Vilhjálm- ur skyldi beðinn um að verða fyrsti framkvæmdastjóri félags- ins við stofnun þess 1986. Vil- hjálmur stýrði Íslenskri getspá til ársins 1999 er hann lét af störf- um vegna aldurs. Á þessum tíma voru mörkuð mörg gæfusporin fyrir fyrirtækið. Of langt mál yrði að telja þau öll upp hér. Vilhjálm- ur var öflugur talsmaður og for- ystumaður félagsins og víðsýnn. Hann var virtur af stjórn og starfsfólki, þótti hann góður yf- irmaður og félagi. Eftir að hann lét af störfum hélt hann áfram að fylgjast með fyrirtækinu og starfsfólki þess og gott var að leita ráða hjá Villa um hin ýmsu atriði er tengdust rekstri félags- ins. Og nú er þessi öðlingur horf- inn til feðra sinna eftir farsælt og gott lífsstarf. Íslensk getspá hef- ur misst góðan félaga og liðs- mann. Hans verður sárt saknað en verk hans og framlag í þágu Íslenskrar getspár mun lifa. Á þessari stundu er hugur okkar hjá fjölskyldu Vilhjálms. Stjórn og starfsfólk sendir fjölskyldu Vilhjálms sínar innilegustu sam- úðaróskir. Stefán Snær Konráðsson. Vilhjálmur B. Vilhjálmsson hefur nú kvatt þetta jarðlíf. Fyrstu kynni okkar hófust fyr- ir hartnær 40 árum á Dale Carne- gie-námskeiði. Ekki löngu síðar urðum við félagar í Oddfellow- reglunni, sóttum fundi í sömu stúkunni og þar sem við vorum nágrannar fórum við oftast sam- an á öðrum bílnum. Það voru ógleymanlegar stundir, mikið spjallað og hlegið, og það var un- un að hlusta á Villa, sem hafði svo góða frásagnarhæfileika og kunni ógrynni af bröndurum. Aldrei minnist ég þess þó að hafi hallað á nokkurn mann. Það er ekki hægt að minnast á Villa öðruvísi en að nefna hans elskulegu eiginkonu hana Guð- rúnu, eða Gurrý eins og við köll- uðum hana alltaf, því svo sam- stíga voru þau og löðuðu alla að sér með sinni léttu og alúðlegu framkomu. Við Magga konan mín áttum með þeim margar góðar og skemmtilegar stundir, bæði inn- anlands og utan. Einnig viljum við þakka af al- hug hve hjónin tóku vel á móti syni okkar Hlyni þegar hann leit- aði til þeirra. Kom hann alltaf glaður af þeirra fundi, hafði tekið í spil með Villa og unnið hann í ól- sen ólsen og þegið hressingu hjá þeim. Við vitum að hann á eftir að sakna góðs vinar og minnast hans í kvöldbænum sínum. Takk fyrir allt og allt, kæri vinur. Innilegar samúðarkveðjur sendum við öllum aðstandendum. Steinar Gunnarsson. Vilhjálmur Bjarni Vilhjálmsson  Fleiri minningargreinar um Vilhjálm Bjarna Vil- hjálmsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR INGVARSSON, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 2. ágúst. Þeim sem viljast minnast hans er bent á Styrktarsjóð Félags nýrnasjúkra. . Kirsten Friðriksdóttir, Örn Valdimarsson og Aðalheiður Ósk Guðbjörnsd., Sigrún Alba Sigurðardóttir og Björn Þorsteinsson, Guðbjörn, Ársól, Friðrik Kári og Daníel Örn, Snædís, Matthildur og Lena Charlotta. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN ARNFINNUR ÞÓRARINSSON, fv. kaupmaður, lést 30. júlí á hjúkrunarheimili Hrafnistu, Boðaþingi í Kópavogi. Útför hans fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 10. ágúst kl. 15. . Guðný Rut Jónsdóttir, Lárus Valberg, Ólafur Haukur Jónsson, Inga Lára Helgadóttir, Arnfinnur Sævar Jónsson, Helga Daníelsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, systir og amma, ELÍN KOLBEINSDÓTTIR, Fróðengi 1, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 2. ágúst 2015. Jarðarförin auglýst síðar. . Grétar Zóphaníasson, Hjálmar Árnason, Kolbeinn Árnason, Harpa Barkar Barkardóttir, systkini og ömmubörn. Ástkær móðir okkar, BJÖRG ÞORLEIFSDÓTTIR, fyrrverandi organisti frá Hólkoti í Staðarsveit, lést í Seljahlíð 31. júlí. Hún verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 7. ágúst kl. 13. Fyrir hönd aðstandenda, . Védís Elsa Kristjánsdóttir, Kristlaug Karlsdóttir, Heiðbjört Kristjánsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KRISTINN GUÐJÓNSSON, Hlíðartúni 9, Höfn, lést föstudaginn 31. júlí. Hann verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju fimmtudaginn 6. ágúst klukkan 11. Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands. . Heiður Vilhjálmsdóttir, Vilhjálmur Kristinsson, Sigríður Sigurþórsdóttir, Sigríður S. Kristinsdóttir, Stefán B. Jónsson, Erlingur Kristinsson, Jóhanna M. Þorbjarnardóttir, börn og barnabörn. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.