Morgunblaðið - 05.08.2015, Side 25
Horfinn er á braut hann Agnar
B. Óskarsson eða Haddi afi eins
og maður kallaði hann ávallt. Eft-
ir erfiða baráttu og gríðarlegt
baráttuþrek lét hann afi minn í
minni pokann og ákvað að sofna
blundinum langa. Söknuðurinn er
mikill enda stórkostlegur maður í
alla staði. Mig langar til að minn-
ast hans í fáeinum orðum. Elsku
afi, skrítið finnst mér að skrifa
þetta þar sem í mínum huga
varstu ódauðlegur sem þú ert
vissulega enda farinn að hlaupa á
himnum með bræðrum þínum og
vinum og vakir yfir okkur sem eft-
ir stöndum. Man alltaf hve gaman
var að koma í heimsókn til þín og
ömmu í Byggðaveginn á sínum
tíma enda alltaf tekið á móti
manni eins og höfðingja. Vindla-
lyktin eimdi um húsið og þegar sú
lykt fannst vissi maður að afi var
kominn heim af sjónum. Mikið
óskaplega þótti mér vænt um þig
og þykir enn, allar stundirnar
sem við áttum saman þegar ég
var lítill strákur og síðan þær
stundir sem við áttum líka er ég
bjó heima hjá ykkur ömmu um
tíma. Fyrsta alvöruveiðiferðin
mín var með þér fyrir nálægt 30
árum minnir mig. Fórum við í
Laxá á Ásum. Flugan var svo
mikil að þú settir yfir mig hettuna
og net að mig minnir yfir andlitið
því flugur þoldi ég ekki og þoli
ekki enn. Síðan beit á hjá mér.
Hélt ég að þetta væri nú eitthvert
síli því enginn var krafturinn í
fiskinum og ég dró inn. Stuttu áð-
ur en ég ætlaði að kippa fiskinum
upp úr heyrði ég þig kalla: „Rún-
ar, þetta er lax!“ Hettan og netið
fuku fljótt af höfði mínu og þú
stökkst út í ána með háf og ætl-
aðir svo heldur betur að ná hon-
um á land fyrir strákinn en þá
skyndilega sleit laxinn sig frá.
Þetta var fyrsta og eina skiptið
sem ég hef fengið lax á snærið hjá
mér og man hversu óskaplega
sorgmæddur ég var að missa
hann. Sá gamli kunni nú ráð við
því eins og ávallt og leyfði mér að
keyra bíl þeirra ömmu dágóða
stund í sveitinni í staðinn og þá
var allt gleymt og grafið með lax-
inn. Talandi um að keyra minnist
ég þess alltaf þegar amma kallaði
og lamdi þéttingsfast í mælaborð-
ið farþegamegin ef keyrt var of
hratt! „Haddi, Haddi, ekki keyra
svona hart,“ og brosi ég enn þeg-
ar ég rifja það upp. Afa þótti
nefnilega ekki leiðinlegt að gefa
stundum vel í og stíga aðeins á
pinnann og keyra greitt og voru
ófáir bíltúrarnir með honum með
það að markmiði að gefa aðeins í.
Það er erfitt að kveðja jafnfrá-
bæran einstakling og afa en
minningin um góðan mann, góðan
eiginmann, góðan föður og frá-
bæran afa ylja mér um hjarta-
rætur á þessum sorgartíma. Að
horfa á afa berjast fram á síðustu
sekúndu var ótrúlegt og erfitt en
jafnframt fallegt að sjá að hann
fékk hvíldina loksins þó að sökn-
uðurinn sé mikill. Patrik Snæland
og Natalía Dóra börnin mín eru
döpur en eiga minninguna um fal-
legan og góðan langafa til fram-
tíðar. Þar til við sjáumst á ný,
elsku afi.
Rúnar Snæland Jósefsson.
Fleiri minningargreinar
um Agnar B. Óskarsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2015
Atvinnuauglýsingar
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Eftirtalið lausafé verður boðið upp að Bakkagötu 11,
Þórshöfn, Langanesbyggð, miðvikudaginn 12. ágúst 2015,
kl. 15:00 :
Skammtari, HemaCB2-year 1998, Nr. 7492
Færiband, Conveyor, year 2012, Nr.TR-27
Lokunarvél, Alaska, year 1999, Nr. 6873
Þvottavél,Tin Can Washer, year 2010, Nr. WM9
Krafist verður greiðslu við hamarshögg og verða ávísanir ekki teknar
gildar nema með samþykki gjaldkera. Ekki er tekið við greiðslukort-
um. Uppboðsskilmálar eru til sýnis á skrifstofum embættisins og þar
verða einnig veittar frekari upplýsingar ef óskað er.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra,
4. ágúst 2015.
Halla Einarsdóttir ftr.
Félagsstarf eldri borgara
Dalbraut 18-20 Verslunarferð í Bónus kl. 14.40.
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga kl.
9.30-16, hádegismatur kl. 12, panta með dags fyrirvara í síma
617-1503, meðlæti selt með síðdegiskaffi selt kl. 14-16, brids og búta-
saumur kl. 13.
Gerðuberg Opnar vinnustofur kl. 9-15.30. Félagsvist kl. 13.Tölvu-
kennsla, hafið samband við umsjónarmann. Blöðin liggja frammi,
heitt á könnunni.
Gjábakki Handavinnustofan opin, hádegisverður kl.11.40, félagsvist
kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Opið kl. 8-16. Boðið upp á kaffi kl. 8.30-10.30.
Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Blöðin og púslin liggja frammi. Opið inn í
handavinnustofu. Þrektækin og púttið á sínum stað. Minnum á netið
og spjaldtölvuna. Hádegisverður seldur kl. 11.30-12.30. Ganga kl. 14.
Kaffi og meðlæti selt kl. 14.30-15.30.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, ganga kl. 10, púttað úti kl.
10.30, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir, nánar í síma 411-2790.
Norðurbrún 1 Í dag, miðvikudag kl. 9-12 tréútskurður, kl. 14-16
félagsvist, Bónusbílinn fer kl. 14.0. Fimmtudagur kl. 9-12 tréútskurður.
Föstudagur kl. 9-12 tréútskurður.
Selið Sléttuvegi 11-13 Opið 8.30-16. Boðið upp á kaffi kl. 8.30-10.30.
Hádegisverður kl. 11.30. Kaffi og meðlæti selt kl. 14.30-15.30. Blöðin
liggja frammi og púslið.
Félagslíf
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Háaleitisbraut 58–60
Samkoma í kvöld kl. 20
í Kristniboðssalnum. Vitnisburð
flytur Ragnar Ólafsson.
Ræðumaður er Haraldur
Jóhannsson. Allir velkomnir.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
FASTEIGNA-
VIÐHALD
Við þjónustum þig með
lítil sem stór verk.
Tímavinna eða tilboð.
johann@jaidnadarmenn.is
S. 544-4444/777-3600
www.jáiðnaðarmenn.is
Íþróttir
Verðlaunagripir -
gjafavara -áletranir
Bikarar, verðlaunapeningar, barm-
merki, póstkassaplötur, plötur á leiði,
gæludýramerki - starfsgreinastyttur
Fannar
Smiðjuvegi 6, Rauð gata
Kópavogi, sími 5516488
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Ýmislegt
Vélar & tæki
Bátavélar - Bílalyftur -
Rafstöðvar o. fl.
Bátavélar - Bílalyftur - Rafsuðuvélar -
Utanborðsvélar - Vatnstúrbínur -Vara-
aflsstöðvar 10-15-30 kw, kortalán.
Vélaverkstæði Holti
S. 895-6662 www.holt1.is
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
Húsviðhald
Atvinnublað alla laugardaga
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?
Sendu pöntun á augl@mbl.is eða
hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í
Mogganum og ámbl.is
Smáauglýsingar
sími 569 1100
orð. Hann var svo gegnheill kar-
akter og margvís og þótt nokkuð
hrumur yrði síðast þá logaði á
perunni.
Hann Hannes Pálsson bætti
umhverfi sitt hvar sem hann kom
og gerði aðra menn betri.
Halldór Jónsson.
Hannes Pálsson, sá merki
maður, er látinn á nítugasta og
fimmta aldursári. Hann fæddist á
Hólastað í byrjun október 1920
og því borinn og barnfæddur
Skagfirðingur. Foreldrar hans
voru þau sæmdarhjón Guðrún
Þuríður Hannesdóttir frá Deild-
artungu og Páll Zóphaniasson,
sem fæddur var í Viðvík, Hall-
dórssonar prófasts í Viðvík í
Skagafirði. Rann því gott skag-
first blóð um æðar Hannesar.
1943 kvæntist Hannes skóla-
systur sinni og samstúdent úr
MR, Sigrúnu Helgadóttur versl-
unarmanns Guðmundssonar og
konu hans Matthildar Kristínar
Óladóttur. Hún andaðist fyrr á
þessu ári og höfðu þau Hannes
þá átt samleið í 75 ár.
Hannes Pálsson kom víða að
málum og einstökum verkefnum
og var ekki hvílrækinn í störfum
sínum, þótt margt hefði hann á
sinni könnu í atvinnu og áhuga-
málum. Hann vann allan sinn
starfsferil hjá Búnaðarbanka Ís-
lands, m.a. sem útibússtjóri
Austurbæjarútibús í 30 ár og að-
stoðarbankastjóri frá 1979.
Hannes gegndi trúnaðarstörfum
fyrir samtök bankamanna og var
formaður árum saman, auk þess
að vera í stjórn samtaka norræna
bankamanna og í nefndum á þess
vegum um langt skeið. Hann sat í
stjórn íslensk-ameríska félagsins
um árabil.
Hannes var fulltrúi Íslands á
allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna fjórum sinnum.
Hannes Pálsson kom til starfa
í Framsóknarflokknum og þótti
vel skipaður bekkurinn, þar sem
hann var. Innan flokksins valdist
Hannes til fjölda trúnaðarstarfa.
Ekki gefst tóm hér til að telja
upp öll þau margvíslegu verkefni,
sem honum voru falin, enda van-
ur mannaforráðum. Rétt er þó að
tíunda, að hann var formaður
Fulltrúaráðs Framsóknarfélag-
anna í Reykjavík um átta ára
skeið og sat í því í áratugi, í
stjórn og formaður Húsbygging-
arsjóðs Framsóknarflokksins í
tugi ára; og eigi skemur sat
Hannes í miðstjórn Framsóknar-
flokksins.
Af sjálfu leiðir, að Hannes
Pálsson kom víða fram á fundum
og mannamótum. Hann talaði
gott mál og fallegt og tekið var
eftir tungutaki hans. Hann unni
íslensku og vildi enga hjáguði
hafa við notkun hennar. Honum
lét þó vel að mæla á aðrar þjóð-
tungur en hélt aðskildum.
Á löngum ferli í samskiptum
einstaklinga og innan flokks fer
ekki hjá því, að skoðanir verða
skiptar á mönnum og málefnum.
Það er eðlilegt og getur stafað frá
ólíkri lífsreynslu, aldursmun eða
almennu viðhorfi. Við þær að-
stæður má að jafnaði greina fé-
lagsþroska og hvern mann ein-
staklingurinn hefur að geyma. Í
slíkum skoðanskiptum gat Hann-
es kveðið fast að orði en aldrei
var hann tunguskæður.
Að leiðarlokum vil ég persónu-
lega og fyrir hönd eldri Fram-
sóknarmanna þakka heiðurs-
manninum Hannesi Pálssyni
fyrir samfylgd og flokksfestu um
áratuga skeið og það óeigin-
gjarna starf, sem hann lagði fram
í þágu Framsóknarflokksins.
Fjölskyldu hans og ástvinum
eru fluttar samúðarkveðjur.
Hörður Gunnarsson
formaður SEF – Sambands
eldri Framsóknarmanna.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar
koma fram upplýsingar um
hvar og hvenær sá sem fjallað
er um fæddist, hvar og hvenær
hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram.
Þar mega einnig koma fram
upplýsingar um foreldra,
systkini, maka og börn. Ætlast
er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Minningargreinar