Morgunblaðið - 05.08.2015, Blaðsíða 27
vel við mig, átti þar frábæran tíma
með góðum vinnufélögum og var
alltaf á landleið enda siglingin ekki
löng yfir Faxaflóann.“ Þegar Akra-
borgin hætti siglingum 11. júlí 1998
færðist starfsvettvangur Vilhjálms
yfir í gjaldskýli Hvalfjarðarganga.
Þar sat hann vaktina allt þar til
hann tók við formennsku Verka-
lýðsfélags Akraness 19. nóvember
2003.
„Ég hef alla tíð haft brennandi
áhuga á verkalýðspólitík og bý yfir
ríkri og sterkri réttlætiskennd í
garð íslenskrar alþýðu. Starf verka-
lýðsforingja hentar því vel bæði
áhuga mínum og lífssýn þó að öll
mín fyrri störf séu mikilvægur
grunnur þegar kemur að því að
berjast fyrir réttindum verkafólks.
Það sem jafnframt hefur hjálpað
mikið í störfum mínum í verkalýðs-
baráttunni er sú staðreynd að lífs-
baráttan var oft hörð á árum áður.
Við hjónin höfðum eignast fjögur
börn þegar við náðum 27 ára aldri
og höfðum oft ekki mikið á milli
handanna.“
Auk þess að sinna fjölskyldu og
vinnu hefur Vilhjálmur mikinn
áhuga á golfi og nýtir hvert tæki-
færi sem gefst til að iðka þá íþrótt.
Á yngri árum átti knattspyrnan hug
hans allan eins og flestra Skaga-
manna. „Ég varð meðal annars þess
heiðurs aðnjótandi að verða Ís-
landsmeistari með yngri flokkum
árið 1977 ásamt liðsfélögum mínum
sem voru meðal annarra þeir Ólafur
Þórðarson og Sigurður Jónsson.“
Fjölskylda
Eiginkona Vilhjálms er Þórhildur
Björg Þórisdóttir, f. 21.9. 1965,
verslunarstjóri í Samkaup Strax á
Akranesi. Foreldrar hennar: Þórir
Axelsson, f. 10.3. 1946, d. 18.11.
1998, sjómaður, og Guðrún Hall-
dóra Ásgeirsdóttir, f. 2.7. 1945, d.
31.5. 2011.
Börn Vilhjálms og Þórhildar: 1)
Óttar Örn Vilhjálmsson, f. 20.3.
1984, d. 11.4. 2014. Börn Óttars og
sambýliskonu hans, Írisar Gefnar-
dóttur, f. 10.12. 1984: Róbert
Óttarsson, f. 31.10. 2008, og Bríet
Óttarsdóttir, f. 1.5. 2011. 2) Hafþór
Ægir Vilhjálmsson, f. 29.9. 1986.
Barn Hafþórs með Margréti Láru
Lismonde-Jaune, f. 2.4. 1990: Vikt-
oría Lilly Hafþórsdóttir, f. 12.2.
2014. 3) Vilhjálmur Rúnar Vil-
hjálmsson, f. 13.4. 1989. Maki: Mar-
grét Sigríður Jóhannesdóttir, f.
16.5. 1995. Barn Vilhjálms Rúnars
með Regínu Ösp Ásgeirsdóttur, f.
30.11. 1990: Margrét Arnbjörg Vil-
hjálmsdóttir, f. 24.9. 2009. 4) Allan
Freyr Vilhjálmsson, f. 1.6. 1992.
Maki: Sigurbjörg Eyþórsdóttir, f.
10.9. 1990. Börn þeirra: Dagný All-
ansdóttir, f. 2.6. 2011, og Eyþór All-
ansson, f. 4.11. 2013. 5) Sonur Þór-
hildar: Þórir Gunnar Laugar
Jónasson, f. 28.10. 1981.
Systkini Vilhjálms: Guðrún Mar-
grét Birgisdóttir, f. 29.8. 1957, Guð-
finnur Jón Birgisson, f. 7.2. 1959,
Hulda Björg Birgisdóttir, f. 21.9.
1960, Birgir Arnar Birgisson, f.
23.9. 1962, Rósant Freyr Birgisson,
f. 12.6. 1971, og Hafþór Barði
Birgisson, f. 20.6. 1973.
Foreldrar Vilhjálms: Birgir Jóns-
son, f. 26.12. 1936, lengst af skip-
stjóri og útgerðarmaður á Akranesi,
og Margrét Arnbjörg Vilhjálms-
dóttir, f. 4.7. 1940, húsmóðir og
verkakona á Akranesi.
Úr frændgarði Vilhjálms Birgissonar
Vilhjálmur Elías
Birgisson
Margrét Jónsdóttir
húsfr., frá Holtum í Rangárvallasýslu
Björn Björnsson
verkamaður í Reykjavík
Guðrún Björnsdóttir
húsmóðir á Akranesi og í Rvík
Vilhjálmur Jónsson
rith. á Akranesi og í Rvík
Margrét Arnbjörg Vilhjálmsdóttir
húsmóðir og verkakona á Akranesi
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja á Ferstiklu
Jón Einarsson
b. á Ferstiklu á Hvalfjarðarströnd
Elín Kristín Einarsdóttir
húsfr., f. á Görðum í Önundarfirði
Elías Ingjaldur Bjarnason
b. á Neðra-Vaðli á Barðaströnd
Kristjana Elíasdóttir
bæjarstarfsmaður í Hafnarfirði
Jón Ingvar Jóhannesson
smiður í Hafnarfirði
Birgir Jónsson
skipstjóri á Akranesi
Steinunn Pálmadóttir
húsfreyja, f. á Skinnastöðum,
Torfalækjarhr., A-Hún.
Jóhannes Vilhelm Pétur Einarsson
bryggjuvörður í Hafnarfirði
Verkalýðsleiðtoginn Vilhjálmur á
skrifstofu sinni á Akranesi.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2015
Guðmundur Einarsson listmál-ari fæddist 5. ágúst 1895 íMiðdal í Mosfellssveit. For-
eldrar hans voru Einar Helgi Guð-
mundsson bóndi þar og k.h. Val-
gerður Jónsdóttir.
Að loknu undirbúningsnámi í
teikniskóla Stefáns Eiríkssonar í
Reykjavík hélt hann til Kaupmanna-
hafnar og var fyrst við nám í Teikni-
skóla Viggo Bjerg 1919-20 og stund-
aði síðan listnám við Konunglega
fagurlistaskólann. Hann var síðan í
myndhöggvaranámi í skóla Hans
Schwegerli í München 1921-25 og
námi í leirbrennslu á sama stað
1924-26.
Guðmundur fluttist til Íslands
1927 og varð afar virkur í listalífinu
hér. Hann hélt einkasýningar á mál-
verkum, höggmyndum og leir-
munum nánast á hverju ári. Hann
vann einnig að málmristu og leir-
brennslu. og annaðist skreytingar í
opinberum byggingum, m.a. í Land-
spítalanum, Háskóla Íslands, Þjóð-
leikhúsinu og í kirkjum.
Guðmundur sat í stjórn Banda-
lags íslenskra listamanna 1928-34 og
var lengi í stjórn Félags íslenskra
myndlistarmanna. Hann sat lengi í
stjórn Ferðafélags Íslands (FÍ) og
var formaður félags Fjallamanna.
Guðmundur var mikill áhugamað-
ur um útivist eins og sést á störfum
hans fyrir FÍ, og stundaði íþróttir og
safnaði steinum og jarðefnum. Hann
kvikmyndaði ýmis náttúrufyrir-
brigði eins og fossa, jökla og hveri,
og kvikmyndaði einnig Heklugos.
Kvikmyndir sínar sýndi hann víða
erlendis.
Ritverk Guðmundar eru Fjalla-
menn, 1946, Heklugos, 1947, Bak við
fjöllin, 1957, og Suðurjöklar sem var
árbók FÍ 1960.
Eiginkona Guðmundar var Lydía
Pálsdóttir, f. 7.1. 1911 í München, d.
6.1. 2000. Foreldrar hennar voru
Theresia Zeitner og dr. Paul Stern-
berg efnafræðingur í München.
Börn Guðmundar og Lydíu: Einar
Steinólfur, Yngvi Örn, Auður Valdís,
Ari Trausti og Egill Már. Sonur
Guðmundar með Soffíu Kristins-
dóttur er Erró.
Guðmundur lést 23.5. 1963.
Merkir íslendingar
Guðmundur
frá Miðdal
95 ára
Steinunn Ragnheiður
Árnadóttir
90 ára
Þórhallur Friðbjörnsson
85 ára
Ingibjörg Lovísa
Guðjónsdóttir
Sigríður Guðbjartsdóttir
80 ára
Dagmar J. Óskarsdóttir
Helga Jónsdóttir
Kristín Helgadóttir
Ólafur Sigurðsson
75 ára
Guðbjörg Svala
Guðnadóttir
Guðmundur B.
Guðbjarnason
Kristinn Jónsson
70 ára
Anna Sigurðardóttir
Anna Sveinbjörnsdóttir
Birgir Bjarnason
Birkir Angantýsson
Edda Kjartansdóttir
Elsie Júníusdóttir
Guðrún Pétursdóttir
Halldór Bjarnason
Sturla Snorrason
Þórarinn Jónsson
60 ára
Einar Þórðarson
Elín H. Hauksdóttir
Guðríður Þóra V. Jónsdóttir
Herdís Gróa Tómasdóttir
Kolbrún Sigurðardóttir
Laufey E. S. Þorsteinsdóttir
Ólafía Engilráð Gísladóttir
50 ára
Berglind Þorleifsdóttir
Egill Þorsteinsson
Jón Þórir Sveinsson
Sigurður Eyþórsson
Sívar Árni Scheving
Steinunn Elísabet
Reynisdóttir
40 ára
David Rodriguez
Elvar Þór Hjaltason
Guðmundur Valur
Ríkharðsson
Hildur Björns Vernudóttir
Hildur Kristinsdóttir
Hjálmar Einarsson
Jónas Eyjólfur Jónasson
Jón Karl Björnsson
Jón Sigfússon
Lísbet Vala Snorradóttir
Marek Lucjan Mrowiec
Sveinbjörn Baldur
Einarsson
Sverrir Júlíusson
30 ára
Adam Þór Eyþórsson
Adola Chigozie Nwaugo
Anikó Veres
Davíð Þór Vilhjálmsson
Kristrún Friðriksdóttir
María Björk Ólafsdóttir
Sólveig Dröfn Andrésdóttir
Trang Thi Nguyen
Unnur Ósk Kristinsdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Svanhildur er frá
Eskifirði en býr í Keflavík
og vinnur í Bláa lóninu.
Maki: Sveinn Brimir
Björnsson, f. 1971, lög-
reglumaður í Keflavík.
Börn: Guðný Ellen, f.
1994, Björn Grétar, f.
1998, og Agnar Alex, f.
2004.
Foreldrar: Agnar Sigur-
þórsson, f. 1939, fv. vöru-
bílstjóri, og Guðný Árna-
dóttir, f. 1942, vann við
aðhlynningu aldraðra.
Svanhildur
Agnarsdóttir
30 ára Erla er úr Keflavík
en býr í Garði og er kenn-
aranemi.
Maki: Edvin Jónsson, f.
1982, gröfumaður hjá
Gröfuþjónustu Tryggva
Einars.
Börn: Sara Lind, f. 2008,
og Edvin Aron, f. 2011.
Foreldrar: Jóhann Liljan
Arason, f. 1957, vinnur í
öryggisgæslu á Keflavík-
urflugv., og Sigurborg
Garðarsdóttir, f. 1962,
vinnur hjá GÓ verk.
Erla
Jóhannsdóttir
30 ára Guðmann er
Reykvíkingur og er tón-
listarkennari að mennt.
Hann er yfirflokksstjóri á
Siglufirði og mun væntan-
lega sinna tónlistar-
kennslu þar í vetur.
Maki: Íris Stefánsdóttir, f.
1985, skipulagsfræðingur.
Sonur: Dagur Nói, f.
2010.
Foreldrar: Sveinn Gunn-
arsson, f. 1955, og Jóna
Birna Guðmannsdóttir, f.
1957, bús. í Rvík.
Guðmann
Sveinsson
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
Öflug tæki og tól fyrir pallasmíðina,
viðhaldsverkin og sumarbústaðinn.
Sumartilboð Iðnvéla
- nú er loksins byrjað að hlýna fyrir alvöru!
Kynntu þér úrvalið á idnvelar.is
Rafstöð
69.826 kr.
Fjölnotasög
34.900 kr.
Hjólsög og sleðasög
með fínstillingu
46.600 kr.
Borðsög með bútsleða
og ristilandi
115.988 kr.
Geirungssög
38.991 kr.
Borvél á borði
48.201 kr.
IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is