Morgunblaðið - 05.08.2015, Side 36

Morgunblaðið - 05.08.2015, Side 36
MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 217. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420 1. Sveigði hjá gosmekkinum 2. Sjúkdómurinn ágerðist mjög hratt 3. Harmar ekki framhjáhald … 4. Bestu og verstu kaupin í Costco »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Draggkeppni Íslands er komin heim í gömlu Óperuna, þar sem hún á heima að sögn Georgs Erlingssonar, framkvæmdastjóra keppninnar. Hús- ið verður opnað með fordrykk klukk- an 20 og hefst sjálf keppnin klukkan 21. Að þessu sinni taka átta kepp- endur þátt og keppa fjórir um titilinn draggdrottning Íslands og fjórir um titilinn draggkóngur Íslands. Bjarni töframaður verður svo með sýningu meðan dómarar keppninnar koma sér saman um sigurvegara kvöldsins. Dragg er fyrst og fremst leiklistar- form og segir Georg kvöldið vera eina stóra skemmtun fyrir alla sem vilji njóta. Morgunblaðið/Ómar Draggkeppni Íslands í gömlu Óperunni  Bragi Árnason flytur söngleikinn Barry and His Guitar á Act Alone- einleikjahátíðinni á Suðureyri í dag, en söngleikinn samdi hann sjálfur. Sýningin er sýnd í Félagsheimili Súgfirðinga, eða FSÚ, og hefst hún klukkan 21.30. Bragi býr í London og er bæði leik- ari og söngvari og hefur sett sýn- inguna upp í stór- borginni. Eftir sýninguna á Suðureyri fer hann til Edin- borgar, þar sem hann mun setja verkið upp á Fringe- hátíðinni. Barry and His Guitar á Suðureyri í kvöld Á fimmtudag Norðan 3-10 m/s fyrir norðan og austan dálítil væta og hiti 7 til 12 stig. Breytileg átt, 3-8 m/s á Suðurlandi og á Suð- vesturlandi, skýjað með köflum. Hiti 10 til 16 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 8-15 m/s og vætusamt fyrir austan en úrkomulítið á Vesturlandi. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast fyrir suðvestan og á Suðurlandi. VEÐUR „Það kemur mér ekkert á óvart að lyfjamisnotkun sé í gangi en umfangið kom mér hins vegar dálítið á óvart og að þetta hafi farið framhjá eftirlitinu svona lengi.“ Þetta er meðal þess sem Skúli Skúlason, formaður lyfjaráðs ÍSÍ, segir í Morg- unblaðinu í dag um þau gögn sem fram hafa komið um stórfelda lyfjamisnotk- un margs af fremsta frjáls- íþróttafólki heims. »3 Útbreiddari en menn áætluðu Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ og stjórnarmaður í FIBA í Evrópu, segist í samtali við Morgunblaðið vera mjög ósáttur við vinnubrögð sambandsins í máli KR-inga, en Vesturbæingum var meinaður aðgangur að Evrópu- keppninni með afar skömmum fyrir- vara. Ástæður þess liggja ekki enn fyrir en KR- ingar eru að vonum svekktir. » 3 Stjórnarmaður ósáttur við vinnubrögðin „Þetta er erfiðara en menn halda eins og með ferðalög og veðurfar. Þeir sem koma hingað verða að hafa fyrir hlutunum,“ segir Kristinn Steindórs- son meðal annars í Morgunblaðinu í dag, en hann leikur með Columbus Crew í Bandaríkjunum. Kristinn er eini Íslendingurinn sem spilar í MLS- deildinni, sem sífellt er að verða sterkari. »4 Tekur tíma að venjast ferðalögunum vestra ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Leifur Hákonarson er mikill úti- vistarmaður, hefur gengið á fjöll vítt og breitt um landið í áratugi, og not- aði frídag verslunarmanna til þess að ganga á Esjuna í þúsundasta sinn síðan 2009. „Ég byrjaði að ganga á Esjuna um 1980 og það hefur verið helsta líkamsrækt mín undanfarin sex ár,“ segir hann, en Leifur hefur gengið á Þverfellshorn að meðaltali þrisvar sinnum í viku allan ársins hring síðan 2009. Hann áréttar að hann sé langt því frá einn um að vera þarna með annan fótinn. „Það er harður kjarni 20 til 30 manna og kvenna sem gengur á Þverfellshorn allan ársins hring,“ segir hann. Oftast er Leifur einn á ferð í Esj- unni en í tilefni tímamótanna gekk hópur ættingja og vina með að þessu sinni. Hann fer alltaf sömu leið, held- ur upplýsingum um hverja ferð til haga og nær þannig að fylgjast með árangrinum. „Tíminn sem slíkur skiptir ekki máli heldur það að bæta hann,“ segir Leifur. Á veturna taki ferðin meiri tíma vegna þess að þá þurfi að setja á sig brodda og hafa ísöxi og bakpoka með nauðsynlegum búnaði meðferðis. Þegar veðrið sé gott í Reykjavík á sumrin sé oft bál- hvasst af norðri eða norðaustri á Esj- unni og vindurinn því beint í fangið á leiðinni upp. „En nái ég að höggva mínútu eða tvær af tímanum á leið- inni upp er ég ánægður með það.“ Kortið gagnaðist á Esjunni Vorið 2009 hafði Leifur lofað að taka að sér fararstjórn á Snæfells- jökul 28. júní sama ár. „Ég hafði áhyggjur af því að hópurinn þyrfti að draga fararstjórann upp á jökulinn og ákvað því að reyna að komast í form,“ rifjar hann upp. Hann segist hafa byrjað á því að kaupa sér kort í líkamsræktarstöð en hafa ekki kom- ist lengra en að þröskuldinum. „Ég kíkti inn og áttaði mig á því að þetta var ekki fyrir mig og ákvað að snúa mér að Esjugöngum í staðinn. Ég fór nánast á hverjum degi í apríl þetta ár, komst jafnt og þétt í form og spik- ið rann af mér í leiðinni. Ég léttist um 15 kíló á sex vikum, þannig að kortið í líkamsræktina var góð fjár- festing.“ Auk reglulegra Esjuferða hefur Leifur þvælst einn með bakpoka um Hornstrandir og Jökulfirði undan- farin tvö ár. „Það er mitt uppáhalds- svæði,“ segir hann og gerir lítið úr því að vera einn á ferð en leggur áherslu á að öryggið sé fyrir öllu, enda hefur hann bæði SPOT- og PLB-neyðarsenda í farteskinu þegar hann er einn utan alfaraleiða. „Ég er með tónlist í eyrunum og það hjálpar þegar maður er að þvælast í myrkri og hríðarbyl á Esjunni.“ Á Þverfellshorn þrisvar í viku  Leifur Hákonarson gekk á Esjuna í fyrradag í þúsundasta sinn síðan 2009 Á Þverfellshorni Hópurinn sem gekk með Leifi Hákonarsyni í góða veðrinu í fyrradag í þúsundustu göngu hans á Esjuna frá 2009. Göngugarpur Leifur ánægður á toppnum eftir gönguna upp.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.