Hagskýrslur um húsnæðismál - 01.01.1957, Page 18
16
Húsnæðisskýrslur 1950
lýsingar um eignarskiptingu íbúða í kjallara- og risíbúðum, svo og í bragga-
íbúðum o. þ. h.
í töflu IV sést eignaskipting íbúðanna í heild í hverjum kaupstað og
hverju kauptúni og í hverri sýslu utan kauptúna.
Frá 1940 til 1950 hefur sjálfseign íbúenda á íbúðum orðið algengari hvar-
vetna á landinu. Árið 1940 voru 56% allra íbúða með eldhúsi á landinu í eign
íbúenda þeirra, 39% í Reykjavík, 54% í kaupstöðum, 68% í kauptúnum og
69% í sveitum.
5. Stœrð íbúða.
Size of dwelling units.
í töflu IV er öllum íbúðum með eldhúsi skipt í stærðarflokka eftir tölu
herbergja þeirra, sem í þeim eru, en hins vegar hefur ekki verið unnt í þessum
skýrslum að gera neinn greinarmun á íbúðunum eftir stærð herbergjanna.
Eldhús hafa verið talin íveruherbergi. Eru því minnstu íbúðimar, 1 herbergi
og eldhús, talin 2 herbergi, 2 herbergi og eldhús 3 herbergi, o. s. frv.
í 6. yfirliti er sýnt, hvernig íbúðirnar skiptast hlutfallslega eftir her-
bergjatölu á öllu landinu og mismunandi þéttbýlisstigum. Til samanburðar
eru tilsvarandi tölur frá 1940 fyrir allt landið. Algengasta íbúðarstærðin er
4 herbergi (3 herb. og eldhús), tæplega þriðjungur íbúðanna, þar næst 3
herbergi (2 herb. og eldhús), tæplega fjórðungur íbúðanna, og þá 5 herbergi
(4 herb. og eldhús), nálega fimmtungur íbúðanna. í bæjunum, einkum
Reykjavík, eru minnstu íbúðimar (2—4 herb.) töluvert algengari heldur en
í sveitunum. í sveitum voru þær rúmlega helmingur íbúðanna, en í Reykja-
vík nál. % hlutar þeirra. í sveitum er líka meðaltala herbergja á íbúð tölu-
vert hærri heldur en í bæjunum.
6. yfirlit. Hlutfallglg skipting íbúða eftir lierbergjatölu.
Percentage distribution of dwelling units by nurnber of rooms.
íbúðir með eldhúsi dwelling units = Aiit ínndið Aiit íandis
With kitChen: Reykjav*.) kaupstaðlr Kauptun Sveltlr 1950 1>40
2 herbergi rooms 6,2 6,7 9,0 6,2 6,6 12,1
3 28,3 21,6 21,7 17,4 23,3 27,2
4 30,9 32,9 33,4 26,8 30,7 29,0
5 „ 18,0 20,2 19,4 21,5 19,6 14,7
6 „ 9,0 10,3 9,2 12,8 10,2 7,7
7 3,8 4,7 3,9 6,6 4,7 1 9,3
8 „ o. fl. and more 3,8 3,6 3,4 8,7 4,9 /
Samtals total 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0
Meðaltal herbergja á íbúð rooms
per dwelling unit 4,25 4,37 4,27 4,82 4,42 4,17
1) Translation of headings on p. 9.
Frá 1940 til 1950 hefur meðalstærð íbúða á öllu landinu aukizt úr 4,17
herbergjum upp í 4,42, og hefur það lýst sér þannig, að hundraðshluti minni
íbúðanna (2—4 herb.) hefur minnkað töluvert (og mest hinna minnstu), en
hinna stærri (5 herb. og þar yfir) vaxið að sama skapi. Það sést í töflu IV,
að töluverður munur er á eigu- og leiguíbúðum að því er snertir herbergja-
fjölda. Á hverja eiguíbúð á öllu landinu komu 1950 að meðaltali 4,71 her-