Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2012, Blaðsíða 18
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 88. árg. 201214
í lok hvers Kraftgöngutíma. Æfingaformið
er meðal annars skapað í samræmi við
eftirspurn þátttakenda og þann grunn sem
Árný hefur kynnst og endurbætt áfram.
Það er ekki hægt að bjóða þátttakendum
upp á hvað sem er – það veit hún því hún
hefur bryddað upp á nýjungum sem ekki
féllu í kramið og var því sjálfhætt með. Í
hópunum hennar er fólk sem vill hreyfa
sig úti og umber frekar umferðarhljóð en
tónlist, fuglasöngurinn er þeirra músík.
Hóparnir eru misjafnir og er einstaklingum
raðað niður eftir getu og því hvernig
æfingar henta þeim, í A-, B- og C-hópa.
Sumir vilja mikinn kraft í æfingarnar, taka
margar armbeygjur en aðrir vilja fara rólega
í hlutina og ná liðleika.
Kraftganga – hvernig tengist þetta
hjúkrunarfræði?
„Kraftganga er fyrirtæki sem meðal
annars hefur einbeitt sér að hreyfingu til
vellíðunar og bættrar heilsu. Vísindalegar
rannsóknir sýna það að hreyfing gerir fólki
gott – hreyfing er mjög mikilvæg forvörn
gangvart margs konar heilsubresti.“ Árný
hefur ekki rannsakað sjálf kraftgöngu
eða áhrif hreyfingar á heilsufar fólks
en treystir á niðurstöður rannsókna í
heilbrigðisvísindunum og má til dæmis
finna þær á vef Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar. Hún vill samt gjarnan sjá
rannsóknir á því sem hún er að gera en
hefur nóg með sitt í bili, það er heilmikið
mál að stofna fyrirtæki og viðhalda því.
Það brennur svolítið á henni að eiga ekki
fleiri stundir í sólarhringnum.
Skiptir það máli hvers konar hreyfingu
fólk velur?
„Vafalítið skiptir það miklu máli hvað hver
og einn velur því það er mismunandi
hvað hver og einn getur gert eða langar
til að gera. Það eru til dæmis ekki allir
sem geta gengið en engu að síður er
það mikilvægt fyrir þá sem og alla að
hreyfa sig. Markhópur Kraftgöngu hefur
verið fólk sem getur gengið. Það er
mjög mikilvægt að fólk geti valið um
hreyfingu, svo sem jóga, skokk eða
sund. Kraftganga er einn valmöguleiki af
mörgum fyrir fólk sem vill hreyfa sig. Til
mín hafa komið einstaklingar sem eru í
krabbameinslyfjameðferð – ég veit að fólk
hefur komið vegna þess að það treystir
mér sem hjúkrunarfræðingi ef eitthvað
kæmi upp á. Ég man eftir einni konu
sem kom í Kraftgöngu sem var mjög
lasin út af lyfjameðferð, henni var flökurt
og leið illa en vildi fá stuðning svo hún
færi út að ganga og hreyfði sig reglulega.
Hún var hrædd um að fara ekki annars
út að hreyfa sig ef hún hefði ekki það
aðhald sem Kraftganga veitti henni. Auk
þess talaði hún um að það væri gott að
dreifa huganum. Önnur Kraftgöngukona
byrjaði þann dag sem maðurinn hennar
var í hjartaaðgerð, hún vildi vera þar
sem fáir þekktu til aðstæðna hennar og
væru að spyrja hana frétta – vildi bara fá
andrými. Sú hin sama heldur því fram að
Kraftganga sé jafnmikil geðrækt eins og
líkamsrækt. Mig grunar að Kraftganga sé
að uppfylla einhverjar slíkar þarfir ásamt
öðru,“ segir Árný.
Glaður hópur Kraftgöngumanna eftir að hafa sigrast á Móskarðshnjúkum.