Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2012, Blaðsíða 30
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 88. árg. 201226
Viðbrögð foreldra við nokkrum
meðferðarspurningum
Hvernig líður þér? Það var mjög
lærdómsríkt að setjast niður með foreldri
og leggja fram fyrrgreinda spurningu. Það
sést ekki utan á fólki hvernig því líður.
Í sumum tilvikum urðu foreldrar hljóðir
við og tóku sér tíma til að svara, nokkrir
sögðu að þeim liði vel og ekkert amaði að,
vel væri um þá hugsað. Í nokkrum tilvikum
urðu foreldrar klökkir og í öðrum tilvikum
brustu þeir í grát. Hjá mörgum var svarið:
„Þakka þér fyrir að spyrja.“
Það var auðfundið strax að foreldrunum
fannst gott að fá að tjá sig: „Ég er undir
miklu álagi núna.“ „Það er mikið álag að
vera inni á spítala.“ „Ég held ég hafi aldrei
orðið eins þreyttur.“ „Ég held starfsfólkið
viti ekki hvernig mér líður.“
Spurning um veikindareynslu fjölskyld-
unnar. Þessi spurning var eðlilegt framhald
í samræðunum því oft kom umræðan um
fjölskylduna fljótlega upp í samtalinu. Þörf
virtist vera fyrir því að tala um fjölskylduna
þó svo að hjúkrunarfræðingurinn legði
ekki spurningu um hana beint fram. „Ef
þau vissu hvernig fjölskyldan væri samsett
og hve mikið álag væri á okkur þá myndu
þau kannski frekar átta sig á að bjóða
okkur aðstoð, leyfa okkur að fara aðeins
frá og vera saman með hinu barninu um
stund, en ég vil alls ekki kvarta.“ „Þau vita
auðvitað ekki að ég er sjálf langveik, með
alvarlegan sjúkdóm, það hefur enginn
spurt.“ „Fjölskyldan hefur verið að takast
á við mikil áföll undanfarið en það vita
þau ekki um.“ Sumir höfðu þörf fyrir að
láta vita á hvaða fjölskyldumeðlim veikindi
höfðu mest áhrif og vildu segja af hverju
viðkomandi var undir mesta álaginu.
„Þegar vandamálið er komið fram er eins
og það verði minna.“
Fjölskyldutré. Foreldrar voru spurðir hvort
það myndi hjálpa að sjá fjölskyldumynstrið
með því að teikna upp fjölskyldutré. Rætt
var um að þetta væri gert til að varpa
frekari ljósi á hvernig við getum betur
stutt fjölskylduna. Áhugi var hjá foreldrum
að sjá fjölskyldumynstrið þegar það var
teiknað upp. Flestir voru forvitnir, sumir
fylltust stolti. „Nú skil ég álagið á mér
betur. Athyglisvert, ég skil nú af hverju
enginn hefur tíma til að hjálpa mér.“ (Sjá
mynd 1.)
Hvað hefur reynst best eða síst hjálplegt?
Spurningunni var oft sjálfkrafa svarað áður
en hún var borin upp. Eitt foreldrið sagði
um þetta: „Mér finnst gott að fá að tjá
mig.“ „Við þurfum skilning, það er það sem
reynist vel.“ „Að fá upplýsingar og fræðslu.“
„Síst hjálplegt of miklar upplýsingar í einu.“
„Best að fjölskyldan stendur saman.“ „Ég
hefði þörf fyrir fölskyldufund með læknum
og hjúkrunarfólki, ég er þreytt að miðla
upplýsingum til allra í fjölskyldunni ef hægt
væri að tala einu sinni við alla í einu.“ „Það
sem hjálpaði mest var að fá að segja frá,
því þegar ég var að tala áttaði ég mig á
ýmsu sem ég hafði ekki hugsað út í áður
og að ég væri sterkari en ég hélt.“
Ef það væri ein spurning, hver væri
hún? Foreldrarnir voru spurðir hvers þeir
mundu spyrja ef þeir mættu bara spyrja
einnar spurningar. „Ég hef beðið eftir
að einhver myndi spyrja mig,“ sagði ein
móðir. Aðrir foreldrar sögðu: „Við erum
óörugg og kvíðin því við vitum ekkert
um þennan sjúkdóm.“ „Það veit enginn
hér hvaða reynsla er að baki hjá okkur.“
„Eru endurteknar svæfingar hættulegar
barninu?“ „Ég vildi svo gjarna fá að tala
við þann sem gerði aðgerðina.“
Hvernig getum við stutt best við þig og
fjölskyldu þína? Í langflestum tilfellum
svöruðu foreldrar þessari spurningu
fljótt og án mikils umhugsunarfrests.
„Mikilvægt að þið vitið hverjar okkar þarfir
eru.“ „Hér er vel um okkur hugsað.“ „Það
er misvel tekið í aðstoð, suma biður
þú, aðra ekki.“ „Ótrúlega notalegt þegar
komið var, útskýrt og talað við okkur.“
Draga fram styrkleika foreldris eða
fjölskyldu nnar. Í viðtölunum var auðvelt að
benda á styrk foreldris eða fjölskyldu. Allir
einstaklingar búa yfir einhverjum sterkum
hliðum. Mikilvægt er að finna þær, benda
á þær og vinna með þær. „Ég hef áður
lent í áföllum og tekist á við þau og því
veit ég að ég á að geta tekist á við þetta.“
„Ég missti vinnuna, því er ég hér alla daga
með syninum, en ég og konan lítum á
þetta sem tækifæri því nú er ég heima
og tek á móti börnunum þegar þau koma
heim og geri eins og mamma mín í gamla
daga og gef þeim heitt kakó og brauð!“
Hverjar eru óskir eða þarfir ykkar fyrir
aðstoð núna? Þessi spurning hafði það að
leiðarljósi að hvetja foreldra til að láta óskir
sínar og þarfir um stuðning og fræðslu
í ljós. „Við stöndum saman fjölskyldan,
ég á góða að.“ „Hef þörf fyrir að tala um
þetta aftur og aftur.“ „Gott að tjá sig og
finna áhuga á manni, ég held ég geti lært
af þessu.“ „Það væri gott að fá viðtal við
félagsráðgjafa ef hægt væri að fá betri
aðstoð þegar við komum heim.“
Þegar ég hugsa til þeirra fjölskyldna
sem tóku þátt í rannsókninni eru mér
í minni frásögur þeirra allra fyrir þeirra
dugnað og styrk við að vinna með
Amma/afi
Frænka/frændi
Foreldrar
Börn
Mynd 1. Fjölskyldutré.