Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2012, Blaðsíða 48

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2012, Blaðsíða 48
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 88. árg. 201244 Cecilie B.H. Björgvinsdóttir, cecilie@hjukrun.is ORLOFSRÉTTINDI FÉLAGSMANNA Nú líður senn að sumarorlofstíma. Hér eru upplýsingar um réttindi félagsmanna sem taka laun samkvæmt kjarasamningum FÍH. Þeir sem starfa á almennum vinnumarkaði þurfa að skoða ráðningarsamninginn sinn en þar er kveðið á um orlofsréttinn. Orlofsréttur verður þó aldrei skemmri en 24 dagar. Sumarorlofstímabilið er frá 1. maí til 15. september ár hvert. Yfirmaður skal í samráði við starfsmenn ákveða hvenær orlof skuli veitt. Honum er skylt að verða við óskum starfsmanna um hvenær orlof skuli veitt og skal það veitt á sumarorlofstíma, sé þess óskað af hálfu starfsmanns og því verður við komið vegna starfa stofnunarinnar. Yfirmaður skal að lokinni könnun á vilja starfsmanna tilkynna svo fljótt sem unnt er og í síðasta lagi mánuði fyrir byrjun orlofs hvenær orlof skuli hefjast nema sérstakar aðstæður hamli (4.5.1). Hvenær endar orlofið? Þegar starfsmaður í vaktavinnu fer í orlof skal hann fá óyggjandi upplýsingar um hvenær hann skuli mæta á vakt að orlofi loknu (4.1.1). Veikindi í orlofi. Veikist starfsmaður í orlofi, telst sá tími, sem veikindum nemur, ekki til orlofs enda sanni starfsmaður með læknisvottorði að hann geti ekki notið orlofs. Tilkynna skal yfirmanni án tafar með sannanlegum hætti ef um veikindi eða slys í orlofi er að ræða (4.6.1). Orlofsuppbót. Orlofsuppbótin 2012 er sem hér segir: Hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga er hún 37.000 kr. Hjá öðrum launagreiðendum er hún 27.800 kr. Ávinnsla orlofs á sér stað frá 1. maí til 30. apríl ár hvert. Lágmarksorlof skal vera 24 dagar miðað við fullt ársstarf og hlutfallslegt miðað við hlutastarf. Starfsmaður skal fá orlofsfé fyrir yfirvinnu- og álagsgreiðslur, orlofsfé þetta er greitt í banka og kemur til útborgunar í maí ár hvert. Greitt er hlutfall af launum háð aldri. Orlofssjóður. Vinnuveitandi greiðir samkvæmt kjarasamningi sérstakt gjald í orlofssjóð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Gjald þetta nemur 0,25% af heildarlaunum félagsmanna. Aðeins þeir félagsmenn, sem taka laun samkvæmt kjarasamningum FÍH, eiga rétt í sjóðinn. Í áranna rás hefur félaginu tekist að byggja upp sterkan sjóð sem hefur það að markmiði að auðvelda sjóðsfélögum að njóta orlofs. Sjóðurinn rekur orlofshúsnæði félagsins og hefur einnig það hlutverk að semja um aðra orlofsmöguleika fyrir sjóðsfélaga. Sjóðsstjórnin reynir að sinna þörfum félagsmanna á sem breiðustum grunni. Þekkir þú það sem í boði er hjá orlofssjóðnum? Það er m.a.: • Orlofshús/orlofsíbúðir • Gjafakort hjá Útivist og Ferðafélagi Íslands • Gjafakort hjá Icelandair / Iceland Express • Miðar í Hvalfjarðargöng • Veiðikortið • Útilegukortið • Afsláttarkort frá Orkunni • Hótelmiðar. Með ósk um gleðilegt sumar – njótið orlofsins. Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna eða einhver óvissa ríkir varðandi orlof. Tafla 1. Áunnið orlof eftir aldri miðað við fullt starf. Orlofsstundafjöldi ávinnst hlutfallslega miðað við starfshlutfall. Aldur Stundir á ári Stundir á mánuði Vinnudagar á ári Yngri en 30 ára 192 stundir 16 stundir 24 dagar 30-37 ára 216 stundir 18 stundir 27 dagar 38 ára og eldri 240 stundir 20 stundir 30 dagar Tafla 2. Greiðslur orlofsfjár miðað við aldur. Lágmarksorlof: Yngri en 30 ára 10,17% 30-37 ára 11,59% 38 ára og eldri 13,04%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.