Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2012, Síða 48
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 88. árg. 201244
Cecilie B.H. Björgvinsdóttir, cecilie@hjukrun.is
ORLOFSRÉTTINDI FÉLAGSMANNA
Nú líður senn að sumarorlofstíma. Hér eru
upplýsingar um réttindi félagsmanna sem
taka laun samkvæmt kjarasamningum FÍH.
Þeir sem starfa á almennum vinnumarkaði
þurfa að skoða ráðningarsamninginn
sinn en þar er kveðið á um orlofsréttinn.
Orlofsréttur verður þó aldrei skemmri en
24 dagar.
Sumarorlofstímabilið er frá 1. maí til 15.
september ár hvert. Yfirmaður skal í
samráði við starfsmenn ákveða hvenær
orlof skuli veitt. Honum er skylt að verða
við óskum starfsmanna um hvenær
orlof skuli veitt og skal það veitt á
sumarorlofstíma, sé þess óskað af hálfu
starfsmanns og því verður við komið
vegna starfa stofnunarinnar. Yfirmaður
skal að lokinni könnun á vilja starfsmanna
tilkynna svo fljótt sem unnt er og í
síðasta lagi mánuði fyrir byrjun orlofs
hvenær orlof skuli hefjast nema sérstakar
aðstæður hamli (4.5.1).
Hvenær endar orlofið? Þegar starfsmaður
í vaktavinnu fer í orlof skal hann fá
óyggjandi upplýsingar um hvenær hann
skuli mæta á vakt að orlofi loknu (4.1.1).
Veikindi í orlofi. Veikist starfsmaður í
orlofi, telst sá tími, sem veikindum nemur,
ekki til orlofs enda sanni starfsmaður
með læknisvottorði að hann geti ekki
notið orlofs. Tilkynna skal yfirmanni án
tafar með sannanlegum hætti ef um
veikindi eða slys í orlofi er að ræða
(4.6.1).
Orlofsuppbót. Orlofsuppbótin 2012 er
sem hér segir: Hjá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga er hún 37.000 kr. Hjá öðrum
launagreiðendum er hún 27.800 kr.
Ávinnsla orlofs á sér stað frá 1. maí til
30. apríl ár hvert. Lágmarksorlof skal
vera 24 dagar miðað við fullt ársstarf og
hlutfallslegt miðað við hlutastarf.
Starfsmaður skal fá orlofsfé fyrir yfirvinnu-
og álagsgreiðslur, orlofsfé þetta er greitt
í banka og kemur til útborgunar í maí
ár hvert. Greitt er hlutfall af launum háð
aldri.
Orlofssjóður. Vinnuveitandi greiðir
samkvæmt kjarasamningi sérstakt
gjald í orlofssjóð Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga. Gjald þetta nemur
0,25% af heildarlaunum félagsmanna.
Aðeins þeir félagsmenn, sem taka
laun samkvæmt kjarasamningum FÍH,
eiga rétt í sjóðinn. Í áranna rás hefur
félaginu tekist að byggja upp sterkan
sjóð sem hefur það að markmiði að
auðvelda sjóðsfélögum að njóta
orlofs. Sjóðurinn rekur orlofshúsnæði
félagsins og hefur einnig það hlutverk
að semja um aðra orlofsmöguleika fyrir
sjóðsfélaga. Sjóðsstjórnin reynir að sinna
þörfum félagsmanna á sem breiðustum
grunni. Þekkir þú það sem í boði er hjá
orlofssjóðnum? Það er m.a.:
• Orlofshús/orlofsíbúðir
• Gjafakort hjá Útivist og Ferðafélagi
Íslands
• Gjafakort hjá Icelandair / Iceland
Express
• Miðar í Hvalfjarðargöng
• Veiðikortið
• Útilegukortið
• Afsláttarkort frá Orkunni
• Hótelmiðar.
Með ósk um gleðilegt sumar – njótið
orlofsins. Ekki hika við að hafa samband
ef einhverjar spurningar vakna eða
einhver óvissa ríkir varðandi orlof.
Tafla 1. Áunnið orlof eftir aldri miðað við fullt starf. Orlofsstundafjöldi ávinnst hlutfallslega
miðað við starfshlutfall.
Aldur Stundir á ári Stundir á mánuði Vinnudagar á ári
Yngri en 30 ára 192 stundir 16 stundir 24 dagar
30-37 ára 216 stundir 18 stundir 27 dagar
38 ára og eldri 240 stundir 20 stundir 30 dagar
Tafla 2. Greiðslur orlofsfjár miðað við aldur.
Lágmarksorlof:
Yngri en 30 ára 10,17%
30-37 ára 11,59%
38 ára og eldri 13,04%