Tölvumál - 01.11.2015, Blaðsíða 17

Tölvumál - 01.11.2015, Blaðsíða 17
17 Ofangreind atriði hafa þannig ekki síst þýðingu þegar hugað er að miðlun persónuupplýsinga. Ef miðla á persónuupplýsingum þarf ennfremur að fullnægja kröfum sem útlistaðar eru í 8. gr. pvl, sem varða einkum nauðsyn að baki miðluninni eða samþykki hins skráða. Ef miðla á viðkvæmum persónuupplýsingum þarf á hinn bóginn jafnframt að fullnægja kröfum 9. gr. pvl., sem gera frekari kröfur og leggja miðluninni þannig þrengri skorður en ella. Auk þeirra reglna um miðlun sem fjallað er um í pvl. er til fjöldi annarra reglna, s.s. í formi reglugerða, verklagsreglna eða auglýsinga, er geta sett miðlun frekari skorður eða aukið heimildir til miðlunar, allt eftir aðstæðum hverju sinni. Vert er að nefna verklagsreglur nr. 340/2003 um afgreiðslu umsókna um aðgang að sjúkraskrám, reglugerð nr. 322/2001 um meðferð persónuupplýsinga hjá lögreglu og reglur nr. 712/2008 um tilkynn ingar skylda og leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga. Á heimasíðu Persónuverndar, sem annast m.a. eftirlit með framkvæmd pvl. og reglna settra samkvæmt þeim, má finna lista yfir ofangreindar reglur og reglugerðir [2]. Þá er til fjöldi bæði almennra laga og sérlaga sem geta haft þýðingu við meðferð persónuupplýsinga, þ.m.t. miðlun þeirra, t.d. stjórnsýslulög nr. 37/1993 og upplýsingalög nr. 140/2012 [3]. Þegar hugað er að miðlun hvers kyns persónuupplýsinga, ekki síst þegar um ræðir viðkvæmar persónuupplýsingar, ber að hafa í huga grundvallarreglu 71. gr. stjórnarskrárinnar um rétt einstaklinga til friðhelgi einkalífs og fjölskyldu, sem jafnframt er verndaður í 8. gr. mann réttinda- sáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Fyrir kemur þó að fara þurfi fram hagsmunamat á því hvort vegi þyngra í einstöku tilfelli, friðhelgi einka- lífsins eða tjáningarfrelsið, sem varið er í 73. gr. stjórnarskrárinnar og 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Persónuvernd hefur fram til þessa ekki lagt mat á framangreint, heldur talið að slíkt mat eigi undir valdsvið dómstóla [4] ÁBYRGÐ, EFTIRLIT OG ÖRYGGI Líkt og að framan greinir hefur Persónuvernd eftirlit með pvl. og reglna settra samkvæmt þeim. Persónuvernd úrskurðar í ágreiningsmálum um miðlun persónuupplýsinga og getur stofnunin jafnframt haft frumkvæði að því að skoða ákveðin mál og gefa út álit. Persónuvernd afgreiðir einnig leyfisumsóknir og gefur fyrirmæli um hvernig vinna skal með ákveðnar upplýsingar, með hliðsjón af bæði tækni, öryggi og gildandi lagareglum, svo fátt eitt sé nefnt. Í 11. gr. pvl. er regla um öryggi persónuupplýsinga, sem kveður m.a. á um, að gera skuli viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggis- ráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar gegn ólöglegri eyðileggingu, gegn því að þær glatist eða breytist fyrir slysni og gegn óleyfilegum aðgangi. Ennfremur segir að beita skuli ráðstöfunum sem tryggja nægilegt öryggi miðað við áhættu af vinnslunni og eðli þeirra gagna sem verja á, með hliðsjón af nýjustu tækni og kostnaði við framkvæmd þeirra. Einnig ber að virða reglur Persónuverndar nr. 299/2001 um öryggi persónuupplýsinga. Þá er fjallað um innra eftirlit i 12. gr. pvl. og trúnaðarskyldu vinnsluaðila við meðferð persónuupplýsinga í 13. gr. pvl. Reglulega gerist það, að birtar eru myndir eða myndbrot á samfélags- miðlum eða netinu, þar sem um ræðir meint refsivert brot hins skráða, án þess að leitað sé atbeina lögreglunnar, en slíkt kann hæglega að fela í sér miðlun viðkvæmra persónuupplýsinga. Persónuvernd hefur úrskurðað um ólögmæta miðlun á slíku efni og taldi í máli nr. 31 frá 2011, að bakarí í Hafnarfirði hefði brotið gegn pvl., þegar það birti á vefsíðunni youtube.com myndskeið, sem talið var sýna ungan dreng taka farsíma ófrjálsri hendi [5]. Þeir sem taka upp myndskeið á farsímum eða snjalltækjum og birta á netinu, feli myndin eða myndbrotið í sér miðlun viðkvæmra persónuupplýsinga, geta þannig verið að brjóta á friðhelgi einkalífs hins skráða. Og skiptir þá jafnvel ekki máli, að tilgangur miðlunarinnar sé sá að koma upp um meint brot eða meintan brotavilja hins skráða. Með því er ekki verið að draga úr gildi tiltekinnar skráningar sem sönnunargagns, ef á reyndi, heldur ber eftir atvikum að vísa slíkum gögnum til lögreglunnar. Telji menn að brotið hafi verið gegn trúnaði eða þagnarskyldu, má finna ábyrgð um slíkt víða í lögum, t.a.m. í 136. gr. og 230. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákvæðin leggja refsiábyrgð á þá, sem vegna starfa sinna eiga að gæta þagmælsku um ákveðin um persónuupplýsingar einstaklinga, en greina frá því sem leynt átti að fara, t.d. með miðlun. 6 Í sömu lögum er jafnframt að finna ákvæði sem leggur refsiábyrgð á hvern þann sem skýrir opinberlega frá einkamálefnum annars manns, án þess að nægar ástæður séu fyrir hendi er réttlæti verknaðinn, sbr. 229. gr. Miðlun persónuupplýsinga getur varðað refsingum, bæði í formi fésektar og frelsissviptingar og framið lögbrot getur, líkt og framan greinir, varðað við fleiri en ein lög, allt eftir eðli máls. LEKAMÁLIÐ Þann 21. nóvember 2014 sagði þáverandi innanríkisráðherra af sér embætti í kjölfar svokallaðs Lekamáls, enda lá þá fyrir dómur í máli aðstoðar manns hennar, sem var sakfelldur fyrir brot gegn þagnarskyldu sinni í starfi með því að hafa látið óviðkomandi í té efni, er innihélt viðkvæmar persónuupplýsingar um hælisleitanda. Umræddur aðstoðar maður hafði þannig miðlað trúnaðarupplýsingum í formi minnis blaðs til fjölmiðla [6]. Upphaflega hafði minnisblaðið verið óformlegt vinnuskjal sem var vistað á opnu drifi í tölvukerfi innan ríkis- ráðuneytisins, tekið saman af skrifstofustjóra og lögfræðingi þess. Vinnuskjalið, sem innihélt m.a. viðkvæmar persónuupplýsingar um viðkomandi hælisleitanda, var áframsent til ráðuneytisstjóra, innanríkisráðherra og tveggja aðstoðarmanna hans, en rataði jafnframt í hendur fjölmiðils. Sá fjölmiðill skrifaði loks frétt um málið sem byggði m.a. á upplýsingum úr umræddu minnisblaði. Málið fékk mikla útreið í fjölmiðlum og vatt upp á sig eftir því sem á leið og var betur rannsakað. Ekki aðeins lá fyrir að brotið hefði verið gegn friðhelgi einkalífs hælisleitandans með upplýsingalekanum heldur var jafnframt óskýrt með hvaða hætti ráðu- neytið hefði komist yfir þær upplýsingar sem fram komu í minnis blaðinu. Við nánari skoðun á því kom í ljós að aðstoðarmaður innanríkisráðherra hafði með símtali óskað eftir upplýsingum um hælisleitandann við þáverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum, sem miðlaði til ráðuneytisins skýrsludrögum um rannsókn sakamáls, hælisleitandanum á hendur. Persónuvernd úrskurðaði um lögmæti miðlunarinnar og var niðurstaða hennar að miðlunin hefði verið ólögmæt. Að auki taldi Persónuvernd það fara í bága við kröfur um upplýsingaöryggi að skort hefði á skrán- ingu samskipta milli lögreglu Suðurnesja og ráðuneytisins. Með sama hætti fór í bága við kröfur pvl. að ekki var beitt sérstökum ráðstöfunum á borð við dulkóðun eða læsingu með sterku lykilorði við miðlun skýrsludraganna [7]. Lekamálið er aðeins eitt af ótal mörgum, er varða brot á persónu- verndarlögum og stjórnarskrárvörðum rétti manna til friðhelgi einkalífs og fjölskyldu. Það sem gerir það kannski sérstakt, fyrir utan hversu hátt upp embættis- stigann það teygði anga sína, er hversu auðvelt það reyndist aðstoðar- manni ráðherrans að nálgast umræddar upplýsingar og hversu illa var staðið að tryggingu upplýsingaöryggis, með hliðsjón af þeim ströngu reglum sem um hvort tveggja gilda. Upplýsingaþjóðfélagið býr við ný og áður óþekkt vandamál þegar kemur að því að tryggja öryggi gagna og koma í veg fyrir ólöglega miðlun upplýsinga. Vandinn felst að hluta til í þeim tækniframförum sem hafa átt sér stað, s.s. með tilkomu snjalltækja og auðveldu aðgengi að internetinu, þar sem menn miðla nú stöðugt efni sem kann að vera óæskilegt eða meiðandi fyrir aðra. Sé upplýsingum miðlað gegnum netið er nú mun líklegra en áður, að efnið nái hratt og auðveldlega dreifingu, með hugsanlegum skaðlegum afleiðingum fyrir hinn skráða. Því verður að gera þá skilyrðislausu kröfu að öryggi í gagnamiðlun sé

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.