Tölvumál - 01.11.2015, Blaðsíða 30

Tölvumál - 01.11.2015, Blaðsíða 30
30 Frá netbólunni í kringum síðustu aldamót hafa verið smíðuð ótal vefumsjónarkerfi á Íslandi og mörg þeirra ekki átt langra lífdaga auðið. Nokkur hafa hins vegar blómstrað og eru í stöðugri þróun. Í umfjöllun á þessum síðum er litið yfir stöðu á fimm grónum íslenskum vefumsjónarkerfum: Dacoda frá Dacoda, Dísill frá Cyan (Skapalóni), Eplica frá Hugsmiðjunni, LiSA frá Advania og Moya frá Stefnu. Tölvumálum lék forvitni á að vita hver staðan væri á þróun þeirra, hvort einhverra nýjunga væri að vænta og fá rök þeirra fyrir því af hverju fyrirtæki eigi að velja þeirra kerfi en ekki opinn hugbúnað (open-source) í vefumsjónarkerfum. DACODA CMS UM KERFIÐ Dacoda CMS hefur verið í þróun frá árinu 2002 og er í notkun á mörgum af stærstu vefum landsins. Kerfið er einfalt í notkun fyrir hefðbundna notendur en um leið mjög sveigjanlegt og opið sem býður upp á að notendur með þekkingu á forritun geti búið til sérlausnir og haft fullkomna stjórn á útliti og virkni. Dacoda hefur unnið náið með sérfræðingum í leitarvélabestun og fjölda vefstjóra hjá fyrirtækjum og stofnunum. Til að koma til móts við kröfur og þarfir er kerfið í stöðugri þróun og það uppfært reglulega. Til viðbótar við almennt viðhald á vefum er boðið upp á ýmis undirkerfi, t.d.: bókunarkerfi fyrir bílaleigur, hótel, dagsferðir og pakkaferðir, vefverslunarkerfi o.fl. Skjáskot af Dacoda CMS TÆKNIN Dacoda CMS byggir á ASP.NET og notar MSSQL gagnagrunn. Einu kröfurnar sem eru gerðar til hýsingar er Windows server og Microsoft SQL server. Hægt er að nota kerfið í öllum helstu vöfrum bæði á Windows og Mac. Engar takmarkanir eru á útliti og umfangi vefja í Dacoda CMS og höfum við útbúið fjölmargar sérlausnir til að tengjast innri kerfum fyrirtækja, svo sem bókunar- og bókhaldskerfum. ÞRÓUN KERFISINS Síðustu misseri hefur verið unnið að því að aðlaga kerfið að nýjustu stöðlum og aðferðum sem eru nýttar á vefnum ásamt því að endurbæta vefverslunarhluta kerfisins sem er gríðarlega öflugt og sveigjanlegt. Vinna er hafin við allsherjar yfirhalningu á viðmóti á bakenda sem mun bæta upplifun notenda og einfalda vinnslu. Áætlað er að ný útgáfa af vefumsjónarkerfinu verði komin í notkun um mitt ár 2016. Það eru gríðarleg tækifæri framundan og við stefnum á að sækja á bæði innlendan og erlenda markaði. Til framtíðar sjáum við fyrir okkur að opna Dacoda CMS enn frekar og bjóða forriturum upp á að smíða viðbætur og nýta kerfið við uppsetningu á vefum bæði með og án aðkomu Dacoda. AF HVERJU EKKI OPEN SOURCE? Reynslan sýnir að open-source vefumsjónarkerfi eru almennt veikari fyrir árásum, aðallega vegna útbreiðslu þeirra, viðbóta sem innihalda öryggisveikleika og að kóðinn sé opinn öllum. Þrátt fyrir að ekki sé greitt fyrir open-source vefumsjónarkerfi er ekki víst að kostnaður vegna hönnunar, forritunar, uppsetningar og viðhalds á vef verði lægri því oft er kostnaður vegna vefumsjónarkerfis aðeins brot af heildarkostnaði við vinnslu á nýjum vef. Dacoda CMS er gríðarlega öflugt, öruggt og sveigjanlegt vefumsjónar- kerfi, þjónustað af traustu fyrirtæki sem hefur verið starfandi í yfir 13 ár. Hjá Dacoda starfa færir starfsmenn með góða þekkingu og reynslu á öllu sem við kemur hugbúnaðarþróun, hönnun og hýsingu vefkerfa. Fyrirtæki og stofnanir sem vilja trausta og persónulega þjónustu, sanngjarnt verð og öruggar veflausnir ættu að velja Dacoda CMS. ÍSLENSK VEFUMSJÓNARKERFI Sigurjón Ólafsson, Fúnksjón vefráðgjöf

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.