Morgunblaðið - 18.09.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Lömb frá Gunnarsstöðum í Þistilfirði
eru um 1,5 kílóum léttari nú en lömb-
in voru í fyrra. Jóhannes Sigfússon,
bóndi á Gunnarsstöðum, sagði að
hafa bæri í huga að árið í fyrra hefði
verið metár hvað varðaði fallþunga
dilka. Slátrun hófst hjá Fjallalambi á
Kópaskeri á mánudaginn var. Jó-
hannes kvaðst binda vonir við að fall-
þunginn yrði nálægt meðallagi í
haust.
Fyrstu göngum er að mestu lokið í
Þistilfirði. Jóhannes sagði að búist
hefði verið við því að lömbin yrðu í
léttari kantinum. „Hér var gróður-
leysi fram eftir öllu sumri. Innheið-
arnar algjörlega sprettulausar. Ég
hef sjaldan eða aldrei séð þær svona.
Eftir að kemur í 300-400 metra hæð,
þar sem á að vera kvistur, víðir og
annað, er engin
spretta. Mér
fannst áberandi
hvað fé sem kom
úr innheiðum og
innstu leitum var
lélegt, þveröfugt
við það sem á að
vera,“ sagði Jó-
hannes.
Í gær var þreif-
andi þoka í Þistil-
firði sjötta daginn í röð. Þokan hefur
valdið vandræðum því ekkert þýðir
að smala í þoku. Samt hefur verið
hlýtt og gott veður að öðru leyti.
Gangnamenn hröktust af Tungusels-
heiði fyrir þoku en ætluðu aftur á
heiðina í gær, enda var spáin góð fyr-
ir helgina. Einnig stóð til að smala
Álandstungu í gær.
En hvernig gekk heyskapurinn?
„Það er góður heyskapur – það
sem hann er – en hann er held ég
minni en í meðalári,“ sagði Jóhannes.
„Það spratt mjög seint. Það var ekki
fyrr en kom fram í ágúst að við feng-
um þurrka.“ Hann sagði að veðrið í
júlí hefði verið ótrúlegt. Hitinn fór
aldrei yfir 10°C á daginn og lá í 3-4°C
allar nætur og grasspretta var engin.
Þetta var mjög óvenjulegt. Illviðri
komu ekki í sumar en það var sam-
felld austan- og norðaustanátt frá 25.
apríl og út júlí. Í allan fyrravetur lá
hann í sunnan- og suðvestanáttum.
Jóhannes vissi ekki til þess að
nokkur bóndi á svæðinu hefði slegið
seinni slátt og heyjað nú í september.
„Hins vegar hefur tíðarfarið núna í
ágúst og það sem af er september
verið einstaklega hlýtt. Það er kom-
inn vaðandi hagi á tún sem voru sleg-
in í byrjun ágúst og það er í sjálfu sér
ágætt,“ sagði Jóhannes. Það verður
því hægt að beita túnin í haust.
Göngum er að mestu lokið í Þistilfirði Þar var gróðurleysi fram eftir öllu sumri vegna kulda
Heyskapur var góður en þó minni en í meðalári Einstaklega hlýtt í ágúst og september
Lömbin eru 11⁄2 kílói léttari en í fyrra
Morgunblaðið/Líney
Gunnarsstaðir Spretta var lítil þegar myndin var tekin, 17. júlí. Úr rættist
og það náðust ágætis hey, en ekki mikil, en lömbin eru rýrari en í fyrra.
Jóhannes
Sigfússon
Felldir verða niður tollar á vörum í
yfir 340 tollskrárnúmerum land-
búnaðarafurða við innflutning frá
Evrópusambandinu og lækkaðir á
yfir 20 til viðbótar. Almennt séð
gerir ESB slíkt
hið sama við inn-
fluttar vörur frá
Íslandi. Þannig
verða allir tollar
á unnar búvörur
sem hingað eru
fluttar felldir
niður, nema á
jógúrt. Dæmi um
það eru súkku-
laði, pizzur,
pasta og bökun-
arvörur. Einnig verða felldir niður
eða lækkaðir tollar á óunnum land-
búnaðarvörum eins og villibráð,
frönskum kartöflum og útiræktuðu
grænmeti.
Þetta felst í samkomulagi ís-
lenskra stjórnvalda og Evrópusam-
bandsins um viðskipti með land-
búnaðarvörur sem gengið var frá í
gær eftir tveggja daga samninga-
lotu. Vonir standa til að samning-
arnir geti tekið gildi í lok næsta
árs eða byrjun árs 2017.
Jafnframt verða tollfrjálsir inn-
flutningskvótar fyrir ýmsar kjöt-
tegundir og osta stækkaðir. Þá fær
Ísland hærri kvóta fyrir útflutning
á skyri, smjöri og lambakjöti til
ESB og nýja kvóta fyrir alifugla-
og svínakjöt og ost. Það er talið
skapa aukin tækifæri til útflutn-
ings á búvörum.
Kemur neytendum til góða
„Þetta er býsna mikilvægt og
mun örugglega koma neytendum
til góða,“ segir Ólafur Stephensen,
framkvæmdastjóri Félags atvinnu-
rekenda. Félagið hefur barist fyrir
mörgum af þeim breytingum sem
þarna koma fram.
Ólafur segir að ekki liggi fyrir
hvað breytingarnar þýði, bæði
vanti tölur um tollalækkanir og
innflutningskvóta. Hann segir þó
enga ástæðu til að ætla annað en
tollalækkanir skili sér í vasa neyt-
enda með lækkuðu vöruverði vegna
þeirrar hörðu samkeppni sem er í
innflutningi matvæla. helgi@mbl.is
Tollar afnumdir
af unnum vörum
Ostar Fleiri teg-
undir verða til sölu.
Tollkvótar landbúnaðarvara stækkaðir
Tækifæri til útflutnings á skyri og kjöti
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta er virkilega ánægjulegur dag-
ur. Það kom fram mikill samhugur í
fólki. Menn eru ánægðir með að vera
komnir á þennan stað,“ segir Krist-
ján Þór Magnússon, sveitarstjóri
Norðurþings. Ráðherrar, aðaleigandi
PCC og sveitarstjóri klipptu á borða
á iðnaðarsvæðinu á Bakka til að stað-
festa að undirbúningi er lokið og nú
hefjast framkvæmdir við kísilver
PCC.
Undirbúningsframkvæmdir hafa
verið á lóð PCC á Bakka, meðal ann-
ars við vegi, veitur og vinnubúðir.
Jarðvegsframkvæmdir eru hafnar og
á næstunni verður töluvert um
sprengingar þar.
Þá munu framkvæmdir við jarð-
göng um Húsavíkurhöfða og iðn-
aðarveg frá Húsavíkurhöfn að iðn-
aðarsvæðinu hefjast í nóvember,
samkvæmt verkáætlun norska fyr-
irtækisins sem átti lægsta tilboð í
verkið. Ráðast þarf í fleiri fram-
kvæmdir við höfnina.
Nýta atvinnutækifæri
„Framkvæmdir við virkjun á
Þeistareykjum og línulögn eru einnig
á áætlun. Stóra myndin lítur því vel
út,“ segir Kristján. Hann bætir því
við að ákvörðun Landsvirkjunar um
að ráðast í annan áfanga
Þeistareykjavirkjunar sé gleðileg.
Það gefi vísbendingar um að iðnaðar-
svæðið verði eftirsóknarvert fyrir
fleiri fyrirtæki, millistór og lítil.
Sveitarstjórinn segir að sveitarfé-
lagið þurfi að ráðast í ýmsar aðgerðir
til að bregðast við þeim breytingum
sem sannarlega eru framundan. „Við
þurfum að geta tekið á móti fleira
fólki og nýtt atvinnutækifærin til hins
ýtrasta. Það verður annar taktur í
þessu hjá okkur,“ segir Kristján Þór
Magnússon sveitarstjóri.
Fyrr um morguninn komu fulltrú-
ar helstu fyrirtækja og stofnana sem
hlutverki hafa að gegna við uppbygg-
inguna saman til fundar á Fosshótel
Húsavík. „Verktakarnir eru rétt að
byrja og það kom fram að krefjandi
verkefni bíða þeirra. Þeir líktu þessu
við boðhlaup. Við hérna á svæðinu er-
um búin að reyna að koma einhverju
af stað á Bakka í 30 ár, ef litið er á all-
an tímann. Það er fyrsti fasinn. Ann-
ar var að koma PCC hingað á svæðið
og fjármagna framkvæmdina. Upp-
byggingin er þriðji fasinn og svo get-
um við vonandi fagnað þeim síðasta á
árinu 2017 þegar framleiðsla hefst í
kísilveri,“ segir Kristján Þór.
Ekkert til sparað
Hann segir að fundarmenn hafi
fengið innsýn í hönnun kísilversins.
„Mér sýnist að það eigi ekki að vera
neitt til sparað í hágæða evrópskri
hönnun á þeim búnaði sem fer þang-
að inn. Meðal annars er tekið tillit til
jarðskjálftavár,“ segir Kristján. »22
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Borðaklipping Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Kristján Þór Magnússon sveitarstjóri, Waldemar
Preussner, eigandi PCC og Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra klipptu á íslenska og þýska fánaborða.
Ánægðir með að vera
komnir á þennan stað
Framkvæmdum á Bakka fagnað með því að klippa á borða