Morgunblaðið - 18.09.2015, Síða 4

Morgunblaðið - 18.09.2015, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Félag háskólamenntaðra starfs- manna Stjórnarráðsins (FHSS), sem í eru um 550 félagsmenn, er stór- skuldugt eftir verkfallsþátttöku örlít- ils hluta fé- lagsmanna frá því í vor, en háskóla- menntaðir starfs- menn ráðuneyt- anna hafa ekki verkfallsrétt. Það voru einungis há- skólamenntaðir starfsmenn fjár- sýslu ríkisins sem fóru í verkfall. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins nema skuldir félagsins við verkfallssjóð Bandalags háskólamanna (BHM) um 54 millj- ónum króna. Ragnheiður Bóasdóttir er formað- ur FHSS. Í framhaldi af fyrirspurn Morgunblaðsins í gær, sendi Ragn- heiður fyrir hönd stjórnar FHSS Morgunblaðinu svohljóðandi frétta- tilkynningu: Aukaaðalfundur haldinn „Aukaaðalfundur Félags háskóla- menntaðra starfsmanna Stjórnar- ráðsins, sem haldinn var 16. septem- ber sl., samþykkti tillögu stjórnar FHSS um hækkun félagsgjalda frá næstu mánaðamótum. Tillagan var lögð fram til að ná því markmiði að greiða niður á tveimur árum áfallinn kostnað vegna þátttöku í verkfalls- aðgerðum BHM félaga fyrr á þessu ári. FHSS átti aðild að þeirri ákvörðun að kostnaður verkfallssjóðs BHM-fé- laga skyldi borinn af þeim félögum sem þátt tóku í samfloti BHM að jöfnu, þrátt fyrir að aðeins lítill hluti þeirra félaga ætti beina aðild að verk- fallsaðgerðum. Verkfallsaðgerðir náðu þó til þeirra félagsmanna FHSS sem starfa hjá Fjársýslu ríkisins, en háskólamenntaðir starfsmenn ráðu- neytanna hafa ekki verkfallsrétt. Með samþykkt tillögunnar bindur félagið vonir við að kostnaður vegna aðgerðanna verði að fullu greiddur á tveimur árum.“ Í fundargerð stjórnar FHSS frá 8. júní sl. kemur fram að eitt mál var á dagskrá: „Fjármál félagsins vegna verkfallskostnaðar“. Í fundargerð- inni segir m.a.: „Kostnaður vegna verkfallssjóðs BHM leggst með mjög misjöfnum hætti á aðildarfélög BHM. Megin ástæða þess er að við útreikning á framlögum til verkfallssjóðs er miðað við fjölda ríkisstarfsmanna í félögun- um en ekki heildarfjölda félags- manna. Ljóst er að allir meðlimir FHSS eru ríkisstarfsmenn og félagið greiðir þriðju stærstu framlög til sjóðsins sem er ekki í nægilegu sam- ræmi við stærð félagsins. Á fundinum var farið yfir útreikn- inga og tillögur Halldórs K. Valdi- marssonar vegna þessa.“ Ákvörðun verkfallssjóðs Halldór er framkvæmdastjóri þjónustuskrifstofu Stéttarfélags lög- fræðinga. Fram kemur í fundargerð stjórnar FHSS að samþykkt hafi ver- ið að Halldór myndi beina því til stjórnar BHM að leitað yrði leiða til að draga úr því hversu misjafnlega verkfallssjóður leggst á félög. Halldór vildi ekki tjá sig efnislega um innihald tillagnanna, þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær. „Það eina sem ég get sagt um málið, er að tillögur mínar hafa verið teknar til meðferðar og á fundi sem haldinn var þann 11. þessa mánaðar, voru endanlegar ákvarðanir vegna verk- fallssjóðsins frágengnar,“ sagði Hall- dór og vísaði að öðru leyti á formann verkfallssjóðs BHM. Maríanna H. Helgadóttir er for- maður stjórnar verkfallssjóðs BHM. Ekki náðist í Maríönnu í gær, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Skuldar verkfallssjóði 54 milljónir  Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins er stórskuldugt eftir verkfallsþátttöku í vor  Félagsgjöld voru hækkuð til þess að greiða niður skuldir við verkfallssjóð BHM á tveimur árum Morgunblaðið/Jim Smart Stjórnarráðið Félagsmenn í Félagi háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins eru um 550 talsins, en einungis félagsmenn sem starfa hjá Fjársýslu ríkisins hafa verkfallsrétt, ekki háskólamenntaðir starfsmenn ráðuneytanna. Ragnheiður Bóasdóttir Göngu- og hjólabrú yfir Breiðholtsbraut var tekin formlega í notun í gær. Brúin auðveldar gangandi og hjólandi vegfarendum að komast á milli Norð- lingaholts og Seláss og var henni væri vel tekið, enda um mikla samgöngubót að ræða sem eykur öryggi til muna. Upphaflega stóð til að brúin yrði tilbúin í vor, en framkvæmdir töfðust vegna veðurofsans síðasta vetur. Mikil samgöngubót í efri byggðum Reykjavíkur Morgunblaðið/Júlíus Á gangi yfir nýja brú Ísak Rúnarsson isak@mbl.is Evrópska gyðingaþingið, sem eru samtök gyðinga í Evrópu, íhugar nú að sækja rétt sinn en erlendur sér- fræðingur í alþjóðarétti telur að sniðganga Reykjavíkurborgar við ísraelskar vörur stangist á við sátt- mála Alþjóðaviðskiptastofnunarinn- ar. Dr. Moshe Kantor, forseti Evr- ópska gyðingaþingsins segir á vef þess, að aðgerðirnar mismuni gyð- ingum og að þingið hafi nú þegar leitað ráðgjafar um það hvort þær standist alþjóðalög og sáttmála. Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir að við- brögðin komi sér ekki endilega á óvart. „Þetta er hugsað af okkar hálfu sem táknræn aðgerð og inn- legg í baráttuna fyrir mannréttind- um í heiminum. Ísland hefur áður tekið sér stöðu og frumkvæði, við urðum fyrsta landið í Vestur-Evrópu sem viðurkenndi Palestínu sem sjálf- stætt og fullvalda ríki. Það vakti at- hygli á alþjóðavettvangi, árið 2014 fylgdi Svíþjóð í kjölfarið og nú í maí gerði Vatíkanið það einnig. Tilgang- urinn er að vekja athygli á þessari stöðu og vonandi að verða fyrirmynd fyrir aðrar borgir,“ segir Skúli. Aðspurður hvort leitað hafi verið lagaráðgjafar um hvort sniðganga sem þessi standist lög og sáttmála segir Skúli: „Það var haft samráð við lögfræðinga á vegum borgarinnar. Við miðum fyrst og fremst við inn- kaupareglur borgarinnar og þetta brýtur svo sannarlega ekki gegn þeim.“ Hann segir jafnframt að komi til þess að evrópska gyðingaþingið stefni borginni, muni lögfræðin taka við en að aðgerðin hafi fyrst og fremst verið pólitísk. „Þá færi það bara sína leið fyrir dómstólunum.Við búum í réttarríki og það hafa allir frelsi til að leita réttar síns, hvort sem það er á innlendum vettvangi eða alþjóðlegum. Fyrst og fremst er þetta hugsað sem pólitískt táknræn aðgerð til þess að vekja athygli á mannréttindabrotum í Palestínu,“ segir Skúli. Hættir við Íslandsför William Ian Miller er prófessor í háskólanum í Michigan í Bandaríkj- unum en næsta vor stóð til að hann héldi námskeið um Íslendingasög- urnar í Háskóla Íslands. Miller er gyðingur og hefur nú skrifað borg- arstjórn opið bréf þar sem hann seg- ist ekki einungis vera fræðimaður heldur einnig gyðingur. Af þeim sök- um telji hann sig knúinn til þess að aflýsa ferð sinni til Íslands þrátt fyr- ir að hafa mikið dálæti á landinu. Í samtali við Morgunblaðið segir Miller að hann búist við því að aðrir gyðingar geti gert slíkt hið sama. Jafnframt geti hann ekki skilið hvernig Íslendingar geti sett sig í dómarasætið svo fjarri átökunum í eins öruggu umhverfi. Hann segir jafnframt að það sé hræsni af Íslend- ingum að fordæma eitt land vegna meintra mannréttindabrota en taka ekki á öðrum löndum sem kerfis- bundið brjóta mannréttindi. Hörð viðbrögð við sniðgöngu  „Aðgerðunum ætlað að vekja athygli“ Morgunblaðið/Ómar Ráðhúsið Sniðganga borgarinnar hefur vakið viðbrögð víða. Hlýindi í heiminum hafa aldrei ver- ið meiri en nú að sögn veðurfræð- inga á bandarísku veðurstofunni. Af þeim átta mánuðum sem liðnir eru af árinu, voru hitamet sett í sex þeirra. Frá þessu greinir fréttastof- an AFP. Trausti Jónsson, veðurfars- sérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að einfalda útskýringin sé sú að hitastig fari hækkandi vegna gróðurhúsa- lofttegunda. Heitt tímabil sé yfir Kyrrahafinu en hitastig þar sveiflast nokkuð. Þar eð Kyrrahaf- ið þeki svo stórt svæði hafi það áhrif á heildar- hitastig jarðar. Trausti segir að nokkur mælikerfi séu til staðar í heiminum til að meta heimshitastig og að niðurstöður þeirra mælinga séu ólíkar. Óvenjuheitt sé þó í ár. Spurður hvers vegna Íslendingar hafi ekki orðið varir við meiri hlý- indi segir Trausti að þrátt fyrir að heimshitastig mælist hærra en áð- ur, séu alltaf „bláir“ kaldir blettir á kortunum. Tilviljun ráði því að norðanáttin hafi mikið blásið inn á Ísland í sumar. Veður í september hafi hins vegar verið með besta móti og jafnvel yfir meðalhita. isak@mbl.is Hlýtt í heiminum en ekki hér  Ísland er á einum „bláu blettanna“ Trausti Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.