Morgunblaðið - 18.09.2015, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015
Kóngasvarmi er risastórt fiðrildi
sem berst hingað árlega frá Suður-
Evrópu, einkum í seinnihluta ágúst
og í september. Kóngasvarmi er
gæddur mikilli flökkunáttúru og
stundum segir af einum eða fáein-
um hérlendis, stundum af umtals-
verðum fjölda víða um land, segir á
vef Náttúrufræðistofnunar. Að
þessu sinni virðist nokkur fjöldi
hafa borist til landsins.
Það fréttist af fyrsta kónga-
svarma haustsins vestur í Dölum
25. ágúst og síðan hverjum á fætur
öðrum: Borgarnes, Ölfus, Gríms-
nes, Selfoss, Heimaey, Landbrot,
Skaftafell, Höfn og Mývatnssveit. Á
vefnum segir að fæstir trúi sínum
eigin augum þegar kóngasvarma
beri fyrir augu, halda jafnvel að þar
fari smáfuglar og kettir veiði þá
sem mýs!
„Margan manninn hefur rekið í
rogastans þegar svermandi kónga-
svarma hefur borið fyrir augu. Oft-
ar en ekki þarf að sannfæra fólk
um að þar fari fiðrildi en ekki fugl-
ar, jafnvel leðurblökur! Hefur
stundum þurft að beita sannfær-
ingakrafti til að snúa fólki því af
villu síns vegar. Minnisstæð er saga
af kólibrífugli undir Eyjafjöllum.
Tilkynnanda varð fyrst snúið þegar
hann lýsti því hvernig kólibrífugl-
inn rúllaði upp löngum, mjóum
goggnum eftir að hafa dregið til sín
blómasafa!
Kyrrstæðar glæsiskepnur
Þeim sem eiga blómstrandi og
ilmandi skógartopp í garði sínum
skal ráðlagt að líta út í kvöldmyrkr-
inu þessa dagana og kanna hvort
ekki séu þar þessar glæsiskepnur
svermandi kyrrstæðar í loftinu eins
og kólibrífuglar með langan sog-
rana sinn á kafi ofan í blómi. Það
er stórkostleg sjón undir norður-
ljósahimni!“ segir á vef Náttúru-
fræðistofnunar. aij@mbl.is
Ljósmynd/Erling Ólafsson
Flökkunáttúra Kóngasvarmi sem fannst á Harrastöðum í Dölum í lok
ágúst. Nokkur fjöldi kóngasvarma hefur borist til landsins að undanförnu.
Kóngasvarmi
flakkar víða
Risastórt fiðrildi frá S-Evrópu
Fólk heldur að þar fari smáfuglar
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis-
ráðherra og Ragnheiður Elín Árna-
dóttir iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra voru við sölustörf í
Smáralind í gær þar sem þau seldu
Á allra vörum varasett.
Í ár berst söfnunarátakið Á allra
vörum fyrir bættum samskiptum
barna og unglinga og hyggst, í sam-
vinnu við Erindi, koma á fót sam-
skiptasetri við þá sem glíma við ein-
elti, foreldra þeirra og fjölskyldur.
Á myndinni eru, f.v., Elísabet
Sveinsdóttir, Guðný Pálsdóttir,
Kristján Þór Júlíusson, Ragnheiður
Elín Árnadóttir og Gróa Ásgeirs-
dóttir.
Ráðherrarnir seldu Á allra vörum
mbl.is
alltaf - allstaðar
Rakel Garð-
arsdóttir fékk
verðlaunin
„Framúrskarandi
ungir Íslend-
ingar“ fyrir störf
á sviði siðferðis- /
umhverfismála.
Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti
Íslands, afhenti
henni verðlaunin
við athöfn í Háskólanum í Reykjavík
í gær.
Rakel stofnaði velferðarsamtökin
Vakandi upp á sitt einsdæmi í byrj-
un síðasta árs. Þau berjast gegn só-
un matvæla. Í fréttatilkynningu frá
JCI hreyfingunni sem veitir verð-
launin kemur fram að frá því sam-
tökin Vakandi voru stofnuð hefur
orðið mikil vitundarvakning og við-
horfsbreyting í samfélaginu um sóun
á mat.
Vakandi hefur gefið út fróðlega og
nytsamlega bók um málefnið og nú
er Rakel að afla fjár fyrir heimildar-
mynd um sóun á mat og tískufatn-
aði.
Barátta
Rakelar
verðlaunuð
Rakel
Garðarsdóttir
Framúrskarandi
ungur Íslendingur
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 - fös: 12-16.
Mama B - ítölsk hönnun
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Túnikur
Verð 9.800 kr.
str. M-XXXL