Morgunblaðið - 18.09.2015, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 18.09.2015, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015 Breiðafjarðarferjan Baldur mun ekki sigla samkvæmt áætlun dag- ana 11. til 16. október nk. Ástæðan er slipptaka ferjunnar vegna óhapps sem varð í júní sl. þegar skipið tók niðri við Flatey og skemmdir urðu á botni skipsins, segir í tilkynningu. Á sama tíma og unnið verður að viðgerð vegna óhappsins mun verða farið í aðra þætti sem falla undir reglubundið viðhald skipsins. Það er gert nú með það að mark- miði að skipið þurfi ekki að fara aftur í slipp á næsta ári eins og til stóð. Farþegaskipið Særún mun ann- ast siglingar til og frá Flatey með sama hætti og gert hefur verið áður í fjarveru Baldurs. Breiðafjarðarferjan Baldur tekin í slipp Baldur Fer í slipp í næsta mánuði vegna óhapps sem varð við Flatey í júní. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þurrkunin er flöskuhálsinn í rækt- uninni. Það þarf að hafa næga að- stöðu til að geta framleitt gæðakorn og verið öruggur með að ná þetta miklu magni saman án þess að haustveður spilli uppskerunni,“ seg- ir Ólafur Eggertsson, bóndi á Þor- valdseyri undir Eyjafjöllum. Eyr- arbúið hefur komið upp nýrri þurrkstöð á bænum. Ólafur og Páll Eggert sonur hans rækta korn á tæplega 50 hekturum lands í sumar. Til þessa hafa þeir notað heitt vatn til þurrkunar í einu útihúsanna. Með nýju stöðinni þre- faldast þurrkgetan. Það eykur ör- yggi bændanna við að ná korn- uppskeru sinni í hús og í geymsluhæft ástand. Þurrkstöðin er hugsuð fyrir nú- verandi kornrækt á Þorvaldseyri en Ólafur segir að afköstin séu það mik- il að hægt sé að auka við en tekur fram að það sé ekki á dagskrá núna. Markmiðið núna sé að ná betri tök- um á ræktuninni sem nú er undir. Hægt að auka matkorn Nýja þurrkstöðin fullnægir einnig kröfum sem gerðar eru til með- höndlunar korns sem notað eru við matvælaframleiðslu. Eyrarbúið hef- ur sinnt þeim markaði. „Við viljum gjarnan fylgja því betur eftir, nú þegar við höfum aðstöðu til að með- höndla kornið á betri hátt,“ segir Ólafur. Hann segir að hægt væri að afsetja verulegt magn af matkorni, ef bakaríin vildu kaupa það. Þá telur hann einnig grundvöll til að auka sölu á byggi í heimilispakkningum. „Við treystum okkur til að framleiða útvals matkorn á hverju einasta ári og hafa það á boðstólum allan ársins hring. Kría, afbrigðið sem við rækt- um, er fljótsprottið og við náum henni yfirleitt velþroskaðri í hús. Það væri áhugavert að setja meiri kraft í þessi mál, spara gjaldeyri og auka atvinnu í landinu. Við þyrftum kannski samstarfsmenn til að vinna að þessu,“ segir Ólafur. Megnið af korninu af ökrum Þorvaldseyrar er notað í kúafóður, til mjólkurfram- leiðslu. Því er blandað í heyið ásamt próteini úr repju sem einnig er ræktuð á bænum, fiskimjöli og víta- mínum. Kýrar éta meira af þessu fóðri og nytin eykst. Þarf oft að bregðast hratt við Verksmiðjan var keypt frá Sví- þjóð. Ólafur segir að slíkar verk- smiðjur séu algengar í Skandinavíu. Þar þurfi að þurrka korn fyrir geymslu, eins og hér á landi. Húsið er síðan byggt utan um tækin. Stærðin er miðuð við ræktun Eyr- arbúsins. „Það þarf oft að bregðast hratt við þegar styttir upp eftir rign- ingar til að taka kornið inn, helst sem þurrast,“ segir Ólafur. Ný þurrkstöð þrefaldar afkastagetu við kornþurrkun  Ólafur á Þorvaldseyri segir góða þurrkstöð auka öryggi ræktunarinnar Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fyrsta hlassið Ólafur Eggertsson sturtar fyrsta korninu niður í korngeyminn undir ristinni og tekur þannig nýju þurrkstöðina í notkun. Korninu er blásið upp í þurrksíló og þurra korninu er síðan blásið í korngeymslu. Kornhlaða Þurrkhúsið er byggt utan um kornþurrkara og korngeyma sem keyptir voru frá Svíþjóð. Afköst í þurrkun aukast mjög. Fulltrúar Orku náttúrunnar (ON) og Silicor Materials skrifuðu í gær- morgun undir samning um sölu á 40 megavatta raforku til fyrirhugaðrar verksmiðju bandaríska fyrirtækisins á Grundartanga þar sem fram- leiddur verður kísill til raforkufram- leiðslu úr sólarorku. Með samn- ingnum hækkar það verð sem ON fær fyrir orkuna verulega og það er ekki tengt verði á afurðum kaupand- ans, segir í frétt frá fyrirtækinu. Það voru þau Páll Erland, fram- kvæmdastjóri ON, og Terry Jester, stjórnarformaður Silicor Materials, sem undirrituðu samninginn. Um er ræða fyrsta stórnotenda- samninginn um raforkusölu sem ON gerir eftir að fyrirtækið tók við virkjanarekstri og raforkusölu OR í ársbyrjun 2014. ON á og rekur jarð- gufuvirkjanirnar á Nesjavöllum og Hellisheiði auk vatnsaflsvirkjunar í Andakílsá. Ekki ráðist í nýja virkjun Á næstu misserum renna út samningar um orkusölu til Lands- virkjunar sem OR gerði á árunum 1997 og 2000. Með samningi ON við Silicor tryggir fyrirtækið sölu á raf- orkunni sem bundin var í þeim samningum. ON mun því ekki ráðast í nýja virkjun til að afla orkunnar. „Auk þess að tryggja sölu rafork- unnar hækkar verðið verulega sem ON fær með nýja samningnum. Það er í bandaríkjadölum og mismun- andi eftir áföngum afhendingar. Að jafnaði er heildsöluverðið í samn- ingum farið að nálgast það sem heimili greiða fyrir rafmagn í smá- sölu í dag,“ segir í frétt frá Orku náttúrinnar. Samningurinn er til 15 ára með möguleika á framlengingu. Afhend- ing orku hefst á árinu 2018. Í samningunum sem eru að renna út er innifalinn í verðinu flutningur raforkunnar, sem er á hendi Lands- nets. Í samningi ON og Silicor er flutningur ekki innifalinn. Ljósmynd/ON Samið Páll Erland og Terry Jester undirrituðu samninginn í gær. Silicor Materials kaupir orku af ON Ólöf Nordal innanríkisráð- herra hefur skip- að Lárentsínus Kristjánsson hæstaréttarlög- mann í embætti dómara við Hér- aðsdóm Reykja- víkur frá og með 14. september. Sjö umsóknir bárust. Samkvæmt lögum um dóm- stóla fór ráðuneytið þess á leit við dómnefnd að hún léti í té umsögn um hæfni umsækjenda. Niðurstaða dómnefndarinnar varð sú að Arnar Þór Jónsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, Lárentsínus Krist- jánsson hæstaréttarlögmaður og Pétur Dam Leifsson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, væru hæfastir til að hljóta skipun í emb- ættið. Lárentsínus skip- aður héraðsdómari Lárentsínus Kristjánsson ...sem þola álagið! TRAUSTAR VÖRUR... Raftæknivörur Mótorvarrofar og spólurofar Það borgar sig að nota það besta! E i n n t v e i r o g þ r í r 3 1 .3 0 1 Skynjarar Töfluskápar Hraðabreytar Öryggisliðar Aflrofar Iðntölvur Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.