Morgunblaðið - 18.09.2015, Síða 15

Morgunblaðið - 18.09.2015, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Kríuvarp gekk vonum framar víða um land á liðnu sumri. Síðustu krí- urnar eru nú að yfirgefa landið. „Þetta er besta kríuvarp sem ég hef séð á Seltjarnarnesi í að minnsta kosti tíu ár,“ sagði Jóhann Óli Hilm- arsson, fuglafræðingur. Mjög góð af- koma var á Seltjarnarnesi og margir ungar komust á legg. Sömu sögu er að segja frá Eyrarbakka þar sem var mjög góð afkoma kríuvarps miðað við síðustu árin. Kríuvarpið við Tjörnina í Reykja- vík gekk einnig mjög vel og betur en sennilega í ein 30 ár, að mati Jóhanns Óla. „Þær eru komnar með nýtt varpland í Vatnsmýri. Þar voru rúm- lega eitt hundrað hreiður. Það má reikna með að eitthvað á annað hundrað kríuungar hafi komist þar upp,“ sagði Jóhann Óli. Hann sagði að einnig hefði verið meira kríuvarp í Vík í Mýrdal en undanfarin sumur. Hann vissi ekki um afkomuna þar. Austur við Jökuls- árlón á Breiðamerkursandi var mjög fínt varp, eins og svo oft áður. Krí- urnar þar virðast alltaf geta fundið æti í lóninu. Þá höfðu fleiri kríur orp- ið á Hrauni við Grindavík en síðustu ár. Miklu betri afkoma fyrir vestan „Staðan var miklu betri í sumar en ég hef séð í mörg ár,“ sagði Ævar Petersen, dýrafræðingur. Hann kvaðst aðallega hafa verið í Breiða- firði í sumar en einnig farið á Vest- firði. Hann sagði að afkoma sjó- fuglanna hefði verið léleg undanfarin tíu ár fyrir vestan, frá Látrabjargi og suður um á sunnanvert landið. „Greinilega komst upp talsvert af ungum. Það er raunverulega mikil samsvörun á milli þess sem við sáum í kríu, lunda, ritu og lómi.“ Ævar sagði að sjófuglum, sem fyrst og fremst lifa á sandsíli, hefði gengið áberandi mikið betur nú í sumar en undanfarin sumur. Talsvert komst upp af kríuungum í Flatey og eins við Látrabjarg. Kríunni gekk hins vegar ekki jafn vel á Mýrunum og fór hún snemma úr varpinu þar. Ævar sagði að fuglar úr hverju og einu kríuvarpi færu stutt í ætisleit. Væri ekki æti að finna innan þess hrings, kannski 20-30 km frá varpinu, gengi varpið illa. Hann sagði mörg dæmi um að kríur yfir- gæfu varp sitt á miðju sumri og skildu bæði egg og unga eftir. Krían hikaði ekki við að flytja sig úr stað gengi varpið illa. Ævar sagði að t.d. hefðu mjög fáar kríur orpið í Flatey fyrir 1970. Á miðju sumri, í júlí, tóku þær sig upp úr varpi í Svefneyjum og fluttu sig í Flatey. Síðan hafa þær orpið í Flatey á hverju sumri. Í Flaey urpu um 3.000 pör þegar best lét. Í sumar var varpið komið niður í um 1.600 pör. Vörp sjófugla, sem lifa að miklu leyti á sandsíli, hafa víða dregist saman undanfarin ár. Þau eru víða ekki nema þriðjungur til helmingur af því sem þau voru fyrir áratug. Þó að varpárangur hafi verið nokkuð góður í sumar þá verður að verða framhald á því í mörg ár til að vörpin nái fyrri styrk, að mati Ævars. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kríuungi Víða um land komust fleiri kríuungar á legg en undanfarin sumur. Kríuvarp gekk víða vel í sumar  Besta kríuvarp á Seltjarnarnesi í tíu ár  Varpið gekk vel fyrir vestan Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, afhenti í gær, fyrir hönd Fjöl- skylduhjálpar Íslands, viðurkenn- ingar þeim, sem stutt hafa við bakið á samtökunum. Viðurkenningarnar fengu mannúðar- og heiðursbak- hjarlar Fjölskylduhjálpar, Íslands- foreldrar 2015 og Hjálparenglar 2015. Á myndinni eru, ásamt Ólafi Ragnari, Ásgerður Jóna Flosadóttir formaður Fjölskylduhjálpar Íslands og Dorrit Moussaieff forsetafrú. Morgunblaðið/Eggert Fjölskylduhjálp heiðraði stuðningsmenn sína

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.