Morgunblaðið - 18.09.2015, Síða 18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015
EGILSSTAÐIR
OG NÁGRENNI
Á FERÐ UM
ÍSLAND
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Valaskjálf er mörgum lands-
mönnum kunnug enda fjölmargir
dansleikir og aðrir viðburðir farið
þar fram í gegnum tíðina. Allt frá
árinu 1968 hefur þar verið starf-
rækt hótel og voru margir sam-
mála um að bæði hótelið og sam-
komuhúsið, sem byggt var 1966,
hefðu litið betri daga.
Þráinn Lárusson, athafnamað-
ur og eigandi Valaskjálfar, var
þeirrar skoðunar að blása mætti
lífi í þennan sögufræga stað.
Keypti hann því hótelið og sam-
komuhúsið á síðasta ári. Síðan þá
hefur hann varið allmiklu fé í að
gera hótelið og samkomusalinn
upp, en að auki heldur hann úti
veitingarekstri á hótelinu.
Þráinn segir samkomusalinn
myllustein rekstursins og líkir því
við „menningarslys“ víki hann fyr-
ir frekari hótelherbergjum líkt og
sumar teikningar gera ráð fyrir.
„Þegar menn sáu að hótelið
var ekki lengur boðlegt ferða-
mönnum var ákveðið að reisa Hót-
el Hérað. Þá átti helst að grafa yf-
ir Valaskjálf sem gekk í kjölfarið
kaupum og sölum manna á milli.
Drabbaðist það því miður niður
með tímanum,“ segir Þráinn.
Valaskjálf var síðasta stopp
Sett hefur verið mikið fé í að
endurnýja hótelið, veitingarekstur
og menningarhúsið. „Við erum enn
að og stefnum að því að klára
næsta áfanga í vetur,“ segir Þrá-
inn sem einnig er eigandi að hót-
elinu að Hallormsstað.
„Ég hefði ekki treyst mér í
þetta verkefni nema ég hefði haft
hótelið þar. Menn voru ekkert að
banka upp á og biðja um gistingu
á Valaskjálf nema allt annað væri
þrotið,“ segir Þráinn.
Hann segist með góðu móti
geta fullyrt að Valaskjálf komi til
með að standa jafnfætis öðrum
hótelum á svæðinu. „Þegar upp
verður staðið og við búin að klára
að gera það sem við ætlum að
gera hér, þá er ég viss um að
Valaskjálf verði hreinlega drottn-
ingin í hótelum á Egilsstöðum,“
segir Þráinn.
Vill forðast menningarslys
Hann segir að bæjarbúar hafi
sýnt framtakinu mikinn hlýhug að
undanförnu enda þekkja margir til
staðarins og stunduðu þar böll á
árum áður. Þráinn segir að þegar
hann keypti húsið hafi fylgt teikn-
ingar sem gera ráð fyrir því að
hægt sé að breyta menningarhús-
inu í hótelherbergi.
„En mér finnst að það yrði al-
gjört menningarslys ef það yrði
gert. Hins vegar er ljóst að ég
mun ekki reka Valaskjálf með tapi
árum saman. Ég er ánægður með
mætingu á tónleika í sam-
komusalnum og Egilsstaðir eru
allt í einu komnir á kortið sem tón-
leikastaður sem þeir voru ekki fyr-
ir ári. En það er alveg ljóst að
svona tónleikahald er ekki að skila
húsinu neinu. Það sem skortir, en
gæti skapað húsinu tekjur, eru
fundir og mannfagnaðir á borð við
árshátíðir,“ segir Þráinn.
Auk þess að reka Valaskjálf
Hótel Valaskjálf Þetta sögufræga og glæsilega hús er nú smám saman að endurheimta fyrri reisn.
Valaskjálf verði
drottning Egilsstaða
Miklu fé hefur verið varið í að gera upp sögufrægan stað
Litla ljóðahátíðin fer nú fram í
þriðja skipti um þessar mundir, en þá
fara skáld með ljóð sín á hinum ýmsu
stöðum á Austur- og Norðurlandi.
„Við höldum þetta á Norður- og
Austurlandi á óskilgreindum stöðum
sem við kjósum að kalla Norðaustur-
ríki, en það eru staðir frá Eyjafirði og
austur á land,“ segir Stefán Bogi
Sveinsson, skipuleggjandi hátíð-
arinnar. Hátíðin, sem stendur til
næstkomandi sunnudags, saman-
stendur af níu viðburðum. Flytja þar
skáld úr hópi heimamanna, sem og
annars staðar frá, ljóð sín.
Að sögn Stefáns Boga hafa við-
burðirnir verið ágætlega sóttir í
gegnum tíðina. Segir hann nú mikla
grósku í ljóðlistinni fyrir austan. „Eitt
verkefnið hefur snúið að því að setja
ljóð á húsveggi. Í fyrra voru sett upp
14 ljóð eftir skáld af Héraði, en í ár
voru sett upp ljóð eftir konur í tilefni
af 100 kosningaréttarafmælinu,“
segir hann. Nálgast má dagskrána á
Facebook-síðu hátíðarinnar.
Frá ljóðagöngu Farin var ljóðaganga í Hallormsstaðaskógi og var hún hluti há-
tíðarinnar í fyrra. Hulda S. Þráinsdóttir las fyrir gesti við birtu kyndlabera.
Litla ljóðahátíðin fer fram í
Norðausturríki í þriðja skipti
„Fyrir austan er mikill áhugi á
skrifum og lýsir það sér best í því
hve áhugaleikhúsin eru dugleg við
að semja sjálf. En að sama skapi
skortir kannski þann félagslega
stuðning sem nauðsynlegur er til
þess að þróa hugmyndir. Hann fæst
á námskeiðinu,“ segir Arnaldur Máni
Finnsson og vísar í máli sínu til hug-
myndasmiðju og námskeiðs í ritun
leikverka sem haldið verður á Fljóts-
dalshéraði, Fjarðabyggð og á Seyðis-
firði.
Arnaldur Máni er einn skipuleggj-
enda námskeiðsins, en um er að
ræða þriggja helga vinnubúðir í
skapandi skrifum og standa þær yfir
dagana 25. september til 25. októ-
ber. Smiðjustjóri, Rúnar Guðbrands-
son, og leiðbeinendur eru vel þekkt
leikskáld. Að auki verða þau Lilja
Sigurðardóttir, Ingibjörg Magnadótt-
ir, Tyrfingur Tyrfingsson, Þorgeir
Tryggvason, Kristín Eiríksdóttir,
Sigga Lára Sigurjónsdóttir og Silja
Hauksdóttir til leiðsagnar.
Grín og glens Sambærilegt námskeið var haldið á Vestfjörðum í fyrra.
Vinnubúðir í ritun leikverka
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Egilsstaðabúar eiga nú lið í efstu
deild í körfuknattleik í annað skipti,
en Höttur átti einnig lið í efstu deild
fyrir tíu árum. Það lið var það fyrsta
sem spilað hefur fyrir félagið í efstu
deild.
Magnús Þór Ásmundsson,
stjórnarmaður í Körfuknattleiks-
deild Hattar og fyrrverandi formað-
ur, segir að árangurinn í fyrra sé af-
rakstur mikils uppbyggingarstarfs
hjá deildinni. „Það hefur fjölgað
mjög í unglingastarfinu og við byrj-
uðum starf með stelpur. Í dag eru
um 100 krakkar sem stunda körfu-
bolta hérna. Liðið sem vann 1. deild-
ina í fyrra er að miklu leyti byggt
upp af heimamönnum. Sumir þeirra
urðu bikarmeistarar í 10. flokki fyr-
ir fjórum árum. Það var þá fyrsti tit-
ill sem Höttur vann beint undir sér-
Árangurinn þjappar
samfélaginu saman
Höttur á lið í úrvalsdeildinni í körfu-
bolta 100 krakkar æfa körfubolta
Meistarar Höttur lagði Fjölni í úrslitaeinvígi um sæti í efstu deild á síðasta ári.