Morgunblaðið - 18.09.2015, Síða 19
Sveitarfélagið Fljótsdalshérað varð til árið 2004 við
sameiningu Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs.
Íbúar þar eru tæplega 3.500 talsins, en sveitarfélagið er
um 8.900 ferkílómetrar að stærð. Atvinnuvegir á þessu
svæði eru fjölbreyttir, s.s. þjónusta og landbúnaður.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015
rekur Þráinn Hótel Hallormsstað.
Er hann einnig í rekstri minni
gistihúsa. Þráinn segist hvergi
nærri hættur og nefnir til að
mynda að hann hafi keypt húsnæði
grunnskólans á Hallormsstað und-
ir hótelherbergi.
„Næsta vor má búast við því
að Hótelið á Hallormsstað verði
allt að 100 herbergja hótel,“ segir
Þráinn, en til samanburðar eru 39
hótelherbergi í Valaskjálf. „Hót-
elið í Valaskjálf hefur gengið vel
og við vorum með yfir 90% nýt-
ingu í júlí og yfir 80% í ágúst. En
veitingastaðurinn er þungur þar
sem við opnuðum hann bara í júní
og hann hefur svo til ekkert verið
auglýstur. Svona hlutir taka tíma.
En við höfum fengið góða dóma og
erum bjartsýn,“ segir Þráinn.
Samkomusalur Margir kannast við þennan glæsilega sal enda voru hér mörg dansiböll haldin á árum áður.
Uppgert Búið er að eyða miklum fjármunum í að gera hótelið upp.
Innan Fljótsdalshéraðs má finna
ferðafélag sem stofnað var árið
1969 og er það deild í Ferða-
félagi Íslands. Á hverju sumri
skipuleggur félagið spennandi
dagsferðir, til að mynda fjöl-
skyldu- og krakkaferðir, en einn-
ig er farið í lengri og meira
krefjandi göngur.
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs
stendur jafnframt fyrir skemmti-
legum gönguleik þar sem í boði
eru 26 sérvaldar gönguleiðir um
héraðið. Á hverri gönguleið má
finna stað sem hefur að geyma
hólk, en inni í honum má finna
upplýsingar um viðkomandi
svæði. Gefst þannig færi á að
njóta stórbrotinnar náttúru á
sama tíma og fólk eykur þekk-
ingu sína á nærumhverfinu.
Á hverri gönguleið er einnig
að finna gestabók og stimpil, en
hann má nota til þess að stimpla
sérstakt göngukort sem fáanlegt
er hjá ferðafélaginu og upplýs-
ingamiðstöðinni á Egilsstöðum.
Um árabil hefur ferðafélagið
staðið fyrir sérstökum sunnu-
dagsgöngum árið um kring.
Verður næstkomandi sunnudag
gengið á hinn fagra Áreyjartind í
fylgd Silju Arnfinnsdóttur, en
mæting er við Landstólpa stund-
víslega klukkan 10.
Gnótt fallegra gönguleiða á svæðinu
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Dyrfjöll Undir Dyrfjöllum liggur Stórurðin, náttúruperla sem ekki er
á allra vitorði. Er þar þó ein frægasta gönguleiðin á Austurlandi.
Finna má 26 perlur
í Fljótsdalshéraði
Kappar Það getur tekið mjög á
þolið að ganga upp í móti.
sambandi,“ segir
Magnús Þór.
Hann segir
að mikill áhugi sé
á íþróttinni, sem
endurspeglast
meðal annars í
því að bæjarbúar
og sveitarfélagið
styðja vel við
bakið á starfinu.
„Að reka íþrótta-
félag á Egilsstöðum er dýrt vegna
ferðakostnaðar. Þetta á bæði við um
meistaraflokk og yngri flokka. Það
er sá kostnaður sem til viðbótar er
við það sem önnur lið bera,“ segir
Magnús. Sé horft yfir þau lið sem
leika í Dominos-deildinni á næstu
leiktíð má meðal annars sjá að það
lið sem staðsett er næst Hetti á
landakortinu, þ.e. Þór í Þorláks-
höfn, er í um 670 kílómetra fjar-
lægð.
„Markmið félagsins til lengri
tíma er að skapa stöðugt úrvals-
deildarlið, en við munum ekki setja
fúlgur fjár í rekstur meistaraflokks-
ins. Við höfum styrkt liðið aðeins frá
því í fyrra en munum fyrst og
fremst byggja á liðinu sem komst
upp,“ segir Magnús.
Fyrirmyndir annarra
Aðspurður segir Magnús efstu-
deildarlið vera einkar góða fyrir-
mynd unglinga á svæðinu.
„Meistaraflokkurinn er ein
helsta fyrirmyndin og um leið mark-
mið allra, en ég held líka að meist-
araflokkslið sem keppir í fremstu
röð geti skapað samstöðu í bænum.
Menn þjappa sér saman um árang-
urinn og liðið. Við sjáum það best af
því að mjög góð mæting hefur verið
á leiki liðsins hingað til og ég býst
við því að enn fleiri muni mæta í vet-
ur,“ segir Magnús.
Magnús Þór
Ásmundsson
„Valaskjálf var kallað héraðsheimili og er aðalfélags-
heimili sveitanna í kringum Egilsstaði. Þetta hús
gegndi lykilhlutverki í allri menningarlegri starfsemi í
áratugi,“ segir Þráinn. Hann segir þó að engum heil-
vita manni detti í hug að reka menningarhús með
hagnaðarvon og sá hluti Valaskjálfar sé myllusteinninn
í rekstrinum. „Ég er búinn að eyða 40 milljónum króna
bara í menningarhúsið. Ég fæ þá peninga aldrei til
baka. Ég gæti breytt því í hótelherbergi en mig langar
ekki til að gera það. Ég lít á málin í stærri mynd og allt
sem ég geri fyrir austan er gert til þess að Egilsstaðir stimpli sig betur
inn í ferðamennskunni,“ segir Þráinn.
Fær peninginn aldrei til baka
AÐALFÉLAGSHEIMILI SVEITANNA Í KRING
Þráinn Lárusson
Smiðjuvegi 9, 200 Kópavogi ■ Sími 535 4300 ■ axis.is ■ Opið: mán. - fös. 9:00 - 18:00
Fataskápur
Hæð 2100 mm
Breidd 800 mm
Dýpt 600 mm
Tegund: Strúktúr eik
TIL Á LAGER
S KÁPATI LB OÐ
Verð58.900,-m. vsk.