Morgunblaðið - 18.09.2015, Side 22

Morgunblaðið - 18.09.2015, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Sveitarstjórn-arkosningarverða haldn- ar í Sádí-Arabíu í lok ársins. Slíkt þætti ekki frétt- næmt í sjálfu sér, nema fyrir þá sök, að þetta verða fyrstu kosningarnar þar sem konur fá að taka þátt, bæði sem kjós- endur og sem frambjóðendur. Höfðu um sjötíu konur þegar boðið sig fram fyrir síðustu helgi, en skráningarfresturinn rann út á mánudaginn. Þessar umbætur eru meðal annars afleiðingar af arabíska vorinu, þegar leiðtogar Sádí- Arabíu óttuðust það helst af öllu að óánægjualdan sem þá þegar hafði fellt ríkisstjórnir víða í nágrannaríkjunum myndi breiðast til þeirra. Og það er ekki eingöngu í Sádí- Arabíu sem verið er að víkka út kosningaréttinn. Í Samein- uðu arabísku furstadæmunum mega núna um 10% almenn- ings kjósa, og þar af eru konur helmingurinn. Svipaða sögu er að segja af Óman. Það er hins vegar full- snemmt að blása í lúðra vegna þessarar þróunar. Kosninga- réttur er vissulega mikil- vægur áfangi, en þær stofn- anir sem kosið er um hafa hins vegar nánast ekkert vægi í stjórnkerfi ríkjanna sem um ræðir. Í Sádí-Arabíu er til að mynda vandlega búið um hnútana svo að konungsfjöl- skyldan fái alltaf sínu framgengt, og er jafnan beitt þeirri aðferð að konungurinn skipar sjálfur að minnsta kosti helming þeirra sem sinna löggjafar- eða stjórnarstörfum fyrir ríkið. Kynin sitja þar við sama áhrifalausa borðið. Þá er ekki auðfengið fyrir konur í Sádí-Arabíu að sækja þennan rétt sinn. Til þess að komast á kjörskrá þurfti við- komandi í fyrsta lagi að verða sér úti um nafnskírteini, og í öðru lagi að gera sér sérstaka ferð til kjörstjórnar. Til þess að konur gætu gert hvort tveggja þurftu þær atbeina karlmanns, þó ekki væri nema sem fylgdarmanns og bílstjóra meðan á ferðalaginu utanhúss stóð. Samfélagslega standa konur því enn höllum fæti. Öll hænuskref í átt til auk- ins lýðræðis í þessum heims- hluta eru af hinu góða, ekki síst þau sem snúa að auknum réttindum kvenna. Gangi allt að óskum, gæti þetta orðið fyrsta skrefið í átt til þess að konur verði sýnilegri í sam- félagi Sádí-Arabíu og leið til þess að bæta stöðu þeirra. Það sem dregur úr þeim vonum er sú einfalda staðreynd, að lýð- ræðið sem slíkt á enn afar langt í land á þessum slóðum. Hvers virði er kosningaréttur í sýndarlýðræði?} Hænuskref í rétta átt Tony Abbott,fyrrverandi forsætisráðherra Ástralíu, hefur væntanlega ekki þótt gaman að sitja undir ræðu eftirmanns síns, Malcolms Turnbull, sem náði embættinu með hallarbyltingu innan Frjálslynda flokksins. Þar fór Turnbull mjög fögrum orðum um Abbott og það hvernig hann hefði leitt Ástr- alíu á betri stað sem forsætis- ráðherra. Svo rammt kvað að lofinu, að spurningin vaknaði hvers vegna Turnbull, sem áð- ur gegndi embætti samskipta- málaráðherra, hefði talið þörf á að steypa Abbott af stóli. Svarið liggur fyrst og fremst í stöðu flokksins í skoð- anakönnunum, þar sem Abbott hefur þótt fremur umdeildur forsætisráðherra, og þótti lík- legt að óvinsældir hans gætu skilað sér til flokksins, bæði í aukakosningum síðar í vetur, og svo í almennum þingkosn- ingum sem eiga að fara fram í síðasta lagi í janúar 2017. Áhöfninni þótti því vera komið tilefni til þess að skipta um mann í brúnni. En fyrir hvað mun Turnbull standa? Hann styð- ur rétt hinsegin fólks til hjóna- vígslu og vill grípa til harðari aðgerða í loftslagsmálum. Staðan er hins vegar sú, að hörð andstaða er við hvort tveggja innan ríkisstjórn- arflokkanna tveggja, og því alls óvíst að Turnbull muni geta sett mark sitt á embættið svo nokkru nemi áður en boðað verður til næstu kosninga. Þá eiga viðbrögð ástralskra kjósenda eftir að koma í ljós, en það fór illa í þá að í síðustu rík- isstjórn Verkamannaflokksins var skipt tvisvar sinnum um forsætisráðherra á síðasta kjörtímabili. Nú þegar helsti andstæðingur Verkamanna- flokksins hefur gerst sekur um hið sama er allt eins líklegt að kjósendur muni einnig refsa Frjálslynda flokknum. Eftir áratuga stöðugleika gæti óstöðugleikinn því verið tekinn við í áströlskum stjórnmálum. Fimmti forsætisráð- herrann á síðustu fimm árum tekur við} Óstöðugleiki í Ástralíu H venær kemst ég eiginlega í tísku? dæsti kona nokkur um daginn. Og ekki að ástæðulausu. Einn daginn er eftirsótt að vera ávöl sem stundaglas, hinn næsta eins og vesælt strá sem fýkur á brott við minnsta andvara. Eitt sinn var málið að vera flatbrjósta, svo átti barmurinn helst að vera kominn inn um dyrnar a.m.k. mínútu á undan afganginum af líkamanum. Einu sinni var híað á þá sem voru umfangsmikla afturenda og sagt að þeir væru með hamborgararass. Síðan kom- ust stórir rassar í tísku og nú er farið að tala um botninn sem hinn nýja barm. Eða eins og það er orðað svo hnyttilega á ensku: Butts are the new boobs. Útlit sem þykir eftirsóknarvert hverju sinni er eitt helsta umfjöllunarefni margra innlendra og erlendra vefsíðna sem eiga að vera sérstaklega ætlaðar konum. Þyngdartap og að líta út fyrir að vera miklu yngri en árin segja til um er líka sérlega vinsælt umfjöllunarefni og sumar þessara vefsíðna eru með lýtalækna sem fasta pistlahöfunda sem ráðleggja og veita upplýsingar um fegrunaraðgerðir. Á sama tíma er á þessum sömu vefsíð- um dregið dár að frægum konum sem hafa farið í fegr- unaraðgerðir undir fyrirsögnum á borð við: Myndir þú þekkja hana? eða Brjáluð í botoxinu. Það er hið besta mál að fólk fari í fegrunaraðgerðir, kjósi það svo. Enda er það ekki til umfjöllunar í þessum pistli, heldur sá tvískinnungur tísku- og útliltsiðnaðarins sem felst í þröngri skilgreiningu á fegurð og að fordæma síðan af og til útlitsdýrkun og allt sem af henni getur leitt og halda þá að þar með sé í lagi að halda áfram á sömu braut. Stundum birtast nefnilega á forsíðum tísku- tímarita fyrirsætur sem af tísku- og útlitsiðn- aðinum eru skilgreindar í yfirstærð, en flest fólk myndi líklega telja þær fremur grannar. Hugtökin „heilbrigt útlit“ eða „venjulegar konur“ (sem virðast vera einskonar dulmáls- orð fyrir feitur) eru gjarnan notuð um þær og tímaritin fá gríðarmikið hrós og athygli fyrir að „þora“ að birta slíkar myndir. Í heimi tískutímaritanna er september- blaðið jafnan veglegast og það sem vekur mesta athygli. Keppst er við að fá eftirsóttustu fyrirsætuna, leik- eða söngkonuna á forsíðuna, t.d. var Beyoncé á forsíðu septemberútgáfu bandaríska Vogue, Emma Watson var framan á breska Vogue, Taylor Swift var á forsíðu Vanity Fair og á forsíðu Glamour var ofurfyrirsætan Karlie Kloss. En sú forsíða sem vakti einna mesta athygli í ár og þótti óvenjulegust var á bandaríska tímaritinu Redbook, sem skartaði hvorki meira né minna en sex „venjulegum“ konum. Áhugavert verður að sjá hvernig þetta þróast; hvort tískublöðin muni halda áfram að sýna „venjulegar“ konur einungis af og til eða hvort raunveruleg breyting sé að verða. Athugið að það sem hér er nefnt á einungis við um kon- ur. Körlum virðist einfaldlega duga að vera bara karlar til að vera í tísku. annalilja@mbl.is Anna Lilja Þórisdóttir Pistill Þegar venjulegt verður óvenjulegt STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Hjá bæði Landsvirkjun ogLandsneti er unnið að þvíaf fullum þunga að út-vega orku og leggja raf- línur til iðnaðarsvæðisins á Bakka, þar sem kísilver PCC á að rísa og mögulega önnur starfsemi í framtíð- inni. Ekki seinna vænna því und- irbúningsframkvæmdir eru komnar vel á veg á Bakka, líkt og kom fram í Morgunblaðinu í gær, og aðeins rúm tvö ár þar til stefnt er að því að hefja framleiðslu í kísilverksmiðjunni. Landsvirkjun hóf framkvæmdir við fyrsta áfanga Þeistareykjavirkj- unar sl. vor, með uppbyggingu stöðv- arhúss fyrir tvær aflvélar og lagningu gufuveitu. Samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun hafa framkvæmdir gengið vel en verktaki er íslenska fyr- irtækið LNS Saga. Fjárhæð samn- inga við LNS Sögu var um 6,6 millj- arðar króna en áætlanir gera ráð fyrir að heildarkostnaður við fyrsta áfangann á Þeistareykjum verði 20- 24 milljarðar króna. Þegar mest læt- ur er reiknað með að um 200 manns verði við vinnu á framkvæmdatíma. Stefnt er að því að rekstur hefjist í fyrsta áfanga virkjunarinnar haustið 2017 en PCC áformar að vera komið í fullan rekstur á fyrri hluta ársins 2018. Búið að meta áhrif af 200 MW Fyrr á þessu ári samdi Lands- virkjun við PCC um að útvega 58 MW afl til verksmiðjunnar. Fyrsti áfangi á Þeistareykjum gefur 45 MW af sér og þar til 2. áfangi verður kom- inn í rekstur á árinu 2018 mun hluti orkunnar til PCC koma úr raf- orkukerfi Landsvirkjunar. Ef allt gengur eftir ættu þetta að vera að- eins nokkrir mánuðir sem Lands- virkjun þarf að útvega PCC orku annars staðar frá en Þeistareykjum, áður en aflgeta virkjunarinnar fer í 90 MW. Öll leyfi eru til staðar fyrir allt að 100 MW virkjun og mat á um- hverfisáhrifum fyrir 200 MW virkjun liggur fyrir, með áliti Skipulagsstofn- unar. Borútboð á 2. áfanga Landsvirkjun hefur tilkynnt að borútboð fyrir 2. áfanga á Þeista- reykjum verði auglýst á næstu vik- um. Um er að ræða borun á allt að átta holum á núverandi vinnslusvæði. Síðasta vetur fóru fram umfangs- miklar aflprófanir á Þeistareykja- svæðinu til að sannreyna aflgetu þess og meta möguleg áhrif gufunýtingar á jarðhitasvæðið. Allar borholur voru látnar blása á fullum afköstum frá nóvember 2014 til loka júnímánaðar á þessu ári. Samkvæmt upplýsingum Landsvirkjunar var það mat sérfræð- inga á niðurstöðum aflprófana og lík- anreikningi að svæðið stæði fyllilega undir 90 MW orkuvinnslu til lengri tíma. Telur Landsvirkjun þessa nið- urstöðu styðja við áframhaldandi var- færna uppbyggingu á Þeistareykjum, eins og það er orðað í tilkynningu. Til samræmis við þetta er hafinn undirbúningur að 2. áfanga virkj- unarinnar. Er horft til þess að aflvél 2 geti verið komin í rekstur á árinu 2018 og virkjunin skili þá sem fyrr segir alls 90 MW afli. Nú þegar hafa verið boraðar átta vinnsluholur sem skila gufu sem jafngildir um 60 MW afli. Það nemur ríflega einni aflvél en Landsvirkjun telur ljóst að ráðast þurfi í boranir til að mæta frekari orkuvinnslu. Samhliða útboði á borunum verður unnið að öðrum útboðum vegna kaupa á búnaði til virkjunarinnar, sem og útvíkkun gildandi samninga um kaup á viðbótarbúnaði fyrir 2. áfanga. Með þessari uppbyggingu segist Landsvirkjun vera að mæta aukinni orkuþörf á Norðausturlandi og annars staðar á landinu, og um leið að auka öryggi orkuafhendingar á svæðinu. Orkuöflunin fyrir Bakka í fullum gangi Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Þeistareykir Aflprófanir á vinnsluholum á Þeistareykjum hafa komið vel út og sýnt að svæðið standi vel undir 90 MW orkuvinnslu til lengri tíma. Landsnet hefur samið við Mannvit um útboðshönnun tveggja nýrra 220 kV háspennu- lína á Norðausturlandi sem tengja annars vegar nýja virkjun á Þeistareykjum við flutnings- kerfi Landsnets og hins vegar virkjunina við iðnaðarsvæðið á Bakka. Guðmundur Ingi Ás- mundsson, forstjóri Landsnets, og Sigurhjörtur Sigfússon, for- stjóri Mannvits, undirrituðu samkomulagið. Línurnar tvær verða alls 62 km að lengd. Verk- lok eru áætluð haustið 2017. Vinna við slóðagerð og jarð- vinnu verður boðin út um ára- mót. Allt efni, ásamt vinnu við yfirbyggingu, verður boðið út á fyrsta ársfjórðungi 2016. Samið við Mannvit LÍNUR LANDSNETS Samið Forstjórar Landsnets og Mannvits takast í hendur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.