Morgunblaðið - 18.09.2015, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 18.09.2015, Qupperneq 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015 Hjólað í miðborginni Það er gott að geta farið allra sinna ferða á hjólhesti um borgina. Eggert Robert O. Work, varavarnar- málaráðherra Banda- ríkjanna, var dagana 7. til 10. september á ferðalagi til Íslands, Noregs og Bretlands. Hann ræddi við ráða- menn í löndunum og kynnti sér mannvirki og búnað sem kynni að nýtast bandarískum herafla yrði hann sendur til Íslands og Noregs. Í London flutti Work erindi hjá RUSI, rannsóknar- og umræðu- stofnun breska heraflans. Þar greindi hann frá stefnu og aðgerðum Bandaríkjamanna til að efla fæling- armátt venjulegs herafla síns. Telja þeir þetta svipað skref til nútíma- væðingar herstyrksins og stigið var með kjarnorkuvopnavæðingunni á sjötta áratugnum og langdrægum vopnabúnaði á þeim áttunda. Kalla Bandaríkjamenn þetta „þriðju mót- vægisaðgerðir“ sínar á sviði varn- armála. Ætlunin er að innleiða nýj- ustu tækni, vélmenni við hlið venjulegra hermanna og hátækni- búnað á öllum sviðum. Work skoðaði mannvirki á örygg- issvæðinu á Keflavíkurflugvelli og fullvissaði sig um að þau gætu nýst nýjustu kafbátaleitarvélum Banda- ríkjanna, Boeing P-8 þotum sem eru að grunni af gerðinni Boeing 737-800 (árið 1989 urðu 737-408 þotur hluti af íslenskri flugsögu). Stélið á P-8 þotunum sem bandaríski flotinn tók formlega í notkun í nóvember 2013 er 1 m hærra en á P-3 Orion skrúfuvélunum sem komu til sögunnar 1959 og settu svip á starfsemi varnarliðsins í Keflavíkurstöðinni fram á miðjan tíunda áratuginn. Í Osló fundaði Work með starfsbræðrum á Norðurlöndunum, þar á meðal frá Svíþjóð og Finnlandi, löndum utan NATO. Var áréttað að þetta væri fyrsti fund- ur af þessu tagi í sögunni. Þá hélt Work til Þrándheims en í nágrenni bæjarins eru miklar jarðhvelfingar sem geyma bandarísk hergögn fyrir hermenn sem sendir yrðu til Noregs á hættustundu. Fullvissaði Work sig um allt væri þar í stakasta lagi og boðaði fjölgun heræfinga banda- rískra landgönguliða í Noregi. Söguleg tímamót Forvitnilegt er að fylgjast með hvernig áhugi á öryggi á norð- urslóðum vaknar að nýju innan bandaríska stjórnkerfisins. Mánudaginn 31. ágúst hélt Barack Obama fyrstur Bandaríkjaforseta norður fyrir heimskautsbaug í Alaska og boðaði eflingu strand- gæslunnar á norðurslóðum með áherslu á smíði nýrra ísbrjóta. Nokkrum dögum síðar birtist mynd af Bandaríkjamönnum og rannsókn- arskipi þeirra sem sigldi fyrst bandarískra skipa án aðstoðar og fylgdar á norðurpólinn. Síðan fór Robert O. Work í ferð sína og sagð- ist ætla að helga sig norðrinu. Hann sannfærðist um að bandaríski her- inn gæti nýtt mannvirki á Íslandi og í Noregi auk þess að hlusta á lýs- ingar stjórnmálamanna á gjör- breyttum aðstæðum í öryggis- málum. Hvað gerist næst? Augljóst er að meðal stjórnvalda á Norðurlönd- unum er ekki andstaða við aukin hernaðarleg umsvif Bandaríkjanna. Þau eru talin æskilegt mótvægi við hernaðarlega tilburði Rússa sem hafa verið ögrandi gagnvart öllum löndunum, einkum á Eystrasalti þar sem Rússar hafa æft sprengjuárásir á Borgundarhólm, Gotland og jafn- vel Stokkhólm. Hinn 10. apríl 2015 rituðu varn- armálaráðherrar fjögurra Norð- urlanda og utanríkisráðherra Ís- lands sameiginlega grein þar sem sagði meðal annars: „Rússneski her- inn hegðar sér á ögrandi hátt við landamæri okkar (og margoft hefur verið brotið á fullveldi landamæra ríkjanna við Eystrasalt). Það er sér- stakt áhyggjuefni að flug rússneskra herflugvéla hefur valdið beinni hættu fyrir almenna flugumferð.“ Ráðherrarnir boðuðu nánara sam- starf meðal annars við ríkin handan Atlantshafs, Bandaríkin og Kanada. Í Svíþjóð segjast nú fleiri vilja að- ild að NATO en eru á móti henni. Sænski utanríkisráðherrann hefur kallað rússneska sendiherrann á teppið vegna ögrandi ummæla hans í garð Svía. Pólverjar og Svíar hafa samið um samstarf í hermálum. Allt gerist þetta á örskömmum tíma af ótta við yfirgang Rússa. Öruggur samstarfsrammi Í tilefni af brottför varnarliðsins samþykkti ríkisstjórn Íslands hinn 26. september 2006 yfirlýsingu um ný verkefni íslenskra stjórnvalda. Þar segir meðal annars: „Jafnframt verður skilgreint sérstakt svæði á [Keflavíkur]flugvellinum, undir yf- irstjórn utanríkisráðherra, sem verður til afnota vegna æfinga á veg- um Bandaríkjamanna og annarra ríkja Atlantshafsbandalagsins eða annarra hernaðarþarfa.“ Þetta svæði hefur síðan verið nefnt öryggissvæðið og fer Land- helgisgæsla Íslands þar með dag- lega stjórn í umboði utanríkis- og innanríkisráðherra. Varnarsamningurinn við Banda- ríkin frá 1951 er í fullu gildi og við brottför varnarliðsins var í október 2006 ritað undir samkomulag milli stjórnvalda Íslands og Bandaríkj- anna. Þar segir meðal annars: „Ís- land og Bandaríkin hafa átt samráð um varnaráætlun fyrir Ísland sem Bandaríkin hafa samið. Ísland sam- þykkir áætlunina sem gerir ráð fyrir að varnir Íslands séu tryggðar með öflugum og hreyfanlegum viðbúnaði og liðsafla og að hún sé studd banda- rískum hernaðarmætti eftir því sem þörf krefur.“ Úrelt áhættumat Í mars 2009 gaf utanríkisráðu- neytið út Áhættumatsskýrslu fyrir Ísland um hnattræna, samfélags- lega og hernaðarlega þætti. Sjón- armiðin sem lögð eru til grundvallar við mat á hernaðarlegum þáttunum eru því miður úreld. Þar segir meðal annars (bls. 41): „Loks bendir ým- islegt til þess eftir valdaskiptin í Washington [janúar 2009 Obama varð forseti] að samskipti Banda- ríkjanna og Rússlands séu að færast í betra horf.“ Hið gagnstæða hefur gerst. Utanríkismálanefnd alþingis lauk ekki afgreiðslu á tillögu utanrík- isráðherra um þjóðaröryggisstefnu á síðasta þingi. Rökin fyrir tillög- unni taka mið af áhættumatinu frá 2009. Það sem segir hér að ofan sýn- ir í hnotskurn þá breytingu sem orð- ið hefur í viðhorfum til öryggismála á norðurslóðum eftir að Rússar inn- limuðu Krím og hófu markvissar ögranir í garð nágrannaþjóða sinna á árinu 2014. Haustið 2006 samþykkti ríkis- stjórn Íslands áætlun Bandaríkja- stjórnar um ráðstafanir til að tryggja öryggi Íslands. Nú er þörf á nýrri áætlun um þetta efni. Við gerð hennar ber að taka mið af auknu samstarfi Norðurlanda í varn- armálum og nýrri áherslu innan NATO á sameiginlegar varnir. Á suðurvæng Evrópu og varn- arsvæðis NATO blasir við upplausn og úrræðaleysi vegna flótta hundruð þúsunda manna frá ófriði í Mið- Austurlöndum. Á norðurvængnum ráða menn ráðum sínum um auknar öryggisráðstafanir. Þetta eru tví- sýnir tímar og full ástæða til mik- illar varkárni. Eftir Björn Bjarnason » Forvitnilegt er að fylgjast með hvernig áhugi á öryggi á norður- slóðum vaknar að nýju innan bandaríska stjórnkerfisins. Björn Bjarnason Höfundur er fyrrv. ráðherra. Viðbúnaður eykst á norðurvæng NATO Í ræðu sem formaður Sjálfstæðis- flokksins flutti við umræður um stefnuræðu forsætisráðherra gerði hann kröfuna um aukið frelsi í ís- lensku samfélagi að umræðuefni. Hann hélt því meðal annars fram að lækkun tryggingargjalds til atvinnu- veganna (eða ekki) væri frelsismál. Röksemdir fyrir því er enginn vandi að skilja þótt maður sé ekki endilega sammála þeim og það megi tjá þær á hinn ýmsa máta. Ég hefði til dæmis látið atvinnuvegina skjóta rótum áð- ur en ég hefði látið þá blómstra en formaðurinn kaus hina röðina en það er smáatriði sem skiptir ekki máli nema fyrir okkur nördana. En því ber ekki að neita að orðið frelsi er áferðarfallegt og þrútið af göfugum tilfinningum sem höfða til okk- ar allra. Það er hins vegar gjarnan ágreiningur um það hvar frelsið endar og þykjusta og óheftur bjánaskapur byrja. Annað sem formaðurinn telur vera frelsismál og hann drap á í ræðu sinni er hvar hægt sé að kaupa áfengi á Íslandi. Um það sagði hann eftirfarandi: „Má ég nefna það hér hvort við treystum fólkinu í landinu til að sækja áfengi í venjulegar verslanir eða ekki? Í mínum huga er það augljóst mál. Það eru röng skilaboð frá þinginu að treysta ekki fólk- inu til þess að kaupa áfengi í venjulegum versl- unum, að það þurfi opinbera starfsmenn til þess að afhenda slíka vöru yfir búðarborðið. Það eru röng skilaboð. “ Það er ein af grundvallarkenningum markaðs- fræðinnar að eftir því sem vöru er komið fyrir á fleiri metrum af hillum í fleiri verslunum þeim mun meira seljist af henni. Þessi kenning segir okkur að ef við tökum það skref að setja áfengi í hillur í venjulegum verslunum selst meira áfengi í landinu. Einhver kann að segja að þarna sé bara um að ræða kenningu og það sé eðli kenninga að vera ýmist réttar eða rangar og þessa þurfi að prófa; sem sagt áfengi í venjulegar verslanir á Ís- landi og svo skoðum við hvort það leiði til meiri sölu. Svarið við þessu er að það er búið að gera til- raunina í mörgum löndum í kringum okkur og alls staðar þar sem áfengi hefur verið flutt inn í venju- legar verslanir hefur neysla þess aukist verulega. Það er því ljóst að spurningin um það hvort við ættum að selja áfengi í venjulegum verslunum er í það minnsta líka, ef ekki eingöngu, spurningin um það hvort við viljum að fólkið í landinu neyti meira eða minna áfengis. Alkóhólismi er einn af alvarlegustu og algengustu sjúkdómum í okkar samfélagi og ekki á það bætandi. Það er því lítill krókur að rölta í sérverslun til þess að forðast þá keldu sem aukin áfeng- isneysla landsmanna væri. Síðan er það allt önnur spurning og gömul hvernig Alþingi treysti fólkinu í landinu til þess að umgang- ast þessa vöru sem formaðurinn vill nú flytja inn í venjulegar verslanir. Það ætti þó að vera honum ljóst að þegar kemur að því að para saman áfengi og fólkið í landinu hefur af- staða Alþingis aldrei markast af trausti og það hefur til dæmis með lögum skert til muna frelsi þeirra sem eru búnir að neyta þess í einhverju magni og eru undir þeim áhrifum sem eftir er sóst með neyslunni. Þeim er bannað að aka bifreið, fljúga flugvél, stjórna bátum og vera á almanna- færi. Það er engin önnur vara sem er löglega seld í landinu sem er með þeim ósköpum gerð að lög- gjafinn hafi séð ástæðu til þess að skipta sér sér- staklega af gjörðum þeirra sem hafa neytt hennar. Ég er í litlum vafa um að formaðurinn veit þetta allt saman og skilur en vonar að ef hann komi áfengi í venjulegar verslanir leiði það til þess að fleiri muni kjósa Sjálfstæðisflokkinn sem þessa dagana er illa rúinn fylgi. Ekki getur það verið vegna þess að hann haldi að hugmyndin um áfengi í venjulegar verslanir sé vinsæl vegna þess að skoðanakannanir benda til þess að meiri hluti landsmanna vilji að áfengið haldi sig heima hjá sér. Hann veit hins vegar að ef því verður komið í venjulegar verslanir drekka landsmenn meira. Hann veit líka að áfengisdrykkja getur svift menn ráði, rænu og annarri eðlilegri starfsemi heilans og því sé líklegra að menn kjósi Sjálfstæðisflokk- inn þegar þeir eru drukknir en allsgáðir. Eftir að hlusta á málflutning hans í þessari ræðu er auðvelt að vera honum sammála. Eina vandamálið sem ég sé við þessa atkvæðasmölun formannsins er að kjörstaðir eru almannafæri. Hvað meinar maðurinn með frelsi ? Eftir Kára Stefánsson Kári Stefánsson » Alls staðar þar sem áfengi hefur verið flutt inn í venjulegar verslanir hefur neysla þess aukist verulega. Höfundur forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.