Morgunblaðið - 18.09.2015, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 18.09.2015, Blaðsíða 27
stunduðum af kappi. Mikið voru þau Óli og Soffa yndislegir vinir – svo samtaka í öllu. Við stofnuðum saumaklúbb sem entist árum saman. Ekki var alltaf handavinna í fyrirrúmi. Einu sinni datt okkur í hug að heiðra Hótel Borg með nær- veru okkar. Þá var verið að spila bingó þar. Sú sem þetta skrifar fekk bingó, sem var ferðavinningur út í hinn stóra heim. Varð til þess að við fór- um á Edinborgarhátíðina. Þarna var brotið blað í tilveru okkar og áttum við eftir að fara fleiri ferðir. Við slógum tvær flugur í einu, gátum klætt þá sem heima voru, mátti sjá börnin okkar í órafjarlægð i fötum frá Marks & Spencer. Margt óvænt gerðist, við fund- um djassklúbb, gerðumst fé- lagar þar. Áhugi okkar á blues fékk þar aldeilis næringu. Soffa vissi allt um djass. Var áskrif- andi að Melody Makers. Hún kunni sögu flestra stórstjarna, ég drakk í mig alla hennar visku. Þegar komið var í heim- sókn hljómaði Billie Holiday, þegar inn var komið blasti við stærðar plakat af henni. Þetta entist ævina út. Mikið voru þau samhent þessi einstöku hjón. Þessi stóra fjölskylda elskaði að vera saman. Hátíð á hverju sumri í sumarhúsinu þeirra, minnti helst á þjóðhátíð. Systrakærleikur var svo inni- legur. Eins tryggð við alla vini sem hún hafði verið samferða entist alla tíð. Að hún skyldi kveðja á þessum árstíma var svo táknrænt. Þegar sumri hallar, haustið tekur við með sína óendanlegu litadýrð. Við tvær vorum vanar að fara á Þingvelli um þetta leyti. Ég á svo fallega mynd af vinkonu minni í litadýrðinni með beiti- lyng í fanginu, alsæl. Að þessu sinni var þessi ferð ekki farin heldur fór hún í lengri ferð til ástvina sem fagna henni þar. Ég trúi því, að þegar jarðlífs- göngunni lýkur hittumst við í blómabrekkunni. Blessaðar séu allar hinar góðu minningar sem við áttum saman, þær varðveiti ég svo lengi sem ég lifi. Hvíl í friði, mín elskulega vinkona. Þín, Sigrún. Mín kæra vinkona, Soffía, hefur nú kvatt þetta jarðlíf. Ég sakna hennar. Við kynntumst fyrir fáeinum árum þegar ég flutti á Fjarð- argötu 17 og ég fann það strax að þar fór greind og skemmti- leg kona með ákveðnar skoð- anir og skemmtilegt lífsviðhorf. Það var ekki leiðinlegt að hlusta á hana segja frá sinni ævi, uppvaxtarárunum á Bergstaðastæti, foreldrum sín- um, sem hún var svo stolt af, systkinum, eiginmanni og börn- um. Hún sagði mér líka oft frá utanlandsferðunum og góðum stundum með Óla sínum og vin- konum. Það kom á óvart hvað við tvær þekktum mikið sama fólk- ið þó að aldursmunurinn væri 10 ár. Við töluðum mikið um bækur og horfðum saman á ýmsa sjón- varpsþætti en við höfðum sama smekk um svo mörg atriði. Svo áttum við sameiginlega uppá- haldsfótboltastrák, hann Neymar frá Brasilíu. Soffía var minnug og sagði skemmtilega frá. Hún var ekk- ert að dylja sínar skoðanir, hvorki á því sem henni líkaði, né því sem henni líkaði ekki. Hún elskaði jazz, sérstaklega Billie Holiday. Það var verulega sorglegt að sjá hvað það dró af henni á stuttum tíma undir það síðasta. Ég er þakklát fyrir þann tíma sem við áttum saman. Ég votta fjölskyldu Soffíu mína dýpstu samúð. Erla Sigurbjörnsdóttir. MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015 ✝ Sigríður Magn-ea Hermanns- dóttir fæddist í Sæ- bakka við Dalvík 23. mars 1934. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 9. sept- ember 2015. Foreldrar henn- ar voru Hermann Árnason, f. í Ytri- haga á Árskógs- strönd 15. sept- ember 1901, d. 4. september 1978, og Jónína Magnúsdóttir, f. í Sauðanesi á Upsaströnd 20. apríl 1895, d. 5. október 1980. Systkini Sigríðar voru Ingvi Gunnar Ebenhardsson, f. 1921, d. 2003, Friðbjörn Hjálmar Her- dóttir, f. 1962. Börn þeirra eru Tómas, f. 1981, Harpa, f. 1988, og Bjarki, f. 1996. 3) Guðrún Hrönn, f. 29. september 1962. Eiginmaður hennar er Brynjar Aðalsteinsson, f. 1959. Börn þeirra eru Herdís Björk, f. 1983, Sigurður Júlíus, f. 1989, og Björn Hrannar, f. 1997. Auk þeirra afkomenda sem þegar eru taldir átti Sigríður átta barnabarnabörn. Sigríður og Tómas byggðu fjölskyldunni hús við Bárugötu á Dalvík þar sem Sigríður bjó til æviloka. Hún varð ekkja 29 ára þegar Tómas fórst með mótorbátnum Hafþóri 9. apríl 1963. Frá þeim tíma sá hún ein um að vinna fyrir heimilinu og umönnun barnanna. Hún sinnti ýmsum störfum en lengst af starfaði hún þó sem fisk- verkakona. Útför Sigríðar fer fram frá Dalvíkurkirkju í dag, 18. sept- ember 2015, kl. 13.30. mannsson, f. 1927, d. 1995, og Árni Baldvin Hermanns- son, f. 1930, d. 2011. Árið 1954 giftist Sigríður Tómasi Péturssyni, f. 21. desember 1930 á Dalvík. Börn þeirra eru: 1) Jóhanna Dagbjört, f. 16. júlí 1954. Eiginmaður hennar er Birgir Ingvason, f. 1953. Börn Jóhönnu af fyrra hjónabandi eru Birgitta Anna, f. 1972, Tómas Pétur, f. 1976, og Sindri Freyr, f. 1978. 2) Her- mann Jón, f. 13. apríl 1959. Eig- inkona hans er Bára Björns- Mamma mín. Fyrir örfáum dögum sátum við, einu sinni sem oftar, saman í eldhúsinu heima í Bárugötu, drukkum kaffi og ræddum um fjölskyld- una, lífið og tilveruna. Eins og við höfðum gert svo oft áður. Þú varst ánægð, þér leið vel og þú varst bjartsýn á að vel myndi ganga í þeirri glímu sem framundan var hjá henni Báru minni. Og þótt þú segðist vera pínu- lítið þreytt var engin ástæða til að ætla annað en við gætum haldið áfram að drekka saman kaffi og ræða málin í Bárugöt- unni. Það var þess vegna algjört reiðarslag að fá þær fréttir daginn eftir að þú værir að deyja. Ég á erfitt með að lýsa því hvað ég hef verið dapur síð- an. Dapur og líka reiður vegna þess hvað mér finnst það órétt- látt að kona sem hefur þurft að hafa jafn mikið fyrir lífinu og þú skulir ekki fá að njóta ævi- kvöldsins. Njóta nokkurra góðra ára þar sem þú hefðir getað horft um öxl og glaðst yf- ir því sem þú hefur áorkað á lífsleiðinni. Nokkurra góðra ára þar sem þú hefðir getað fylgst með ávöxtum ævistarfsins, barna- börnunum og barnabarnabörn- unum, og séð þau vaxa og dafna. Þú varst aðeins 29 ára gömul 1963 þegar pabbi fórst og þú stóðst ein eftir, ekkja og móðir þriggja ungra barna. Eftir það varstu okkur bæði móðir og faðir en það vafðist ekki fyrir þér. Oft varstu örugglega dauð- þreytt þegar þú þurftir að hugsa um mig og systur mínar að loknum löngum vinnudegi en alltaf gerðir þú það sem í þínu valdi stóð til að láta okkur líða vel. Stundum held ég meira að segja að þú hafir spillt okkur svolítið, í það minnsta mér, svo vel gættir þú þess að mig skorti ekkert sem máli skipti. Vissulega bjuggum við aldrei við ríkidæmi en við höfðum allt sem við þurftum. Þegar ég hugsa til baka til þessa tíma átta ég mig á því hve erfitt það hlýtur að hafa verið fyrir þig að standa ein í þessum sporum og hversu miklu þú fórnaðir til að tryggja velferð okkar barnanna. Árin liðu og við systkinin eignuðumst fjölskyldur og þú tengdabörn og barnabörn. Það var einstakt að fylgjast með samskiptum þínum við þau. Hvað þú fylgdist vel með, hvað þú áttir auðvelt með að tengj- ast þeim og hvað þau urðu öll hænd að þér. Elsku mamma mín. Minning- in um þig er minning um góða, skemmtilega og lífsglaða konu sem gerði allt sem hún gat fyr- ir börnin sín og fjölskyldur þeirra. Ég er óendanlega þakk- látur fyrir að hafa átt þig sem móður og fyrir lífsgönguna okkar saman. Þótt ég sé dapur í dag mun ég alltaf getað yljað mér við allar góðu minningarn- ar og glaðst yfir því láni mínu að hafa fengið að ganga með þér. Hermann Jón. Þegar ég sest niður til að minnast minnar góðu vinkonu og tengdamóður er þakklæti of- arlega í huga. Ég var afar lán- söm að kynnast henni Siggu að- eins 18 ára gömul þegar ég og Hermann sonur hennar vorum að byrja saman. Sigga vissi alveg hvað hún vildi og hafði ákveðnar skoð- anir á mönnum og málefnum en það sem mér fannst einkenna hana var dugnaðurinn, lífsgleð- in, góða nærveran, glettnin og það hversu skemmtileg kona Sigga var. Hún hafði voða gaman af því að spila á spil og eru ófáar spil- astundir sem við höfum átt við eldhúsborðið hennar Siggu og þær síðustu nú í sumar, það var oft stutt í söng, glens og gleði þar sem Bárugötumæðgur komu saman. Seinni ár fengum við Her- mann Siggu stundum til okkar í Helgamagrastræti, stjönuðum við hana í mat og drykk og spil- uðum svo saman langt fram á nótt, því Sigga var nátthrafn. Þessar helgarstundir okkar eru dýrmætar í minningunni. Hún Sigga var öllum sínum mjög kær og trú og ég held að það séu ekki margar ömmur sem eiga jafn mikið í ömmu- börnunum sínum og hún átti. Hún hélt einstaklega góðu sam- bandi við öll sín barnabörn og hafði sérstakt lag á því að fá þau til að segja sér sín hjartans mál og þau elskuðu hana öll. Mikið á ég nú eftir að sakna hennar Siggu minnar og henn- ar góðu nærveru, ég vil þakka henni fyrir allt sem hún var mér og mínum. Hvíl í friði vinkona. Þín Bára. Með örfáum orðum langar mig að minnast tengdamömmu minnar, Sigríðar Hermanns- dóttur. Við þessi skrif koma ýmsar minningar upp í hugann. Ég fór að venja komur mínar til Dalvíkur fyrir löngu, 34 ár- um, þegar ég var að gera hosur mínar grænar fyrir konunni minni. Þegar ég hitti Siggu, til- vonandi tengdamömmu mína, þá var ég pínu hræddur um hvernig hún tæki mér. En sá ótti var auðvitað ástæðulaus, hún tók mér vel eins og öllum öðrum. Þeir sem þekktu hana vita að hún átti það til að fíflast í manni. Ég fékk strax mikla mat- arást á þessari konu, alltaf góð- ur matur, nema einu sinni, svartfugl. Sigga hefur líklega talið að ég myndi plata Gunnu með mér vestur á firði eða eitt- hvað langt í burtu. En sú var ekki raunin, því við Gunna keyptum efri hæðina af henni og höfum notið þess síðan að búa í góðu sambandi við hana. Tengdamamma var og er rík, því hún átti í kring- um sig fullt af fólki sem elskaði hana, og ekki var hún nísk á ást sína til barnanna okkar Gunnu. Þau eru líka rík að hafa fengið að alast upp í faðmi ömmu sinnar. Hún taldi það ekki eftir sér að passa fyrir okkur, bæði um lengri og skemmri tíma, og t.d. sauma saman snuddur, sem höfðu ver- ið bitnar í sundur, ekkert mál. Hún bjó til leikföng, saumaði tuskudýr, og spann upp sögur fyrir börnin. Hún hafði á árum áður gam- an af að ferðast til útlanda, fór t.d. með okkur og öðrum legg fjölskyldunnar í þrjár ferðir, þar af eina alla leið til Tyrk- lands. Sigga var mikil félagsvera og hafði gaman af að spjalla við fólk, jafnvel þótt viðkomandi væri henni ókunnugur, því ekki var hún feimin. Það háði henni síðustu árin að líkaminn var slitinn, en andlegt atgervi var mjög gott. Sigga var ekki sérlega há í loftinu, en margur er knár þó hann sé smár. Hún varð ekkja aðeins 29 ára, en með dugnaði ól hún ein upp þrjú börn. Því er mjög auðvelt að líta upp til hennar. Samband þeirra mæðgna var einstakt í mínum huga; mæðg- ur, systur og vinir, allt í senn. Missirinn er mikill fyrir okkur öll, ekki síst fyrir Gunnu mína. Hún var yndisleg tengda- mamma og hún mun lifa áfram í minningunum. Þinn vinur og tengdasonur, Brynjar A. Ég býð þér aftur seinna, í Olsen amma og jafnvel fylgir lítið rauðvínsglas en þangað til í þínu nafni brosi því ég veit þú verður á betri stað. Við sjáumst aftur að degi liðnum, við sjáumst aftur er vora fer, við sjáumst aftur í öðrum heimi en þangað til, þig hjá mér geymi þú verður ætíð í hjarta mér. (Sigurður Júlíus Brynjarsson) Sigurður Júlíus Brynjarsson. Elsku amma Sigga, nú hefur leiðir skilið og þú ert lögð af stað í nýtt ferðalag. Þú lagðir þó of snemma af stað og við kveðjum þig með tárum og sorg í hjarta. Hafsjór af góðum minning- um um þig lifir þó vel og hlýjar okkur og gleður um ókomna tíð. Handavinna þín var einnig mikil og falleg og í hverju her- bergi okkar má finna fallegan handgerðan hlut frá þér. Það var alltaf svo gaman að koma í heimsókn til þín á Báru- götuna og dvelja hjá þér dag- part eða jafnvel nokkra daga. Ég minnist þess frá unga aldri hve spenntur ég var að koma í heimsókn og mér leið alltaf vel hjá þér, þó svo að ég og við bræður gerðum þér stundum óleik með því að fella og brjóta hluti, óðir eins og hundur og köttur. Þar reyndum við örugg- lega á þolrif þín þótt þú létir lítið á slíku bera, þú reyndir þá stundum að róa leika með því að bjóða upp á ólsen, Masterm- ind eða heimabakað. Það voru góðir dagar. En þú varst ýmsu vön og dugnaður þinn og kraftur lýsir sér vel í því að þú stóðst þig eins vel og þú gerðir sem ung ekkja með þrjú börn, það hlýt- ur að hafa verið erfitt fyrir þig, en þú stóðst þig sannarlega vel. Þú varst ávallt hress, forvitin og ýtin þegar kom að einka- samtölum um lífið og tilveruna á unglingsárunum og síðar. Þú vildir vita allt um strákapör og stúlkur og enginn hefur leyft sér að draga fram svör á sama hátt og þú gerðir, en það var gaman og ánægjulegt að eiga ömmu sem var jafn annt um daglegt líf okkar og þér. Lífið heldur áfram og barna- börnin komu í heiminn og þú jafn áhugasöm um þau og okk- ur. Starra og Tinnu þótti ávallt spennandi að koma í heimsókn til langömmu Siggu og líf okkar allra var sannarlega ríkara með þér. Þú getur gengið stolt frá borði, elsku amma okkar, hvíldu í friði. Tómas Pétur (Tommi), Elsa, Starri Snær og Tinna Rún. Elsku amma, núna reikna ég með því að þú sért farin í frí í Sumarlandið. Þínir nánustu halda áfram hérna megin, en það er ekki hægt að segja ann- að en að tilveran standi allt önnur og snauðari eftir. Þig hef ég nefnilega átt að alla mína ævi og líklega munu fáir skilja nákvæmlega hversu mikil forréttindi það voru fyrir krílið hérna megin að fá að vera svona nálægt þér öll þessi ár. Stundirnar okkar ætla ég að fara sjálf yfir í huganum og gleðjast yfir þeim – og við mun- um áfram eiga samtöl þar inni. Ég er á engan hátt tilbúin til að sleppa af þér takinu, en er ánægð með að þú hittir loksins elsku karlinn þinn og sért nú laus við allar líkamlegar þraut- ir. Reikna jafnvel með því að þú sért strax farin að kenna fólkinu í Sumarlandinu skemmtileg orðatiltæki, en þau skemmtilegustu sem ég man eftir eru kannski fullgróf til að rita hér. Oft settir þú upp vanþókn- unarsvip, ef þér fannst ég of kjaftfor, en komst í kjölfarið með eitthvert gróft innslag á móti til að sjokkera mig og við hlógum eins og fábjánar. Veikindin sem kláruðu raf- hlöðuna þína komu eins og reiðarslag, og ég er búin að eiga svolítið bágt með að sætta mig við allt saman. En vissu- lega var líkami þinn orðinn þreyttur. Þú hefur nefnilega átt af- skaplega gott líf – en þó ekki endilega alltaf auðvelt. Mikið máttu vera stolt af því sem þú hefur áorkað – stolt af því hversu vel þú varst liðin af fólki almennt, stolt af börnunum þín- um og að hafa verið í hlutverki beggja foreldra þeirra frá unga aldri og stolt af því hversu heil og hlý manneskja þú varst. Þú veist líka fullvel að þú átt hvert bein í barnabörnunum þínum. Það eru margir sem eiga eftir að sakna þín mikið og ég bið um styrk þeim til handa sem syrgja þig, elsku amma mín. Þrátt fyrir að ég hafi fengið að fylgja þér síðustu sporin þín, þá er hugurinn enn ekki búinn að gera sér almennilega grein fyrir því að þú sért hér ekki lengur. Þegar ég segi það, þá er ég nú samt að meina að þú sért hér ekki lengur í efnislegu formi – enda veit ég að þú munt fylgja okkur öllum áfram, eins vel og þú hefur alltaf sett þig inn í líf fólksins þíns. Kveðjustundin var vissulega erfið, en sáttin í hjartanu felst í því að ég fékk að kveðja þig og að þú vissir alltaf að ég elskaði þig innilega. Ég þakka Guði löngu liðinn dag sem lét mig eignast þig að ævivin. Og öll þau blóm sem uxu á þinni leið með ilm og fegurð hresstu og glöddu mig. Og birtan sem þú breiddir yfir allt sló bjarma á lífið allt í kringum þig. Svo líða dagar, ár og ævitíð og ýmsum blikum slær á loftin blá. Í sorg og gleði alltaf varstu eins og enginn skuggi féll á þína brá. Svo brast á élið, langt og kólgukalt og krafan mikla um allt sem gjalda má. Og fljótið niðar enn sem áður fyrr og ennþá flúðin strýkur næman streng. Við blæþýtt ljóð, um blóm og sum- aryl og bjarta kyrrð – í minningu um þig. (Oddný Kristjánsdóttir) Herdís Björk Brynjarsdóttir. Elsku besta yndislega frænka mín. Þú varst alltaf stór partur af lífi mínu og minna barna. Alltaf varstu með okkur, í gleði eða sorg, tókst þátt í þessum stundum, þó sumar væru erfiðar. Stóðst alltaf með okkur. Það var líka ómissandi að geta heyrt í þér í síma reglu- lega, enda fylgdist þú vel með því sem var að gerast hjá okk- ur hérna fyrir sunnan. Þeirra stunda verður sárt saknað. Það er erfitt að sætta sig við að þurfa að kveðja, en við huggum okkur við það að þú ert örugglega komin í faðm Tomma þíns. Ég verð ævinlega þakklát fyrir það að við Þóra Björg skyldum koma norður á Dalvík helgina 4. til 6. september sl. og eiga með þér ómetanlegar stundir. Manni hlýnaði um hjartarætur við að heyra þig tala um það hversu mikið þú saknaðir Árna bróður þíns og föður míns, en þú áttir þrjá yndislega bræður sem eru allir farnir þannig að það er góður hópur sem ég trúi að taki á móti þér núna. Við minnumst þín með þessu fallega ljóði þar sem þér þótti alltaf svo gaman að fara rúnt í Svarfaðardalinn og við fórum þennan rúnt þessa síðustu helgi sem við áttum saman. Í dalnum fagra fjarri sæ fjalla tindum undir. Þar í litlum bóndabæ ég bernsku lifði stundir. Í ljósi þess sem liðið er liti ég til baka. Yndislegar innra í mér æskumyndir vaka. (Jón Gunnlaugsson) Ég og börnin mín; Einar Árni, Ingvi Steinn og Þóra Björg og fjölskyldur þeirra sendum börnum Siggu og fjöl- skyldum þeirra innilegar sam- úðarkveðjur. Sveindís Árnadóttir. Sigríður Magnea Hermannsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.