Morgunblaðið - 18.09.2015, Side 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015
Fundir/Mannfagnaðir
Félagsfundur
Almennur félagsfundur í Vörubílstjórafélaginu
Þrótti verður haldinn 21. september nk. að
Sævarhöfða 12 og hefst kl. 18.00.
Stjórnin.
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Ægissíða 27, 50% eignarhl., einb. 01-0101, bílsk. 02-0101 (216-1022)
Grýtubakkahreppi , þingl. eig. Sigþór Hilmar Guðnason,
gerðarbeiðandi Sparisjóður Höfðhverfinga ses., fimmtudaginn 24.
september kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra,
17. september 2015.
Halla Einarsdóttir ftr.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Gnoðarvogur 36, 202-2456, Reykjavík, þingl. eig. Gunnlaugur F.
Ingibergsson, gerðarbeiðendur Gnoðarvogur 32-34-36,húsfélag,
Landsbankinn hf., Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf. og Reykjavíkurborg,
þriðjudaginn 22. september 2015 kl. 14:00.
Grensásvegur 56, 203-3973, Reykjavík, þingl. eig. Sæmundur Steinar
Sæmundsson, gerðarbeiðandi Hvassaleiti 16,húsfélag, þriðjudaginn
22. september 2015 kl. 15:00.
Heiðargerði 31, 203-3483, Reykjavík, þingl. eig. Viktor Guðmundsson
og Margrét Dröfn Óskarsdóttir, gerðarbeiðendur Arion banki hf. og
Stafir lífeyrissjóður, þriðjudaginn 22. september 2015 kl. 10:30.
Kleppsvegur 42, 201-6352, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Mohamed
Bellamine, gerðarbeiðandi Fylkir ehf, þriðjudaginn 22. september
2015 kl. 10:00.
Litlagerði 10, 203-6342, Reykjavík, þingl. eig. Kristján W Ástráðsson,
gerðarbeiðendur Arion banki hf., Íslandsbanki hf. og Orkuveita Re-
ykjavíkur-vatns sf., þriðjudaginn 22. september 2015 kl. 14:30.
Sigtún 21, 201-9218, Reykjavík, þingl. eig. Kjartan Guðjónsson og
Svava Ingimarsdóttir, gerðarbeiðendur Lífeyrissj.starfsm.rík. A-deild,
Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., Reykjavíkurborg, Sjóvá-Almennar
tryggingar hf. og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, þriðjudaginn 22.
september 2015 kl. 11:30.
Stóragerði 12, 203-3347, Reykjavík, þingl. eig. Hallfríður Hrund
Jónsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 22.
september 2015 kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu,
17. september 2015.
Raðauglýsingar
Félag sjálfstæðismanna
í Árbæ, Selási, Ártúns- og
Norðlingaholti
Viltu koma á landsfund?
Fundur í sjálfstæðisfélagi Árbæjar, Selás,
Ártúns- og Norðlingaholti verður haldinn í
félagsheimilinu að Hraunbæ 102b,
miðvikudagskvöldið 23.september, kl 20:00
Dagskrá:
1. Val fulltrúa félagsins á landsfund sjálfstæðis-
flokksins dagana 23 – 25 október nk.
2. Almennur fundur með Guðlaugi Þór
alþingismanni og ritara flokksinns
Stjórn félagsins
Til sölu
Skápur frá Míru til sölu
Verð kr. 40.000.
Upplýsingar í síma 863 3318.
Ýmislegt
Náhvalstönn eða tupilakkar
Hef áhuga á að kaupa gamla
náhvalstönn og gamla tupilakka. Má
vera brotin tönn eða brotnir tupilakk-
ar. Er í síma 6631189 eða 5667317.
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
NÝTT – TÚNIKA-BUXUR
St.S –XXL
Sími 588 8050.
- vertu vinur
GRÍPTU
TÆKIFÆRIÐ!
WWW.MBL.IS/MOGGINN/IPAD
✝ Margrét Sig-mundsdóttir
fæddist í Reykjavík
23. apríl 1951. Hún
lést á Landspít-
alanum 11. sept-
ember 2015. For-
eldrar hennar voru
Sigmundur Lúð-
víksson, f. 10. des-
ember 1931, d. 21.
nóvember 1976, og
Dagbjört Elíasdótt-
ir, f. 16. september 1929, d. 8.
nóvember 2005. Systkini Mar-
grétar eru Anna Alexía, f. 3. maí
Hjalta Reyni Ragnarssyni, f. 31.
júli 1961. Börn hennar eru Birg-
itta Dröfn Hraundal, f. 28. ágúst
1988, sonur hennar er Adam
Bjarki Agnarsson, f. 19. nóv-
ember 2010. Ottó Veturliði
Birgisson, f. 12. febrúar 1991,
og Bjarki Þormar Birgisson, f.
6. ágúst 1995. 2) Vera Björk
Hraundal, f. 25. september 1969,
maki Albert Már Eggertsson, f.
3. maí 1972. Börn hennar Saga
Björg Gunnarsdóttir, f. 3 desem-
ber 1998, og Þorsteinn Jökull
Gunnarsson, f. 4. febrúar 2003.
3) Anna Margrét Hraundal, f.
12. mars 1977, maki hennar
Anna Cecilia Inghammar, f. 3.
maí 1977.
Útför Margrétar verður gerð
frá Hjallakirkju í dag, 18. sept-
ember 2015, og hefst athöfnin
kl. 11.
1953, d. 9. júlí 1997,
Lúðvík Sveinn, f. 1.
janúar 1955, d. 17.
maí 1970, Sigrún
Jónína, f. 10. janúar
1961, Sigmundur
Örn, f. 4. september
1963, og Dagbjört
Erna, f. 29. júní
1966.
Margrét giftist
Þorsteini Hraun-
dal, f. 17. apríl
1949, þau skildu. Þeirra dætur
eru: 1) Eygló Dröfn Hraundal, f.
31. maí 1968, í sambúð með
Nú er elsku móðir okkar látin
eftir erfið veikindi. Við vitum að
henni líður betur núna.
Þó hún hafi oft verið mikið veik
þá var hún kletturinn í okkar lífi
og barnanna okkar. Hennar
heimili var þessi fasti staður í til-
verunni þar sem allir voru vel-
komnir og þangað var gott að
koma. Allar höfum við á einhverj-
um tíma flutt til hennar tíma-
bundið og það var aldrei neitt
nema sjálfsagt að skjóta skjóls-
húsi yfir þá sem þurftu. Mamma
var mjög umhyggjusöm og pass-
aði alltaf að enginn færi svangur
eða illa klæddur út frá henni.
Ósjaldan fór maður út frá henni
með trefil eða klút úr slæðukist-
unni hennar sem var líka mikið
notuð í allskyns leikjum hjá
barnabörnunum.
Mamma var alltaf vel til fara,
fór aldrei út úr húsi ótilhöfð og
fylgdist mjög vel með tískunni.
Hún lagði mikið upp úr því að
hafa fallegt í kringum sig og átti
fallegt heimili. Við eigum eftir að
sakna þess að fara með henni í
búðaráp, en það þótti henni mjög
gaman.
Við viljum þakka móður okkar
fyrir áhyggjulausa og góða æsku.
Í okkar huga eru árin sem við
bjuggum austur í Neskaupstað
lituð sólríkum sumrum, þar sem
mamma var að vinna í frystihús-
inu og kom heim í hádeginu til að
gefa okkur súrmjólkursúpu eða
eldaði svikinn héra um helgar
sem við fengum æði oft og var í
miklu uppáhaldi hjá okkur, enda
fékk hún í verðlaun forláta silf-
urskeið fyrir svikinn héra í mat-
reiðslu í unglingaskóla Garða-
hrepps sem okkur fannst mikið til
koma. Stundum hlýtur hún þó að
hafa verið pirruð á okkur þegar
hún var t.d. með saumaklúbb og
við systurnar lágum á hleri og
vildum ekki fara að sofa. Mamma
var óspör á að láta okkur dætur
sínar vita hvað hún var ánægð
með og stolt af okkur og við höf-
um tileinkað okkur það vega-
nesti.
Við minnumst hennar sem
viskubrunns sem alltaf átti svar
handa okkur, hún var ótrúlega
vel að sér á mörgum sviðum þó
hún hafi ekki verið langskóla-
gengin. Hún hafði sterkar skoð-
anir á flestum hlutum og var
óhrædd að segja sína skoðun.
Hún tók sjálfa sig ekkert of hátíð-
lega, var með góðan húmor og gat
hlegið að vitleysunni í sjálfri sér.
Hún var fljót að sjá skoplegu hlið-
arnar á allskonar aðstæðum.
Við höfum verið svo heppnar
að hafa getað ferðast með henni
erlendis. Spánarferðin góða sem
við fórum í með allri stórfjöl-
skyldunni kallar fram dýrmætar
minningar. Eins og kerlinga
verslunarferðin til Crawley sem
við fórum í á 60 ára afmælinu
hennar. Þar var mamma í essinu
sínu, mikið hlegið, fíflast og versl-
að.
Við gætum endalaust talið upp
góðar minningar um mömmu og
við munum varðveita þær í hjört-
um okkar.
Elsku mamma, okkur þykir
svo óendanlega erfitt og sárt að
kveðja þig núna og við munum
passa hver upp á aðra og allt sem
þú gafst af þér í lífinu. Við elskum
þig, mamma.
Þínar dætur,
Eygló, Vera og
Anna Margrét.
Elsku amma. Við eigum eftir
að sakna þín mjög mikið.
Það var alltaf gott að koma til
þín og þú áttir alltaf eitthvað gott
í kökuskúffunni þinni. Okkur
þótti svo gaman að róta í snyrti-
dótinu og klinkbuddunni þinni
þegar við vorum yngri og þú
leyfðir okkur það alveg. Það
mátti nú ýmislegt gera hjá þér.
Við eigum eftir að sakna þín mjög
mikið, elsku amma okkar.
Þú ert besta amma í heimi og
við elskum þig.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson)
Þín barnabörn,
Saga Björg og
Þorsteinn Jökull.
Elsku amma mín, nú ertu farin
eftir erfið veikindi. Vonandi líður
þér vel þar sem þú ert núna, ég og
Adam Bjarki söknum þín mjög
mikið.
Ég man hvað mér þótti
skemmtilegt að gramsa í öllu
glingrinu hennar ömmu og fara í
ýmsa leiki með Ottó bróður mín-
um heima hjá henni þegar við
vorum yngri, með öllum húfun-
um, höttunum, glingrinu og slæð-
unum hennar, enda átti hún nóg
af því.
Adam fannst svo gaman að
koma heim til hennar, leika með
dótið í kassanum sem hún geymdi
inni í skáp, hjóla á æfingahjólinu
hennar og fá ömmu löngu eins og
hann kallaði hana til að teikna
fyrir sig.
Það var alltaf svo fallegt heima
hjá henni og hún alltaf svo vel til-
höfð. Hún elskaði góðan mat og
notaði öll tækifæri til að bjóða
fjölskyldunni heim til sín í mat-
arboð. Hún amma mín var ein-
staklega góð og sterk kona enda
kletturinn í fjölskyldunni.
Við elskum þig, amma mín og
amma langa.
Birgitta og Adam Bjarki.
Mikið er það óraunverulegt að
sitja hér og skrifa minningar-
grein um þig, elsku Margrét mín.
Það er gott að eiga allar fallegu
minningarnar um þig, skoða
myndir og rifja upp gamla tíma.
Við gátum endalaust talað um
skemmtilegu ferðirnar, bæði þeg-
ar stórfjölskyldan skellti sér til
Spánar og stelpuverslunarferð-
ina til Crawley. Þrátt fyrir að þú
hafir ekki farið mikð út vegna
veikinda þá vissir þú alltaf manna
best hvað var nýjasta nýtt í búð-
unum. Enda fannst þér ekki leið-
inlegt að skoða netverslanir og
fylgjast með tísku og trendum.
Það á eftir að vera ótrúlega erfitt
að geta ekki heimsótt þig, annað-
hvort til að spjalla saman við eld-
húsborðið eða horfa með þér á
sjónvarpið. Ég kveð þig, yndis-
lega systir, með sárum söknuði
og veit að lífið verður tómlegra án
þín. Vonandi líður þér vel þar sem
þú ert núna, elsku Margrét mín.
Ég á eftir að sakna þín á sumrin,
þegar sólin skín,
er heyri ég í regninu,
þá hugsa ég til þín.
Ég veit að þú ert alltaf,
í huga og hjarta mér,
en á samt alltaf óskina,
að hafa þig enn hér.
(Soffía Dögg)
Þín systir,
Erna.
Margrét
Sigmundsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar
endurgjaldslaust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs-
ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið
sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta
umsjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar