Morgunblaðið - 18.09.2015, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015
Mikil tímamót eru í lífi Kjartans Ragnarssonar, forstöðumannsLandnámsseturs Íslands í Borgarnesi. Hann er 70 ára í dagog Landnámssetrið er að hefja tíunda starfsárið. „Þessa
dagana erum við að undirbúa vetrarstarfið,“ segir Kjartan og bætir
við að ekki þurfi að kvarta yfir áhuga á starfinu, jafnt hjá Íslend-
ingum sem erlendum ferðamönnum.
Þegar Landnámssetrið var opnað frumsýndi Benedikt Erlingsson
þar einleik sinn um Egil Skallagrímsson. Sýningin gekk í fimm ár og á
þessum tímamótum kemur Benedikt aftur með verkið 30. október.
Kjartan segir að þá gefist fólki, sem missti af viðburðinum, tækifæri
til þess að bæta fyrir það en áréttar að ekki verði um margar sýn-
ingar að ræða, því Benedikt hafi öðrum hnöppum að hneppa.
Nokkrir rithöfundar hafa mætt í Landnámssetrið og farið í hlut-
verk hins talandi höfundar, sagt söguna sem þeir hafa skrifað. Þannig
hafa til dæmis Þórarinn Eldjárn, Einar Kárason, Böðvar Guðmunds-
son og Steinunn Jóhannesdóttir skemmt gestum og á komandi starfs-
ári leggur Héðinn Unnsteinsson út frá bók sinni Vertu úlfur. „Þessar
sýningar hafa mælst vel fyrir,“ segir Kjartan og bætir við að veturinn
verði viðburðaríkur.
En lífið er ekki bara leikhús og landnámssetur. Kjartan segist
reyndar hafa pakkað hestamennskunni saman á einum degi eftir að
þau hjónin opnuðu Landnámssetrið, en hann reyni að viðra golfsettið
sem oftast. „Golfvöllurinn er bara í tíu mínútna fjarlægð frá vinnu-
staðnum og því ekkert mál að skjótast,“ segir hann.
Morgunblaðið/Eggert
Hjón Sigríður Margrét Guðmundsdóttir og Kjartan Ragnarsson.
Landnámssetrið
á tíunda starfsári
Kjartan Ragnarsson 70 ára
E
llisif Tinna fæddist í
Reykjavík 18.9. 1965.
Hún var á öðru árinu
þegar fjölskyldan
flutti til Bretlands þar
sem foreldrar hennar stunduðu nám
í eitt ár. Þaðan lá leiðin til Reykja-
víkur og síðan í Garðabæinn. Þegar
Ellisif Tinna var fimm ára flutti fjöl-
skyldan til Kaupmannahafnar þar
sem faðir hennar stundaði nám en
1978 lá leiðin aftur heim og fjöl-
skyldan settist að í Hlíðunum í
Reykjavík.
„Það mótaði mig töluvert að alast
upp í Danmörku og ganga allan
minn barnaskóla í danskan skóla.
Við systkinin töluðum okkar á milli
og svöruðum foreldrum okkar á
dönsku þó svo að þau hafi alltaf tal-
að við okkur á íslensku. Mig
dreymdi árum saman á dönsku og
enn í dag kann ég margföldunartöfl-
una betur á dönsku en á íslensku.
Þegar börnin mín fóru að læra
dönsku varð ég eiginlega hálfhissa á
að þau skyldu ekki tala dönsku eins
og innfædd líkt og ég og systkini mín
gerðum“.
Ellisif Tinna fór fyrst í gagn-
fræðadeild Æfinga- og tilraunaskóla
KHÍ, núna Háteigsskóla, og lauk
stúdentsprófi frá MH. Eftir stúd-
entspróf starfaði Ellisif Tinna í Toll-
inum í nokkur ár, lauk námi við Toll-
skólann og lauk síðan BA-prófi í
mannfræði við HÍ.
Ágjöf og námssigrar
Ellisif Tinna starfaði síðan á skrif-
stofu samstarfsráðherra Norð-
Ellisif Tinna Víðisdóttir, framkvæmdastjóri Kirkjuráðs – 50 ára
Ljósmynd/Páll Stefánnsson
Hressir krakkar Talið frá vinstri: Gunnar Ingi, Kolfinna, Björn, Anna Þóra og Víðir á gamlárskvöld árið 2011.
Dreymdi lengi á dönsku
Á Hátindi í Grafningi Ellisif Tinna, Gunnar, og hundurinn Bylur á toppnum.
Reykjavík Katrín Edda Jónsdóttir
fæddist 18. september 2014 kl. 3.03.
Hún vó 4.494 g og var 54 cm löng.
Foreldrar hennar eru Berglind Eva
Benediktsdóttir og Jón Kristinn
Sigurðsson.
Nýir borgarar
Keflavík Tómas Logi fæddist 25.
ágúst 2014 á Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja. Hann vó 3.525 g og var 52 cm
langur. Foreldrar hans eru Birgitta
Rún Birgisdóttir og Jóhann Freyr Ein-
arsson.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá merkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
stórafmælum, hjónavígslum, barns-
fæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinni mbl.is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Notalegt í skammdeginu
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is
Opið
virka
daga
frá 9-
18
lau fr
á 10-1
6
Sérpöntum glerkúpla og skerma
á olíulampa, verða frá 9.500
Fjósalukt 70 tíma,
verð 6.650
Gamaldags
14“‘ lampi,
verð frá 21.500
Fjósalukt, svört, grá
eða rauð, verð 5.250
Glóðarnet fyrir
Aladdin lampa,
verð 4.575
Kveikir í úrvali,
verð frá 1.105
Ofnsverta,
verð 2.540
Comet
11“‘ lampi,
verð frá 9.960
Lampaglös
í úrvali,
verð frá 3.295
Í grein um merkan Íslending í blaðinu í
gær, Jóhann Pétur Sveinsson, er rangt
farið með fæðingardag hans. Hann var
fæddur 18. september 1959, en ekki
17. september eins og sagt var í grein-
inni.
Þá láðist að geta um son hans, Jóhann
Pétur Jóhannsson, f. 11. nóvember
1994.
Beðist er velvirðingar á þessum mis-
tökum.
Leiðrétt