Morgunblaðið - 18.09.2015, Side 35

Morgunblaðið - 18.09.2015, Side 35
ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015 urlanda en haustið 1993 flutti fjöl- skyldan til London þar sem fyrrverandi eiginmaður hennar stundaði nám. Hjónabandinu lauk vorið 1995, Ellisif Tinna flutti aftur heim og í ágúst það ár fæddust tví- burarnir: „Það var auðvitað erfitt að vera ein með þrjú lítil börn en ég á alveg frábæra fjölskyldu sem stóð þétt við bakið á mér. Foreldrar mín- ir hafa reynst mér stórkostlega, svo og systir mín og maðurinn hennar. Þegar börnin mín voru lítil ákvað ég að láta gamlan draum rætast, fór í lögfræði við HÍ og vann á sumrin í Tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli. Allt þriðja árið í lögfræði vann ég einnig með náminu, var í skólanum fyrir hádegi, vann eftir hádegi og lærði á kvöldin og fram á nótt þegar börnin voru sofnuð. Ég tók síðan fjórða og fimmta árið á einu ári, skrifaði lokaritgerðina um vorið og sumarið og útskrifaðist úr lögfræði haustið 2001. Það má eiginlega segja að ég hafi skrifað mig inn í starfið hjá sýslu- manninum á Keflavíkurflugvelli en í lokaritgerðinni skrifaði ég um landa- mæravörslu og flóttamenn.“ Ellisif Tinna var síðan aðstoðar- lögreglustjóri á Suðurnesjum og síð- an forstjóri Varnarmálastofnunar. Hún starfaði síðan m.a. hjá Thule Investments og hjá Spekt en er nú framkvæmdastjóri Kirkjuráðs. Núverandi manni sínum kynntist Ellisif Tinna er hún starfaði hjá lög- reglunni. „Í frítímum reynum við hjónin að komast út í náttúruna með hundinn okkar, hann Byl. Framan af voru börnin okkar oft með í för en nú fara þau meira eigin leiðir eins og gengur. Ég les einnig mikið góðar bækur og hlusta á tónlist. Svo eru fallegu börnin okkar að sjálfsögðu þunga- miðjan í lífi okkar en þau eru öll al- veg hörkudugleg, einn í framhalds- skóla, þrjú í háskóla og einn í ársfríi frá námi. Ég er því bara lukkunnar pamfíll og finnst frábært að verða fimmtug.“ Fjölskylda Maður Ellisifjar Tinnu er Gunnar Ólafur Schram, f. 12.10. 1962, yfir- lögregluþjónn á Suðurnesjum. For- eldrar hans: Þóra Gunnarsdóttir, f. 20.3. 1937, húsfreyja, og Garðar Sæ- berg Schram, f. 19.2. 1932, d. 19.7. 1999, sérkennari. Fyrri maður Ellisifjar Tinnu er Tómas Tómasson, f. 28.12. 1966, óp- erusöngvari. Börn Ellisifjar Tinnu eru Kolfinna Tómasdóttir, f. 2.7. 1993, nemi í lög- fræði við HÍ; Víðir Tómasson, f. 13.8. 1995, stúdent frá VÍ, og Björn Tóm- asson, f. 13.8. 1995, nemi í við- skiptafræði við HÍ. Stjúpbörn Ellisifjar Tinnu eru Anna Þóra Schram, f. 2.12. 1986, nemi í sálfræði við HA; Gunnar Ingi Schram, f. 11.6. 1998, framhalds- skólanemi við Fjölbrautaskóla Suð- urnesja. Systkini Ellisifjar Tinnu eru Kol- brún Hrund Víðisdóttir, f. 6.2. 1969, framkvæmdastjóri Heilsumiðstöðv- arinnar í Reykjavík; Börkur Hrafn Víðisson, f. 27.11. 1972, d. 9.4. 2002. Foreldrar Ellisifjar Tinnu eru Víðir Hafberg Kristinsson, f. 4.11. 1938, sálfræðingur í Reykjavík, og Hulda Guðmundsdóttir, f. 24.2. 1939, félagsráðgjafi í Reykjavík. Úr frændgarði Ellisifjar Tinnu Víðisdóttur Ellisif Tinna Víðisdóttir Gróa Herdís Lárusdóttir húsfr. í Rvík Jósef Á. Jónsson á Vatnsnesi og verkam. í Rvík Hjördís Jósefsdóttir húsfr. í Rvík. Fósturmóðir: Jóna Guðmundsdóttir húsfr. Halldór Guðmundur Sölvason verslunarm. í Rvík. Fósturfaðir: Bjarni Ívarsson b. í Álfadal á Ingjaldssandi og síðar í Rvík Hulda Guðmundsdóttir félagsráðgjafi í Rvík Jónína Gunnlaugsdóttir húsfr. Sölvi Jónsson b. í Dæli í Fljótum og bóksali í Rvík Marín Gísladóttir húsfr. á Unhóli og Rvík Jón Benediktsson b. á Unhóli í Stokkseyrar- sókn og í Rvík Sigurrós Jónsdóttir húsfr. í Rvík Kristinn Níelsson bifreiðastj. í Rvík Víðir Hafberg Kristinsson sálfræðingur í Rvík Guðríður Magnúsdóttir húsfr. í Rvík Níels Pálsson b. á Mýrum, síðar verkam. í Rví. Afmælisbarnið Ellisif Tinna Gunnsteinn Ármann Snævarrfæddist á Nesi í Norðfirði18.9. 1919. Foreldrar hans voru Stefanía Erlendsdóttir hús- freyja og Valdemar Valvesson Snævarr skólastjóri. Eiginkona Ármanns var Valborg Sigurðardóttir sem lést 2012, upp- eldisfræðingur og skólastjóri Fóst- urskólans. Börn þeirra eru Sigríður Ásdís sendiherra, Stefán Valdemar, prófessor í Noregi, Sigurður Ár- mann hagfræðingur, Valborg Þóra hæstaréttarlögmaður og Árni Þor- valdur upplýsingafulltrúi í Brussel. Ármann lauk embættisprófi í lög- fræði frá Háskóla Íslands 1944 og stundaði framhaldsnám í Uppsölum, Kaupmannahöfn og Osló. Síðar stundaði hann sérnám og rannsóknir við Harvard Law School. Ármann var bæjarfógeti á Akra- nesi 1944 og prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands frá 1948. Hann var rektor Háskóla Íslands 1960-69 og hæstaréttardómari 1972-84. Ármann vann að samningu fjölda laga og sat í ýmsum stjórnum og nefndum á vegum Háskóla Íslands og annarra og vann með vísinda- og menningarfélögum víða um heim. Ármann skrifaði mikið um lög- fræði og var almennt talinn fremsti fræðimaður þjóðarinnar á sviði sifja- og erfðaréttar. Síðast sendi hann frá sér mikið fræðirit um hjúskapar- og sambúðarrétt, vorið 2008, þegar hann var á 89. aldursári. Ármann var forseti Vísindafélags Íslendinga, var sæmdur stórridd- arakrossi fálkaorðunnar 1982 og fjölda annarra orða og heiðurs- merkja, íslenskra og erlendra. Hann var sæmdur heiðursdokt- orsnafnbót við Háskóla Íslands 1993, heiðursdoktorsnafnbót í lögum við Uppsalaháskóla 1970, við Ohio Northern University 1973, Hels- ingforsháskóla 1980 og Óslóar- og Kaupmannahafnarháskóla 1986. Haustið 2009 var sett á stofn fræða- stofnun við Háskóla Íslands í þver- vísindalegum fjölskyldufræðum. Hún er kennd við Ármann og nefnd Rannsóknastofnun Ármanns Snæv- arr um fjölskyldumálefni við HÍ. Ármann lést 15.2. 2010. Merkir íslendingar Ármann Snævarr 102 ára Theodór Jóhannesson 85 ára Hrafnhildur Bjarnadóttir Jóhanna A. Helgadóttir Kristín Björg Jóhannsdóttir Sigríður Hjartardóttir Sigurlaug Jónasdóttir Þórhildur Jónasdóttir 80 ára Brynjar Hreinn Jónsson Guðný Guðmundsdóttir 75 ára Arnleif Margrét Kristinsdóttir Ásdís Pétursdóttir Brynja B. Herbertsdóttir George Chandice Marshall Heiðrún Þorgeirsdóttir Ingjaldur Bogason Sigríður Vigfúsdóttir Valgerður Rósa Sigurðardóttir 70 ára Ásta Guðfinna Kristinsdóttir Guðný Sigfúsdóttir Jón Ögmundsson Magnús Gunnar Pálsson 60 ára Eiríkur Örn Höskuldsson Guðlaugur Jón Ólafsson Guðríður Hafsteinsdóttir Haraldur Konráðsson Józef Karlinski Ragnheiður Emilsdóttir Sverrir Þór Karlsson Sæmundur Þórarinsson 50 ára Bryndís Arna Lúðvíksdóttir Dóra Mjöll Stefánsdóttir Erla Björk Hauksdóttir Ester Harðardóttir Grétar Sigmarsson Guðlaugur V. Valdimarsson Guðmundur Hjörtur Jóhannesson Gunnar Jóhann Svavarsson Kristmundur B. Ríkharðsson Malgorzata Swierczewska Nathalie Jacqueminet Oddný Dóra Stefánsdóttir Sigurgeir Sigurðsson Suhong Zhang Sævar Halldórsson 40 ára Agnes Sigurðardóttir Anke Steiniger Anna Guðrún Sigurðardóttir Björgvin Ólafur Magnússon Davíð Stefán Guðmundsson Dóra Dís Hjartardóttir Hildur Rós Ragnarsdóttir James William Dickie Jón Halldór Pétursson Ólafur Auðunsson Pálína Gísladóttir Sigrún Jenný Barðadóttir Tímea Soós 30 ára Anna Rós Lárusdóttir Ásta Sigríður Guðjónsdóttir Berglind Bjartmarsdóttir Berglind Harpa Björnsdóttir Elín Lára Árnþórsdóttir Elvar Steinn Þorvaldsson Hafþór Örn Gunnlaugsson Helena Jóhannsdóttir Jakob Friðriksson Mara Bonet Dall Arche Pantea Janati Tobias Weiser Til hamingju með daginn 30 ára Ragnheiður ólst upp í Reykholti í Bisk- upstungum, býr á Flúð- um, lauk prófum í farar- stjórn frá Ferðamálaskóla Íslands, hefur unnið hjá Geysi í Haukadal og er í fæðingarorlofi. Maki: Elvar Harðarson, f. 1985, gröfumaður. Dóttir: Guðbjörg, f. 2014. Foreldrar: Steinunn Bjarnadóttir, f. 1965, og Kjartan Jóhannsson, f. 1964. Ragnheiður Kjartansdóttir 30 ára Björk ólst upp í Reykjavík, býr í Kópavogi, er snyrtifræðingur og ÍAK- einkaþjálfari og starfar hjá heildversluninni Metico. Maki: Magnús Hjálm- arsson, f. 1982, sprengi- stjóri. Sonur: Birgir Snær, f. 2014. Stjúpsonur: Hjálm- ar, f. 2008. Foreldrar: Svanborg Gústafsdóttir, f. 1959, og Vörður Ólafsson, f. 1961. Þau búa í Reykjavík. Björk Varðardóttir 30 ára Birkir ólst upp í Svíþjóð og á Húsavík, býr í Mosfellsbæ, lauk sveins- prófi í rafvirkjun og nem- ur rafmagnstæknifræði. Maki: Berglind Jóna Kristinsdóttir, f. 1984, rekstrarverkfræðingur og innkaupastjóri hjá Elken. Börn: Kári Kristinn og Karen Helga, f. 2015. Foreldrar: Linda Björk Guðrúnardóttir, f. 1962, og Sigurður Guðjónsson, f. 1959. Birkir Sigurðarson FYRIR BETRI BORGARA LANDSINS Prófaðu hamborgarasósuna frá E. Finnsson og gerðu gott betra. 31 18 -V O G – V E R T. IS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.