Morgunblaðið - 18.09.2015, Page 36

Morgunblaðið - 18.09.2015, Page 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er affarasælast að vita gjörla með hverjum maður deilir sínum innstu skoð- unum. Hafðu í huga að þú ert hluti af fjöl- skyldu sem er mannkynið, það þrá allir ást og hamingju. 20. apríl - 20. maí  Naut Frelsaðu þig undan fjötrum íhaldssem- innar og verk þín öðlast nýja dýpt. Reyndu að skipuleggja tíma þinn betur bæði í vinnunni og heima. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Láttu bara slag standa og farðu af stað með óskaverkefnið. Settu þig í gír og taktu þátt í atburðum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Gættu tungu þinnar því aðrir eiga það til að vera mjög auðsærðir. Hafðu þetta í huga þegar leitað er til þín. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Staða himintunglanna gerir það að verkum að áætlanir þínar ganga ekki upp. Lærðu að segja nei áður en það verður of seint. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ert að eyða meiri peningum þessa dagana en þú ert vön/vanur. Sýndu því þol- inmæði og stattu storminn af þér. Möguleik- arnir eru ótal margir. 23. sept. - 22. okt.  Vog Mundu að svo uppsker maðurinn sem hann sáir til. Mundu að það er betra að þurfa ekki að þræta fyrir neitt. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú vilt að aðrir fari að dæmi þínu í vinnunni eða við einhvers konar skipulagn- ingu. Mundu að við uppskerum eins og við sáum. Ekki hika við að láta skoðun þína í ljós. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er engin ástæða til þess að fela allar sínar tilfinningar. Gefist tækifæri til að öðlast starfsframa skaltu grípa það. Sam- skipti þín við systkini þín eru sérlega uppörv- andi og gefandi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Vertu ekki hræddur við að taka málin í þínar hendur. En það er betra að keppa á ópersónulegan máta, á sviði sem nýtur góðs af keppnisandanum, í stað þess að togast á um yfirráð við ástvini. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Einhverra hluta vegna virðast allir leita til þín með vandamál sín. Hafðu ekki áhyggjur því málin leysast á farsælan hátt. Þú verður að hlýða á þína innri rödd. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ekki standa of fast á þínu varðandi skiptingu eigna eða ábyrgðar í dag. Ekkert er dýrmætara en heilsan og það hefnir sín grimmilega ef gengið er á hana í lengri tíma. Kristinn R. Ólafsson fór meðþessa limru á Boðnarmiði á mánudaginn: Ef Valgerði vangað ég fengi ég veit að hún ynni mér lengi því þótt að utan sé smár ég að innan er hár á við alstærstu og fræknustu drengi. Skagafjörður hefur löngum státað af góðum hagyrðingum. Jón Gissurarson hafði orð á því að allmargir bjartir og fallegir dagar hefðu komið nú í septem- ber: Ennþá lagast lífsins þrá lifnar bragagjörðin. Ó! hve fagurt er að sjá yfir Skagafjörðinn. Ingólfi Ómari Ármannssyni féll þetta vel: Röðull fagur brosir blítt baðar haga jarðar. Alla daga hugsa hlýtt heim til Skagafjarðar. Jón Gissurarson svaraði að bragði: Liprar vísur líkar mér læt þær stundum flakka. Undirtektir ykkar hér er mér ljúft að þakka. Gísli Brynjúlfsson kvað við skagfirska smalastúlku á því herrans ári 1847: Minn er bragurinn, menja-gná, margvíslega skaptur! Hvað mun dagurinn heita sá, Er hér vér sjáumst aptur? Um Kerlingu, hæsta fjall í Eyjafirði, rétt yfir Hrafnagili, orti Gísli: Fagur þykir mér fjörðurinn Eyja fús í honum vildi ég deyja, þar sem undir köldustum klaka Kerling á mig liti hin staka. Þetta sama haust orti hann á Vaðlaheiði: Kaldur vindur næðir nóg, nú er ég á heiði þolgóður á þunnri dróg, þeygi í jómfrúleiði. Þorfinnur Jónsson á Ingveldar- stöðum var á ferð um Skagafjörð: Augað gleður hin fagra fold í firðinum kenndum við skaga. Hér svífur í lofti og liggur í mold litrík en blóðug saga. Þorfinnur slappaði af í haust- blíðunni og orti: Hugljúft að líta yfir heiðanna lendur hrífandi litbrigði í mó. Tilveran öll sem á öndinni stendur í algerri kyrrð og ró. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Úr Skagafirði og austur um Í klípu „SÁ SEM ÞÚ VINNUR MEÐ ER VINNUALKI Í MEÐFERÐ. VIÐ MUNUM BARA ÞURFA ÞIG ÞANGAÐ TIL HANN DETTUR AFTUR AF VAGNINUM.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG SÉ AÐ ÞÚ ERT Á LEIÐINNI Í FERÐALAG.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar ég hef þig til að halda á mér hlýju. GRAFA GRAFA GRAFA GRAFA GRAFA MEIRA AÐ SEGJA ÉG HEF ALDREI VERIÐ SVONA SVANGUR HVAÐ LOFAR BETRI TÍÐ EN FYRSTI DAGUR VORSINS? INNANTÓM LOFORÐ Eftir að Ísland tryggði sér þátttöku íúrslitakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu karla í Frakklandi næsta sumar hefur töluverð umræða verið um mikilvægi þess að reisa þjóðar- leikvang. Í því sambandi má nefna að nemendur í Háskólanum í Reykjavík fengu það verkefni í liðinni viku að koma með hugmyndir í þessa veru og mátti sjá margar forvitnilegar til- lögur. x x x Geir Þorsteinsson, formaður Knatt-spyrnusambands Íslands, hafði varla sleppt orðinu um málið eftir að sætið í úrslitakeppninni var tryggt, þegar niðurrifsraddir hófu að kæfa umræðuna. Einna neikvæðastur var borgarstjórinn í Reykjavík en fjár- málaráðherra vakti athygli á því að kostnaður við þjóðarleikvang þyrfti ekki að lenda á ríkissjóði. x x x Viðhorf borgarstjóra í þessu málikemur knattspyrnuunnendum ekki á óvart, en Víkverji er á því að knattspyrnuhreyfingin eigi ekkert að vera að trufla manninn. Þvert á móti á hún að skoða málið með opnum huga án þess að einblína á Reykjavík og Laugardalinn. x x x Formaður KSÍ nefndi að hann vildilíf í Laugardalinn og þjóðar- leikvangur yrði liður í því. Víkverji vill ganga lengra, fá líf í landið og sér fyrir sér þjóðarleikvang sem hluta af mun stærra mengi. x x x Icelandair þarf sér flugstöð á Kefla-víkurflugvelli og þjóðarleikvangur gæti verið lítill hluti af því mannvirki. Í flugstöðinni gæti líka verið hótel, úr- val verslana, veitingastaða og skemmtistaða, leiktæki fyrir börn, tí- volí og svo framvegis. Á leikvanginum mætti halda tónleika reglulega, vera með vörusýningar, aðrar sýningar og viðburði. Flugstöðin yrði þannig sér- stakt aðdráttarafl eins og til dæmis flugstöðin á flugvellinum í München í Þýskalandi, verslunarmiðstöðin WEM í Edmonton í Kanada eða Mall of America, verslunarmiðstöðin í Min- neapolis í Bandaríkjunum, svo dæmi séu tekin. víkverji@mbl.is Víkverji Sælir eru þeir, sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu, því að þeir munu saddir verða. (Matt 5:6) Sendum í póstkröfu s: 528 8200 Með fallega lokka

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.