Morgunblaðið - 18.09.2015, Síða 38

Morgunblaðið - 18.09.2015, Síða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „Þú vilt ekki vita það,“ segir Baltas- ar Kormákur, léttur í bragði, þegar blaðamaður spyr hann hvað hann sé búinn að fara í mörg viðtöl vegna kvikmyndarinnar Everest sem hann leikstýrði og var frumsýnd á kvik- myndahátíðinni í Feneyjum 2. sept- ember sl. en Baltasar hefur veitt viðtöl nær linnulaust síðan. Almennar sýningar á Everest hefjast hér á landi í dag. Myndin er byggð á sannsögulegum atburði, segir af einu mannskæðasta slysi sem orðið hefur á hæsta fjalli jarð- ar, þegar átta fjallgöngumenn fór- ust þar í aftakaveðri 11. maí árið 1996. Heimsþekktir leikarar leika í myndinni, m.a. þau Jake Gyllenhaal, Jason Clarke, Josh Brolin, John Hawkes, Robin Wright, Emily Wat- son og Keira Knightley og tveir ís- lenskir að auki, Ingvar E. Sigurðs- son og Charlotte Bøving. Þá fer sonur Baltasars, Stormur Jón Kor- mákur, einnig með aukahlutverk, skv. vefnum Internet Movie Data- base. Barátta upp á líf og dauða Baltasar er beðinn um að rekja sögu myndarinnar í stuttu máli, segja frá því hvað kom fyrir fjall- gönguhópinn þennan örlagaríka dag árið 1996. Hann segir atburðina hafa átt sér stað um það leyti er markaðssetning á Everest-ferðum var að hefjast. „Þetta voru allt mjög reyndir kappar sem voru að gera þetta og það koma alls konar vanda- mál upp, eins og við Íslendingar þekkjum, þegar verið er að fara með ferðamenn út í náttúruna. Þannig að þetta er bæði saga af leiðsögumönnum og viðskiptavinum, fólki sem borgar fyrir að fara upp á fjallið. Ákveðin mistök eru gerð á leiðinni, mörg smámistök sem verða til þess að hópurinn lendir í erfið- leikum. En það sem gerir útslagið er vonskuveður sem menn áttu ekki von á og þá verður þetta barátta upp á líf og dauða,“ segir Baltasar. Baltasar segist frá upphafi hafa sett sér að skapa trúverðugar per- sónur og frásögn. Því hafi bæði þurft að sýna mistökin sem hóp- urinn gerði og þau hetjulegu afrek sem voru unnin á fjallinu. „Ég fór til Nýja-Sjálands og fékk að hlusta á upptökur af öllum deginum og því sem á eftir kom, af samskiptum við þau uppi á fjallinu í gegnum tal- stöðvar,“ segir Baltasar. Þau samtöl komi hvergi fyrir í þeim bókum sem skrifaðar hafi verið um slysið en unnið hafi verið með þau í mynd- inni. „Það síðasta sem ég vildi gera var að kreista þetta í einhverja Hollywood-klisju, búa til einhverja vonda karla og hetjur sem voru ekki til á fjallinu á þessum degi. Ég reyni að vera mjög heiðarlegur,“ segir Baltasar og bætir við að það sé óvenjulegt fyrir Hollywood-mynd af þessari stærðargráðu. -Er atburðarásinni þá fylgt ná- kvæmlega eftir í myndinni? „Já, við vorum mjög nákvæmir hvað hana varðar. Auðvitað þarf að velja sjónarhorn og svona til að halda spennu í sögunni en fólk er ekki látið gera eitthvað sem vitað er að það gerði ekki.“ Svakalegt ævintýri Útitökur myndarinnar fóru fram á Everest í Nepal og Dólómítafjöll- um á Ítalíu við erfiðar aðstæður, eins og mikið hefur verið fjallað um í íslenskum og erlendum fjölmiðlum. Tökulið þurfti m.a. að þola 30 stiga frost á Ítalíu í sex vikur og bera þungar byrðar við rætur Everest. „Lukla-flugvöllurinn er hættuleg- asti flugvöllur í heimi, það er stað- reynd og eftir að við komum þangað voru engir bílar, bara asnar og sauðnaut til að bera dótið. Svo urðu menn bara að bera þetta sjálfir, all- ar vistir og græjurnar,“ segir Balt- asar. Þá hafi tökulið og leikarar þurft að sofa í óhituðum húsum og halda á sér hita á nóttunni með sjálfhitandi teppum. „Þegar við vor- um komin eins hátt upp og trygg- ingafélögin leyfðu fór fólk að verða ansi illa haldið af fjallaveiki og þá þurfti að kalla til þyrlur og fljúga fólki hratt niður. Þannig að þetta var svakalegt ævintýri.“ -Hvernig lagðist þetta í leik- arana? „Ég var náttúrlega búinn að leggja þetta upp við þá, þeir vissu að hverju þeir gengju. En þetta tók oft á og á tímabili voru einhverjir á því að fara að hætta sem var ekki í boði,“ segir Baltasar. -Var aldrei hætta á ferðum? „Ja, það voru stöðugar snjóflóða- viðvaranir þegar við vorum í Dóló- mítafjöllum og við misstum leik- myndirnar í snjóflóðum. Það var viðvarandi hætta, í næsta dal dó fólk í snjóflóði og þyrla fórst á lend- ingarstaðnum okkar þegar við vor- um í Nepal. Þannig að jú, jú, það var viðvarandi tilfinning fyrir hættu.“ Spurður að því hvort hann hafi velt því fyrir sér af hverju fólk legði þetta á sig, að klífa Everest, segir Baltasar að það sé eins og öll ævin- týri, t.d. að fara út í geim. „Það er spurt að þessu í myndinni og menn gefa sín svör en hver hefur sínar ólíku forsendur. Þetta er eins og að spyrja um tilgang lífsins,“ segir Baltasar. Fólk hafi þörf fyrir að kanna þolmörk sín og komast um leið að einhverju nýju um sjálft sig. „Ég fer upp á hálendi og ríð á hest- unum mínum á meðan aðrir liggja í sólbaði á Mallorca. Það er besta sumarfrí sem ég fæ þó ég sé í 14 tíma á hestbaki og enginn tilgangur með því í sjálfu sér. Þannig að þetta er einhvers konar tilvistarspurning, þessi þörf fyrir að tengjast nátt- úrunni og þetta er öfgafyllsta leiðin. Ekkert eitt svar er til við þessari spurningu.“ Með kökk í hálsinum -Bandaríska fjallgöngukonan Al- ison Levine, sem klifið hefur hæstu fjöll jarðar, m.a. Everest, mætti á frumsýningu myndarinnar í Holly- wood í síðustu viku og sagði þar að myndin væri sú raunsæjasta eða ná- kvæmasta sem hún hefði séð þegar kemur að því að lýsa aðstæðum á fjallinu. „Já, ég hitti hana eftir sýninguna og hún var gjörsamlega heilluð, sagði að þetta væri nákvæmlega eins og hún hefði upplifað fjallið,“ segir Baltasar. -Þá hefur nú farið um þig sælu- hrollur? „Jú, jú og fleiri sem hafa farið þarna upp hafa sagt þetta. Að það sé með ólíkindum hvað við náðum þessu vel,“ segir Baltasar. Hvað viðbrögð áhorfenda varðar segir Baltasar að þau hafi verið rosalega sterk og margir hafi verið með kökk í hálsinum. „Ég hef aldrei upplifað eins sterk viðbrögð og voru á frumsýningunni í Hollywood,“ segir hann. Spurður að því hvað taki nú við hjá honum segir Baltasar að hann hafi fengið mörg risatilboð sem þurfi að skoða, þar af eitt ákaflega spennandi og svo þurfi hann að reyna að klára þau verkefni sem hann hafi tekið að sér. -Þetta tilboð sem er rosalega spennandi er væntanlega „top sec- ret“? Baltasar hlær. „Já, ég get því miður ekki sagt frá því en það verð- ur í heimsfréttunum ef af því verð- ur.“ Engin Hollywood-klisja  Kvikmyndin Everest frumsýnd í dag  „Það var viðvarandi tilfinning fyrir hættu,“ segir leikstjór- inn Baltasar Kormákur um tökur myndarinnar í Nepal  Raunsæ frásögn af mannskæðu slysi Ljósmynd/Jasin Boland Harmsaga Baltasar við tökur á Everest með leikaranum Jason Clarke sem fer með hlutverk fjallaleiðsögumannsins Rob Hall sem fórst á fjallinu 1996. Verið alltaf velkomin í Kolaportið! Opið laugardaga og sunnudaga kl. 11-17. Næg bílastæði við Kolaportið Það liggja allar leiðir til okkar – veldu þína! Kolaportið er umkringt af bílastæðahúsum. Vesturgata · Mjóstræti Fjöldi stæða 106 Ráðhúsið · Tjarnargata 11 Fjöldi stæða 130 Traðarkot · Hverfisgata 20 Fjöldi stæða 270 Kolaportið · Kalkofnsvegur 1 Fjöldi stæða 270 K V IK A

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.