Morgunblaðið - 18.09.2015, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 18.09.2015, Qupperneq 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Þetta verk Mike Bartlett, At, hlaut bresku Olivier-leiklistarverlaunin árið 2013 sem besta nýja leikritið þar í landi,“ segir Kristín Eysteins- dóttir, leikhússtjóri Borgarleikhúss- ins og leikstjóri sýningarinnar sem verður frumsýnd á Nýja sviðinu í kvöld. „Kveikjan að verkinu var sú að höfundurinn sá nautaat á Spáni og fór þá að velta fyrir sér hvernig mætti yf- irfæra þær kring- umstæður á líf nútímamanns- ins,“ segir hún. „Bartlett býr í London og valdi að yfirfæra nautaatið á ungt skrif- stofufólk á uppleið innan fyrirtækis. Hann segir Lundúnaborg fulla af fólki sem fer í jakkaföt á hverjum degi og mætir í vinnuna til að sigra. Og samkeppnin geti verið svo gríð- arlega mikil á vinnustöðum að fólk geti engum treyst.“ Hið dýrslega í manninum Kristín segir kringumstæðurnar í verkinu vera með þeim hætti að þrír samstarfsfélagar bíði komu yf- irmannsins á skrifstofuna og þau vita að einu verði sagt upp vegna niðurskurðar innan fyrirtækisins. „Yfirmanninum seinkar og meðan þau bíða hans þá para tveir starfs- mennirnir sig saman gegn þeim þriðja,“ segir hún. „Þau grafa al- gjörlega undan honum, á mjög klók- an hátt, og beita öllum brögðum. Þetta er eins og nautaatið, þau egna þann staka og það er verið að skylmast með orðum allan tímann. Þessi tvö sem taka þann þriðja fyrir eru mjög fljót að hugsa, orðheppin, skemmtileg og setja hlutina í ákveðnar umbúðir svo það er erfitt að festa fingur á að þau séu að beita hann ofbeldi.“ Kristín segir At vera mjög sterkt leikaraverk þar sem spurt er hvað við séum reiðubúin að gera til að lifa af. „Við teljum okkur vita hver við erum en við vitum hins vegar ekki hver við getum orðið, ef við erum sett í ákveðnar kringumstæður. Við slíkar aðstæður, þar sem spurt er hvort það eigi að lifa af eða næsti maður, þá getur fólk gert hluti sem það veit ekki að það hefur í sér. Höfundurinn er að velta þessu frumeðli fyrir sér, hinu dýrslega í manninum. Þetta er í raun bara frumskógarlögmálið,“ segir Kristín. Svo mætir yfirmaðurinn og í ljós kemur hvernig mál þróast. Tilfinningaferðalag At er býsna knappt verk, frekar stutt og er leikið án hlés. „Það held- ur okkur allan tímann og er í raun keppni frá fyrstu mínútu og til loka,“ segir Kristín. Það er undirstrikað í uppfærsl- unni með því að verkið er ekki sett upp í skrifstofuumhverfi heldur er leikið í einskonar áflogahring. „Það er leiðin sem við ákváðum að fara og höfundurinn gefur okkur ákveðnar leiðbeiningar hvað það varðar. Í verkinu eru engar sviðs- lýsingar, textinn er allur samfelldur, fyrir utan að á fyrstu blaðsíðunni segir hann að áhorfendur eigi að safnast umhverfis leikarana og að varla eigi að vera um sviðsmynd eða sviðsmuni að ræða,“ segir hún. Ein- beitingin eigi öll að snúast um stíg- andina í senunni. Þegar spurt er um uppsetningar á verkinu erlendis segir hún að það sé ekki alltaf sett upp á bardaga- sviði, eins og hér, en áherslan á ein- faldleikann sé alltaf mikil eins og höfundurinn mælir fyrir um. „Þetta er í raun það sama og í verki eftir Shakespeare, við erum að skoða hvað hægt sé að gera með orðunum. Hvernig má nota orðin sem vopn? Vinnan með leikurunum hefur verið afskaplega skemmtileg. Baráttan í verkinu er skýr frá upp- hafi en um markvissa uppbyggingu er að ræða og þetta er ekki síst mik- ið tilfinningaferðalag hjá persón- unni Tómasi, sem er tekinn fyrir. Verkið spyr meðal annars stórra spurninga um eðli samfélagsins sem við búum í, og hlutverk og vægi sið- ferðisins. Hvað er manneskjan í þessum harða samkeppnismiðaða heimi þar sem umbúðir skipta meira máli en innihald?“ Mikið hæfileikafólk Kristín Eiríksdóttir þýddi verkið og Gretar Reynisson hannar leik- mynd og búninga. Fjórir leikarar taka þátt í sýningunni, Valur Freyr Einarsson, Þorvaldur Davíð Krist- jánsson og tvö sem útskrifuðst úr Listaháskóla Íslands í vor sem leið, Eysteinn Sigurðarson, sem leikur Tómas, og Vala Kristín Eiríksdóttir. Kristín segist óhrædd við að velja nýútskifaða leikara í erfið burð- arhlutverk. „Ég er afskaplega ánægð með þau,“ segir hún. „Þetta er mikið hæfileikafólk, þau eru hugrökk og skapandi og það er alltaf gaman að kynna leikhúsgesti fyrir nýjum leik- urum. Hlutverkin eru mjög krefj- andi og sviðsetningin einnig, þau eru í mikilli nálægð við áhorfendur og hafa engar hækjur. Það er keppnin milli persónanna sem knýr þau áfram og því þurfa kring- umstæður og ásetningur að vera af- ar skýrir.“ Er erfitt fyrir hana að einbeita sér að krefjandi leikstjórnarverk- efnum og vera jafnframt leik- hússtjórinn? „Ég reyni að aðskilja þetta tvennt; þegar ég kem á æfingu þá skil ég hitt eftir fyrir utan,“ segir hún. „Þá er svo sterkur starfs- mannahópur í Borgarleikhúsinu að ég get algjörlega treyst því að ég sé ekki ómissandi meðan ég er að æfa. Minn bakgrunnur er leikstjórn og afar mikilvægt fyrir mig sem leik- hússtjóra að sinna því, þá fer maður út á gólf og stendur öxl við öxl með fólkinu sem maður er að vinna með, er að skapa og tengir sig inn í frum- kraftinn. Það veitir mér mikla nær- ingu því að þetta snýst jú allt á end- anum um löngunina til þess að búa til gott leikhús sem er ástæðan fyrir því að ég er í hinu starfinu. Ég hef annars hugsað mér að leikstýra eins og einu leikverki á hverju leikári, At er verkið mitt í ár og ég finn vel hvað þetta nærir mig og gefur mér bensín fyrir hitt starf- ið,“ segir Kristín að lokum. Nautaat fært á skrifstofuna  Verðlaunaleikritið At eftir Mike Bartlett frumsýnt í Borgarleikhúsinu  Tvö taka höndum saman gegn vinnufélaga þegar segja á einu þeirra upp Ljósmynd/Grímur Bjarnason Bardagahringur „Höfundurinn er að velta þessu frumeðli fyrir sér, hinu dýrslega í manninum,“ segir Kristín Ey- steinsdóttir leikstjóri um efni leikritsins At. Áhorfendur sitja umhverfis sviðið sem er eins og bardagahringur. Kristín Eysteinsdóttir 3/4 Jazztríó fær til liðs við sig söngkonuna Önnu Sóleyju á tónleikum í kvöld í Bjórgarðinum hjá Fosshóteli í Þórunnartúni 1 kl. 20. Þar verða flutt lög eftir Amy Winehouse ásamt nokkrum vel völdum djassstandördum sem Amy söng. „3/4 Jazztríó er nýlega stofnað tríó, skipað þeim Baldvini Snæ Hlynssyni á píanó, Ævari Erni Sig- urðssyni á bassa og Bergi Einari Dagbjartssyni á trommur. Þeir hafa verið iðnir við að spila og vinna að sinni fyrstu plötu. Píanóleikarinn Baldvin hefur nú þegar gefið út eina plötu, Og himinninn grætur. Platan kom út í fyrra en þá var Baldvin að- eins 16 ára gamall. Söngkonan og lagasmiðurinn Anna Sóley sendi ný- verið frá sér nýja smáskífu, „Wish I Knew“,“ segir m.a. í tilkynningu. Flytja lög Amy Winehouse Anna Sóley sem Amy Winehouse Myndlistarmað- urinn Ívar Val- garðsson heldur opinn fyrirlestur um verk sín og vinnuaðferðir í fyrirlestrarsal myndlist- ardeildar að Laugarnesvegi 91 í dag kl. 13. Ívar stundaði myndlistarnám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1971-75 og framhaldsnám í Hollandi við Stichting de Vrije Academie voor Beeldende Kunsten Den Haag árið 1977-80, ásamt dvöl í New York ár- ið 1989-91. Ívar hefur haldið yfir fimmtíu einka- og samsýningar bæði á Íslandi og erlendri grundu. Í erindi sínu mun Ívar stikla á og fjalla um helstu verk sín af ferlinum eins og tíminn leyfir. Frekari upp- lýsingar um verk Ívars eru á heima- síðunni: galeriekimbehm.com. Fyrirlesturinn fer fram á íslensku og eru allir velkomnir á meðan hús- rúm leyfir. Ívar ræðir verk sín og vinnuaðferðir Ívar Valgarðsson Ármú la 19 | S: 553-9595 | gahusgogn@gahusgogn. is | www.gahusgogn. is 1975-2015 GÁ húsgögn ehf. er traust fyrirtæki sem hefur verið á íslenskum markaði um árabil. Við leggjum áherslu á stílhrein, vönduð húsgögn og góða þjónustu. Við tökum málin þín í okkar hendur Sérsmíðum fyrir heimili og fyrirtæki 40 ára EVEREST 3D 4,7,9:30 MAZE RUNNER 6,9 NO ESCAPE 7 ABSOLUTELY ANYTHING 4 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar TILBOÐ KL 4 TILBOÐ KL 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.