Morgunblaðið - 19.09.2015, Side 8

Morgunblaðið - 19.09.2015, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2015 Að sögn forsætisráðherra hefurfullnaðarsigur nú náðst í Ice- save-málinu með því að Hollend- ingar og Bretar hafa fallið frá öll- um öðrum kröfum sínum en þeim sem beinast að inn- stæðutrygg- ingasjóðnum.    Icesave-málið varað vísu þegar búið í raun, en þó er jákvætt að kröfugerðarþjóðirnar tvær skuli loks fallast á eðlilegar lyktir máls- ins.    Annað stórt mál sem fyrri rík-isstjórn tókst einnig að flækja Íslendinga inn í er aðildar- umsóknin að Evrópusambandinu.    Sú umsókn hefur enn ekki veriðdregin til baka með fullnægj- andi hætti og nú liggur til að mynda fyrir að Samfylkingin mun reyna að endurræsa hana ef og þegar flokkurinn kemst til valda á ný.    Árni Páll Árnason sagði ástjórnarfundi Heimssýnar í vikunni að umsóknin væri enn „þjóðréttarlega í gildi og hafi ekki verið afturkölluð“.    Umsóknin hafi verið borin und-ir þjóðþing hvers aðildarríkis ESB og með því skapast þjóðrétt- arlegt samband og gagnkvæm þjóðréttarleg skuldbinding sem ekki hafi verið rofin.    Augljóst má vera að stjórn-arandstöðuflokkarnir á Al- þingi bíða aðeins færis að setja að- ildarvinnuna í gang á nýjan leik. Núverandi stjórnvöldum ber skylda til að hindra það með því að afturkalla umsóknina með óyggjandi hætti. Árni Páll Árnason Umsóknin enn í fullu gildi STAKSTEINAR Kringlunni 4c – Sími 568 4900 Vetrarkápurnar komnar Fylgist með okkur á faceboock Veður víða um heim 18.9., kl. 18.00 Reykjavík 8 skýjað Bolungarvík 7 skýjað Akureyri 9 alskýjað Nuuk 3 skýjað Þórshöfn 10 skýjað Ósló 17 heiðskírt Kaupmannahöfn 17 skýjað Stokkhólmur 16 skýjað Helsinki 15 skýjað Lúxemborg 16 léttskýjað Brussel 17 léttskýjað Dublin 16 skýjað Glasgow 18 léttskýjað London 17 léttskýjað París 16 skýjað Amsterdam 17 léttskýjað Hamborg 17 léttskýjað Berlín 18 heiðskírt Vín 22 skýjað Moskva 21 heiðskírt Algarve 23 heiðskírt Madríd 25 heiðskírt Barcelona 22 léttskýjað Mallorca 25 léttskýjað Róm 27 léttskýjað Aþena 27 heiðskírt Winnipeg 13 léttskýjað Montreal 25 léttskýjað New York 28 heiðskírt Chicago 23 alskýjað Orlando 27 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 19. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:02 19:42 ÍSAFJÖRÐUR 7:05 19:49 SIGLUFJÖRÐUR 6:48 19:32 DJÚPIVOGUR 6:31 19:12 Frans páfi hefur skipað nýjan Reykjavík- urbiskup kaþólskra, Davíð Tencer. Jafn- framt samþykkti hann afsögn Péturs Bürcher biskups af heilsufarsástæðum. Hinn nýi biskup verður settur í embætti laugardaginn 31. október n.k. Hinn nýi biskup heitir fullu nafni Dávid Bartimej Tencer. Hann fæddist 18. maí 1963 í Nová Bana í Slóvakíu. Hann hlaut prestvígslu 15. júlí 1986 í Banská Byst- rica í Slóvakíu fyrir biskupsdæmið Banská Bystrica. Davíð kom til Íslands árið 2004, var skipaður aðstoðarprestur í Maríusókn í Breiðholti í Reykjavík og hóf um leið íslenskunám. Árið 2007 var hann skipaður sóknarprestur í sókn heilags Þorláks á Reyðarfirði. Hann er félagi í prestaráði og ráðgjafanefnd Reykjavík- urbiskupsdæmis. Benedikt páfi XVI skipaði Pétur Bürcher biskup í Reykjavíkurbisk- upsdæmi árið 2007. „Eftir tuttugu og eins árs þjónustu í embætti biskups í Sviss og á Íslandi kveður Pétur Bürcher biskup af heilsufarsástæðum með trega fagurt land og ungt, og sem betur fer vaxandi bisk- upsdæmi,“ segir í frétt frá kaþólsku kirkjunni. Þar kemur einnig fram að um 13.000 kaþólskir búi á Íslandi. Upphaf trúboðs á Íslandi má rekja til 10. aldar. Nú er Ísland það Norðurlanda sem er með einna hæst hlutfall kaþólskra, eða um 3,5% allra íbúa. sisi@mbl.is Frans páfi skipar nýjan biskup Davíð Tencer  Davíð Tencer tekur við af Pétri Bürcher  13.000 kaþólskir búa á Íslandi Valgeir Sigurðsson, athafnamaður á Siglufirði, segist vera reiðubúinn til að gefa hið gamla frystihús Óskars Halldórssonar verði það til þess að vaxmyndasafn Óskars verði flutt norður til Siglufjarðar og sett upp í húsinu. Valgeir segir það algjört skilyrði fyrir gjöfinni að húsið verði notað undir safnið. Vaxmyndasafnið var fyrst sett upp árið 1951 en tekið úr sýningu ár- ið 1969. Það er í dag í vörslu Þjóð- minjasafnsins. Valgeir viðraði hug- mynd sína fyrst við þjóðminjavörð fyrir þremur árum en hefur ekki fengið viðbrögð síðan. Vill gefa hús undir vaxmyndir  Safn Óskars fari norður á Siglufjörð Sigló Hið gamla frystihús Óskars, nú í eigu Valgeirs Sigurðssonar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.