Morgunblaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Golli
Listasmíð Jón smíðar og gerir við strengjahljóðfæri, m.a. fiðlur, víólur og gítara. Hér eru nokkur hljóðfæri sem hann hefur smíðað.
algengari en áður var.“ Jón lætur
ekki duga að smíða fiðlur og víólur,
hann hefur einnig smíðað nokkra
kassagítara undanfarið.
Góður tónn þarf að vera í
viðnum, hann þarf að hringja
Hann segir að viðartegundin
skipti miklu máli þegar
kemur að því að velja
efni til að smíða úr
hljóðfæri.
„Í fiðlu er alltaf
notaður hlynur í bak,
hliðar og háls, en greni
í framhlið og íbenholt í
gripbretti. Vegna þess að harðviður
þarf að koma á móti mjúkvið svo
tónn hljóðfærisins berist út að fram-
an. Framhliðin er mikilvægasti part-
urinn, hún er kúpt og þar verður ví-
bringurinn til sem myndar hljóðið,
og því skiptir miklu máli að vanda
sig við smíðina. Það skiptir líka
miklu máli að vera með rétta þyngd.
Þegar maður er búinn að skera F-
holu í framhliðina og setja bassa-
bjálka innan í, þá er gott að fram-
hliðin vigti 98-100 grömm. Það skipt-
ir semsagt máli að kunna að lesa
viðinn. Viður er mismunandi gljúpur
og maður vill helst hafa mjög þéttan
við í fiðlunum. Ef viðurinn hefur
sprottið hratt þá er langt á milli ár-
hringja í honum og hann er léttur,
en ef hann er hægsprottinn þá er af-
ar þétt á milli árhringja og hann er
þyngri, meiri massi í honum, sem
hentar vel í fiðlusmíð. Og síðast en
ekki síst þarf að vera góður tónn í
viðnum, hann þarf að hringja,“ segir
Jón Marinó og bætir við að vissulega
sé nauðsynlegt fyrir fiðlusmið að
hafa tóneyra.
Hljóðfærin eins og afkvæmi
„Ákveðin element þarf að hafa í
huga við smíði á víólu og fiðlu, við-
arplöturnar mega ekki vera of þunn-
ar og það þarf að vera laus hringj-
andi í plötunni. Við
val á viðnum banka
ég og hlusta á hvað
er í gangi og hvernig
víbringurinn dreifist
um plötuna. Ég er
með litla hefla til að
hefla innan úr ef ég
er ekki ánægður með tóninn í viðn-
um. Fyrst klára ég úthliðar hljóð-
færisins en stilli svo allt innan frá.“
Jón Marinó segir að vissulega
fylgi því svolítil eftirsjá í hvert sinn
sem hann lætur frá sér hljóðfæri,
hann tengist gripunum meðan á
sköpunarferlinu stendur.
„Þessi hljóðfæri eru að sumu
leyti afkvæmi mín, þar sem mikið
nostur og nákvæmni liggur í hverju
handbragði, þar má ekki skeika
broti úr millimetra. Mér þótti erf-
iðast að breyta hugsun minni úr
sentimetrum í millimetra þegar ég
fór úr húsasmíði yfir í hljóðfæra-
smíði. En þetta liggur vel fyrir mér
og ég nýt þess að starfa við þetta.“
Martin Frewer keypti víólu
Jón segir það sem betur fer
hafa aukist að fólk láti handsmíða
fyrir sig hljóðfæri.
„Flestir minna viðskiptavina
sem kaupa af mér hljóðfæri eru
nemendur í tónlist og það er góð til-
finning að vita af hljóðfærunum með
langt framhaldslíf í höndum
tónlistarfólks. Svo er alltaf eitthvað
um lengra komna tónlistarmenn,
þegar ég hafði nýlokið við að smíða
víólu snemma á þessu ári, þá kom
hingað víóluleikarinn Martin Fre-
wer og prófaði hana. Hann var með-
limur í Sinfóníuhljómsveit Íslands
en spilar núna með tríói sem þessa
dagana er að ferðast um Bretland og
Ítalíu í tónleikaferð. Ég bauð honum
að taka víóluna með sér heim yfir
helgi og prófa hana almennilega.
Hann kom strax eftir helgina og
sagðist vilja kaupa víóluna, hann var
svo viss að hann skildi hana eftir
heima hjá sér. Þannig hefur þetta
oftast verið hjá mér, um leið og ég
klára hljóðfæri þá selst það fljótt.“
„Þá þótti nú ekki
efnilegt að fara í
hljóðfærasmíði,
það þótti dund.“
Hljóðfæraverkstæðið er í Braut-
arholti 22 í Reykjavík.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2015
HEILHVEITIKEXIÐ HEFUR EIGNAST FULLKOMINN JAFNINGJA
– NÝJA HAUST HAFRAKEXIÐ
HAUST FJÖLSKYLDAN STÆKKAR
LJÚFFENGT PAR SEM ALLIR ELSKA
Hún Barbara Cook hampaði sínum
vinningslauk í keppninni um þyngsta
laukinn, en hann var rúm sex kíló.
Keppnin fór fram í Yorkshire í Bret-
landi í gær en þar stendur yfir haust-
sýningin Harrogate Autumn Flower
Show og hluti af henni er keppni í of-
vöxnu grænmeti. Mikill mannfjöldi
kemur við á sýningu þessari, eða um
fjörutíu þúsund manns.
Keppt í ofvöxnu grænmeti
AFP
Grænt, vænt
og risavaxið
Félagið Origami Ísland
heldur opna félagsfundi
þriðja sunnudag í hverj-
um mánuði og kennir
gestum þá list að brjóta
pappír svo úr verði fögur
form og fígúrur sem fólk
kannast við undir nafn-
inu origami. Umsjón hef-
ur Jón Víðis Jakobsson
og verður fyrsti fundur á
morgun, sunnudag, kl. 15
í Borgarbókasafninu
Tryggvagötu. Aldeilis
fjölskylduvænt og
skemmtilegt að prófa.
Leshringurinn í bókasafninu í Spönginni hittist á ný á haustmisseri nk.
mánudag, 21. september, kl. 17.15. Tekin verður fyrir bókin Kata eftir Steinar
Braga, en hún vakti mikla athygli þegar hún kom út stuttu fyrir síðustu jól. Auk
þess verður rætt um ljóðabók að eigin vali.
Umsjón með leshring í Spöng hefur Herdís Þórisdóttir og hittist hann þriðja
mánudag í mánuði. Þeir sem vilja vera með í leshringnum geta skráð sig hjá
Herdísi á netfanginu: herdis.thorisdottir@reykjavik.is.
Gaman hjá bókasöfnum borgarinnar
Endilega farið í leshringinn
Origami Fjölskylduvænt og skemmtilegt.