Morgunblaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 12
Aflahæstu árnar Heimild: www.angling.is* Lokatölur ** Tölur liggja ekki fyrir Ytri-Rangá & Hólsá (20) Miðfjarðará (10) Blanda (14) Norðurá (15) Eystri-Rangá (18) Langá (12) Þverá-Kjarrá (14) Laxá á Ásum (2) Haffjarðará (6) Víðidalsá (8) Laxá í Dölum (6) Grímsá og Tunguá (8) Hítará (6) Vatnsdalsá (7) Laxá í Kjós (8) Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði Staðan 16. september 2015 7.210 5.777 4.806 2.886* 2.591 2.374 2.364* 1.680 1.660* 1.471 1.389 1.251 1.238 1.213 1.210 Á sama tíma í fyrra Á sama tíma 2013 2.453 4.821 1.602 3.554 1.903 2.610 924 3.351 2.373 4.176 557 2.605 1.195 3.373 974 1.029 821 2.158 625 836 176 684 458 1.486 391 ** 716 1.054 482 1.129 STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Samkvæmt upplýsingum á vef Landssambands veiðifélaga er lax- veiðitímabilið sem senn lýkur eitt af fjórum bestu en ólíklegt að það nái að slá metið frá árinu 2008. Þá segir þar að enn haldi aflinn úr húnvetnsku án- um áfram að slá öll fyrri viðmið. Þeg- ar sé metveiði í þremur ám, Miðfjarð- ará – þar sem löngu er búið að slá met hvað varðar veiði á stöng í náttúru- legri laxveiðiá, Blöndu og Hrútafjarð- ará. Þá sé einnig mjög góð veiði í Víði- dalsá og Vatnsdalsá, vel yfir meðalveiði, og rífandi gangur í Laxá á Ásum. „Þetta hefur verið mjög gott veiði- sumar,“ segir Pétur Pétursson leigu- taki Vatnsdalsár þar sem veiðisum- arið er þegar eitt af fjórum bestu síðasta aldarfjórðung. „Mér finnst fiskurinn reyndar hafa gengið frekar illa fram ána. Við höfum fengið mikið af fallegum eins árs laxi, þessa 68 til 72 cm, sem er virkilega fínt, eina 6, 7 tuttugu pundara og marga sem gæla við það, hvað lengd varðar, 96, 97 cm. En það sem er einkennilegast við sumarið er hve lítil bleikja hefur verið á þessu svæði hér, þó meira hafi verið af sjóbirtingi. Hins vegar virðist hafa komið nokkuð af vænni bleikju mjög seint.“ Um það getur blaðamaður vitnað, var hann í Vatnsdal í vikunni og sá þar talsvert af býsna stórri bleikju. Í liðinni viku veiddist 141 lax í Blöndu og er óvenjulegt að svo seint sé veitt á stöng þar um slóðir; veiði- menn njóta þess að Blöndulón hefur ekkert farið á yfirfall, eins og gerist yfirleitt í ágúst. Sigurður Ingi Guð- mundsson á Syðri Löngumýri er for- maður veiðifélags Blöndu og Svartár og segir að vissulega sé óvenjulegt að Blanda hafi verið tær í allt sumar. „Enn er að veiðast vel í ánni og ég veit ekki annað en að veiðimen séu ánægð- ir,“ segir hann. „Ég segi annars að það sé gott að fá ána á yfirfall, það hlífi fiskinum í lokin, en Blanda er vel sjálfbær.“ Glimrandi gott í Ytri-Rangá Þá hefur veiðin verið afar góð í Svartá, er komin í rúmlega 580 laxa sem er næstbesta veiðisumarið síðan skráningar hófust. Veitt er í hafbeitaránum langt inn í haustið og mjög góð veiði hefur verið í Ytri-Rangá síðustu vikur. Í þeirri síð- ustu var til að mynda 601 lax færður til bókar, á tuttugu dagsstangir. Kristinn Ágúst Ingólfsson hefur tals- vert verið við leiðsögn í ánni og segir mikið af laxi á öllum svæðum. „Í gær fengum við til að mynda fjórtán á tvær stangir, sem er glimrandi gott og ekki allir veiðimennirnir vanir,“ sagði hann. „Það er fiskur að stökkva úti um allt, mikið líf og ánægja hjá veiðimönnum.“ Athygli vekur að veiðin í Eystri- Rangá er talsvert lakari þetta sum- arið en í þeirri ytri, síðasta vika gaf til að mynda aðeins tæplega sjötíu laxa. Morgunblaðið/Einar Falur Metveiði Þorri Hringsson myndlistarmaður hefur sett í enn einn laxinn í Miðfjarðará og býr sig undir að landa. „Þetta hefur verið mjög gott veiðisumar“  Aflinn úr húnvetnsku ánum heldur áfram að slá öll met 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2015 Verslunareigendur! Réttarhálsi 2, 110 Reykavík | www.gm.is | Sími 535 8500 | info@gm.is Ítalskir pappírspokar í úrvali Flottar lausnir til innpökkunar allskyns vöru Eingöngu sala til fyrirtækja Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Þrír af síðustu fjórum úrskurðum endurupptökunefndar, sem fjallar um óskir um að taka upp mál, sem Hæstiréttur hefur dæmt í, hafa ver- ið samþykktir. Uppfylla þarf fjögur skilyrði til að dómur sé tekinn upp að nýju. Þau eru rakin hér að neðan. Ekki er al- gengt að endurupptökunefndin sam- þykki beiðni um endurupptöku en í 11 málum sem hefndin hefur fjallað um á árinu hefur átta verið hafnað. Á fimmtudag var endurupptaka samþykkt í máli manns þar sem meðferð málsins fyrir Hæstarétti þótti verulega ábótavant. Maðurinn var dæmdur í 18 mán- aða fangelsi fyrir að hafa á árinu 2010 veist með ofbeldi að öðrum manni, sem sat í bifreið sinni. Árás- armaðurinn sló með hafnaboltakylfu úr áli í rúðu bílsins með þeim afleið- ingum að rúðan brotnaði og glerbrot þeyttust í augu hins mannsins. Sá er nú blindur á vinstra auga og með 20% sjón á því hægra. Ekki nóg að birta dóm á heimasíðu dómstóla Sá sem framdi árásina og var dæmdur fyrir hana byggði kröfu sína um endurupptöku málsins á tvennskonar ástæðum. Annars veg- ar að héraðsdómur hefði ekki verið birtur honum þrátt fyrir lagaskyldu og hins vegar að ekki hefði verið rétt staðið að áfrýjun héraðsdómsins til Hæstaréttar Íslands. Í úrskurði endurupptökunefnd- arinnar um málið segir að dómur héraðsdóms hafi aldrei verið birtur sakborningnum en hann var ekki viðstaddur uppkvaðningu héraðs- dóms. Lögreglan hefði átt að birta hinum dæmda dóminn, en hann full- yrðir að dómurinn hafi aldrei verið birtur sér. Í úrskurðinum kemur einnig fram að sá sem framdi árásina hafi frétt af dómi Hæstaréttar frá þriðja manni. Þrátt fyrir umsögn ríkissaksóknara, þar sem kemur fram að dómurinn hafi birst á vefsíðu héraðsdómstól- anna og ætla megi að verjandi mannsins hafi kynnt honum efni dómsins féllst endurupptökunefndin ekki á þau rök. Hinn dæmdi byggði einnig á því að lögmaður hans í héraði hefði ekki haft réttindi sem hæstarétt- arlögmaður og því ekki haft heimild til að áfrýja málinu til Hæstaréttar. Orðrétt segir í lok úrskurðarins: „Með vísan til framangreindra ágalla er lúta bæði að birtingu og áfrýjun dóms héraðsdóms er óhjá- kvæmilegt að telja að skilyrði d-liðar 211. gr. laga um meðferð sakamála sé fullnægt, að verulegir gallar hafi verið á meðferð máls þannig að áhrif hafi haft á niðurstöðu þess.“ Fékk dóminn aldrei birtan  Endurupptaka samþykkt vegna meðferðar máls manns í Hæstarétti Morgunblaðið/Brynjar Gauti Dómstóll Árásarmaðurinn frétti af dómi Hæstaréttar frá þriðja manni. A. Fram eru komin ný gögn sem ætla má að hefðu verulega miklu skipt fyrir niðurstöðu málsins ef þau hefðu komið fram áður en dómur gekk. B. Ætla má að lögregla, ákærandi, dómari eða aðrir hafi haft í frammi refsiverða háttsemi í því skyni að fá fram þau málalok sem orðin eru, svo sem ef vitni eða aðrir hafa vísvitandi borið ranglega fyrir dómi eða föls- uð skjöl verið lögð fram og það hefur valdið rangri nið- urstöðu málsins. C. Verulegar líkur eru leiddar að því að sönnunar- gögn sem færð voru fram í máli hafi verið rangt metin svo að áhrif hafi haft á niðurstöðu þess. D. Verulegir gallar hafa verið á meðferð máls þannig að áhrif hafi haft á niðurstöðu þess. Fjögur skilyrði KRÖFUR UM ENDURUPPTÖKU ERU SKÝRAR Úr dómssal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.