Morgunblaðið - 19.09.2015, Síða 16

Morgunblaðið - 19.09.2015, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2015 LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 Gjafir sem gleðja Líttu við og skoðaðu úrva lið Glæsilegir skartgripir á frábæru verði Verð 45.400,- Demantur 6p. Verð 37.900,- Demantur 2p. Verð 69.000,- Demantur 11p.Verð 47.000,- Verð 35.900,- Verð 33.900,- BAKSVIÐ Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Endurskoðendaráð hefur að nýju boðað Guðmund Jóelsson, löggiltan endurskoðenda, í gæðaeftirlit og vís- ar í boðunarbréfinu, sem dagsett er 2. júní sl., til lagagreinar um að sjálf- stætt starfandi endurskoðendur skuli sæta gæðaeftirliti eigi sjaldnar en á sex ára fresti. Morgunblaðið fjallaði sl. vetur og vor ítrekað um þann ágreining sem uppi hefur verið á milli Guðmundar og endurskoðendaráðs, vegna þess að Guðmundur hafnar því að alþjóð- legir endurskoðunarstaðlar hafi lagalegt gildi hér á landi, en endur- skoðendaráð framkvæmir gæðaeft- irlit samkvæmt slíkum stöðlum, sem hvorki hafa verið þýddir á íslensku né formlega birtir. Stjórnarskrárvarin réttindi Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðn- aðar- og viðskiptaráðherra, hafnaði því að svipta Guðmund starfsrétt- indum sínum í maí í vor, líkt og greint var frá í Morgunblaðinu hinn 23. maí sl. Endurskoðendaráð hafði lagt það til við ráðherrann að Guðmundur yrði sviptur starfsréttindum. Rökstuðningur Ragnheiðar El- ínar fyrir því að fara ekki að tillögu ráðsins var eftirfarandi, líkt og fram kom í frétt í Morgunblaðinu hinn 30. maí sl.: „Það sem mér þótti skorta á hjá endurskoðendaráði, þegar það gerði sína tillögu, var að þarna er um stjórnarskrárvarin réttindi að ræða. Ég taldi að ég gæti ekki tekið undir það sjónarmið að svipta bæri endur- skoðandann starfsréttindum nema það hefði verið að undangenginni áminningu, þar sem viðkomandi hefði haft andmælarétt.“ Í sömu frétt kvaðst ráðherrann ekki vera í aðstöðu til að meta hvort endurskoðendaráð ætti að segja af sér. Þá boðaði Ragnheiður Elín jafn- framt að allsherjarendurskoðun á lögum um endurskoðendur myndi fara fram á vegum ráðuneytis henn- ar og nýtt lagafrumvarp yrði lagt fram haustið 2016. Taldi að málinu væri lokið „Ég taldi að málinu væri lokið með úrskurði ráðherra í vor, þar sem hún hafnaði tillögu ráðsins um að svipta mig starfsréttindum. Ég hélt að ég fengi vinnufrið fyrir end- urskoðendaráði a.m.k. þar til alls- herjarendurskoðun laga um endur- skoðendur er lokið,“ sagði Guðmundur í samtali við Morg- unblaðið í gær. Annað hefði komið á daginn. „Blekið var varla þornað á úrskurð- inum þegar ráðið lét að nýju til skar- ar skríða,“ sagði Guðmundur, „bæði endurskoðendaráð og ráðherra hafa sagt að með því að vísa máli til ráð- herra sé máli lokið. Svo hengja þeir sig á það, með því að vísa í 22. grein laga um endurskoðendur og skrökva því upp á mig að ég hafi neitað að sýna gögn. Það hefur komið berlega fram í öllum mínum málflutningi að ég neitaði að sýna gögn, einvörð- ungu á þeim forsendum að ég tel ekki löglegt að styðjast við al- þjóðlega endurskoðunarstaðla við gæðaeftirlit.“ Veitti sér heilbrigðisvottorð Hann segir að í bréfaskiptum hans og endurskoðendaráðs komi fram að ráðið hafni því að það kynni að vera vanhæft til að fjalla hlutlaust um mál varðandi hann eftir það sem á undan var gengið og hafi veitt sjálfu sér heilbrigðisvottorð um fulla og óskoraða hæfni sína. Jafnframt hafi ráðið kosið að beita að vissu marki ósannindum með því að slíta úr samhengi ummæli hans og fá út allt aðra niðurstöðu en rétt sé. Aðspurður hvernig hann hyggist bregðast við þessari boðun endur- skoðendaráðs, sagði Guðmundur: „Á þessari stundu veit ég það hreinlega ekki. Ég fékk bara formlega boðun um þetta í gær frá félaginu mínu. En ég lít á þetta sem valdníðslu endur- skoðendaráðs á hæsta stigi og heift- in í minn garð blasir við. Því verður vart trúað að það sé vilji löggjafans að stjórnsýsluverk- færi þess vinni á þeim nótum sem hér hefur orðið.“ Ætti að gera hlé á eftirlitsvinnu Guðmundur rifjar upp grein sem Stefán Svavarsson, löggiltur endur- skoðandi og dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, skrifaði í tímarit endurskoðenda árið 2013. Þar sagði Stefán m.a.: „Þykir þeim sem hér ritar full ástæða til þess að gera hlé á umræddri eft- irlitsvinnu, að minnsta kosti á meðan hvorki er sátt um lagalega stöðu al- þjóðlegra staðla né framkvæmd eft- irlitsvinnunnar.“ Þetta er valdníðsla á hæsta stigi  Endurskoðendaráð boðar Guðmund Jóelsson, löggiltan endurskoðanda, í gæðaeftirlit á nýjan leik  Viðskiptaráðherra hafnaði tillögu ráðsins í vor um að svipta Guðmund starfsréttindum Morgunblaðið/Júlíus Endurskoðun Guðmundur Jóelsson, löggiltur endurskoðandi til fjörutíu ára, taldi að máli hans væri lokið með ákvörðun Ragnheiðar Elínar frá því í vor þegar hún hafnaði tillögu ráðsins um að svipta hann starfsréttindum. „Það óskiljanlegasta af öllu í þessu máli er þó það að ráðuneytið og aðrir sem málið varðar hafa með öllum ráðum komið sér undan því að svara þeim grundvall- arspurningum sem deila þessi snýst um, þ.e. um gildi alþjóðlegu endurskoðunarstaðlanna á Íslandi,“ segir Guðmundur. „Eins og ítrekað hefur komið fram orðaði nefnd á vegum viðskiptaráðherra á sínum tíma þetta svo: „Nefndin telur að óvissa sé um lagalegt gildi al- þjóðlegra endurskoðunarstaðla og því nauðsynlegt að efnahags- og viðskiptaráðuneyti kanni hvort þeir hafi verið innleiddir með fullnægjandi hætti. Ástæða þessarar óvissu snýr einkum að þýðingu, skuldbindingargildi og formlegri birtingu staðlanna.“ Óvissa um lagalegt gildi ÁGREININGUR UM ALÞJÓÐLEGA ENDURSKOÐUNARSTAÐLA Guðmundur Jóelsson Hörður Pálsson, bak- arameistari á Akra- nesi, lést á Landspítala við Hringbraut í Reykjavík 15. sept- ember síðastliðinn, 82 ára að aldri. Hörður fæddist á Skagaströnd 27.3. 1933 og ólst upp á Sauð- árkróki. Foreldrar hans voru Páll Svein- björnsson, f. 8.3. 1909, d. 3.6. 1970, bifreiða- stjóri á Sauðárkróki, og Sigrún Ásbjörg Fannland, f. 29.5. 1908, d. 14.3. 2000, skáldkona. Eftir fermingu var Hörður á síld í eitt sumar. Hann lærði bakaraiðn hjá Guðjóni Sigurðssyni, bak- arameistara á Sauðárkróki, lauk sveinsprófi á tvítugsafmælisdeg- inum sínum og stundaði framhalds- nám í bakstri í Þrándheimi í Noregi 1953-54. Hann starfaði hjá Guðjóni í Sauð- árkróksbakaríi til 1958, tók þá við rekstri Alþýðubrauðgerðarinnar á Akranesi og rak hana 1958-63. Þá keypti hann bakaríið, breytti nafni þess í Harðarbakarí og starfrækti það til 1998. Hörður var einn af stofnendum Íþróttafélagsins Drangeyjar á Sauð- árkróki, en það sameinaðist ung- mennafélaginu Tinda- stóli 1948. Hann æfði og keppti í frjálsum íþróttum, sat síðar í knattspyrnuráði Akraness og var for- maður þess 1988-89. Hörður gekk ungur í stúku, var æðsti templ- ar stúkunnar Gleym- mérei á Sauðárkróki, starfaði í stúkunni Ak- urblóminu á Akranesi og sat lengi í stjórn Stórstúku Íslands. Hörður söng í kirkjukór Sauðárkróks og síðan í kirkjukór Akraness. Hann stofnaði, ásamt þremur öðrum, Skagakvartettinn, 1967 og starfaði í Oddfellow-reglunni frá 1960. Hörður var bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Akranesi 1974- 86, sat í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands, í stjórn Dvalarheimilis- ins Höfða og var stjórnarformaður Skipasmíðastöðvarinnar Þorgeir og Ellert á Akranesi 1994-2008. Hann var sæmdur fálkaorðunni 2003. Eftirlifandi eiginkona Harðar er Inga Þórey Sigurðardóttir, f. 12.7. 1933. Þau eiga fjögur börn og 13 barnabörn. Útför Harðar verður frá Akra- neskirkju fimmtudaginn 24. sept- ember kl. 11. Andlát Hörður Pálsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.